Grænkerið

Grænkerið

Society EN ↓ 63 episodes

Velkomin  í Grænkerið, hlaðvarpið sem fjallar um alla króka og kima veganisma og snertir á þeim málefnum sem grænkerar upplifa dags daglega. Talað er á mannamáli út frá raunverulegum aðstæðum og reynt að setja fram lausnir við hversdagslegum vandamálum á jákvæðan hátt.  Eva Kristjánsdóttir stýrir hlaðvarpinu en hún hefur verið vegan í 9 ár. Hún stofnaði Grænkerið með það að markmiði að skapa vettvang sem styður við grænkera á sinni vegan vegferð og minnir þau á að þau séu ekki eina vegan fólkið á landinu. 

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: graenkerid.buzzsprout.com

Author

Grænkerið

Category

Society

Podcast website

graenkerid.buzzsprout.com

Latest episode

May 20, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Að vera vegan á ferðalagi 20.05.2024

Loksins, loksins er kominn nýr þáttur af grænkerinu! Það eru miklar breytingar í loftinu og Grænkerið er á leiðinni í sumarfrí.  Eva er komin í mikla vinnuvertíð og við þurfum að stíga skref til baka. Okkur langar mikið að halda hlaðvarpinu gangandi en það er bara ekki geranlegt á þessum tímapunkti. Í þessum síðasta þætti fyrir sumarfrí ákváðum við að taka fyrir ferðalög, bæði innanlands og erlend...

Að ala upp vegan börn í ó-vegan heimi 13.04.2024

Seint koma sumir en koma þó.  Þáttur vikunnar kemur út aðeins á eftir áætlun vegna mikilla anna.  Þátturinn er persónulegur þar sem við ræðum okkar reynslu og upplifun af því að vera vegan foreldrar, að reyna að kenna börnunum okkar ákveðna lífshætti. Komum inná pælinguna um “ófullkominn veganisma” og hvað það getur reynst erfitt að lifa í þessum ó-vegan heimi.  Þátturinn er í boði Yipin Tofu —&gt...

Vegan páskar 19.03.2024

Grænkerið er þriggja ára! Takk fyrir að hlusta, takk fyrir að vera í hlustendavaktinni og takk fyrir peppið í gegnum þetta allt saman <3.  Í fréttahorninu ræðum við um Prettyboi tjokkó og nýja myndbandið sem feature'ar blettatíg og tígrisdýr í einkaeigu hjá manni úti í Dubai.  Við förum aðeins yfir páskahefðir og auðvitað páskaegg..  Og svo tilkynnum við páskauppskriftina í ár! Helduru að...

Fréttamolar, Ítalskt ævintýri og vangaveltur um páskamat 05.03.2024

Í þættinum í dag kom Rósa María í heimsókn og við höldum áfram að ræða um málefni sem hafa verið í umræðunni síðustu vikur.  Við ræddum um Kveiks þáttinn um blóðmerahald sem var virkilega vel gerður og fórum einnig yfir Kastljós viðtalið við framkvæmdarstjóra Ísteka. Rósa er á leiðinni í brettaferð til Ítalíu og ætlar að fara á michelin stjörnu veitingastað Í Milano! Staðurinn býður upp á grænmeti...

Einmannalegt að vera eini grænkerinn í vinahópnum 20.02.2024

Birta Ísey og Axel Friðriks kíktu í kaffi til Evu og ræddu um allt og ekkert í vegan útgáfu.  Við fórum yfir vegan fréttir úr samfélaginu eins og stofnfrumukjöt en aðallega ræddum við um hvernig það getur verið einmannalegt að vera eini grænkerinn í vinahópnum.  Við þráum sem mannverur að tilheyra hóp og það getur verið erfitt að upplifa sig öðruvísi og smá útundan. Með þættinum vildum við taka ut...

Vegan bollur, baunasúpur og börn á tyllidögum 06.02.2024

Í dag eins og svo oft áður sat með mér hin yndislega Rósa María og í dag kom einn auka gestur, hún Lúna sem þið heyrið í reglulega í gegnum þáttinn.  Við fórum yfir um dagana sem yfirtaka pínu febrúar sem eru að sjálfssögðu Bolludagur, Sprengidagur, Öskudagur og svo Valentínusardagurinn.  Hvernig bollur eru bestar? Er ómögulegt að gera vegan vatnsdeigsbollu?  Við förum yfir sænska öskudagsbúninga...

Fælir vegan merking fólk í burtu? 24.01.2024

Eva ræðir við Axel Friðriks, grafískan hönnuð og grænkera um hvort að vegan merkingar fæli fólk frá vörukaupum? Eru fyrirtæki að veigra sér við að merkja vörur vegan vegna viðbragða frá viðskiptavinum sem eru ekki vegan? Hvað veldur?  Skrifið endilega review á Apple podcast eða Spotify til að hjálpa hlaðvarpinu að lenda ofar í leitarvélum og ná til fleirri hlustenda <3. - Grænkerið er hlaðvarp...

Vegan næring með Guðrúnu Ósk (GÓ Heilsa) 09.01.2024

Útskýring á mannamáli um hvað fólk þarf í alvöru að spá í á vegan mataræði. Hvað getum við fengið beint úr næringunni og hvaða bætiefni ætti að taka aukalega.  Það er mikið af fordómum og misvillandi upplýsingum um veganisma í samfélaginu svo mér datt í hug að  fá einhvern í viðtal sem væri bæði með fræðilegan bakgrunn úr náminu en einnig að hafa lifað grænkeralífsstíl í fjölda ára. Guðrún Ósk hef...

Vegan pubquiz - Jólaleikarnir 2023 26.12.2023

Velkomin í vegan pubquiz og sannkallaða jólaleika!  Ég fékk til mín frábæra gesti, þau Rósu Líf, Axel Friðriks og Rósu Maríu til að keppa í vegan pod-kvissi þar sem einn sigurvegari fær titilinn MEGAVEGAN í ár.  Gleðilega hátíð og sjáumst í veganúar! - Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin...

Vegan jól 12.12.2023

Hátíðarnar nálgast og Jólakerið er hér til að aðstoða ykkur með jólamatinn!  Við höfum verið á fullu að taka upp matreiðslumyndbönd af gómsætum hátíðamat. Uppskriftir eins og grafinn gulrótarlox, fylltur krúttlingur, súkkulaði smjördeigs jólatré hafa verið birtar á facebook grúbbu Grænkersins, hlustendavaktin - á Instagram og TikTok. Við höldum áfram að birta vegan uppskriftir alveg fram að jólum...

Sjókvíaeldi útskýrt 28.11.2023

Í þættinum ræðum við Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins um sjókvíaeldi á Íslandi.  Jón rekur sögu þessa iðnaðs hér á landi og við köfum meðal annars ofan í  Umhverfisáhrif laxeldis Áhrif á villtan laxastofn Áhrif á eldisdýrin Efnahagsleg áhrif - Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlus...

Afhverju hættir fólk að vera vegan? 14.11.2023

Viðmælandi minn að þessu sinni er Axel Friðriks sem telst nú orðinn reglulegur gestur. Axel er grafískur hönnuður hjá Studio Fin og er ábyrgur fyrir nýja útlitinu á Grænkerinu, sem ég er í skýjunum með.  Í þætti dagsins ræðum við Axel um af hverju fólk hættir að vera vegan..    Hvaða hindrunum mætir vegan fólk og hvernig getum við stutt við þau?  Ef þú fílar þáttinn, skrifaðu endilega review til a...

Hryllingssaga og tilkynning 31.10.2023

Þessi þáttur átti að fjalla um hrekkjavökuna en hringsnérist í höndunum á tveimur með athyglisbrest og fjallaði nú minnst um það málefni. En hvað með það, gjörið svo vel.  Rósa María kíkir í heimsókn eins og svo oft áður og við fórum yfir hvað er á döfinni hjá Grænkerinu.  Eva segir frá raunverulegri hryllingssögu sem hún lenti í á dögunum,  Við ætlum að elda með ykkur fyrir jólin! Við leitum til...

Við þurfum róttækar kerfisbreytingar - Finnur Ricart 17.10.2023

Finnur Ricart Andrason, forseti Ungra umhverfissinna er gestur minn í þætti dagsins. Þema þáttarins eru kerfisbreytingar og við beinum kastljósinu að búvörusamningum.  Það hefur aldrei verið mikilvægara að stjórnvöld og aðrir aðrir valdhafar stuðli að því að fæðukerfin okkar séu endurmótuð til að þjóna hagsmunum samfélagsins. Þeir styrkir sem ríkið veitir í landbúnað í gegnum búvörusamninga ættu a...

Vegan heilsa - Rósa Líf Darradóttir læknir 03.10.2023

Þessi þáttur er NEGLA þó ég segi sjálf frá.  Rósa Líf Darradóttir, læknir, grænkeri og aktívisti kom til mín í alveg ótrúlega fræðandi viðtal þar sem við ræddum áhrif plöntumiðaðs mataræðis á heilsu okkar.  Hún fór nýlega erlendis á Vegmed, stærstu ráðstefnu plantbased heilbrigðisstarfsfólks í Evrópu.  Hún segir okkur frá ráðstefnunni og við förum um víðan völl til að kafa ofan í þetta víðamikla m...

HOT TAKES - Vegan edition 19.09.2023

ÚFF..  Í þessum þætti kom Rósa María, meðstofnandi Grænkersins í heimsókn og við tókum fyrir HOT TAKES vegan edition..  Það tók ekki langan tíma fyrir Evu að fara í flækju og ég er ekki frá því að þetta sé ponsu óþægilegt en ég meina þetta er bara á milli okkar..  Minni á að þetta eru okkar skoðanir en það er engin vegan lögregla sem ákveður hvað er rétt og rangt. You do you.  Þessi þáttur er í bo...

Vegan sambönd - Gætiru deitað aðila sem er ekki vegan? 05.09.2023

Gætir þú verið í sambandi með aðila sem er ekki vegan?  Þessari spurningu (og mörgum fleiri) reyndi ég ásamt Birtu Ísey og Axel Friðriks að svara í þættinum.   Við fókusum á ástarsambönd en komum þó einnig inná dínamík í samböndum milli vina og á milli foreldra og barna.  Við fórum yfir hvernig staðan er innan okkar sambanda og í lokin skoðum við einnig hvað hlustendur svöruðu þegar ég spurði ykku...

Vegan brúðkaup - Rósa María 22.08.2023

Í þessum þætti af Grænkerinu fáum við Rósu Maríu, einn af stofnanda Vegan búðarinnar og Jömm í heimsókn.  Hlustendur ættu að kannast við Rósu en kom einnig að stofnun Grænkersins og er sannkallaður frumkvöðull . Hún er einnig heljarinnar matgæðingur. Hún gifti sig í sumar og hélt að sjálfsögðu snar-vegan veislu innblásna af Jömm veitingum og sænskum snafsvísum.  Við fórum yfir veitingar, vín, fatn...

Á vegan fólk að bjóða upp á kjöt í veislum? 08.08.2023

Í þætti dagsins fær Eva hana Birtu Ísey í heimsókn en  Birta situr í stjórn Samtaka grænkera og segir okkur m.a. frá Vegan festivali sem verður haldið 20 ágúst 2023.  Eva byrjar á að segja Birtu frá  brúðkaupi sem hún fór í um daginn en þar var ALLT VEGAN! Hún segir henni einnig frá samræðum sem hún átti við non-vegan kunningja fyrir skömmu.  Hann vildi meina að vegan fólk ætti að sjálfsögðu að bj...

Er hægt að ná árangri í líkamsrækt á vegan mataræði? - Áslaug Guðný Unnsteinsdóttir einkaþjálfari 25.07.2023

Í þættinum ræðir Eva við Áslaugu Guðný Unnsteinsdóttur einkaþjálfara um allt sem viðkemur vegan líkamsrækt. Við förum yfir raunhæfar væntingar til mataræðis og þjálfunar og reynum að svara eftirfarandi spurningum:  Er hægt að telja macros á vegan mataræði Hvaða næringarsjónarmið þarf vegan fólk í líkamsrækt að spá í Hvaða vegan matur er próteinríkur og hvernig er hægt að koma honum inn í máltíðir...

Aktívismi og kulnun með Huldu Tölgyes 11.07.2023

Hulda Jónsdóttir Tölgyes, sálfræðingur, grænkeri og aktivisti kom í viðtal í Grænkerið og ræddu þær Eva um hvernig aktivismi hefur áhrif á geðheilsu þeirra sem hann stunda.  Í þættinum köfum við ofan í: Aktivisma, bæði í vegan skilning og í stóra samhenginu Hvað aktivistar geta gert til að hlúa að sér  Hvernig við hin getum stutt við aktivista Ef þú hefur gaman að þættinum hver ég þig til að ýta á...

Í svona dæmi þá sér maður hver spillingin og frændhyglin er á Íslandi - Vala Árnadóttir um aktívisma á Íslandi 30.06.2023

Gestur þáttarins er Valgerður Árnadóttir formaður Samtaka grænkera, varaþingmaður Pírata og dýraverndunar-aktívisti.  Vala  hefur lagt áherslu á að tala máli dýranna í pólitísku samhengi og hefur farið fremst í mótmælum og aktívisma í kringum hvalveiðar Íslendinga. Núna nýlega leiddi hún fimm samtök  saman undir átakinu Hvalavinir til að berjast gegn hvalveiðum með því að skipuleggja mótmæli, hald...

Ég borðaði kjöt og egg á Tenerife.. 15.06.2023

Þrír mánuðir frá síðasta þætti en hér erum við komin aftur! Eva er að útskrifast úr viðskiptafræði og nú fer Grænkerið á flug eftir smá vor-frí. Birta Ísey og Axel Friðriks kíktu í heimsókn og ræddu þau um stöðuna á vegan málum á Íslandi. *Eva segir þeim að hún hafi borðað bæði kjöt og egg á Tenerife (óvart).. Hvað þýðir það.. Er hún ennþá vegan? Við fórum einnig yfir fréttamola úr vegan samfélagi...

Vegan barnaafmæli 05.03.2023

Rósa frá Vegan búðinni settist niður með mér og við fórum yfir hvernig er hægt að halda vegan barnaafmæli. Hversu mikið vesen er að veganæsa afmæliskökur og klassíska veislurétti? Þátturinn er miðaður að afmælum fyrir börn á leik og grunnskólaaldri en við deilum hvað við höfum sjálfar boðið upp á í barnaafmælum og gefum einföld ráð til að afmælismaturinn slái í gegn.  Þátturinn er í boði Vegan búð...

Það sem ég hefði viljað vita áður en ég varð vegan 24.01.2023

Veganúar special!  Birta Ísey og Axel Friðriks frá Samtökum grænkera settust niður með mér og við ræddum um hvað við hefðum viljað vita áður en við gerðumst vegan..  Við fórum yfir hvernig það er að lifa með veganisma, vinasambönd og almenn samskipti við annað fólk (sem er ekki vegan). Þátturinn er í boði Vegan búðarinnar og veitingastaðarins Monkey’s. Intro:  Promoe - These walls don’t lie - Græn...

Listen to the Grænkerið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.