Falsfréttir

Falsfréttir

Society IS ↓ 24 episodes

Systur í sitthvoru landinu ræða allt milli himins og jarðar - frá æskudrama yfir í djúpar pælingar. Gestir kíkja við reglulega og samtölin taka oft óvænta stefnu.

Author

Falsfréttir

Category

Society

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Mar 31, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#20 - Lokaþáttur / Leynigestur frá LA 31.03.2026

Jana litli gullkálfurinn okkar komin til okkar. Reyndum að hafa létt umræðuefni með en komumst ekki langt með það fyrir heilögu yappi en það er ekkert verra, er það nokkuð? Heyrumst aftur í sumar 🥺💓

#19 - Vandræðalegt 😬 17.03.2026

Smá afsökunarkast aftur, hljóðið ekki alveg eins og vanalega en erum aðeins að aðlagast að taka upp í sama rými. Jú jú, stelpurnar SAMAN KOMNAR, HLIÐ VIÐ HLIÐ! Rosalegt. Njótið vel <3

#18 - Flórídamaður 🌫️ 10.03.2026

Elfa ríður á vaðið með fyrsta málið sitt. Auðvitað stödd í Flórída, en ekki hvar! Næsti þáttur verður hlið við hlið, ekki með Frikka Dór samt.

#17 - Nostalgía 📼 03.03.2026

Nostalgía, mamma mia. Stígið inn í tímavél með okkur, haldið ykkur fast.. En gleymdum við einhverju?? Þátturinn er í boði Tree Hut og CosRx 🫧

#16 - Ísland, gamla Ísland 🌬️🇮🇸🧊 24.02.2026

Bara hljóð í þetta sinn, því miður! Eitthvað vesen á þættinum but the show must go on. Elfa stjórnar í dag og allir að spenna beltin, það er skringilegt ferðalag framundan hjá ykkur. Top 3 listinn endalausi, rassgat Íslands og sundlaugar, nóg af sundlaugum. Ætli það verði ekki part 2 seinna þar sem Lovísa tekur sína random top 3 lista fyrir.

EXTRAþáttur - Love Island All Stars 4 22.02.2026

Jójójó! Við erum búnar að helga okkur þessum leik. Fórum yfir síðustu vikuna á ástareyjunni miklu (þættir frá fös 13. feb - fimmt 19. feb) og fengum GEST! Sérfræðing af Skaganum, engan annan en Jóel TikTok Prodigy Jóhannsson! Njótið vel, þetta er alveg veisla.

#15 - FALSSYSTIR 👯‍♀️ 17.02.2026

Loksins komið að því, hitt miðjubarnið mætt í settið. Bæði systir okkar og frænka, ótrúlegt! Hear me out listi, hraðaspurningar og svo ævisagan mikla. Af nógu að taka hjá UdduBuddu. Lofum því.

EXTRAþáttur - Love Island All Stars 3 14.02.2026

Up to date gaaaang. Tölum um síðustu vikuna á ástareyjunni, eða alveg í gegnum fimmtudagsþáttinn 12. feb, let's goooo.

#14 - Íslenska tungan 😛 10.02.2026

Þessi er LITERALLY fyrir ömmu, ACTUALLY ekki fyrir fyrrum íslenskukennara Elfu. Mælum með að horfa á allavega byrjunina á þættinum til að skilja þetta kast hjá okkur.

EXTRAþáttur - Love Island All Stars 2 07.02.2026

Meira mess - og MOVIE NIGHT næsti þáttur, omg. Þessi sería er svo góð???

#13 - Eltihrellir 🥷🏼 03.02.2026

Loksins eitt alvöru mál unnið vel (eða ágætlega og ÁN GERVIGREINDAR). Lovísa fær að slá um sig í íslenskunni og sýna sig aðeins á meðan Elfa skilur ekkert, eða kannski smá. Í samstarfi við Tree Hut og COSRx 🫧

EXTRAþáttur - Love Island All Stars 31.01.2026

Einn audio only og klipptur í flýti en hey, gott innihald!!

#12 - Raunveruleikaþættir 💓🎥🏝️ 27.01.2026

Ohhhhhh klikkuðum aðeins ''í byrjun''. Mjög erfitt að ýta á rauða takkann til að byrja að taka upp 🆘. Eins gott að þið séuð flest að horfa á Love Island annars þurfið þið að skippa hér og þar, gefum út sér aukaþátt í vikunni! Þátturinn er í boði Tree Hut og Skin1004 🫧

#11 - Falsmáltíð 🍕🥡🍨 20.01.2026

Mögulega TW fyrir seinni hluta þáttar, tölum mikið um mat! Í samstarfi við Senia.is færum við ykkur þátt um okkar skrítnu matarvenjur og nostalgíukast í þeim dúr. Byrjum samt á bresku slúðurhorni þar sem 1/3 af slúðurpakkanum eldist verr en mjólk í sólbaði. Tæklum það aftur í næsta þætti. Love you guys!!

#10 - Systradýnamík 👯‍♀️ 13.01.2026

Fórum um víðan völl og smá hlé í seinni hálfleik útaf leiðinlegu ókláruðu máli hjá okkur. Við erum öll mannleg og myndum alveg leyfa ykkur að heyra ef við værum ekki drepleiðinlegar að ræða þetta. Styttist verulega í gestaþátt með öllum systrunum, það verður eitthvað alvöru chaos. Sem fyrr, í samstarfi við Senia.is - TreeHut, CosRX og Skin1004 <3

#9 - Sértrúarsöfnuðir ⛪️ 06.01.2026

Við systur bjóðum ykkur með okkur ofan í smá kanínuholu. Við tökum fyrir sértrúarsöfnuði sem hafa vakið heimsathygli. Frá Manson-fjölskyldunni og Jonestown til Scientology, FLDS og Waco. Völd, áhrif og hversu auðvelt það getur verið fyrir suma að dragast inn í hættulega hugmyndafræði. Don't drink the Kool-Aid krakkar mínir.

#8 - FALSdjamm 👯‍♀️🪩🥂 30.12.2025

Annar gestaþáttur! Fengum Valgerði vinkonu okkar til að fara aðeins yfir djammið með okkur í aðdraganda áramótanna. Lengsti þátturinn til þessa og litla ferðalagið sem þessi þáttur er. Hljómar eins og við eigum við vandamál að stríða en það er þá helst bara að vera kvíðasjúklingar, líklega. Lofum að við erum allar skárri en meðal Íslendingurinn. Hver kannast ekki við smá djammviskubit annars. Jæja...

#7 - JólaFALS 🎄 23.12.2025

Byrjum á smá krassandi fregnum frá Los Angeles. Síðan tekur JólaJomman við, hvað er það? Þrif á Aðfangadag, Jól í útlöndum og má thrifta jólagjöf?

#6 - New York City & P. Diddy 🗽🥯🏙️ 16.12.2025

Drögum út vinningshafa í gjafaleiknum!!! Heimildarþættir eru sameiginlegt áhugamál okkar systra, okkur fannst því tilvalið að ræða aðeins The Reckoning. Ef svo ólíklega vill til að það hafi farið framhjá ykkur þá bjó Lovísa sko í New York þannig það tók ekki langan tíma að tileinka borginni þátt. Endar síðan á einni óvæntri rúsínu í pylsuendanum 🫢

#5 - Staðreyndir um FALS 📋💡🆕 09.12.2025

Nokkrar staðreyndir um okkur, sumar sturlaðar aðrar bara temmilega eðlilegar en bannað að dæma, sérstaklega ef þið eigið ekki systur á svipuðu reiki heh.

#4 - Undir ÁLÖGUM 🧙🏼‍♀️🌫️🫆 01.12.2025

Fyrsti myrki þátturinn! 🚨 Smá brennd pönnukaka en nú er afsökunarkastið búið, bara mjúkar og ljúffengar pönnsur héðan í frá 🥞

#3 - GESTUR 1 📣👥🗞️ 25.11.2025

Fyrsti gestur er mættur. Það er hún Telma Lind okkar en við þurfum aðeins að æfa okkur í þessum gesta þáttum og erum búnar að biðja hana afsökunar að þurfa að vera tilraunadýrið okkar. Hún er velkomin aftur þegar hún er tilbúin. S/O á Grindvíkinga 💛 Facebook hópur: https://www.facebook.com/groups/685171221306601Instagram: www.instagram.com/falsfretttirTikTok: www.tiktok.com/falsfrettir

#2 - BETRAYAL list 📋🥀 18.11.2025

Þessi neikvæða orka er ekki það sem koma skal, Elfa setti bara tóninn svolítið þarna í byrjun. Við erum aðeins of heiðarlegar í þessum þætti: hráar og í frekar sérstöku stuði. Þið fáið að kynnast okkur betur og heyra um „bullshit-mælinn“ okkar sem fáir útvaldir hafa orðið fyrir barðinu á. En ekki vera hrædd við okkur samt, nema þið séuð að banka of mikið á Petersen heh. Trigger warning: umræður um...

#1 - FALSfréttir 🆕🗣️📰 11.11.2025

FALSfréttir eru lentar! Það er komið að því! Fyrsti þáttur FALSfrétta er lentur. Við segjum aðeins frá okkur, hvernig hugmyndin varð til og hvað hlustendur geta átt von á í komandi þáttum. Við erum svo þakklátar fyrir öll sem hafa peppað okkur á samfélagsmiðlunum síðustu vikuna og núna fylgt okkur hingað – TAKK, þetta er bara byrjunin 🫢 Taktu þátt í umræðunni á Facebook: https://www.facebook.com/...

Listen to the Falsfréttir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.