Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: fotbolti.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Pepsi Max umfjöllun - Leikur sem FH hefði ekki unnið í fyrra 11.05.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu fyrstu þrjá umferðir þriðju umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Glæsimark Hilmars Árna Halldórssonar tryggði Stjörnunni sigur gegn HK, Blikar voru betri en Víkingar og FH vann 3-2 sigur gegn KA &i...
Skólastjórinn um lokaumferðina - Liverpool heldur í vonina 11.05.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram á morgun sunnudag. Allt snýst um titilbaráttuna en Liverpool heldur í vonina um að Manchester City misstígi sig gegn Brighton. Liverpool leikur á móti Wolves en liðið er einu stigi á eftir City. M...
Heimavöllurinn - Markmaður í mömmuleikfimi og 15 ára stjarna 11.05.2019
Í nýjasta þætti Heimavallarins er farið yfir 2. umferðina í Pepsi Max-deildinni. Leikirnir eru gerðir upp og verðlaun veitt fyrir allskonar frammistöður. Við berum saman Breiðablik og Val, ræðum unga leikmenn og spáum í spilin fyrir næstu umferð í Inkasso og Pepsi Max deildinni. Gestir þáttarins eru þær Harpa Karen Antonsdóttir og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir en auk þess heyra Heimavallarstýrur í...
Innkastið - Besta Meistaradeild og bestu framherjar sögunnar 08.05.2019
Þau voru stór lýsingarorðin sem notuð voru í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni. Elvar og Daníel skoðuðu stórkostlega undanúrslitaleiki Meistaradeildarinnar. Einnig var rætt um ensku úrvalsdeildina, ekki augljósa lið tímabilsins og þá völdu þeir bestu sóknarmennina frá upphafi. Ofboðslega er fótbolti skemmtilegur! Innkastið er í boði Ölvers í Glæsibæ.
Innkastið - Færeyskt fíaskó og hikstandi stórlið 06.05.2019
Ekkert lið er með fullt hús þegar tvær umferðir eru að baki í Pepsi-Max deildinni. Skemmtileg byrjun á mótinu. Íslenska Innkastið er fullskipað að þessu sinni. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og svo er mættur, í boði skattgreiðenda, Gunnar Birgisson. 2. umferð P...
Heimavöllurinn - Allt um fyrstu umferð Pepsi Max 06.05.2019
Í nýjasta þætti Heimavallarins er farið yfir fyrstu umferðina í Pepsi Max-deild kvenna þetta árið. Leikirnir fimm eru reifaðir og áhugaverð atvik rædd. Gestir þáttarins eru þær Anna Þorsteinsdóttir og Brynja Dögg Sigurpálsdóttir en auk þess heyra Heimavallarstýrur í Daníel Geir Moritz sem var á vellinum í opnunarleiknum í Eyjum.
Kolbeinn kominn aftur í appelsínugult 04.05.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kolbeinn Finnsson hefur verið lánaður í uppeldisfélag sitt, Fylki. Lánssamningurinn er til 1. júlí. Hann er kominn með leikheimild fyrir leik liðsins gegn ÍA í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Þessi 19 ára leikmaður lék fyrr á árinu sína fyrstu A-landsleiki en hann heimsótti útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi við Elvar og Tómas.
Elvar og Tómas hita upp fyrir leikina í Pepsi Max-deildinni 04.05.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um íslenska boltann og hituðu upp fyrir 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Bikarleikirnir úr liðinni viku voru einnig til umfjöllunar.
Kristján Atli um lokasprettinn hjá Liverpool 04.05.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um Liverpool, var á línunni og spjallaði við Elvar og Tómas. Skoðaður var lokasprettur liðsins en Liverpool er í brattri brekku í Meistaradeildinni og í farþegasætinu í úrvalsdeildinni þrátt fyrir frábæra frammistöðu. Þá sagði Tómas frábæra ferðasögu frá Þýskalandi!
Innkastið - Verður Liverpool besta liðið sem ekkert nær að vinna? 01.05.2019
Er Messi Guð? Gæti Liverpool orðið besta liðið sem ekkert nær að vinna á einu tímabili? Eftir 3-0 sigur Barcelona gegn Liverpool, í furðulegum fótboltaleik, fóru Elvar og Daníel yfir málin í Evrópu-Innkastinu. Eldræða Messi og hatrið á Suarez koma við sögu. Í...
Innkastið - Lof og last eftir fyrstu umferð Pepsi Max 28.04.2019
Íslenska Innkastið er mætt á nýju tímabili. Hver umferð í Pepsi Max-deildinni verður gerð upp að henni lokinni. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fengu til sín fótboltaþjálfarann Harald Árna Hróðmarsson og fóru yfir alla leikina í 1. umferð. Me...
Heimavöllurinn – Upphitunarfjör fyrir Pepsi Max 28.04.2019
Það er komið að því að Heimavöllurinn hiti upp fyrir Pepsi Max deild kvenna enda aðeins fjórir dagar í að flautað verði til leiks. Í þætti dagsins birta þáttastýrurnar, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, lokaspá sína fyrir deildina, velja leikmenn sem eru líklegir til að skara fram úr á ýmsum sviðum og spá í spilin fyrir fyrstu umferð.
Inkasso-hringborðið - Spáð í spilin og öll liðin skoðuð 27.04.2019
Inkasso-deild karla fer að fara af stað og Fótbolti.net fékk tvo sérfræðinga til að meta keppnina sem er framundan í sumar. Sigurður Helgason, þjálfari 2. flokks KR, og Jón Þór Hauksson, þjálfari kvennalandsliðsins, sögðu sína skoðun á liðunum tólf. Sp&aacut...
Flugeldasýning í opnunarleik og ný stjarna 27.04.2019
Magnaður opnunarleikur Pepsi Max-deildarinnar, 3-3 jafnteflisleikur Vals og Víkings, var til umfjöllunar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu um leikinn en Benni var á vellinum og gaf sína skýrslu. Hverjir voru bestir og hverjir stóðu...
Innkastið - Urðað yfir Manchester United 25.04.2019
Sumardeginum fyrsta er fagnað í Evrópu-Innkastinu. Elvar og Daníel ræddu um tap Manchester United gegn Manchester City í gær og hversu ótrúlega slakt lið United var. Hverjir eiga að vera áfram á Old Trafford og hverjum á að kasta burt? Er eðlilegt að stuðningsmenn Liverpool hafi haldið með...
Upphitunarþáttur Pepsi Max-deildarinnar - Öll liðin skoðuð 20.04.2019
Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon hituðu upp fyrir Pepsi Max-deildina sem fer af stað á föstudaginn. Spáin fyrir deildina var skoðuð og rætt um öll tólf liðin í deildinni. Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, var á línunni og einnig v...
Hvernig fóru Úlfarnir að því að rúlla yfir Víkinga? 20.04.2019
Haka fór í gólf hjá mörgum þegar Úlfarnir, lið í 4. deildinni, rúllaði yfir Inkasso-lið Víkings í Ólafsvík í Mjólkurbikarnum. 6-2 urðu lokatölur. Úlfarnir hafa verið til í tvö ár og ekki gert mjög merkilega hluti í 4. deildinni. &Oacut...
Innkastið - Evrópudrama og Solskjær gæti klúðrað sumrinu 19.04.2019
Evrópu-Innkastið hjálpar þér að stytta föstudaginn langa. Elvar og Daníel fóru yfir ótrúlega dramatík Meistaradeildarinnar í vikunni, afrek Ajax og Tottenham, vonbrigði Manchester City, öruggan sigur Liverpool og af hverju stuðningsmenn Manchester United ættu að kvíða sumrinu. Sp&aac...
Niðurtalningin: Valur - Orri og Ívar 19.04.2019
Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Orra Sigurð Ómarsson og Ívar Örn Jónsson leikmenn Vals. Valur er Íslandsmeistari síðustu tveggja ára og þeim er spáð Íslandsmeistaratitli í spá Fótbolta.net fyrir sumarið.
Niðurtalningin: KR - Bjöggi Stef og Ægir Jarl 19.04.2019
Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn úr KR en KR-ingum er spáð 2. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Björgvin Stefánsson og Ægir Jarl Jónasson.
Niðurtalningin: FH - Brynjar Ásgeir og Björn Daníel 18.04.2019
Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Hafnfirðinga sem eru komnir aftur heim í FH fyrir tímabilið en FH-ingum er spáð 3. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Björn Daníel Sverrisson.
Niðurtalningin - Breiðablik: Brynjólfur og Gulli Gull 17.04.2019
Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn úr Breiðablik en Blikum er spáð 4. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Gunnleifur Vignir Gunnleifsson og Brynjólfur Darri Willumsson.
Niðurtalningin - Stjarnan: Eyjó og Halli Björns 17.04.2019
Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Bikarmeisturum Stjörnunnar er spáð 5. sæti deildarinnar en Eyjólfur Héðinsson og markvörðurinn Haraldur Björnsson eru gestirnir úr Garðabænum.
Niðurtalningin: ÍA - Viktor Jóns og Hörður Ingi 16.04.2019
Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Viktor Jónsson og Hörð Inga Gunnarsson leikmenn ÍA. ÍA er nýliði í Pepsi Max-deildinni en Skagamönnum er spáð 6. sæti í spá Fótbolta.net fyrir sumarið.
Niðurtalningin: KA - Torfi Tímoteus og Almarr 16.04.2019
Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn KA en liðinu er spáð 7. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Torfi Tímoteus Gunnarsson og Almarr Ormarson.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.