Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Miðjan - Emil ræðir erfitt tímabil á Ítalíu, landsliðið og framtíðina 06.06.2019

Íslenska landsliðið leikur á laugardaginn leik gegn Albaníu í undankeppni EM 2020. Hafnfirðingurinn, Emil Hallfreðsson leikmaður Udinese í Serie A á Ítalíu er í hópnum en hann er kominn til baka eftir erfið meiðsli. Emil settist niður með Arnari Daða Arnarssyni og fór yfir landsleik...

Innkastið - Íslandsmeistarar í botnsæti 03.06.2019

Sögulínurnar verða bara stærri og merkilegri í Pepsi Max-deildinni! Valsmenn eru í neðsta sæti þegar sjö umferðir eru búnar. ÍBV kom öllum á óvart með því að vinna ÍA og Breiðablik var í miklum ham gegn FH. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis f&...

Umdeilt val á Kolbeini 02.06.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Framundan eru landsleikir á Laugardalsvelli, gegn Albaníu næsta laugardag og svo gegn Tyrklandi þremur dögum síðar. Um er að ræða gríðarlega mikilvæga leiki í undankeppni EM. Landsliðshópurinn var opinberaður á fr&eacu...

Almarr ræðir um vítið sem allir eru að tala um 02.06.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Almarr Ormarsson, leikmaður KA, var á línunni og ræddi meðal annars um vítspyrnukeppnina gegn Víkingi Reykjavík í Mjólkurbikarnum. Almarr tók spyrnu í keppninni og flestir telja að boltinn hafi verið inni en aðstoðardóma...

Evrópuboltinn - Jóhann Már um tímabilið hjá Chelsea 02.06.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Benedikt Bóas stýrðu þættinum að þessu sinni. Þeir ræddu um úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hjörvar Hafliðason var í beinni frá Madríd. Þá ræddi Jóhann Már Helgason, stuðningsma&...

Heimavöllurinn - Fulltrúi Pepsi Max á HM og unglingar í A-landsliðið 31.05.2019

Það er ýmislegt í umræðunni í nýjasta þætti Heimavallarins en þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir helstu atburði síðustu daga með gesti þáttarins, Brynju Dögg Sigurpálsdóttur. Þær fara yfir tvær síðustu umferðir Pepsi Max-deildarinnar, spjalla um neðri deildirnar og heyra í Betsy Hasset, leikmanni KR og Nýja Sjálands, sem er á leið á sitt þriðja Heimsmeistaramót.

Inkasso-hornið - Rafn Markús og áhugaverður árangur hans með Njarðvík 30.05.2019

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við Rafn Markús Vilbergsson þjálfara Njarðvíkur sem hefur náð áhugaverðum árangri með liðið síðan hann tók við því í mikilli fallbaráttu í 2. deildinni sumarið 2016.

Innkastið - Óður til Sarri og Liverpool sameinað Spurs 29.05.2019

Lokaþáttur Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið! Sportbarinn Ölver í Glæsibæ býður þér upp á þáttinn! Elvar og Daníel ræddu málin eftir að Chelsea rúllaði yfir Arsenal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Daníel var sár og svekktu...

Innkastið - Hvaða þjálfarasæti eru farin að hitna? 26.05.2019

Það er komið að Innkastinu eftir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis, Magnús Már og Tómas Þór ræða málin. Meðal efnis: Hvaða þjálfarasæti eru farin að hitna í deildinni? Valsvandræðin, Íslandsmeistaravonir Skagamanna, ummæli Rúnars Kristins um Bjögga Stef, enginn átti að fá stig í Kórnum, Gunni giskar og Inkasso hornið.

Enska hringborðið - Enskir úrslitaleikir framundan 25.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool og sérfræðingur þáttarins um enska boltann, mætti við enska hringborðið með Elvari og Tómasi. Hann gerði upp tímabilið á Englandi, valdi besta leikmanninn og mestu vonbrig&e...

14 dagar í landsleikina mikilvægu á Laugardalsvelli 25.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um komandi landsleiki gegn Albaníu og Tyrklandi sem verða á Laugardalsvelli 8. og 11. júní. Leikirnir eru í undankeppni EM og Ísland þarf helst að sækja sex stig úr þessum tveimur leikjum....

Pepsi Max umræða - Lætin í kringum Gary Martin og Bjögga Stef 25.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hituðu upp fyrir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Tvö helstu fréttamál vikunnar í deildinni voru til umræðu. Gary Martin hefur gert starfslokasamning við Val og Björgvin Stefánsson, sóknarmaður KR, á yfir höfði sér fimm leikja bann eftir rasísk ummæli í lýsingu á leik í Inkasso-deildinni.

Inkasso-hornið - Rætt um öll liðin eftir áhugaverða byrjun 21.05.2019

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum fyrsta þætti ræðir hann við tvo sérfræðinga um byrjun deildarinnar en þrjár umferðir eru að baki. Baldvin Már Borgarsson, fréttaritari Fótbolta.net, og Úlfur Blandon, þjálfari Þróttar í Vogum, skoðuðu öll liðin og s...

Innkastið - Sögulínum fjölgar og enginn kann að stöðva Skagalestina 20.05.2019

Fólk talar um að Pepsi Max-deildin sé besta deildin. Miðað við dramatíkina í 5. umferð er erfitt að mótmæla því. Elvar Geir, Gunni Birgis, Tómas Þór og Magnús Már eru mættir með Innkast umferðarinnar. Óli Kristjáns með lykilinn að Nangijala, Víkingavonbrigði, góð Garðabæjarferð hjá KA, hræðsla Blika, mikil trú á ÍA, leitin að Gary Martin, rússíbanamínútur á Meistaravöllum, töfrar Túfa og fleira ti...

Heimavöllurinn - Inkasso stórveisla 20.05.2019

Inkasso-deildin er í aðalhlutverki í nýjasta þætti Heimavallarins. Annarri umferð Inkasso deildarinnar lauk í gær og það er nóg að ræða strax í upphafi móts. Við rýnum í alla leikina. Það voru óvænt úrslit, það eru spennandi félagaskipti og við ræðum skemmtileg tilþrif svo eitthvað sé nefnt. Við förum yfir allt það helsta auk þess sem við veljum leikmenn úr hverju liði sem gætu staðið sig vel í Pe...

Kristján Guðmunds rýnir í upphafi Pepsi Max karla 18.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Guðmundsson heimsótti Elvar og Tómas og fór yfir byrjunina á Pepsi Max-deildinni. Skoðaðir voru komandi leikir og skemmtileg byrjun deildarinnar.

Jói Kalli og Gústi Gylfa á fréttamannafundi 18.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór boðuðu til fréttamannafundar! Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, og Ágúst Gylfason, þjálfari Breiðabliks, voru í spjalli í tilefni af því að Blikar taka &aac...

Innkastið - Óróleiki og óvæntir hlutir innan og utan vallar 16.05.2019

Tómas Þór Þórðarson er mættur inn í teymi Innkastsins og var með í að kryfja fjórðu umferð deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már voru á sínum stað en þeir fjórir fóru yfir alla leikina. Í tilefni af komu Tómasar var þátturinn í lengra lagi að þessu sinni! Rætt var um Gary Martin, agavesen FH-inga, óvænt tap KR í Grindavík, sífelldar breytingar Pedro, búðarferðir leikmanna, tifandi t...

Innkastið - Klár krísa hjá Val og skeyti frá Eyjum 12.05.2019

Þriðja umferð Pepsi Max-deildarinnar er að baki. Deildin fer fáránlega skemmtilega af stað! Elvar Geir og Gunnar Birgisson eru í Innkastinu í kvöld en Egill Sigfússon, fréttaritari Fótbolta.net, leysir Magnús Má af í þætti kvöldsins. Við skoðum alla leikina, skúbbum eitthvað, kíkjum aðeins niður í Inkasso og Gunni giskar á næstu umferð. Meðal efnis: ÍA vinnur að því að fá miðjumann, Rikki Gje gagn...

Innkastið - Öðruvísi verðlaun eftir ljósbláan sigur 12.05.2019

Það er verðlaunahátíð í Innkastinu! Manchester City varð í dag fyrsta liðið í áratug sem nær að verja enska meistaratitilinn. Það var boðið upp á spennandi lokaumferð en þrátt fyrir magnað tímabil þarf Liverpool að sætta sig við annað s&aeli...

Inkasso-hornið - Fram vann Fjölni óvænt 11.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Í Inkasso-horninu er augljóslega fjallað um Inkasso-deildina. Að þessu sinni fóru Elvar og Tómas lauslega yfir byrjunina á mótinu og ræddu við Hlyn Atla Magnússon, fyrirliða Fram. Framarar unnu óvæntan sigur gegn Fjölni &iacu...

Pepsi Max umfjöllun - Leikur sem FH hefði ekki unnið í fyrra 11.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu fyrstu þrjá umferðir þriðju umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Glæsimark Hilmars Árna Halldórssonar tryggði Stjörnunni sigur gegn HK, Blikar voru betri en Víkingar og FH vann 3-2 sigur gegn KA &i...

Skólastjórinn um lokaumferðina - Liverpool heldur í vonina 11.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram á morgun sunnudag. Allt snýst um titilbaráttuna en Liverpool heldur í vonina um að Manchester City misstígi sig gegn Brighton. Liverpool leikur á móti Wolves en liðið er einu stigi á eftir City. M...

Heimavöllurinn - Markmaður í mömmuleikfimi og 15 ára stjarna 11.05.2019

Í nýjasta þætti Heimavallarins er farið yfir 2. umferðina í Pepsi Max-deildinni. Leikirnir eru gerðir upp og verðlaun veitt fyrir allskonar frammistöður. Við berum saman Breiðablik og Val, ræðum unga leikmenn og spáum í spilin fyrir næstu umferð í Inkasso og Pepsi Max deildinni. Gestir þáttarins eru þær Harpa Karen Antonsdóttir og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir en auk þess heyra Heimavallarstýrur í...

Innkastið - Besta Meistaradeild og bestu framherjar sögunnar 08.05.2019

Þau voru stór lýsingarorðin sem notuð voru í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni. Elvar og Daníel skoðuðu stórkostlega undanúrslitaleiki Meistaradeildarinnar. Einnig var rætt um ensku úrvalsdeildina, ekki augljósa lið tímabilsins og þá völdu þeir bestu sóknarmennina frá upphafi. Ofboðslega er fótbolti skemmtilegur! Innkastið er í boði Ölvers í Glæsibæ.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.