Guðrún Katrín
Fjölskyldusögur
Fjölskyldusögur er hlaðvarp þar sem góðir gestir segja valdar sögur af sinni fjölskyldu. Umsjón með þáttunum hefur Guðrún Katrín Jóhannesdóttir félags- og fjölskyldufræðingur. Stef: Einar Snorri
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Einar Már Guðmundsson 01.02.2025 1:35:20
Einar Már Guðmundsson rithöfundur og skáld deilir með okkur fjölskyldusögu sinni og því hvernig fjölskyldumeðlimir hafa margir hverjir verið fyrirmyndir að persónum í bókum hans. Hann segir meðal annars frá uppvexti sínum í Reykjavík, æsku föður síns og föðursystkina sem ólust upp í mikilli fátækt og því hvernig föðuramma hans og börnin hennar sameinuðust öll að lokum og áttu góð tengsl á seinni...
Alma D. Möller 01.02.2025 33:00
Alma D. Möller er svæfinga- og gjörgæslulæknir og núverandi heilbrigðisráðherra okkar Íslendinga. Hún fæddist á Siglufirði og deilir hér með okkur sögum af fjölskyldunni sinni. Við fáum að heyra af móður og móðurömmu hennar sem upplifðu síldarárin, farsóttir og krefjandi tíma. Þær mæðgur áttu það meðal annars sameiginlegt að lifa löngu lífi og búa yfir mikilli seiglu. https://www.instagram.com/fjo...
Helgi Gunnlaugsson 05.01.2025 53:22
Helgi Gunnlaugsson er prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands. Hann ólst upp á tveimur heimilum í Reykjavík, annars vegar hjá foreldrum sínum og hins vegar hjá móðurömmu sinni. Í þættinum fáum við að heyra einlæga sögu Helga af fjölskyldu hans, sem spannar fjórar kynslóðir, allt aftur til Geirs Zoëga sem var umsvifamikill kaup- og útgerðarmaður á 19. öld. Þetta er áhugaverð frásögn...
Ólafur Þór Ævarsson 31.12.2024 51:16
Ólafur Þór Ævarsson er doktor í geðlækningum sem ólst upp á Akureyri. Hann segir okkur frá fjölskyldu sinni og hvernig veikindi ömmu og afa gætu hafa haft áhrif á að hann lagði fyrir sig læknisfræði. Hann kemur einnig inn á nýjar rannsóknir sem benda til þess að fleira erfist á milli kynslóða en talið var, eins og hugsanir og tilfinningar. Við komum einnig aðeins inn á streituna enda ekki annað hæ...
Kristín Berta Guðnadóttir 28.12.2024 1:06:32
Kristínu Bertu Guðnadóttur er ýmislegt til lista lagt. Hún er félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur, myndlistarkona og jógakennari, ásamt því að reka Sálarlist. Hún deilir sögu af sinni fjölskyldu sem óhætt er að segja að láti engan ósnortinn. https://www.instagram.com/fjolskyldusogur?igsh=N3N1Y3MxbmEzendm
Katla Margrét Þorgeirsdóttir 28.12.2024 39:25
Katla Margrét Þorgeirsdóttir er ein af okkar ástsælustu leikkonum. Í þessum fyrsta þætti, af Fjölskyldusögum, deilir hún með okkur fjölskyldusögu sinni þar sem líf og saga móðurömmu hennar, sem ólst upp á Jökuldal, fær sérstakan sess. Við ræðum meðal annars þungar áskoranir í lífi ömmu hennar og hvernig hún tókst á við þær. https://www.instagram.com/fjolskyldusogur?igsh=N3N1Y3MxbmEzendm
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.