RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Pólska hetjan Tadeusz Kocsiuszko, seinni lestur 05.07.2020 52:00
Kosciusko heitir 7.000 manna smábær í Mississippi í Bandaríkjunum sem nú er frægastur fyrir að þar fæddist sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey. En bærinn heitir eftir pólsku frelsishetjunni Tadeusz Kosciuszko, sem Illugi Jökulsson heldur áfram að fjalla um, með hjálp þeirra Jónasar Hallgrímssonar og Konráðs Gíslasonar sem skrifuðu um ævi hans í Fjölni 1838. Í þættinum segir frá samskiptum Kosciuszko v...
Pólska hetjan Tadeusz Kocsiuszko, fyrri lestur 28.06.2020 52:00
Illugi Jökulsson les síðari hluta af grein Jónasar Hallgrímssonar og Konráðs Gíslasonar úr Fjölni 1838 þar sem þeir taka saman og þýða efni um eina helstu þjóðhetju Pólverja (eða Sléttumanna, eins og þeir félagar kalla Pólverja), Tadeusz Kocsciuszko. Hann var kannski eini maðurinn í sögunni sem hitti þá alla þrjá: Washington Bandaríkjaforseta, Napóleon Frakkakeisara og Alexander I Rússakeisara. Fr...
Páskahátíðin og uppruni hennar 21.04.2019 45:23
Páskahátíðin var upphaflega gyðingleg hátíð þar sem Gyðingar minntust þess þegar Móses leiddi þá burt frá Egiftalandi. En hvernig lentu þeir þar á annað borð? Í þættinum kemur við sögu Jósef, egifskar kýr (bæði feitar og magrar) og þáttastjórnandi reynir að svara spurningunni: Er eitthvað hæft í þessum sögum yfirleitt?
Konur í Róm 04.03.2018 49:46
Í þessum þætti var fjallað um stöðu kvenna í Róm á fyrstu öld fyrir Krist. Fyrst fjallaði umsjónarmaður um Hortensíu, sem flutti fyrstu skráðu pólitísku ræðuna sem vitað er til að kona hafi flutt í Róm. Síðan las hann þýðingu sína á mjög langri grafskrift, þar sem eiginmaður lýsir burtsofnaðri eiginkonu sinni og koma við sögu ástir og örlög, barnleysi og sorg, flótti undan morðingjum og uppreisn æ...
29.06.2014 50:02
Beint framhald af síðasta þætti viku áður. Í þættinum les umsjónarmaður eigin greinargerð um aðdraganda morðsins á Franz Ferdinand erkihertoga Austurríkis-Ungverjalands 28. júní 1914. Einkum er fjallað um Franz Ferdinand sjálfan, Gavrilo Princip og Dragutin Dimitrievic, eða Apis.
22.06.2014 49:42
Í þættinum las umsjónarmaður eigin greinargerð um aðdraganda morðsins á Franz Ferdinand erkihertoga Austurríkis-Ungverjalands 28. júní 1914. Einkum var fjallað um Franz Ferdinand sjálfan, Gavrilo Princip og Dragutin Dimitrievic, eða Apis.
10.06.2014 51:33
Umsjónarmaður segir frá Jóni Arasyni biskupi á Hólum á fyrri hluta sextándu aldar, og nokkuð frá siðaskiptatímunum.
03.06.2014 51:23
Umsjónarmaður fjallar nokkuð almennt um vesturferðir og upphaf byggðar Evrópumanna í Ameríku, en les síðan úr greinaflokknum Höfuðþjóðir heimsins: Norður-Ameríkumenn úr Fjallkonunni, 1. árg. 1884, líklega skrifað af Valdimar Ásmundssyni.
27.05.2014 49:26
Í þessum þætti heldur umsjónarmaður áfram þeirri sögu sem hann hóf hálfum mánuði fyrr, að segja frá átökum Serba og Tyrkja á Balkanskaga og vék síðan talinu að Habsborgaraættinni, sem þar kom einnig i vaxandi mæli við sögu.
20.05.2014 50:36
Í þessum þætti fjallar umsjónarmaður um "landkynningu" og "Íslandsvini" og les síðan upp kafla úr Íslandslýsingu Þorláksson Markússonar (1685-1736).
13.05.2014 53:03
Í þættinum fjallar umsjónarmaður um forsögu þeirra atburða sem urðu til þess að hrinda fyrri heimsstyrjöldinni af stað, og rakti sögu Serba og Tyrkja allt aftur í árdaga og fram til orrustunnar við Kosovo 25. júní 1389. Lesari: Vera Illugadóttir
06.05.2014 51:51
Í þættinum fjallar umsjónarmaður um 28. júní 1914, daginn þegar Gavrilo Princip drap Franz Ferdinand erkihertoga Austurríkis-Ungverjalands, einkum þá á Íslandi, og les upp úr blöðum og segir frá fréttum þann daginn Lesari: Vera Illugadóttir
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.