Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Útvarpsþátturinn - Máni fer um víðan völl 16.11.2024
Það er landsleikjagluggi og þáttur vikunnar litast að sjálfsögðu af honum. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stjórnartaumana og með þeim er Máni Pétursson sérstakur gestur og fer yfir helstu mál.
Frá Akranesi til Gana: Fer aftur með fótboltabúnað fyrir jólin 14.11.2024
Hin ganverska Samira Suleman safnar nú fótbolta- og íþróttabúnaði sem hún fer með til Gana um jólin. Samira gerði þetta líka um síðustu jól en hún fór þá með mikið magn af treyjum, skóm og öðrum búnaði í heimabæ sinn og gladdi þar mörg börn sem eiga ekki fyrir slíkan búnað. Fyrir börnin skiptir þetta gríðarlega miklu máli en í Gana er ekki sjálfsagt mál að eiga fótboltaskó og aðra hluti til fótbol...
Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Víkingur vs Íþróttavikan 13.11.2024
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Víking og Íþróttavikunni. Fyrir Víkinga keppti Davíð Örn Atlason en fyrir Íþróttavikuna keppti Hrafnkell Freyr Ágústsson.
Hugarburðarbolti GW12 Man City tapaði fjórða leiknum í röð! 12.11.2024
Man City tapaði fjórða leiknum í röð í öllum keppnum! Liverpool eru í góðum gír með 5 stiga forskot á City. Yoane Wissa drjúgur fyrir Brentford eftir meiðslin. Joao Pedro með alvöru innkomu hjá Brighton! Bruno Fernandes kom loksins með frammistöðu og Sammie Szmodics afgreiddi Tottenham í London.
Enski boltinn - Liverpool er bara besta lið Evrópu 11.11.2024
Liverpool stuðningsmenn eru í skýjunum þessa dagana en það er óhætt að fullyrða að liðið þeirra sé það besta í Evrópu um þessar mundir. Hvern hefði grunað það fyrir tímabilið? Útvarpsmennirnir Bolli Már Bjarnason og Heiðar Austmann komu í heimsókn í dag og fóru yfir tímabilið hjá Liverpool til þessa en liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot. Þá var einnig farið yfir aðra...
Tveggja Turna Tal - Jóhann Birnir Guðmundsson 11.11.2024
Gestur vikunnar er Jóhann Birnir Guðmundsson, eðalnáungi. Jói æfði eiginlega ekki fótbolta í 3 og 4 flokki því það var ekki lið í Garðinum, þaðan sem kemur. Elton John keypti hann til Watford og þar spilaði hann undir goðsögninni Graham Taylor. Jóhann spilaði svo i Englandi, Noregi og í Svíþjóð áður en hann kom heim til að spila með Keflavík. Eftir ferilinn hefur Jói verið þjálfari Keflavíku...
Útvarpsþátturinn - Kári Árna, Evrópuvelgengni Víkings og landsliðið 08.11.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi. Fjallað er um helstu fréttir úr íslenska boltanum, Evrópuvelgengni Víkings og íslenska landsliðið sem býr sig undir leiki gegn Svartfjallalandi og Wales í Þjóðadeildinni.
Fékk traustið áfram og gerði KA að bikarmeisturum 08.11.2024
Sæbjörn Steinke ræddi í vikunni við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, og gerði upp nýliðið tímabil með honum. KA varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins og endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar. Stigasöfnunin var lítil í byrjun móts og hugsuðu einhverjir hvort KA þyrfti hreinlega að skipta um þjálfara. Það var ekki gert og gengi liðsins batnaði til muna, við tók kafli þar sem KA tapaði ekki...
Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Breiðablik vs Þungavigtin 06.11.2024
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Breiðablik og Þungavigtinni. Fyrir Breiðablik keppti Höskuldur Gunnlaugsson en fyrir Þungavigtina keppti Kristján Óli Sigurðsson.
Hugarburðarbolti - Liverpool aftur á toppinn! 05.11.2024
Liverpool aftur á toppinn eftir magnaðan leik á Anfield Road gegn Brighton. Man City og Arsenal töpuðu bæði. Dominic Solanke skein skært hjá Spurs gegn Aston Villa. Viðurinn heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. Dýrlingarnir með sinn fyrsta sigur í deildinni og Harry Wilson hetjan á Craven Cottage.
Enski boltinn - Liverpool á toppnum og velkominn Amorim 04.11.2024
Það eru viðburðarríkir dagar að baki í enska boltanum og nóg um að ræða að venju. Liverpool er á toppnum eftir frábæra byrjun og Manchester United var að ráða nýjan stjóra. Svo er Nottingham Forest heitasta lið deildarinnar. Magnús Haukur Harðarson og Gylfi Tryggvason settust niður og ræddu málin í dag ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni.
Rólegi stríðsmaðurinn sem aldrei vék frá Stjörnunni 04.11.2024
Daníel Laxdal lagði skóna á hilluna á dögunum eftir stórkostlegan feril með Stjörnunni. Daníel lék allan sinn feril í Garðabænum og skilur eftir sig mikla arfleifð hjá félaginu. Mikill stríðsmaður innan vallar en afar rólegur samt sem áður. Þessi mikli Stjörnumaður mætti í hlaðvarp á Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi aðeins um ferilinn, ákvörðunina um að hætta og hvað sé næst.
Tveggja Turna Tal - Haraldur Árni Hróðmarsson 04.11.2024
Gestur vikunnar er í einu áhugaverðasta starfi í íslenskum fótbolta. Haraldur Árni Hróðmarsson þjálfar lið frá bæjarfélagi þar sem enginn býr, því miður. Við ræddum saman um fótboltaferilinn, 48 tíma reglu Bo Hendrikssen, hvernig það var að þjálfa með Heimi Guðjóns, Tufa og Jóni Þór ásamt því sem Haraldur spáir því að trúðurinn Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna. Kvikmyndaunnendur landsins mu...
Útvarpsþátturinn - Besta, Valur og Amorim tekur við 02.11.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir helstu tíðindi Bestu deildarinnar eftir að tímabilinu lauk, og nýr formaður fótboltadeildar Vals, Björn Steinar Jónsson er á línunni. Í seinni hlutanum mætir Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins, og gerir upp fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar. Ráðning Manchester United á...
Halldór Árnason - Íslandsmeistari í fyrstu tilraun 31.10.2024
Halldór Árnason gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum síðasta sunnudag eftir úrslitaleik gegn Víkingi í Fossvogi. Halldór var á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari Breiðabliks en hann hafði áður verið aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar með liðið. Halldór mætti í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir frábært tímabil Blika, sem og sína leið í þjálfun.
Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Afturelding vs Dr. Football 30.10.2024
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Aftureldingu og Dr. Football. Fyrir Aftureldingu keppti Arnór Gauti Ragnarsson en fyrir Dr. Football keppti Sigurður Gísli Bond Snorrason.
Hugarburðarbolti GW9 Erik ten Hag rekinn! 29.10.2024
Chris Wood heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. 2-2 sanngjarnt jafntefli í stórleiknum á Emirates. Jarrod Bowen setti síðasta naglann í kistu Erik ten Hag. Haaland skoraði eina markið gegn dýrlingunum. Cole Palmer átti enn einn góða leikinn fyrir Chelsea og Welbeck skoraði auðvitað fyrir Brighton í hörku 2-2 jafntefli gegn Úlfunum.
Enski boltinn - Ten Hag rekinn og dramatík á Emirates 28.10.2024
9. umferð í ensku úrvalsdeildinni kláraðist um helgina. Það var jafntefli í stórleik umferðarinnar og Erik Ten Hag var rekinn sem stjóri Manchester United.
Innkastið - Grimmir Blikar verðskuldaðir meistarar 27.10.2024
Síðasta Innkast tímabilsins. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke ræða um síðustu umferðina og gera upp tímabilið. Lið ársins og verðlaunaafhending. Opinberað er val .Net á leikmanni ársins, þeim efnilegasta, dómara ársins og þjálfara ársins. Til hamingju Íslandsmeistarar Breiðabliks! HK-ingar féllu með hvelli og Valur tryggði sér Evrópusæti.
Útvarpsþátturinn - Láki og leikurinn stóri 26.10.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað vel upp fyrir úrslitaleik Víkings og Breiðabliks. Gestur er Þorlákur Árnason nýr þjálfari ÍBV, Hilmar Jökull stuðningsmaður Breiðabliks kemur í heimsókn og Haraldur framkvæmdastjóri Víkings er á línunni. Hitað er upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar, rætt um Evrópusigur Víkings og farið yfir fréttir v...
Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: ÍA vs Stöð 2 23.10.2024
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti ÍA og Stöð 2. Fyrir ÍA keppti Arnór Smárason en fyrir Stöð 2 keppti Valur Páll Eiríksson.
Hugarburðarbolti GW8 Jón Steinsson var aftur hetja bláliða! 22.10.2024
Curtis Jones var munurinn á liðunum í leik Liverpool og Chelsea. Tvö frábær mörk hjá Man Utd í seinni hálfleik tryggðu sigurinn gegn Brentford. Man City eru ekki bara með gæðin heldur lukkudísirnar líka. Tottenham með glæstan sigur um helgina í Lundúnaslag gegn West Ham og Arsenal tapaði fyrsta útileik sínum á árinu sanngjarnt á suðurströndinni gegn Bournemouth.
Enski boltinn - Klopp ekki ómissandi og Sir Alex bolað burt 21.10.2024
Landsleikjahléið er búið og enska úrvalsdeildin er farin aftur af stað. Til allrar hamingju. Kristján Atli Ragnarsson og Óskar Smári Haraldsson, stuðningsmenn Liverpool, mættu í heimsókn í dag og fóru yfir áhugaverða umferð í ensku úrvalsdeildinni. Það er svo sannarlega nóg til að ræða eftir helgina.
Innkastið - Stjórnlaust hringleikahús 21.10.2024
Innkastið eftir hreint rosalega umferð í Bestu deild karla þar sem allt var á ystu nöf. Það er búið að leggja upp fyrir rosalega lokaumferð. Dómaraskandallinn og dramatíkin á Skaganum, Blikar stóðust pressuna, Gylfi íhugar að hætta, flautumark og fáránleiki í Kórnum og andlausir Vestramenn.
Tveggja Turna Tal - Árni Freyr Guðnason 21.10.2024
Gestur vikunnar er nýráðinn þjálfari Fylkis, Árni Freyr Guðnason. Árni er alinn upp í Hafnafirði. Hann spilaði upp yngri flokka FH en hans bestu ár sem leikmaður komu í Breiðholtinu sem leikmaður ÍR.Ásamt því að spila þá þjálfaði hann yngri flokka FH en hann hefur einnig þjálfað kvennalið FH og verið yfirþjálfari yngri flokka í Kaplakrika. Árni Freyr tók við ÍR þegar félagið var í vandræðum í 2.de...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.