Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fantabrögð - 16. Umferð - Rauð viðvörun 10.12.2019
Það skiptust á skin og skúrir þessa helgina hjá Aroni og Gylfa þegar kom að Fantasy. Þrefaldi Tottenham skammturinn hjá Aroni skilaði sér heldur betur þegar þeir unnu 5-0 sigur á Burnley. Á meðan unnu Liverpool 3-0 sigur og héldu hreinu en þar sem Trent spilaði aðeins 50 mín. fékk hann ekki stig fyrir að halda hreinu. Vardy hélt áfram að skora, Rashford er allt í einu orðinn einn heitasti leikmaðu...
Innkastið - Óstöðvandi topplið og meira fjör hjá Tottenham 09.12.2019
Það var líf og fjör í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni en gestir voru Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson. Öllu léttara var yfir þeim en síðast þegar þeir kíktu í heimsókn í byrjun október. Síðan þ...
Íslenski boltinn - Lenging mótsins og viðtal við Bjarna Ólaf 07.12.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór héldu áfram að ræða um mögulega lengingu á Íslandsmótinu. Þá var Bjarni Ólafur Eiríksson í viðtali en hann gekk nýlega í raðir ÍBV. Daníel Geir Moritz,...
Enski boltinn - Ferðalag Tom og desemberdagskrá Liverpool 07.12.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fjallað um enska boltann. Tómas Þór sagði frá vinnuferð sinni þar sem hann heimsótti Turf Mor og Anfield, sá Manchester City rúlla yfir Burnley og Everton tapa illa fyrir Liverpool. Þá var Magnús Þór Jónsson af kop...
Ítalski boltinn - Spennandi titilbarátta Inter við Juventus 07.12.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Farið er yfir það helsta í ítalska boltanum. Björn Már Ólafsson, helsti sérfræðingur Íslands um ítalska boltann var í beinni frá Malmö. Hann ræddi við Elvar og Tómas um gang mála.
Enska Innkastið - Ljungberg breytir engu 06.12.2019
Í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni fer öll orkan í ensku úrvalsdeildina enda tvær umferðir að baki síðan þátturinn var síðast á dagskrá. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru umsjónarmenn þáttarins. Daníel er lítill í sér v...
Fantabrögð - 15. umferð - Sprengju varpað í lok þáttar! 06.12.2019
Strákarnir hittust í GT studio og ræddu 15. umferðina. VAR-sóknarlínan sýndi, eins kaldhæðið og nafnið er, enn og aftur fram á mikilvægi sitt. Vardy, Abraham og Rashford skoruðu allir. Tammy lék marga þjálfara grátt og einhverjir söfnuðu stigum á bekknum. Mælt er með...
Fantabrögð - 14. umferð - Að taka á sig mínus 01.12.2019
14. umferðin fór ekki alveg eins vel og við höfðum vonað. Jamie Vardy skoraði, en ekki alveg eins mikið og við hefðum óskað okkur. Einungis eitt lið skoraði fleiri en tvö mörk og einungis tvö lið héldu hreinu. Willems lestin gefst ekki upp og Freddie Ljungberg blés lífi í Aubameyang. Fyrir...
Fótboltapólitíkin - Þreföld umferð á Íslandsmótinu 2021? 30.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, kom í útvarpsþáttinn Fótbolti.net. Hann ræddi um fótboltapólitíkina og það sem félögin eru að ræða sín á milli þessa dagana, þar á meðal fjármálin. Þá ræddi hann um hugmyndir um að lengja Íslandsmótið en hann er stuðningsmaður þess að 2021 verði gerð tilraun með að spila þrefalda umferð í Pepsi Max-deildinni, áf...
Enska hringborðið - Léttir að hafa losnað við Emery 30.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, var á línunni og ræddi um stóru fréttirnar úr enska boltanum. Unai Emery var rekinn úr stjórastól Arsenal og félagið er nú í leit að næsta stjóra.
Jón Þór um Algarve höfnunina og magnaða MLV9 30.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari var á línunni og ræddi um ástæður þess að íslenska kvennalandsliðið fær ekki að vera með á Algarve æfingamótinu á komandi ári. Þá var einnig rætt um Margréti Láru Viðarsdóttur en þessi magnaða fótboltakona lagði skóna á hilluna í vikunni.
Fantabrögð - 13. umferð - Viva la Burnley 26.11.2019
Þessi "tricky" umferð stóð kannski undir nafni. Man City og Liverpool unnu bæði 2-1, sem þýðir að enn er Liverpool að fá á sig mörk. Rashford og Lacazette skoruðu slatta af stigum sem skiluðu liðum þeirra þó einungis svekkjandi jafnteflum. Mál málanna er þó Burnley sem vann annan 3-0 sigur sinn í röð og aftur skoruðu báðir iðnaðarmennirnir, Wood og Barnes. Stigahæsti leikmaður umferðarinnar, aðra...
Enska hringborðið - Hitabylgja í enskum stjórasætum 25.11.2019
Elvar og Daníel eru með Evrópu-Innkastið og fara yfir leiki liðinnar umferðar í ensku úrvalsdeildinni. Þrettán umferðum er lokið í deildinni. Það eru mörg stjórasæti sjóðheit í deildinni. Hver verður næsti stjóri sem fær sparkið? Grínkallinn Emery, VAR, stórfurðulegur leikur í Sheffield, Balotelli horn og ýmislegt fleira.
Landsliðsumræða - Verður Ísland á EM alls staðar? 23.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Ljóst er að Ísland þarf vinna Rúmeníu (vonandi á Laugardalsvelli) þann 26. mars og svo Ungverjaland eða Búlgaríu á útivelli nokkrum dögum síðar til að komast á EM alls staðar. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um möguleika Íslands og gerðu einnig upp frammistöðuna í undankeppninni. Farið var yfir einkunnir leikmanna íslenska liðsins í keppninni.
Enska hringborðið - Endurkoma Mourinho og rómantíkin hjá Chelsea 23.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru við enska hringborðið. Gestur var Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea. Rætt var um endurkomu Jose Mourinho í enska boltann en hann er tekinn við Tottenham. Þá fékk Chelsea að sjálfsögðu stórt pláss og sú rómantík sem er í gangi á Brúnni.
Fantabrögð - Aukaþáttur - Hlakkað til jóla 19.11.2019
Nú er rétt rúmur mánuður í jólin sem margir telja besta tíma ársins og þá helst af Fantasy tengdum ástæðum. Við erum að fara að sigla inn í 9 umferðir á 40 dögum og þá er eins gott að vera með liðið sitt klárt og muna að breyta á milli leikja! Aron og Gylfi ræddu breytingar fyrir komandi umferð/ir, fyrirliðaval og margt fleira. Er of mikið að vera með þrjá Chelsea menn? Á að kaupa Tielemans eða Ma...
Hvað er hægt að gera með Laugardalsvöll? 15.11.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er aðeins fyrr á ferðinni þessa vikuna en upptaka af honum verður einnig á sínum stað milli 12 og 14:00 á X-inu á morgun.
Landsliðsumræða í útvarpinu - Tyrkjaleikurinn og framtíðin 15.11.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er aðeins fyrr á ferðinni þessa vikuna en upptaka af honum verður einnig á sínum stað milli 12 og 14:00 á X-inu á morgun.
Fantabrögð - 12. umferð - FIFA-aðstoðardómarinn tæklaði loksins VAR umræðuna 12.11.2019
Í fjarveru Arons var Gylfi settur í þá krefjandi stöðu að stýra þættinum og sjá um alla erfiðisvinnuna. Það gekk eins og það gekk. Gestur hans var enginn annar Davíð Regins, fyrrum Reykjavíkurmeistari frjálsra ungmenna í borðtennis og útvarpsmaður á Áttunni. Gylfi, sem er að öllum líkindum FIFA-aðstoðardómari ásamt því að vera leikmaður Elliða (sem leikur í 3. deild), ákvað að útskýra VAR fyrir þj...
Innkastið - Liverpool menn í skýjunum á toppnum 11.11.2019
Liverpool er með átta stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Manchester City í toppbaráttuslag í gær.
Bjössi Hreiðars ræðir um Val og Grindavík 09.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Sigurbjörn Hreiðarsson kom í langt spjall við Tómas Þór Þórðarson um boltann. Bjössi var aðstoðarmaður Ólafs Jóhannessonar hjá Val en er nú tekinn við sem aðalþjálfari Grindavíkur.
Enska hringborðið - Krísufundur Norður-Lundúna 09.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson var einn í fiskabúrinu og tók á móti íþróttafréttamanninum Einari Erni Jónssyni, stuðningsmanni Arsenal, og Ingimar Helga Finnssyni, stuðningsmanni Tottenham. Haldinn var krísufundur um gang mála hjá þessum tveimur liðum. Hallgrímur Indriðason, formaður Liverpool-klúbbsins, ræddi svo um húllumhæ klúbbsins fyrir stórleikinn á Spot.
Fantabrögð - 11. umferð - Lengi lifi Lundstram! 05.11.2019
Nú fer hver að verða síðastur að verða sér út um pláss á Lundstram vagninum. Þessi 4 milljóna demantur var maður umferðarinnar og er klárlega Fantasy leikmaður ársins hingað til. Manchester United náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Norwich, Mané heldur áfram að draga vagninn fyrir Liverpool og Tammy og Vardy sóknarlínan er málið. Við förum yfir Aguero málið, breytingar fyrir næstu umferð og f...
Innkastið - Brasilíubakverðir Liverpool og Emery grettur 04.11.2019
Brjáluð boltahelgi að baki og Elvar og Daníel fara yfir gang mála í Evrópu-Innkastinu. Bayern er búið að sparka stjóranum og ýmis sæti í ensku deildinni eru farin að hitna enn frekar. Endalausar endurkomur Liverpool, City í kröppum dansi, magnaður Ben Foster, sagan endalausa hjá United,...
Rúnar Páll á leið inn í sjöunda tímabilið sem aðalþjálfari Stjörnunnar 02.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var gestur og ræddi ítarlega við Elvar Geir og Tómas Þór. Rúnar er á leið í sitt áttunda tímabil í þjálfun meistaraflokks Stjörnunnar og í sjöunda árið sem aðalþjálfari. Í skemmtilegu og áhugaverðu viðtali ræðir Rúnar um starf sitt í Garðabænum. vonbrigðin að hafa ekki náð Evrópusæti, leikmannamál, ævintýrin í Ev...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.