Ritstjórn Morgunblaðsins
Fyrsta sætið
Íþróttahlaðvarp mbl.is og Morgunblaðsins. Íþróttavikan gerð upp, allt það helsta sem þú þarft að vita um íþróttir líðandi stunda og stóru málin krufin til mergjar. Umsjón: Bjarni Helgason
Author
Ritstjórn Morgunblaðsins
Category
Podcast website
Latest episode
Dec 17, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#31 - Þóra Helga: Vil sjá meiri stöðugleika í liðsvali 02.11.2023 37:00
Þóra Helgadóttir, ein leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, gerði upp landsleiki kvennalandsliðsins gegn Danmörku og Þýskalandi, og ræddi átján manna leikmannahóp íslenska kvennalandsliðsins í handbolti fyrir HM 2023 í Danmörku, Noregi og Svíþjóð ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
#30 - Enska sætið: Til skammar að hann sé fyrirliði Manchester United 30.10.2023 52:59
Bjarni Helgason gerði upp 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Jökli Þorkelssyni og Sævari Breka Einarssyni.
#29 - Enska sætið: Góðir leikmenn verða verri hjá Manchester United 23.10.2023 42:37
Bjarni Helgason gerði upp 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyni og blaðamanninum og fyrrverandi knattspyrnumanninum Viðari Guðjónssyni.
#28 - Rúnar Kristins: Vökvaði völlinn sjálfur á fjórhjóli með kerru 18.10.2023 1:13:15
Rúnar Kristinsson, fyrrverandi þjálfari KR og næstleikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, gerði upp tímann í Vesturbænum og viðskilnaðinn við KR og fór yfir frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í fóbolta gegn Lúxemborg og Liechtenstein ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
#27 - Enska sætið: Minnir á van Dijk þegar hann var upp á sitt besta 09.10.2023 55:54
Aron Elvar Finnsson gerði upp 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Gunnari Agli Daníelssyni og Jökli Þorkelssyni.
#26 - Enska sætið: Stevie Wonder hefði séð þetta 02.10.2023 49:50
Bjarni Helgason gerði upp 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt Gísla Frey Valdórssyni, ritstjóra Viðskiptamoggans, og Stefáni Einari Stefánssyni, fyrrverandi ritstjóra Viðskiptamoggans.
#25 - Ásthildur Helga: Hef áhyggjur af kvennalandsliðinu 29.09.2023 55:40
Ásthildur Helgadóttir, fyrrverandi fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerði upp landsleiki kvennalandsliðsins gegn Wales í Portúgal, fór yfir Bestu deildir karla og kvenna, ræddi handboltann, körfuboltann, enska boltann og fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
#24 - Enska sætið: Mjög kynþokkafullur inn á vellinum 25.09.2023 44:42
Bjarni Helgason gerði upp 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyni og blaðamanninum Sonju Sif Þórólfsdóttur.
#23 - Svava Kristín: Óléttan eyðilagði fjölskyldufríið 22.09.2023 1:10:20
Íþróttafréttakonan Svava Kristín Grétarsdóttir fór yfir frammistöðu Breiðabliks í Sambandsdeildinni, Bestu deildir karla og kvenna, handboltatímabilið sem er nýhafið, spáði í spilin fyrir leiki íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta gegn Wales og Þýskalandi, ræddi enska boltann og fór yfir helstu fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyni.
#22 - Enska sætið: Það er eitthvað rotið innan Manchester United 18.09.2023 1:08:50
Bjarni Helgason gerði upp 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt útvarpsmönnunum Heiðari Austmann og Þór Bæring Ólafssyni.
#21 - Hörður Snævar: Hætta væntanlega flestir ef við komumst ekki á EM 14.09.2023 52:57
Ritstjórinn Hörður Snævar Jónsson fór yfir landsleiki íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Lúxemborg og Bosníu, Bestu deildir karla og kvenna, nýhafið tímabil í úrvalsdeildum karla og kvenna í handbolta, spáði í spilin í enska boltanum og ræddi vandræði Manchester United ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
#20 - Enska sætið: Þá mun Klopp ganga út 04.09.2023 51:20
Bjarni Helgason gerði upp 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyni og blaðamanninum Sonju Sif Þórólfsdóttur.
#19 - Enska sætið: Heilsar einhverjum leikmanni sem er svo óvart húsvörður á svæðinu 28.08.2023 49:00
Bjarni Helgason gerði upp 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og blaða- og knattspyrnumanninum fyrrverandi Viðari Guðjónssyni.
#18 - Enska sætið: Skelfileg dómgæsla í fyrstu leikjum tímabilsins 22.08.2023 57:00
Bjarni Helgason gerði upp 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Gunnari Agli Daníelssyni.
#17 - Gísli Þorgeir: Aldrei fundið fyrir jafn mikilli gleði 17.08.2023 1:04:53
Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolti og leikmaður þýska stórliðsins Magdeburg, gerði upp tímabilið í Þýskalandi þar sem hann varð Evrópumeistari og valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar í Köln, ræddi framtíð íslenska landsliðsins undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar, fór yfir Bestu deildir karla og kvenna, spáði í spilin í ensku úrvalsdeildinni og ræddi um helstu fréttir v...
#16 - Enska sætið: Sætasta stelpan sagði nei og næstsætasta stelpan fór í fýlu 15.08.2023 39:12
Bjarni Helgason gerði upp 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyn og knattspyrnu- og blaðakonunni Mist Þormóðsdóttur Grönvald.
#15 - Fyrsta sætið: Hélt að Liverpool myndi aldrei borga svona mikið 11.08.2023 1:10:05
Bjarni Helgason fór yfir Evrópuleiki Breiðabliks og KA, Bestu deildir karla og kvenna ásamt bikarúrslitaleik Breiðabliks og Víkings, 8-liða úrslitin á heimsmeistaramóti kvenna og spáði í spilin fyrir ensku úrvalsdeildina í fótbolta sem hefst í kvöld ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Gunnari Agli Daníelssyni.
#14 - Fyrsta sætið: Hátt settir aðilar allt annað en sáttir 04.08.2023 51:36
Bjarni Helgason fór yfir Evrópuleiki íslensku liðanna, Bestu deildir karla og kvenna í fótbolta, heimsmeistaramót kvenna í fótbolta og félagaskiptin í enska boltanum ásamt íþróttablaðamönnunum Jóhanni Inga Hafþórssyni og Jökli Þorkelssyni.
#13 - Fyrsta sætið: Gylfi er undantekningin 28.07.2023 57:00
Aron Elvar Finnsson fór yfir Bestu deildir karla og kvenna í fótbolta, Evrópuleiki íslensku liðanna, félagaskiptin í heimsfótboltanum og ýmislegt fleira ásamt íþróttablaðamönnunum Jóhanni Inga Hafþórssyni og Jökli Þorkelssyni.
#12 - Adda Baldurs: Ætti að vera heitt undir honum miðað við frammistöðuna í síðustu leikjum 22.07.2023 56:06
Fyrrverandi knattspyrnukonan Ásgerður Stefanía Baldursdóttir og núverandi sparkspekingur og aðstoðarþjálfari Vals í Bestu deild kvenna gerði upp leiki íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta gegn Finnlandi og Noregi, spáði í spilin fyrir HM kvenna, fór yfir stöðuna í Bestu deildum karla og ræddi helstu fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Ástu Hind Ómarsdóttur.
#11 - Patrekur Andrés: Segir mér enginn hvað ég get og get ekki gert 12.07.2023 1:01:35
Spretthlauparinn og Ólympíufarinn Patrekur Andrés Axelsson útskrifaðist á dögunum með BS gráðu úr sjúkraþjálfun með fyrstu einkunn þrátt fyrir að starfsfólk Háskóla Íslands hafi nokkrum sinnum hvatt hann til þess að hætta í náminu þar sem hann er lögblindur. Patrekur Andrés ræddi meðal annars um augnsjúkdóminn sem hann greindist með þegar hann var tvítugur, námsferilinn, mótlætið og Paralympics í...
#10 - Bjarki Már: Hef alveg velt því fyrir mér að svara fólki á Twitter 06.07.2023 1:04:27
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolti og leikmaður ungverska stórliðsins Veszprém, gerði upp tímabilið í Ungverjalandi þar sem hann varð tvöfaldur meistari, ræddi framtíð íslenska landsliðsins undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar og þá spáði hann einnig í spilin fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni ásamt blaðamanninum Sævari Breka Einarssyni.
#9 - Björn Berg: Sádi-Arabía notar íþróttir til að bæta orðspor sitt 30.06.2023 1:17:53
Fjármálasérfræðingurinn og knattspyrnuáhugamaðurinn Björn Berg Gunnarsson ræddi félagaskipti stórstjarna fótboltans til Sádi-Arabíu, peningana í fótboltanum og fór yfir stöðuna í Bestu deildum karla og kvenna ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
#8 - Arnar umboðsmaður: Milljónirnar hafa ekki ennþá skilað sér 26.06.2023 1:17:51
Arnar Freyr Theodórsson hefur starfað sem umboðsmaður íslenskra og erlendra handboltamanna frá árinu 2009 en 13 af 16 leikmönnum í lokahóp íslenska karlalandsliðsins á HM 2023 eru skjólstæðingar Arnars. Arnar ræddi meðal annars um umboðsmannastarfið, handboltaheiminn og íslensku handboltalandsliðin.
#7 - Gummi Ben: Þú veist ekkert hvort ég hafi verið grenjandi 22.06.2023 1:07:31
Íþróttafréttamaðurinn og fyrrverandi fótboltamaðurinn Guðmundur Benediktsson, betur þekktur sem Gummi Ben, gerði upp leiki íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Slóvakíu og Portúgal, fór yfir Bestu deildir karla og kvenna og ræddi um helstu fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.