Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2923 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: fotbolti.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Oct 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Innkastið - Skömmin er leikmanna 27.02.2017

Leikur Leicester og Liverpool, brotthvarf Ranieri og deildabikarsigur Manchester United skipa stóran sess í Evrópu-Innkasti vikunnar. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru á sínum stað en Tómas Þór Þórðarson var með þeim í kvöld.

Pepsi-hringborðið - Tryggvi flokkar liðin tólf 26.02.2017

Undirbúningstímabilið á Íslandi er farið á fulla ferð en farið var yfir stöðu mála við Pepsi-hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson, Benedikt Bóas Hinriksson og Tryggvi Guðmundsson voru við hringborðið.

Jónas Gestur: Verkfallið hafði gríðarleg áhrif 25.02.2017

Jónas Gestur Jónasson, formaður Víkings Ólafsvíkur, var á línunni í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag. Fyrr í þættinum hafði Tryggvi Guðmundsson greint frá þeirri skoðun sinni að miðað við stöðuna í dag væri Víkingur Ólafsvík líklegasta liðið í Pepsi-deildinni til að falla. Jónas viðurkennir að sú spá komi ekkert endilega á óvart.

Enska hringborðið - Úrslitaleikur og Ranieri 25.02.2017

Það er úrslitaleikur í enska deildabikarnum á morgun þegar Manchester United og Southampton eigast við. Hitað var upp fyrir leikinn við enska hringborðið í útvarpsþætti Fótbolta.net. Einnig var rætt um umtalaðan brottrekstur Claudio Ranieri frá Leicester og Evrópumartröð Tottenham.

Innkastið - Mörkum flæðir í Meistaradeild 22.02.2017

Það er komið að Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon fóru yfir málin og svo var Benedikt Bóas Hinriksson með þeim seinni hlutann.

Pétur Marteins: Nýr fjölnota 20 þúsund manna leikvangur 19.02.2017

Fótbolti.net fékk Pétur Marteinsson, fyrrum landsliðsmann, í heimsókn í útvarpsþáttinn á X-inu til að segja nokkuð ítarlega frá stöðu mála varðandi Laugardalsvöll, þjóðarleikvang okkar Íslendinga. Pétur fer fyrir hönd Borgarbrags í vinnu við að undirbúa endurbyggingu vallarins.

Fjölnisþrennan: Team Europe alla leið 19.02.2017

Þrír ungir Fjölnismenn mættu í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddu við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson. Það eru þeir Viðar Jónsson, Birnir Snær Ingason og Ægir Jarl Jónasson.

Fótboltafréttir vikunnar með Elvari og Tómasi 18.02.2017

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu nokkrar af helstu fótboltafréttum vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Í spilaranum hér að ofan er hægt að hlusta á umræðuna.

Innkastið - Hreinsanir þarfar hjá Arsenal 15.02.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu til sín blaðamanninn Benedikt Bóas Hinriksson í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna.

Enska hringborðið - Könnun fólksins 14.02.2017

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net setti saman spurningakönnun varðandi enska boltann og fékk hlustendur í lið með sér. Spurningarnar voru af ýmsum toga og farið var yfir niðurstöðurnar í þættinum á laugardaginn.

Sverrir: Þetta stækkar gífurlega gluggann fyrir mig 13.02.2017

Sverrir Ingi Ingason var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 á laugardaginn. Sverrir gekk til liðs við Granada í spænsku úrvalsdeildinni í janúar. Síðastliðinn mánudag átti hann flottan leik í 1-0 sigri liðsins á Las Palmas. Granada er með 13 stig í næstneðsta sæti deildarinnar, fimm stigum frá öruggu sæti. Þrátt fyrir erfiða stöðu er Sverrir bjartsýnn á framhaldið.

Innkastið - London er blá 07.02.2017

Það er Chelsea þema í Innkastinu að þessu sinni en Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, er sérstakur gestur.

Kappræður Björns og Guðna úr útvarpsþættinum 07.02.2017

Guðni Bergsson og Björn Einarsson eru í framboði til formanns KSÍ en kosið verður á ársþingi sambandsins í Vestmannaeyjum næsta laugardag.

Þórir Hákonar fer yfir kappræðurnar 05.02.2017

Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 eftir kappræður Björns Einarssonar og Guðna Bergssonar. Þórir fór þar yfir málin en Björn og Guðni berjast um formannsstólinn hjá KSÍ. Kosið verður á ársþingi í Vestmannaeyjum um næstu helgi.

Innkastið - Gluggaþrot og Gylfamörk 01.02.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru mættir í hinu vikulega Evrópu-Innkasti. Janúarglugginn og nýliðin umferð í ensku úrvalsdeildinni eru í aðalhlutverki í þætti kvöldsins en einnig var rætt um ráðningu Lars Lagerbak til norska landsliðsins.

Arnar Grétars: Lítum vel út fram á við núna 30.01.2017

Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 síðasta laugardag. Þar fór hann yfir stöðuna hjá Kópavogsliðinu sem hefur verið duglegt á leikmannarkaðnum að undanförnu. Breiðabliki gekk illa í markaskorun í fyrra en hefur styrkt sóknarleikinn með því að fá Martin Lund Pedersen frá Fjölni, Aron Bjarnason frá ÍBV og Hrvoje Tokic frá Víkingi Ólafsvík...

Íslenskir leikmenn sýna sig í Showcase leik 30.01.2017

„Möguleikarnir í Bandaríkjunum að fara lengra eru meiri en fólk heldur. Stóru skólarnir úti eru gríðarlegur stökkpallur til að fara lengra í fótbolta. Ofan á það nærðu í menntun," segir Brynjar Benediktsson. Brynjar og Jóna Kristín Hauksdóttir mættu í útvarpsþáttinn Fótbolti.net en þau eru með fyrirtækið Soccer and Education USA sem hjálpar strákum og stelpum að komast á fótboltastyrk í háskólum í...

Innkastið - Túristastemning á Anfield 23.01.2017

Hljóðvarpsþátturinn Evrópu-Innkastið er mætt en Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir fótboltahelgina í Evrópu. Að vanda er enski boltinn í aðalhlutverki en Elvar sagði frá ferð sinni á Anfield þar sem hann horfði á Liverpool - Swansea um helgina ásamt 500 Íslendingum.

Stefán Páls: Hræsnisfullt að þetta komi frá FIFA 23.01.2017

Hollenska goðsögnin Marco van Basten starfar nú hjá FIFA en mikla athygli vakti í síðustu viku þegar hann kynnti tíu hugmyndir sínar um að breyta fótboltareglunum. Fótboltaáhugamaðurinn og sagnfræðingurinn Stefán Pálsson ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Sævar Péturs: Vissum að skítkast væri í vændum 23.01.2017

KA sendi frá sér umtalaða yf­ir­lýs­ingu í síðustu viku um að samn­ing­ur um sam­starf KA og Þórs í knatt­spyrnu kvenna yrði ekki endurnýjaður. Mikil læti hafa verið fyrir norðan en Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, sagði frá hlið félagsins í þessu máli í viðtali við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu.

Innkastið - Myndi Sir Alex nota #Pogba? 15.01.2017

Hljóðvarpsþátturinn Evrópu-Innkastið snýr aftur eftir frí. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu sér sæti eftir að hafa horft á stórleik Manchester United og Liverpool. Farið var yfir leikinn og aðra leiki helgarinnar í enska boltanum.

Þórir Hákonar um komandi ársþing og formannskjör 15.01.2017

Ársþing KSÍ sem verður haldið í Vestmannaeyjum þann 11. febrúar verður það fréttnæmasta á seinni árum. Geir Þorsteinsson stígur af stóli formanns og tveir hafa staðfest framboð; það eru Björn Einarsson formaður Víkings og Guðni Bergsson fyrrum landsliðsmaður.

Hitað upp fyrir stórleik Man Utd og Liverpool 14.01.2017

Það er risaslagur í ensku úrvalsdeildinni á morgun þegar Manchester United mætir Liverpool en beðið er eftir leiknum með mikilli eftirvæntingu.

Garðar Jó: Þegar KR kemur þá segir maður ekki nei 14.01.2017

Í gær bárust fréttir af því að framherjinn reyndi, Garðar Jóhannsson, værin genginn í raðir KR. Garðar hætti hjá Fylki eftir síðasta tímabil og gekk til liðs við KFG í 3. deildinni. Hann hefur hins vegar nú gengið í raðir KR.

Enska hringborðið - Annað fjórðungsuppgjör 07.01.2017

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu til sín góðan gest við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.