Ritstjórn Morgunblaðsins

Fyrsta sætið

Sports IS ↓ 81 episodes

Íþróttahlaðvarp mbl.is og Morgunblaðsins. Íþróttavikan gerð upp, allt það helsta sem þú þarft að vita um íþróttir líðandi stunda og stóru málin krufin til mergjar. Umsjón: Bjarni Helgason

Author

Ritstjórn Morgunblaðsins

Category

Sports

Podcast website

sites.libsyn.com

Latest episode

Dec 17, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#81 - Margrét Lára: Hjálpaði mér að loka ferlinum 17.12.2025

Knattspyrnukonan fyrrverandi Margrét Lára Viðarsdóttir er ein besta knattspyrnukona sem Ísland hefur átt og markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Margrét Lára ræddi ævisögu sína; MLV9 - Ástríða fyrir leiknum, hugmyndina að bókinni og af hverju hún ákvað að gefa út ævisögu sína. 

#80 - Kristófer Acox: Síðast þegar ég svaraði var mér hent úr landsliðinu 03.10.2025

Körfuboltamaðurinn Kristófer Acox, fyrirliði Vals, fór yfir viðskilnaðinn við íslenska landsliðið og ósættið við landsliðsþjálfarann Craig Pedersen, ræddi tímabilið framundan með Val og spáði í spilin í Bestu deildunum og ensku úrvalsdeildinni ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.

#79 - Steini Halldórs: Íhugaði það alvarlega að kalla þetta gott 25.09.2025

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerði upp frammistöðu Íslands á Evrópumótinu í Sviss í sumar og ræddi framtíð sína með kvennalandsliðið, spáði í spilin í Bestu deildunum og ensku úrvalsdeildinni og fór yfir fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.

#78 - Fyrsta sætið: Fær ekkert jólakort frá landsliðsþjálfaranum 09.07.2025

Bjarni Helgason hitaði upp á léttu nótunum fyrir þriðja leik Íslands gegn Noregi á Evrópumóti kvenna í fótbolta ásamt samfélagsmiðlastjörnunni Gústa B. og íþróttafréttamanninum Helga Fannari Sigurðssyni á DV.is.

#77 - Fyrsta sætið: Hótelstjórinn áfengisdauður öll kvöld 05.07.2025

Bjarni Helgason hitaði upp á léttu nótunum fyrir annan leik Íslands gegn Sviss á Evrópumóti kvenna í fótbolta ásamt samfélagsmiðlastjörnunni Gústa B. og íþróttafréttamanninum Helga Fannari Sigurðssyni á DV.is.

#76 - Fyrsta sætið: Íslendingar stálu ketti í Thun 03.07.2025

Bjarni Helgason fór yfir fyrsta leik Íslands gegn Finnlandi á Evrópumóti kvenna í fótbolta á léttu nótunum ásamt samfélagsmiðlastjörnunni Gústa B. og þá ræddu þeir félagar einnig um nýjustu vendingar í svissnesku borginni Thun þar sem þeir munu dvelja á meðan Evrópumótið stendur yfir.

#75 - Fyrsta sætið: Gerði ráð fyrir Margréti Láru í byrjunarliðinu 01.07.2025

Bjarni Helgason hitaði upp á léttu nótunum fyrir fyrsta leik Íslands gegn Finnlandi á Evrópumóti kvenna í fótbolta sem hefst í Sviss á morgun ásamt samfélagsmiðlastjörnunni Gústa B. og íþróttafréttakonunni Eddu Sif Pálsdóttur á Rúv.

#74 - Addi Grétars: Misgáfulegir hlutir sem fólk lætur út úr sér 18.10.2024

Arnar Grétarsson, fyrrverandi þjálfari Vals í Bestu deildinni, fór yfir viðskilnaðinn við Val, gerði upp frammistöðu íslenska landsliðsins í nýliðnum landsleikjaglugga og spáði í spilin fyrir lokaumferðir Íslandsmótsins ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.

#73 - Ásta Eir og Elísa Viðars: Fagnar enginn meira en mótanefnd KSÍ 04.10.2024

Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, og Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, hituðu upp fyrir úrslitaleik liðanna í Bestu deildinni í fótbolta sem fram fer á Hlíðarenda á morgun. Þá ræddu þær einnig um enska boltann ásamt því að fara yfir helstu fréttir vikunnar.

#72 - Óli Óla: Fyrsta skiptið sem ég hugsaði ekkert um eldgos og Grindavík 26.09.2024

Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur í körfubolta, gerði upp síðasta tímabil þar sem jarðhræringarnar á Reykjanesskaga höfðu mikil áhrif á bæði liðið og bæjarfélagið, ræddi um flutningana úr Grindavík, framtíðina og framtíð körfuboltans í Grindavík ásmt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.

#71 - Halldór Árna: Talsvert meiri vinna sem fylgir þjálfarastarfinu 20.09.2024

Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks í Bestu deildinni, fór yfir fyrsta árið sitt í starfi og tímabilið hjá Blikum, ræddi frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í síðasta landsleikjaglugga og spáði í spilin í ensku úrvalsdeildinni ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.

#70 - Guðni Th. Jóhannesson: Sigurinn í Nice stendur upp úr 03.07.2024

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fór yfir eftirminnilegustu íþróttaafrek Íslands frá því hann tók við embætti árið 2016, ræddi um framtíð íþrótta á Íslandi ásamt því að ræða aðstöðumál landsliðanna, sem og fjárskortinn sem íþróttahreyfingin þarf að glíma við.

#69 - Þorvaldur Þórðarson: Það má ekki vanmeta Ronaldo 21.06.2024

Eldfjallafræðingurinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Þorvaldur Þórðarson fór yfir fyrstu leiki Evrópumóts karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi, ræddi um liðin sem eru líklegust til árangurs og þau sem hafa valdið mestum vonbrigðum á mótinu, ásamt því að ræða um Bestu deildir karla og kvenna ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.

#68 - Gaupi: Þetta er í raun fíkn 05.06.2024

Guðjón Guðmundsson, betur þekktur sem Gaupi, lagði íþróttafréttamennskuna á hilluna eftir 32 ár í bransanum síðasta sumar en hann fór yfir fréttir vikunnar, ræddi um íslenska karlalandsliðið í handbolta og fótbolta, kvennalandsliðið í fótbolta, gerði upp tímabilin í handboltanum og fótboltanum ásamt því að spá í spilin í Bestu deildum karla og kvenna ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvar Finnssyn...

#67 - Guðlaug Edda: Það small eitthvað í heilanum á mér 30.05.2024

Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir fór yfir vegferðina og þrautagönguna að Ólympíuleikunum 2024 sem fram fara í París í Frakklandi í sumar en hún varð á dögunum fyrst Íslendinga til þess að tryggja sér keppnisrétt í greininni á Ólympíuleikum.

#66 - Enska sætið: Líklega besta liðið í sögu úrvalsdeildarinnar 21.05.2024

Bjarni Helgason gerði upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.

#65 - Viktor Gísli: Stefnir á spíkat í fyrsta skiptið á ævinni 10.05.2024

Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta og leikmaður Nantes í Frakklandi, gerði upp tíma sinn í Frakklandi, ræddi um meiðslin sem hafa verið að plaga hann undanfarin tvö ár, fór yfir fyrsta árið hjá landsliðinu undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar ásamt því að fara yfir Bestu deildir karla og kvenna og spá í spilin fyrir úrslitakeppnirnar í handboltanum og körfuboltan...

#64 - Enska sætið: Stuðningsmennirnir komnir með upp í kok af honum 06.05.2024

Bjarni Helgason gerði upp 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.

#63 - Enska sætið: Erfitt að sjá toppliðin misstíga sig á lokametrunum 29.04.2024

Bjarni Helgason gerði upp 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.

#62 - Enska sætið: Hefur meiri trú á Arsenal en Liverpool 22.04.2024

Bjarni Helgason gerði upp 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og Sonju Sif Þórólfsdóttir, aðstoðarfréttastjóra Morgunblaðsins.

#61 - Enska sætið: Gæti hentað þeim betur að elta City 15.04.2024

Bjarni Helgason gerði upp 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.

#60 - Enska sætið: Arsenal í bílstjórasætinu 08.04.2024

Aron Elvar Finnsson gerði upp 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og Sæbirni Steinke, fréttaritara hjá fótbolta.net.

#59 - Enska sætið: Bikarinn er Liverpool að tapa 05.04.2024

Bjarni Helgason gerði upp 31. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Jökli Þorkelssyni.

#58 - Þorvaldur Örlygs: Mörg stór verkefni framundan hjá KSÍ 04.04.2024

Þorvaldur Örlygsson, nýkjörinn formaður KSÍ, fór yfir fyrstu vikurnar í nýja starfinu, ræddi landsleiki karlalandsliðsins gegn Ísrael og Úkraínu og komandi undankeppni EM 2025 hjá kvennalandsliðinu, ásamt því að spá í spilin fyrir fótboltasumarið hérna heima.

#57 - Arnar Gunnlaugs: Nokkur atriði sem bögguðu mig sem við komumst upp með 22.03.2024

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings, fór yfir frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Ísrael, spáði í spilin fyrir komandi úrslitaleik gegn Úkraínu á þriðjudaginn, ræddi frábært tímabil Víkinga á síðustu leiktíð og ræddi markmið liðsins fyrir komandi keppnistímabil ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni.

Listen to the Fyrsta sætið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.