RÚV

Frjálsar hendur

Society IS ↓ 271 episodes

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ofan jarðar og neðan, framhald 25.04.2021

Illugi Jökulsson heldur áfram að lesa úrOfan jaðar og neðan, ævisögu Theódórs Friðrikssonar. Að þessu sinni les hann m.a. um puð Theódórs við að hrófla upp Reykjavíkurflugvelli í Bretavinnunni og frásögn af kynnum hans af litríkum ættfræðingi, Stein Dofra.

Veturinn 1940-41 í Reykjavík 18.04.2021

Theódór Friðriksson, sjómaður, verkamaður, rithöfundur, aðstoðardyravörður í Alþýðuhúsinu, skrifaði rómaða sjálfsævisögu, Í verum, þar sem hann lýsti hlutskipti alþýðufólks, en svo kom annað bindi, Ofan jarðar og neðan, þar sem hann lýsti meðal annars vetrinum 1940-1941 þegar hann var við dyravörslu á skemmtistað sem breskir hermenn og íslenskt gleðifólk af ýmsu tagi sótti ósleitilega. Illugi Jöku...

Úr æviminningum Svetlönu Stalín 11.04.2021

Umsjónarmaður les úr sjálfsævisögu Svetlönu dóttur Stalíns. Illugi gerir aðeins grein fyrir Nadezhdu, móður Svetlönu. Hann les úr þriðja kafla æviminninga Svetrlönu, þar sem m.a. er fjallað um afa hennar, Sergei Allilújev. Svetlana segir frá unaðslegu lífinu í sveitasælunni nálægt Moskvu, um sama leyti og Stalín hrinti af stað hungursneyðinni í Úkraínu þar sem önnur börn sultu tugþúsundum saman ti...

Rómarkeisarar og fylgjendur Krists 04.04.2021

Hvernig brugðust Rómarkeisarar af fyrstu fregnum af nýjum söfnuði sem kenndur var við dularfullan Gyðing, sem kallaður var Kristur? Claudius rak þá frá Róm, Neró kveikti í þeim, Domitianus ofsótti þá en Trajanus reyndi að svara samviskusamlega merkilegri fyrirspurn frá landstjóra sínum Pliníusi yngra. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Suez skurðurinn 28.03.2021

Risaflutningaskipið Ever Given situr nú fast í Súez-skurði. Af því tilefni segir umsjónarmaður frá upphafi og vígslu skurðarins, en þá hélt Ismail æðsti maður Egifta heljarinnar hátíð. Jafnframt er lesið úr minningum Sveinbjörns Egilssonar um siglingu eftir skurðinum laust fyrir 1900. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Lamaði drengurinn Einar Bekk Guðmundsson 21.03.2021

Haustið 1904 fæddist sprækur strákur á Seyðisfirði, sonur Vilborgar Sigríðar Jónsdóttur og Guðmundar Bekk. Hann var skírður Einar. Hálfs árs fékk hann lömunarveiki og ljóst þótti að hann myndi aldrei geta gengið. En þótt foreldrar hans væru fátækt alþýðufólk vildu þau gera allt sem þau gátu fyrir drenginn sinn og haustið 1913 lagði Guðmundur upp með lamaðan níu ára soninn í ótrúlega för til Kaupma...

Ferð umhverfis Vatnajökul 14.03.2021

Illugi Jökulsson les upp úr bókinni Fjöll og firnindi, frásagnir Stefáns Filippussonar, sem Árni Óla skrásetti. Stefán var oft fylgdarmaður erlendra gesta sem komu til landsins til að ferðast um hálendið. Illugi les frásögn af ferð sem Stefán fór sumarið 1933 í kringum Vatnajökul með Miss Smith, enskri konu sem hafði heyrt að engum hefði tekist að komast yfir árnar sem falla frá jöklinum að sumrar...

Ferðasaga Steingríms Matthíassonar, síðasti hluti 07.03.2021

Steingrímur Matthíasson læknir birti frásögn sína af ferð um Austurlönd í blaðinu Gjallarhorn, sem gefið var út á Akureyri. Illugi Jökulsson les um framandlegt líf, gróður, litina og fólkið sem vakti athygli Steingríms í ferðinni. Sagt er frá mannlífið í Singapúr og ótrúlega frjósaman gnægtagarð á Ceylon, sem nú heitir Sri Lanka.

Ferðasaga Steingríms Matthíassonar 28.02.2021

Illugi Jökulsson gluggar í ferðasögu Steingríms Matthíassonar læknis frá 1904, þegar hann sigldi til Austurlanda á skipinu Prins Valdimar. Nú segir Steingrímur frá dvöl sinni í Hong Kong og síðan í kínverskri höfn sem Rússar réðu, Port Arthur. Þá vissu allir að stríð var í þann veginn að brjótast út millum Rússa og Japana, og Steingrímur lýsir andrúmsloftinu merkilega. Hann er skemmtilegur og athu...

Mannlíf og fleira á Ceylon og í Singapore 21.02.2021

Umsjónarmaður les frásögn Steingríms Matthíassonar frá árinu 1903 þar sem bregður fyrir ofgnótt af litum, blómum, trjám og mannlífi á Ceylon (Sri Lanka) þar sem hann kom við á leið sinni til Kína? Hann lýsir einnig Kínverjunum í Singapore og fleiru sem fyrir augu ber. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Langferð Steingríms Matthíassonar 14.02.2021

Steingrímur Matthíasson fór í langferð til Austurlanda 1903-1904 með barkskipinu Prins Valdimar. Umsjónarmaður byrjar að lesa frásögn Steingríms, sem kemst ekki lengra en til Wales, þar sem skipið tekur kol. Steingrímur fer í heimsókn í kolanámu þar sem menn puða í kolaryki og drullu og hestar eru innilokaðir í námunum. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Síðustu stundir Stalíns 07.02.2021

Svetlana, einkadóttir Jósefs Stalín, fór til Bandaríkjanna árið 1967 og gaf út ævisögu þar sem hún sagði ónefndum vini frá því sem gerðist í Kuntseve - heimili Stalíns í nágrenni Moskvu - fyrstu dagana í mars 1953. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Reinald Kristjánsson, annar hluti 31.01.2021

Ævisaga Reinalds Kristjánssonar nefnist Á sjó og landii. Ingvaldur Nikulásson skrifaði hana í ósentimental tón. Reinald er kominn undir tvítugt og reynir að standa á eigin fótum, sigla eigin sjó veiða sinn eigin hárkarl. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Æviminningar Reinalds Kristjánssonar pósts 24.01.2021

Ingjaldur Nikulásson ritaði ævisögu Reinalds Kristjánssonar pósts á Vestfjörðum, sem komu út í bókinni Á sjó og landi árið 1932. Þessi ævisaga er lítt þekkt en ansi mögnuð og lýsingar Reinalds á uppeldi sínu eftirminnilegar og átakanlegar. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Endurminningar Jónasar Sveinssonar læknis 17.01.2021

Jónas Sveinsson læknir skrifaði skemmtilegar endurminningar, Lífið er dásamlegt, og fyrir aldarfjórðungi las umsjónarmaður úr þeim um „Þverárundrin“ og yngingaraðgerðir. En það er fleira hnýsilegt í bók Jónasar og í þættinum mínum í kvöld segir frá spænsku veikinni og dularfullum atburðum í líkhúsi, sem og ótta fólks við kviksetningar. Var kannski ástæða til? Umsjón: Illugi Jökulsson.

Um Stein Steinarr og Steindór Sigurðsson 10.01.2021

Theodór Friðriksson rithöfundur er kunnastur fyrir magnaða sjálfsævisögu, Í verum, þar sem hann lýsir hlutskipti alþýðufólks, sjómanna og vermanna á ótrúlega hispurslausan hátt. En hann skrifaði líka aðra sjálfsævisögu árið 1944 um síðari hluta ævinnar, Ofan jarðar og neðan, sem er ekki síður hispurslaus. Hún er raunar svo opinská að Steinn Steinarr skáld linnti ekki látum fyrr en hann fékk Theodó...

Á hreindýraslóðum 03.01.2021

Illugi Jökulsson les valda kafla úr bókinni Á hreindýraslóðum eftir Helga Valtýsson. Lokalag þáttarins er leikið í fullri lengd en það er Adagio í g-moll fyrir strengi og orgel eftir 18. aldar tónskáldið Tomaso Albinoni. Að vísu er þetta verk efti 20. aldar tónskáldið Remo Giazotto, sem notaði líkast til brot úr verki eftir Albioni.

Þýski togarinn Friedrich Albert strandar 1903 27.12.2020

Á kaldri janúarnóttu árið 1903 strandaði þýski togarinn Friedrich Albert á Skeiðarársandi. Stýrimanninum Bojahr var kennt um strandið. Tólf manna áhöfn komst af en þvældist svo um sandinn í rúma 10 daga. Þegar Þjóðverjarnir komust loks til bæja voru nokkrir látnir en íslenskir læknar unnu þrekvirki við að bjarga lífi annarra. Illugi Jökulsson segir frá þessum atburði.

Fleiri frásagnir Stefáns Filippussonar 18.10.2020

Illugi Jökulsson heldur áfam að lesa úr bernskuminningum Stefáns Filippusssonar, Fjöll og firnindi, sem Árni Óla skrásetti. Meðal þess sem ber á góma er ótrúleg en dagsönn frásögn af því þegar Stefán þurfti að kúldrast á smáeyjunni Bjarnarey í Vopnafirði matarlaus ásamt tveim öðrum.

Stefán Filippusson bóndi og leiðsögumaður 11.10.2020

Illugi Jökulsson fjallar um Stefán Filippusson, sem fæddist 1870 í Fljótshverfi (austan við Kirkjubæjarklaustur) og ólst þar upp. Sjálfur varð hann bóndi í Borgarfirði eystra en var svo mörg sumur leiðsögumaður erlendra ferðamanna um hálendið. Fjöll og firnindi heitir ævisaga hans og í gluggar Illugi í hana í þættinum. Þar segir aðallega frá uppeldi og ættum hans, hræðilegum frostavetri 1880, fjár...

Ritgerð Þorvaldar Thoroddsen 13.09.2020

Illugi Jökulsson heldur ég áfram að lesa úr ritgerð Þorvaldar Thoroddsens um Ísland árið 1900. Og þá fer svolítið að versna í því.

Hugleiðing um aldamót eftir Þorvald Thoroddsen árið 1901 06.09.2020

Þorvaldur Thoroddsen var einn merkasti vísindamaður íslenskur í kringum aldamótin 1900. Frásagnir og náttúrulýsingar hans frá ferðum um Ísland eru ómetanlegar. En Þorvaldur skrifaði líka merka grein í Andvara 1901 þar sem hann bar saman ástand Íslendinga, menningu og ásigkomulag annars vegar á 18. og hins vegar 19. öld. Illugi Jökulsson les úr þessari skemmtilegu grein.

Breskir og bandarískir dátar á Íslandi 16.08.2020

Síðla hausts 1943 var breski tundurspillirinn Scorpion að taka eldsneyti á Seyðisfirði. Einn sjóliðinn var alveg að tapa sér. Sagt er frá hörmulegum örlögum hans, og raktar reynslusögur ýmissa annarra dáta og sjóliða Breta og Bandaríkjamanna, sem hér voru á stríðsárunum, sér til mjög mismikillar gleði.

Æskuminningar Vigfúsar Guðmundssonar, seinni lestur 19.07.2020

Illugi Jökulsson les öðru sinni úr Æskudögum Vigfúsar Guðmundssonar, æviminningum hans úr Villta vestrinu á árum fyrri heimsstyrjaldar. Nú koma við sögu Indíánar, morðingjar, kúrekar, vændiskonur og fleira smálegt. Illugi les úr eintaki sem höfundur sjálfur gaf afa og ömmu hans á sínum tíma.

Vigfús Guðmundsson í villta vestrinu 12.07.2020

Vigfús Guðmundsson (1890-1965) var lengi veitingamaður í Hreðavatnsskála og vel metinn maður. Þegar hann var rúmlega tvítugur hafði hann hins vegar farið í ævintýralegan leiðangur til Ameríku þar sem hann gerðist hjarðmaður og síðar kúreki, aðeins skömmu eftir að persónur Clint Eastwoods riðu þar um dali. Hann hitti fyrir úlfa og birni, ræningja og morðingja, vændiskonur og Indíana. Lesið er úr en...

Listen to the Frjálsar hendur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.