Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ 398 episodes

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Author

Kop.is

Category

Sports

Podcast website

www.kop.is

Latest episode

Jun 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gullkastið - Ekkert stress eftir tap gegn Spænska Stoke 19.02.2020

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Það tók alls ekki langan tíma að jafna sig á þessum misskilningi í gærkvöldi gegn afkvæmi Allardyce og Pulis og hans mönnum í Atletioco. Klárum þá á Anfield, næst á dagskrá er St. Mirren, viljum fá alla í Torfasons Black& White Army stuðningsmannaklúbb St. Mirren á Íslandi. 

Gullkastið - Kop.is í Madríd 18.02.2020

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Erum í Madríd að taka út stemminguna fyrir leik

Gullkastið - Innslag frá Gatwick 17.02.2020

Tilvalið að nýta stórskemmtilegan biðtíma í millilendingu í létt podcast Stjórnandi: Einar Matthías  Viðmælendur: Maggi og SSteinn

Gullkastið - Össur um Norwich 14.02.2020

Stjórnandi: Magnús Þórarinsson (Beardsley) Viðmælandi: Össur Skarphéðinsson  Upphitun fyrir Norwich með Össuri Skaprhéðinssyni 

Gullkastið - Síðasta Meistaradeildarsætið 11.02.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Kristján Gylfi Guðmundsson  Mesta spennan á þessu tímabili er baráttan um fjórða sætið, það eru sex lið í hörku baráttu um þetta rándýra sæti og kaldhæðni örlaganna er að Arsenal er ekki eitt af þeim. Sætið þeirra! Það hefur líka meira en nóg gengið á hjá þessum liðum í vetur og til að spá í spilin með okkur fengum við United manninn Kristján Gylfa...

Gullkastið/Innkastið – Hvenær fáum við (Staðfest)? 03.02.2020

Stjórnandi:  Magnús Már (Fótbolti.net) Viðmælendur:  Einar Matthías, SSteinn og Maggi. Skelltum okkur á skrifstofur Fótbolti.net og vorum með í Innkastinu. Fókusinn auðvitað á Liverpool en tókum auk þess snúning á enska boltanum almennt og því helsta í Evrópu.

Gullkastið - Svartnættið eftir Shrewsbury 27.01.2020

Stjórnandi: Maggi  Viðmælendur: SSteinn og Hafliði Breiðfjörð Síðast þegar Liverpool vann ekki fótboltaviðureign var þegar U9 ára liðið tapaði gegn Aston Villa á síðasta áratug. Það var því svekkjandi sjokk að missa Shrewsbury í aukaleik í bikarnum og það í miðju vetrarfríinu. Bölvaður óþarfi raunar og skiptar skoðanir um það hvernig Liverpool ætlar að tækla það. Wolves var hinsvegar klárað í deil...

Gullkastið: WGWTL 21.01.2020

Auðvitað var beðið eftir United með lagið sem andstæðingar Liverpool hafa af einhverjum undarlegum ástæðum dreymt um að heyra á Anfield í nokkra mánuði. Þetta gat ekki verið mikið fullkomnari tímasetning en í uppbótartíma gegn United til að gulltryggja sigurinn og svo gott sem afgreiða deildina í leiðinni. Þetta var besta fótboltahelgi á miðju tímabili í sögu enska boltans og það var hrikalega gam...

Gullkastið – Hvellsprungið á rútunni 11.01.2020

Stjórnandi:  Maggi Viðmælendur:  Maggi Þórarins (Beardsley), Eyþór, Daníel og Hannes. Það hjálpaði Motormouth ekkert að pakka í vörn á heimavelli gegn þeirri vél sem þetta Liverpool lið er orðið. Þáttur strax eftir leik og meirihluti pennanna samankomin í miðborg Sódómu. Einar og SSteinn sátu hjá á meðan Maggi tók stjórnvölin og fór yfir leikinn með pennum síðunnar.

Gullkastið - VARúlfar, Van Wilder og VaraVaraliðið 06.01.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Það er ekki hægt að koma því nægjanlega vel til skila hér á landi hversu mikill rígur er á milli Liverpool og Everton í Liverpool borg. Þessi tapleikur Everton í gærkvöldi er mögulega sá versti í nágrannaslag gegn Liverpool frá upphafi og það er svo sannarlega af nægu að taka. Van Wilder stjóri Sheffield United sló metið í flokki andstæðin...

Gullkastið - Stanslaus veisla 27.12.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Heimsmeistarar fyrir jól og titilbarátta Leicester afgreidd strax eftir jól. Þessi vika er búin að vera stanslaus veisla. Horfðum aðeins til baka á helstu atvikin á þessum áratug og eins var spáð í spilin fyrir áramótaleikjunum gegn Wolves og efsta United liði deildarinnar, Sheffield.

Gullkastið – Spilað daglega 19.12.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool spilar um gullið í Heimsmeistarakeppni Félagsliða en er úr leik í Framrúðubikarnum á Englandi, jöfnum okkur alveg á því. Börnin gerðu eins vel og hægt var að búast við af þeim, jafnvel betur en aðalliðið gerði í Katar. Minamino var í læknisskoðun í dag, koma fleiri leikmenn? Ancelotti og Arteta staðfestir hjá Everton og Arsenal, h...

Gullkastið - #Klopp2024 16.12.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Athletico Madríd í Meistaradeildinni svo lengi sem það verður ekki eldgos í Eyjafjallajökli! Klopp búinn að framlengja til 2024. Watford tekið með vinstri og forskotið eykst á toppnum. Fréttir vikunnar og Leicester - Man City. Börnin spila í deildarbikarnum á morgun á meðan fullorðnu strákarnir spila á HM félagsliða á miðvikudaginn. Nokkurn...

Gullkastið - Gini-Mini-Mane-Mo 12.12.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool vann ofvirkasta lið Evrópu sæmilega sannfærandi og virðast hafa tekið þeirra besta mann með sér heim eftir leik, Takumi Minamino sem var fullkomlega allsstaðar í leiknum enda búinn að drekka 17 Red Bull fyrir leik. Skoðum hvaða lið koma til greina sem mótherjar í 16.liða úrslitum og hvað við viljum. Botnliðið svo um helgina.

Gullkastið - Vendipunktur? 09.12.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Þessi vika var mögulega vendipunktur á tímabilinu, Liverpool skipti upp einn gír og náði í sex stig á meðan Man City misstieg sig aftur. Nóvemberuppgjör og næsta vika.

Gullkastið - Jonjo van Dijk 02.12.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool vann sinn leik og allir helstu andstæðingar Liverpool töpuðu stigum, fullkomið. Fórum um víðan völl í umræðu um síðustu viku og það sem er framundan.

Gullkastið - Óþolandi lið ef þú heldur ekki með því 25.11.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Fótboltaleikur er 90 mínútur plús uppbótartími og til að fá eitthvað gegn Liverpool um þessar mundir þarf að halda einbeitingu allan þennan tíma. Enn einn hugarfarssigurinn niðurstaðan um helgina með sigurmarki á lokamínútunum, dásamlegt. Framundan er eina liðið sem hefur unnið Liverpool á leiktíðinni og strax í kjölfarið heimaleikur gegn B...

Gullkastið - Tottenham gerði hvað? 21.11.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Stóru fréttir vikunnar voru að sjálfsögðu í fókus í þætti vikunnar þó þær snerti Liverpool ekki beint. Tottenham rak besta stjóra í nútímasögu félagsins og borgar samtals um 27m til að fá Mourinho í staðin til að vinna með Daniel Levy. Það ætti að sjónvarpa öllum þeirra fundum beint, Amazone Prime gæti séð um upptökurnar. Síðasti leikur Liv...

Gullkastið: Innkastið 11.11.2019

Stjórnandi: Magnús Már Einarsson  Viðmælendur: Einar Matthías, Maggi og SSteinn  Fórum á skrifstofur Fótbolti.net til að taka upp Innkastið sem fjallaði um veislu helgarinnar. Það er því ekki hefðbundið Gullkast í þessari viku. 

Gullkastið – Peaky Bastards 06.11.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það er nokkuð ljóst að Man City leikirnir eru stærstu leikir tímabilsins ef eitthvað er að marka þá spennu sem hefur verið að byggjast upp alla þessa viku. Fókus að sjálfsögðu töluverður á þeim leik en einnig þremur síðustu leikjum, endurkomunni í Birmingham, bullinu gegn Arsenal og þessum Genk leik sem enginn nennti að spá enda hugurinn á...

Gullkastið (TV): Októberuppgjörið 04.11.2019

Kynnum til leiks nýja dagskrárlið í samstarfi við Sport & Grill Smáralind, Gullkastið TV. Þetta er hugsað sem mánaðarlegur sjónvarpsþáttur af Gullkastinu þar sem við mætum á okkar heimavöll og gerum upp mánuðinn. Þetta er semi demo útgáfa en vonandi eitthvað sem við þróum áfram. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Gullkastið Extra - Jói Kalli um Aston Villa 01.11.2019

Stjórnandi: Maggi Þórarins Til að almennilega upp fyrir leik gegn Aston Villa þá er fátt betra en að fá toppþjálfarann, Liverpool-áhangandann og fyrrum leikmann Villa til spjalla stuttlega um fortíð, framtíð og nútíð. Það er enginn annar en góðkunningi Kop.is og gulldrengurinn Jóhannes Karl Guðjónsson sem spjallar við okkur

Gullkastið – Hendersonsokkur 28.10.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sex stig á City, miklu betra TV en Sex in the City. Tottenham fékk 0-1 forgjöf og spilaði eins og Pulis-lið allan leikinn en það dugði ekki til. Þrír risapunktar í toppliðaslag. Genk var lítið mál í Belgíu með miðjunni okkar allra inná. Verðum svo fremst í stafrófinu í næstu leikjum.

Gullkastið - Vont 1-1 tap 22.10.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool vann ekki deildarleik, það gerðist síðast 3.mars þannig að auðvitað var þörf á krísufundi og áfallahjálp áður en hægt að spá í næstu leikjum gegn Genk og Tottenham.

Gullkastið - United upphitun 15.10.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Rétt eins og þegar United var á toppnum þá á það sama við núna þegar þessu er öfugt farið, Liverpool - Man Utd er stærsti leikurinn í fótboltanum. Það er nóg að frétta innan sem utanvallar hjá United og því tókum við vel á þeirra sápuóperu.

Listen to the Gullkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.