Heklan og Markaðsstofa Reykjaness
Góðar sögur
Góðar, fyndnar, jafnvel sorglegar en umfram allt einlægar sögur af góðu fólki á Reykjanesi. Umsjón er í höndum Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Suðurnesja og unnið af starfsmönnum Heklunnar, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness. Alla þætti má nálgast á reykjanes.is og facebook.com/godarsogur
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.reykjanes.is
Author
Heklan og Markaðsstofa Reykjaness
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 19, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Elvar Már Friðriksson 19.02.2025 1:17:39
Hann var lágvaxinn og seinn til í þroska sem lá þungt á honum á unglingsárum. Það fyllti hann eldmóð til þess að leggja ennþá harðar að sér og sanna sig. Þetta hefur verið rauður þráður í ferli Njarðvíkingsins Elvars Friðrikssonar, landsliðsmanns og atvinnumanns í körfubolta. Hann tekst á við áskoranir með jákvæðni og auðmýkt að leiðarljósi. Elvar hefur átt áhugaverðan feril í atvinnumennsku þar s...
Jón Kalman 03.02.2025 1:35:00
Jón Kalman hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn helsti skáldagnahöfundur landsins og hafa bækur hans komið út á fjölmörgum tungumálum. Hann flutti til Keflavíkur 12 ára gamall sem hann taldi verstu örlög í heimi og mótmælti harðlega með bréfi sem fékk litlar undirtektir. Þá einsetti hann sér að aðlagast alls ekki samfélaginu sem tókst fra...
Ingibergur Þór Jónasson 18.01.2025 1:08:05
Umhverfið í kringum heimaslóðirnar í Grindavík hefur alltaf verið griðarstaður fyrir Ingiberg Þór Jónasson ljósmyndara. Náttúran veitir honum hugarró og jafnvægi í lífsins ólgusjó. Hann fór fyrst á sjóinn um fermingaraldur og lærði þar heilmargt. Hann háði baráttu við Bakkus og missti móður sína ungur að árum. Í dag er hann ljósmyndari í heimsklassa og hálfgerður talsmaður Grindavíkur þar sem hann...
Garðar Örn Arnarson 23.12.2024 1:11:53
Örlögin höguðu því þannig að hann skráði sig í kvikmyndaskóla þegar hann var við það að stimpla sig út úr námi. Þrennum Edduverðlaunum síðar er Garðar Örn Arnarson einn afkastamesti kvikmyndagerðamaður Íslands og brautryðjandi þegar kemur að gerð íþróttaefnis á Íslandi. Hann er einn harðasti Keflvíkingur landsins og finnst hvergi betra að vera en í bítlabænum. Sem strákur flutti hann til Hafnafjar...
Una Steinsdóttir 21.12.2024 1:10:35
Hún hefur ástríðu fyrir lífinu og þykir vænt um fólk. Una Steinsdóttir er einn af helstu stjórnendum Íslandsbanka og að baki fjölda landsleikja í handbolta. Henni finnst best að vera í sókn í lífinu, það þarf í það minnsta að vera gaman. Ef gefur á bátinn horfir hún til himins og veit að allt verður í himnalagi. Góðar sögur eru styrktar af Sóknaráætlun Suðurnesja.
Hólmfríður Árnadóttir 15.09.2021 50:02
Hún flutti til Suðurnesja fyrir fimm árum síðan og tók þar við stöðu skólastjóra Ssand, hún brennur fyrir velferðarmálum og er alveg einstaklega jákvæð. Við ræddum við Hólmfríði um lífið á Suðurnesjum, sakamálasögur, vegahlaup og að sjálfsögðu um pólitíkina.
Birgir Þórarinsson 15.09.2021 1:50:18
Hann þótti villingur og ekki líklegur til að verða guðfræðingur og virðulegur þingmaður. Það má segja að hann sé 19 aldar maður í hjarta. Hann er strandamaður, óðalsbóndi á Knarranesi á Vatnsleysuströnd þar sem eitt sinn varð til ríkisstjórn. Þar hefur hann byggt sé kirkju. Við ræddum við Birgi Þórarinsson um Keflavík, trúna og að sjálfsögðu pólitíkina.
Vilhjálmur Árnason 10.09.2021 1:44:47
Hann var flutningsmaður áfengisfrumvarpsins en sjálfur hefur hann aldrei byrjað að drekka. Hann er sveitastrákur sem endaði á Alþingi með viðkomu í lögreglunni. Í búsáhaldabyltingunni varð hann bókstaflega fyrir fyrir sprengju mótmælenda og sá kima þjóðfélagsins sem hann óraði ekki fyrir að sjá nokkur tíma. Vilhjálmur Árnason segir okkur m.a. hvernig lögreglustarfið nýtist honum nánast daglega í...
Oddný Harðardóttir 08.09.2021 1:40:58
Hún verður alltaf samofin Garðinum enda býr hún þar enn á æskuheimili sínu. Þar var lífið oft erfitt í æsku Oddnýjar. Foreldrar hennar skildu þegar hún var táningur og heimilislífið var litað af drykkju föður hennar. Hún missti móður sína sem ung kona og þyrfti að hafa talsvert fyrir því að mennta sig. Það er óhætt að segja að Oddný Harðardóttir sé brautryðjandi. Fyrst kvenna varð hún bæjarstjóri...
Guðbrandur Einarsson 06.09.2021 1:32:23
Guðbrandur Einarsson verslaði fermingarfötin timbraður. Snemma náðu áfengi og kannabisefni sterkum tökum á lífi þessa unga manns sem dreymdi um að verða bóndi. Hann setti tappann í og sneri sér að tónlist, verkalýðsmálum og stjórnmálum. Hann er tvöfaldur tvíburapabbi með sterkar skoðanir og ríka réttlætiskennd. Guðbrandur er hér í einlægu viðtali þar sem hann talar um sigurinn gegn Bakkusi, barnal...
Jóhann Friðrik Friðriksson 03.09.2021 1:25:39
Hann þótti uppátækjasamur sem barn og var kallaður Suðurnesjaskelfirinn. Áhugi hans liggur víða og því hefur hann prófað margt og má þar nefna störf við fjölmiðla, uppistand og nám í lýðheilsufræðum en hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Keilis. Hann hefur einlægan áhuga á fólki og því lá beinast við að fara í pólitík, en þar vakti hann m.a. Athygli fyrir vöfflubakstur. Við settumst niður með...
Erla Reynisdóttir 21.06.2021 43:48
Erla Sóley Reynisdóttir er ekki há í loftinu en það háði henni aldrei á körfuboltavellinum enda keppnisskapið mikið hjá þessum "stáldverg" eins og sumir kölluðu hana þegar þeir áttuðu sig á því að undir björtu fasinu bjó einbeittur sigurvilji. Erla var um árabil ein af sterkustu körfuboltakonum ársins og við ræddum við hana um körfuboltann en líka óvænt barnalánið þegar það eina sem hélt...
Eðvarð Þór Eðvarðsson 22.05.2021 2:02:50
Þegar flest okkar eru að vakna þá er Eðvarð Þór að klára útihlaup, nýbúinn með sundæfingu eða jafnvel að klára 18. holu í Leirunni. Slíkur er metnaðurinn og drifkrafturinn. Hann hækkaði ránna í sundíþróttinni á Íslandi við aðstæður sem ekki teldust sæmandi í dag. Átta ára byrjar hann að svamla í 12 metra sundlaug í Njarðvík en áratug síðar var hann meðal bestu sundmanna heims og á leið á Ólympíule...
Páll Ketilsson 12.04.2021 2:07:39
Hann stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki aðeins 20 ára gamall og það er enn sprelllifandi - og það á sömu kennitölu. Það má segja að Víkurfréttir séu sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Flestir þekkja fjölmiðlamanninn en færri þekkja heimilisfaðirinn, golfarann, frumkvöðulinn og skyrtusölumanninn smekkvísa. Páll segir okkur frá þróun fjölmiðla á 40 ára starfsferli og einstöku sjónarhorni sem hann hefur haf...
Helga Sigrún Harðardóttir 23.03.2021 1:30:51
Hún hefur komið víða við enda óhrædd við áskoranir hvort það er í námi eða starfi og hún var einu sinni pönkari. Lífið hefur verið allskonar, sorgin knúði dyra þegar eiginmaður hennar lést eftir stutta baráttu við krabbamein og henni var aðeins gefið eitt barn en hún á einstakt samband við dóttur sína sem nú er sjálf orðin mamma. Helga Sigrún Harðardóttir segir okkur frá því hvernig var að verða m...
Harpa Jóhannsdóttir 22.03.2021 1:16:55
Hún fór í tónleikaferðalag um heimsálfur með tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur sem var ævintýri fyrir 19 ára básúnuleikara. Harpa segir okkur frá tónlistinni, hjónabandinu og hvernig það er að uppgötva að barnið þitt er ekki eins og önnur börn.
Þráinn Kolbeinsson 16.03.2021 49:26
Þráinn Kolbeinsson er lærður sálfræðingur en ákvað að venda sínu kvæði í kross og eltast við drauminn - að gerast ljósmyndari. Hann fluttist til Grindavíkur og kynntist þar fegurð Reykjanesskagans sem er einstakur á heimsvísu. Hann segir okkur frá glímunni í Mjölni, jarðhræringum á Reykjanesi, föðurhlutverkinu og fegurðinni á Reykjanesi.
Kristín Júlla Kristjánsdóttir 16.02.2021 2:22:36
Hún er Gervahönnuður sem safnar Edduverðlaunum. Hún var uppreisnargjarn unglingur sem var send í sveitaskóla vestur á Reykjanes. Þar kynntist hún öllum villingunum úr Reykjavík og gerðist pönkari á Hlemmi. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og lætur allt flakka. Hún segir frá því hvernig sundlaugin í Garðinum bjargaði lífi hennar. Hvernig hún kvaddi flíspeysuna og fann köllun sína í förðun...
Friðrik Árnason 29.01.2021 1:08:05
Þrátt fyrir að vera rétt skriðinn yfir fertugt þá hefur Friðrik Árnason verið starfandi í ferðaþjónustu í 30 ár. Um fermingu fór hann hjólandi upp í Leifsstöð þar sem hann fiskaði ferðalanga í svefnpokagistingu í Njarðvíkurskóla. Hann var orðinn umboðsmaður bílaleigunnar Geysis og rekstraraðili að tjaldsvæði áður en hann fékk bílpróf. Tvítugur eyddi hann sumarfríinu einn á bílaleigubíl þar sem h...
Guðbjörg Glóð Logadóttir 29.12.2020 1:39:24
Guðbjörg Glóð Logadóttir á stóran þátt í að breyta viðhorfi okkar Íslendinga gagnvart fiski. Á hennar æskuheimili komst lítið annað að þar sem sem frumkvöðullinn faðir hennar seldi fisk til Ameríku við matarborðið. Hún gekk með hugmyndina um Fylgifiska í maganum í áratug áður en hún lét til skarar skríða. Þessi andlegi, gallharði fisksali segir hér frá æskunni í Keflavík og viðskiptunum auk þess s...
Gunnar Örlygsson 27.12.2020 1:53:14
Sjómennska og veiði er Gunnari Örlygssyni í blóð borin. Hann fór um fermingu á sjóinn en í dag flytur hann út ferskan fisk víða um veröld og veltir milljörðum. Njarðvíkingurinn stoppaði stutt við á Alþingi en þar hóf hann störf með dóm á bakinu og skipti svo um flokk. Gunnar gerir upp þann tíma auk þess að segja frá uppeldinu á frægasta körfuboltaheimili landsins, fiskikaupmennsku, laxveiði og ri...
Veigar Margeirsson 24.12.2020 1:36:54
Hægláta tónskáldið sem haldið hefur sig í Hollywood í næstum tvo áratugi. Hann hefur samið tónlist fyrir stiklur mynda eins og Lord of the rings, Joker og Batman begins. Keflvíkingurinn Veigar Margeirsson er einlægur og hógvær þrátt fyrir magnaðan árangur í sínu fagi. Hér segir hann frá einstökum ferli og áföllum sem mótað hafa hans sýn á lífið.
Bergur Þór Ingólfsson 31.08.2020 1:11:42
Bergur Ingólfsson er hinn grindvíski Billy Elliott. Fyrsti atvinnuleikarinn úr bæjarfélaginu og hefur átt farsælan feril sem leikari og leikstjóri í yfir aldarfjórðung. Bergur ásamt fjölskyldu sinni átti stóran þátt í að fella ríkisstjórn og hrinda af stað byltingu undir formerkjum höfum hátt. Bergur er skapandi og skemmtilegur og án efa einn merkasti listamaður Suðurnesja.
Margrét Sturlaugsdóttir 16.04.2020 1:08:20
Líf Margrétar Sturlaugsdóttur hefur meira og minna snúist um körfubolta. Þar var hún afar sigursæl sem hluti af fyrstu gullkynslóð íþróttarinnar í Keflavík og sem farsæll þjálfari á öllum stigum síðar meir. En rétt eins og í körfunni þá er leikurinn oft erfiður og hreinlega ósanngjarn. Hér segir hún á einlægan hátt frá baráttu sinni við krabbamein og hvernig það er að vera aðstandandi alkóhólista.
Sigga Dögg 07.04.2020 1:19:01
Sigga Dögg er mörgum kunn fyrir kynfræðslu sína og ritstörf en okkur lék áhugi á því að kynnast betur frekar keflvíkinginum frekar en kynfræðinginum en Sigga Dögg flutti aftur til heimabæjarins fyrir nokkrum árum sem hafði að segja má heilandi áhrif eftir erfið unglinsár þar sem hún sótti sér styrk í síbreytilegt hafið, enda nóg af því á Suðurnesjum. Hún ætlaði að verða sálfræðingur en hætti svo s...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.