Málfundafélagið frelsi og fullveldi
Frelsi og fullveldi
HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI?Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar. Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar. Félagið leggur höfuðáherslu á að...
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Málfundur #11: Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis 15.11.2024 2:04:26
Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 4. nóvember 2024 en þetta var ellefti opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis. Framsögumenn voru þeir sr. Geir Waage og sr. Halldór Gunnarsson. Fundarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir...
Málfundur #10: Staða Íslands innan EES og bókun 35 25.09.2024 1:54:30
Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 16. september 2024 en þetta var tíundi opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Staða Íslands innan ESS og bókun 35 . Framsögumenn voru þeir Hjörtur J. Guðmundsson sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur með áherslu á Evrópufræði og...
Málfundur #9: Verjum hag eldra fólks 01.05.2024 1:00:01
Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 22. apríl 2024 en þetta var níundi opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Verjum hag eldra fólks . Framsögumenn voru þeir Ragnar Árnason prófessor emerítus og sr. Halldór Gunnarsson fyrrverandi sóknarprestur . Þeir upplýsa um stöðu el...
Málfundur #8: Varðstaða um íslensk gildi 02.04.2024 2:02:44
Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 18. mars síðasliðinn en þetta var áttundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var Varðstaða um íslensk gildi . Framsögumenn voru þeir Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og Birgir Þórarinsson alþingismaður. Fundarstjóri var Anna Björg Hjartard...
Málfundur #7: Löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímum 07.03.2024 2:10:13
Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 26. febrúar síðasliðinn en þetta var sjöundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímum . Framsögumenn voru þeir Karl Gauti Hjaltason , lögreglustjóri og fv. alþingismaður og Guðbjörn Guðbjörnsson stjórnsýslufræð...
Málfundur #6: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærin 23.01.2024 1:48:33
Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til 6. umræðufundar félagsins í Catalínu í Hamraborg, Kópavogi mánudaginn 15. janúar síðastliðinn. Umræðuefni: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærin Framsögumenn: Jón Magnússon og Ólafur Ísleifsson fyrrverandi alþingismenn Fundarstjóri: Anna Björg Hjartardóttir Breytt stefna í málefnum hælisleitenda var mikið rædd og eftir að framsögumenn höfðu lokið...
Jón Magnússon: Mikilvægustu þjóðfélagsmálin í þessu ölduróti 09.01.2024 27:42
Jón Magnússon er í viðtali við Edith Alvarsdóttur. Hann segir frá hvers vegna hann valdi að starfa með Málfundafélaginu Frelsi og fullveldi. Jón segir að þetta sé félagsskapur sem hann eigi fulla samleið með, félagsskapur sem vilji þoka málum áfram, vilji brydda upp á umræðum um mikilvægustu þjóðfélagsmálin á grundvelli þjóðfrelsis og fullveldis íslensku þjóðarinnar. "Þetta skiptir verulegu máli,...
Jólahugvekja sr. Halldórs Gunnarssonar í Holti 25.12.2023 11:05
Í tilefni jóla sendir sr. Halldór Gunnarsson í Holti jólahugvekju til allra félagsmanna í Málfundafélaginu Frelsi og fullveldi. Eftir hugvekjuna flytja Baggalútur, BRÍET og Valdimar Guðmundsson lagið Jólin eru okkar.
Þjóðin er fullvalda, ekki stjórnmálastéttin 17.12.2023 19:16
Edith Alvarsdóttir ræðir við sr. Geir Waage, formann Málfundafélagsins Frelsis og fullveldis í þessum hlaðvarpsþætti. Aðspurður um hvers vegna farið hafi verið af stað með það að stofna málfundafélagið segir Geir: "Það eru ýmsar forsendur fyrir því. Auðvitað þreyta þeirra sem hafa verið að taka þátt í pólitísku starfi á undanförnum áratugum. Það er hvergi pláss eða friður til þess að standa að nei...
Málfundur #2: Þrælshringurinn og vakningarákall til þjóðarinnar 11.12.2023 47:11
Þessi upptaka er frá öðrum málfundi Málfundafélagsins Frelsis og fullveldis sem haldinn var á Catalínu í Kópavogi þann 27. apríl 2023. Framsögumenn voru Arnar Þór Jónsson lögmaður og sr. Geir Waage . Miklar og góðar umræður áttu sér stað eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu. Hér er upptaka af ræðum framsögumanna (47 mínútur) en upptaka af öllum fundinum, þ.e. ræður framsögumanna og umræður...
Hvernig verjum við frelsi og fullveldi Íslands? 04.12.2023 27:07
Hér er viðtal sem Edith Alvarsdóttir tók við Arnar Þór Jónsson lögmann 29. nóvember 2023. Edith spurði Arnar út í bókun 35 og þá þróun sem verið hefur síðan Ísland samþykkti að ganga inn í viðskiptabandalag og gerast aðili að Evrópska efnahagssvæðinu fyrir 30 árum. Þau ræða um forsetaembættið og Arnar svarar spurningunni um hvernig við verjum frelsi og fullveldi Íslands. Arnar veltir fyrir sér hv...
Málfundur #5: Stefnir í annað hrun? Hvað er til ráða? 18.11.2023 2:08:27
Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til 5. umræðufundar félagsins í Catalínu í Hamraborg, Kópavogi mánudaginn 6. nóvember síðastliðinn. Umræðuefnið var: Stefnir í annað hrun? Hvað er til ráða? Framsögumenn voru þeir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins og Ólafur Ísleifsson fyrrverandi alþingismaður og hagfræðingur. Fundarstjóri var Geir Waage . M...
Fyrir hvað stendur málfundafélagið Frelsi og fullveldi? 31.10.2023 24:09
Sr. Geir Waage, Edith Alvarsdóttir og Ólafur Ísleifsson segja frá stefnu og aðaláherslum málfundafélagsins Frelsis og fullveldis.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.