Heklan og Markaðsstofa Reykjaness

Góðar sögur

Society IS ↓ 32 episodes

Góðar, fyndnar, jafnvel sorglegar en umfram allt einlægar sögur af góðu fólki á Reykjanesi. Umsjón er í höndum Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Suðurnesja og unnið af starfsmönnum Heklunnar, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness. Alla þætti má nálgast á reykjanes.is og facebook.com/godarsogur

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.reykjanes.is

Author

Heklan og Markaðsstofa Reykjaness

Category

Society

Podcast website

www.reykjanes.is

Latest episode

Feb 19, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Sævar Helgi Jóhannsson og listamaðurinn Shel 07.04.2020

Sævar Helgi hefur djúpar tónlistarrætur úr Keflavík en foreldrar hans eru báðir tónlistarmenntaðir, amma hans starfaði sem píanókennari og undirleikari um áratugaskeið, föðurbróðir er tónskáld, föðursystir tónlistarkennari í London og svona mætti áfram telja. Það kom því engum á óvart að hann færi út í tónlist, þótt upphaflega hafi hann alls ekki ætlað að fara í þá átt. Sævar Helgi Jóhannsson vinn...

Ólafur Ólafsson 07.04.2020

Hann var ofvirkur sem barn, ægilega stríðinn eins og flestir í hans fjölskyldu og einn af okkar bestu körfuboltamönnum, þar fer saman mikill kraftur og leikgleði og það er aldrei langt í húmorinn enda útilokar hann ekki frama á sviði þegar körfuboltanum lýkur. Ólafur Ólafsson, eða Óli Óla eins og flestir kalla hann segir okkur sögur af uppvextinum í Grindavík, körfubolta í þýskalandi, frakklandi o...

Kristinn Guðmundsson 04.04.2020

Kristinn Guðmundsson mun væntanlega seint losna við miðnafnið Soð. Undanfarin ár hefur hann birst á tölvu- og sjónvarpsskjáum landsmanna sem kærulaus áhugakokkur sem heillar áhorfendur með frumlegum uppátækjum og matargleði. Keflvíkingurinn skemmtilegi er þó fyrst og fremst listamaður sem hefur fengist við dans, gjörninga, leikstjórn og ljósmyndun, svo fátt eitt sé nefnt.

Brynjar Leifsson 04.04.2020

Hann hafði hugsað sér að verða bakari eða flugmaður en varð í staðinn gítarleikari í heimsþekktri hljómsveit. Þú gætir hafa séð hann munda gítarinn í sjónvarpinu, í Saturday Night Live, hjá spjalldrottningunni Ellen, eða bregða fyrir í Game of Thrones.  Brynjar Leifsson er hins vegar bara venjulegur strákur frá Keflavík sem vann upp í flugstöð þegar heimsfrægðin bankaði á dyr. Að ferðast um heimin...

Sossa 03.04.2020

Listakonuna Sossu þarf vart að kynna fyrir landsmönnum. Verk hennar má finna á öðru hverju heimili á Suðurnesjum og þótt víðar væri leitað. Hún ræðir hér lífið og listina, segir frá upplifun sinni sem kona í karllægum listaheimi, sambandinu við guð og skattinn og hvernig hún hefur selt fjölskylduna sína oftar en einu sinni. Sossa hefur búið víða og á skemmtilegar sögur frá hverjum stað. Hún segir...

Helgi Jónas Guðfinnsson 03.04.2020

Grindvíkingurinn Helgi Jónas var hálfgert undrabarn í körfubolta. Hann þótti á tímabili einn efnilegasti unglingur Evrópu og gerðar voru til hans miklar væntingar. Um tvítugt var hann kominn í atvinnumennsku þar sem hann sem hann bjóst við að upplifa drauma sína. Hið þveröfuga gerðist og andlegt fall blasti við Helga. Hann burðaðist með kvíða og depurð án þess að ræða það um árabil á meðan hann va...

Elva Dögg Sigurðardóttir 24.03.2020

Hún hafði allt. Átti góða fjölskyldu, gekk vel í skóla og var afrekskona í íþróttum. Síðan gerðist eitthvað og áður en hún vissi af var hún komin inn á barna- og unglingageðdeild og langaði ekki að lifa lengur. Skömmin var mikil, sérstaklega þar sem henni fannst hún ekki hafa ástæðu til þess að vera þunglynd, en það þarf víst ekki ástæðu. Í dag líður henni betur og hún hefur opnað umræðuna um þenn...

Listen to the Góðar sögur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.