Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2924 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: fotbolti.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Oct 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sigurður Grétar: Myndi ekki flokka mig sem listamann 22.05.2016

Sigurður Grétar Benónýsson, sóknarmaður ÍBV, hefur vakið mikla athygli fyrir framgöngu sína í upphafi tímabils. Hann hefur skorað tvö mörk í fyrstu þremur umferðunum en þetta eru fyrstu leikir þessa tvítuga stráks í efstu deild. Í fyrra lék hann með KFS í 3. deildinni.

Bikarúrslitaupphitun og tímabil Liverpool gert upp 21.05.2016

Crystal Palace og Manchester United mætast í úrslitaleik enska FA-bikarsins klukkan 16:30 í dag á Wembley.

Byrjun Inkasso-deildarinnar skoðuð - Harka og fjör 21.05.2016

Inkasso-deildin, 1. deild karla, er farin á fulla ferð. Leikir 3. umferðarinnar voru skoðaðir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.

Hressandi Pepsi-yfirferð með Gumma Steinars 21.05.2016

Það verður hart barist á Akranesi í dag þegar ÍA og Fylkir mætast á Skaganum. Með þeim leik hefst fimmta umferð Pepsi-deildarinnar.

Baldur Sig: Sýni KR virðingu í fyrsta leik 16.05.2016

„Frá því að ég kom í klúbbinn hefur verið tekið vel á móti mér. Ég vissi það þegar ég kom í Stjörnuna eftir vonbrigðatímabilið í fyrra myndu þeir leggja allt í sölurnar og vera andlega klárir í þetta," segir Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar. Garðabæjarliðið trónir á toppi Pepsi-deildarinnar. Baldur var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag.

Þorsteinn Joð matreiðir EM: Þetta er þjóðarútkall 16.05.2016

Sjónvarpsmaðurinn reynslumikli Þorsteinn Joð Vilhjálmsson sér um að matreiða Evrópumót landsliða heim í stofu Íslendinga í sumar. Nú er tæplega mánuður í að Ísland leikur sinn fyrsta leik á mótinu.

Pepsi-umræða með Elvari, Tómasi og Gumma Steinars 14.05.2016

Hraðmótið í Pepsi-deildinni er í fullum gangi og spilað þétt um þessar mundir. Þriðja umferðin var leikin á fimmtudag og föstudag en sú fjórða verður strax á mánudag og þriðjudag.

Innkastið - Risa umferð framundan í Pepsi 11.05.2016

Það er mjög áhugaverð umferð framundan í Pepsi-deildinni en Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fara yfir leikina í Innkastinu með Benedikt Bóas Hinrikssyni.

Enska hringborðið - Verðlaunaafhending tímabilsins 08.05.2016

Leicester lyfti Englandsmeistarabikarnum í gær en fyrr um daginn var enska hringborðið á dagskrá. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gerðu upp tímabilið

Inkasso-hringborðið: Öll lið 1. deildar skoðuð 07.05.2016

Boltinn er byrjaður að rúlla í 1. deild karla, Inkasso-deildinni. Rætt var um deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.

Gummi Steinars skoðar 2. umferð Pepsi-deildarinnar 07.05.2016

Sérfræðingurinn Guðmundur Steinarsson fór yfir 2. umferð Pepsi-deildarinnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Umferðin hefst í dag.

Innkastið - Fyrsta umferð í Pepsi með TG9 03.05.2016

Hljóðvarpsþátturinn Innkastið verður á dagskrá í kringum Pepsi-deildina í sumar en í þessu fyrsta Pepsi-Innkasti var farið yfir fyrstu umferð deildarinnar.

Freysi skoðar umferðina: Sér óvænt úrslit í Kópavogi 01.05.2016

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari og fyrrum þjálfari Leiknis, mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og fór yfir fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar með Tómasi Þór Þórðarsyni og Elvari Geir Magnússyni. Hlustaðu á umræðuna í spilaranum hér að ofan.

Haukur Páll mætti og tók Tíuna: McManaman hetjan 01.05.2016

Haukur Páll Sigurðsson, miðjumaður og fyrirliði Vals, mætti í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net í gær en Pepsi-deildin hefst í dag með fjórum leikjum. Valur mætir Fjölni í leik sem hefst klukkan 20:00 í kvöld.

„Fáránleg tilhugsun að Leicester tryggi titilinn á Old Trafford" 30.04.2016

Rætt var um enska boltann í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Sérstaklega var rætt um leik Manchester United og Leicester en með sigri í þeim leik innsiglar Leicester enska meistaratitilinn.

Guðmann: Ég og Heimir töluðum saman eins og menn 30.04.2016

„Ég er gífurlega spenntur fyrir sumrinu með KA. Það var orðið þannig að ég var ekki inni í myndinni hjá Heimi (Guðjónsson) fyrir byrjunarliðssæti. Ég þarf að virða það, Heimir er góður þjálfari. Mér finnst ég vera það góður hafsent að ég eigi ekki að vera á bekknum neinsstaðar," sagði Guðmann Þórisson í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 nú rétt í þessu. Guðmann er kominn til KA á...

Pepsi-hringborðið: Öll liðin tólf skoðuð 28.04.2016

Það er vika í að flautað verði til leiks í Pepsi-deildinni. Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag var hitað upp fyrir deildina við Pepsi-hringborðið sem heyra má í heild sinni í spilaranum.

Innkastið - Meistaradeildin: Allt í járnum 27.04.2016

Fyrri leikir undanúrslita Meistaradeildar Evrópu eru að baki en þeir voru til umræðu í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Manchester City og Real Madrid gerðu markalaust jafntefli í gær en í kvöld vann Atletico Madrid 1-0 sigur gegn Bayern München.

Heimir Guðjóns: Ekkert til í þessu sem Óli Jó sagði 25.04.2016

Fótbolti.net spáir því að FH-ingar verði Íslandsmeistarar annað árið í röð. „Þetta kemur bæði og á óvart. Það eru mörg lið búin að styrkja sig. KR, Stjarnan, Breiðablik, Valur og Víkingur hafa styrkt sig mikið. Mannskapslega séð þá held ég að deildin hafi sjaldan eða aldrei verið jafn sterk," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH við Fótbolta.net í dag.

Rúnar Páll: Það verður alltaf einhver óánægður 25.04.2016

„Við erum með ágætis hóp og höfum styrkt okkur ágætlega. Það er fín blanda af ungum og reyndum leikmönnum og við erum bjartsýnir á tímabilið. Það þarf að hafa mikið fyrir því að ná árangri og við erum svo sannarlega tilbúnir í það," segir Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar.

Bjarni Guðjóns: Líður betur með hópinn núna 22.04.2016

„Við ætlum okkur meiri hluti en 3. sætið," segir Bjarni Guðjónsson þjálfari KR um spá Fótbolta.net. KR endaði í 3. sæti í Pepsi-deildinni í fyrra og Fótbolti.net spáir liðinu sama sæti í ár.

Arnar Grétars: Erum með ákveðna launaflokka 21.04.2016

„Frammistaða okkar í vetur hefur ekki verið nógu góð og við höfum ekki spilað vel. Þetta kemur mér því alls ekki á óvart," segir Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks en liðinu er spáð 4. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

Óli Jó: Eigum ekki séns í FH, KR og Stjörnuna 20.04.2016

„Spáin kemur ekki á óvart. Ég held að þetta sé mjög eðlilegt," segir Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, um spá Fótbolta.net en þar er liðinu spáð 5. sæti í sumar. „Við þurfum að setja okkur markmið miðað við hvað er að ske í þessari deild. Það eru önnur lið sem eru öflugri heldur en við og leggja meira til málana. Það er erfitt fyrir okkur að keppa við það. Þau eru að eyða meiri pening en við. Þau...

Milos: Lofa því að við verðum í topp þremur í haust 20.04.2016

„Ég átti von á því að við myndum vera í miðjunni því fyrstu fimm sætin eru frátekin. Þetta kemur mér ekki á óvart," sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkings R., eftir að honum var tilkynnt að liðinu er spáð 6. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. „Markmiðið er að gera mjög vel og enda í topp þremur. Það var slys að vera í botnbaráttu í fyrra og afleiðing af því að við vorum að keppa í Evrópukeppni og vo...

Ejub: Hjálpum leikmönnum sem hafa verið í vandræðum 19.04.2016

Nýliðarnir í Víkingi Ólafsvík eru í ellefta sæti í spá fyrir Pepsi-deildina. Þeir voru í æfingaferð á Spáni þegar lið þeirra var kynnt en þjálfarinn, Ejub Purisevic, heimsótti skrifstofu Fótbolta.net í dag og má heyra viðtal við hann í spilaranum hér að ofan.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.