Kop.is
Gullkastið
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.kop.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Gullkastið 2020 > 2021 05.01.2021 54:54
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Tap gegn Southampton ofan á tvö afleit jafntefli fyrir áramót. Liverpool er á barmi þess að vera í sinni fyrstu krísu í nokkuð langan tíma. Það er rosalegt prógramm framundan næstu mánuði og spurning hvort hópurinn verði eitthvað styrktur fyrir þau átök. Fórum yfir vonda byrjun á nýju ári.
Gullkastið - 2020 28.12.2020 1:27:59
Svekkjandi jafnteflistap gegn Allardyce fótbolta kom ekki í veg fyrir að við gerðum árið upp í lokaþætti fyrir áramót. 2020 var þrátt fyrir allt árið okkar, loksins loksins. Spáið í hversu ömurlegt ár þetta var fyrir þá sem halda alls ekki með Liverpool? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið - Rauð Jól 22.12.2020 1:11:08
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þriðja árið í röð er Liverpool á toppnum yfir hátíðarnar, Bobby Firmino kláraði Jose og félaga í toppslagnum og Roy Hodgson og hans menn áttu sannarlega ekki sjö dagana sæla. Það verður áfram rútubílafótbolti næst því Big Sam er mættur aftur og mætur á Anfield með sína menn í WBA.
Gullkastið – Gérard Houllier 15.12.2020 1:16:05
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Gérard Houllier féll frá í gærkvöldi og var þess mikla fagmanns minnst, Nagelsmann og hanns menn í RB Leipzig bíða í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, vikan var erfið í deild og Meistaradeild og næsta vika virkar voðalega þung vegna leikjaálags og meiðslalista.
Gullkastið - Dansað við Úlfa 07.12.2020 1:07:21
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Ajax var skúrað af Anfield í miðri viku og Úlfarnir étnir í gær. Áhorfendur loksins aftur á Anfield og liðið í fínum málum þrátt fyrir allt. Stefnir í áhugaverða og harða toppbaráttu eins og þetta er að spilast núna og næsta vika verður áhugaverð hvað liðsval Klopp varðar.
Gullkastið – Bullandi mótvindur 30.11.2020 53:54
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það er ekki margt sem dettur með Liverpool þessa dagana og ljóst að liðið er í smá krísu á toppi deildarinnar eins og Bill Shankly orðaði það einu sinni. Það hefur ekki fallið vafaatriði með Liverpool það sem af er tímabili og videodómgæslukerfið í heild sinni hefur undirstrikað það sem áður var haldið fram um enska dómara, þeir eru ekki n...
Gullkastið - Bakkað yfir Leicester 23.11.2020 1:13:20
Það var ekki að sjá á leik Liverpool að menn hefðu teljandi áhyggjur af endalaust löngum meiðslalista þegar Leicester kom á Anfield, svokölluð yfirpilun. Áhugverð úrslit í öðrum leikjum og næsta vika er mjög þétt með tveimur leikjum á dagskrá. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið – Erfitt að ná í lið 16.11.2020 56:41
Þetta tímabil stefnir í að verða eitt það versta í sögu félagsins er kemur að meiðslum lykilmanna og vondufréttirnar héldu heldur betur áfram að koma í þessari viku. Ef menn eru ekki meiddir eru þeir veikir af Covid. Það er stórleikur um næstu helgi gegn toppliði deildarinnar og gríðarlegt leikjaálag fram að áramótum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið - Góður punktur 09.11.2020 55:51
Liverpool skellti sér á toppinn um helgina með góðum endurkomusigri á West Ham, annar sigurinn í Meistaradeildinni og næsti leikur er annaðkvöld í Bergamo. Fórum einnig yfir það helsta úr umferð vikunnar á Englandi. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið - Liverpool á toppnum 02.11.2020 1:01:14
Liverpool skellti sér á toppinn um helgina með góðum endurkomusigri á West Ham, annar sigurinn í Meistaradeildinni og næsti leikur er annaðkvöld í Bergamo. Fórum einnig yfir það helsta úr umferð vikunnar á Englandi. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið – Kirkja Alisson Becker 27.10.2020 1:11:26
Liverpool komst aftur á beinu brautina með tveimur baráttusigrum, VAR áfram í sviðsljósinu og svipuð vika framundan. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið – Skyggnst inn í heim umboðsmannsins 19.10.2020 1:11:14
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Aggi Magnús Agnar umboðsmaður Stellar Group og fyrrum samherji okkar hérna á Kop.is fór yfir hörmungar helgarinnar með okkur, bransann sem hann er í og auðvitað var spáð í spilin fyrir stórleikinn sem er framundan í Meistaradeildinni. Aggi stofnaði fyrirtæki sem hét Total Football og því vel viðeigendi gestur fyrir viðureign gegn Ajax.
Gullkastið - Kristján Finnboga í spjalli 15.10.2020 40:42
Maggi Beardsley fékk sjálfan Kristján Finnbogason í spjall fyrir nágrannaslaginn enda ljóst að markmenn beggja liða hafa verið í fókus undanfarið.
Gullkastið - NBA / Project Big Picture / Meistaradeildin / Everton 12.10.2020 1:00:22
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool vann eiginlega NBA í vetur, ræddum aðeins Project Big Picture sem forráðamenn Liverpool og Man Utd er sagðir vera á bakvið og snúa að töluverðum breytingum á deildarfyrirkomulaginu á Englandi. Jurgen Klopp í fimm ár, Covid í Liverpool borg, Interlull - sóttkví og einangrun. Stórleikurinn gegn toppliði Everton. Úrvals klukkutími a...
Gullkastið – WTF 06.10.2020 57:33
Liverpool gerði hressilega í buxan sín á Villa Park. Varaliðið féll með sæmilegri sæmd úr deildarbikarnum Leikmannaglugganum lokaði Meiðsli og Covid smit lykilmanna Dregið í Meistaradeildinni Galið landsleikjahlé Þétt dagskrá og langt síðan Liverpool átti svona slæma viku.
Gullkastið - Hið raunverulega Liverpool 30.09.2020 1:00:00
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Arteta og félgar fengu heldur betur að sjá hið raunverulega Liverpool á Anfield. Hrikalega flottur leikur hjá okkar mönnum sem vonandi setur tóninn fyrir tímabilið. Það er svo deildarbikarleikur næst gegn sama mótherja áður Liverpool fer á Villa Park
Suðurlandsins eina von í Arsenal upphitun 25.09.2020 35:28
Suðurlandsins eina von Arilíus Marteinsson kom í spjall um sína menn í Arsenal Stjórnandi: Magnús Gunnlaugur Þórarinsson Viðmælandi: Arilíus Marteinsson
Gullkastið - Tökum Willan fyrir verkið 25.09.2020 1:16:51
Hlóðum í upphitun fyrir helgina í Hellinum. Lincoln afgreitt með yfirflæði af jákvæðum frammistöðum, áhugaverð byrjun tímabilsins hjá helstu andstæðingum Liverpool og stórleikur gegn Arsenal framundan um helgina. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið – Gleðivísitalan í hæstu hæðum 21.09.2020 1:09:51
Þvílík helgi, Thiago var staðfestur á föstudaginn, Jota staðfestur á laugardaginn og Liverpool var staðfest upp á sitt besta á sunnudaginn. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Liverpool með flöskudag á leikmannamarkaðnum - aukaþáttur 19.09.2020 27:08
Liverpool er farið að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum og stuðnignsmenn almennt hressir, fórum yfir kaupin á Thiago og Jota. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Magnús Gunnlaugur Þórarinsson og Ólafur Haukur Tómasson
Gullkastið: Leeds með læti 14.09.2020 53:08
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það var bullandi kraftur í nýliðum Leeds á tómum Anfield í fyrsta leik og nóg fyrir Klopp að vinna með á æfingasvæðinu í þessari viku fyrir stórleikinn á Stamford Bridge eftir viku
Gullkastið - Ballið að byrja 09.09.2020 1:15:29
Spáð í spilin fyrir nýtt og spennandi tímabil Nýliðar Leeds mæta á Anfield - skoðum það félag Þætti númer 300 fagnað! Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið - Fordómalausir tímar 31.08.2020 55:00
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Vesen á Wembley í samfélagsskildinum eftir stopult undirbúningstímabil. Hvað gerir Messi og hefur möguleg brottför hans dómínóáhrif sem gætu komið við Liverpool? Landsleikjahlé framundan en óvenju fáir í landsliðaverkefnum.
Gullkastið – Næsta tímabil byrjar um helgina 25.08.2020 59:12
Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: SSteinn og Einar Matthías Síðasta tímabil er loksins búið og Liverpool eru "bara" ríkjandi Heims- og Englandsmeistarar. Næsta tímabil byrjar næstu helgi og það verður líka okkar! Stutt pre-season er í fullum gangi, spáðum í Meistaradeildarsigri FC Bayern, slúðri tengdu Liverpool og öðrum liðum og ýmsu öðru að vanda.
Gullkastið - L´OL 17.08.2020 55:34
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Síðasta vika var bara nokkuð hressandi út frá schadenfreude sjónarmiðum í ljósi þess að Liverpool átti ekki leik og er satt að segja bara að hefja sitt undirbúningstímabil fyrir næsta vetur.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.