Engar stjörnur

Engar stjörnur

Tv IS ↓ 27 episodes

Þetta er hlaðvarp Engra stjarna, kvikmyndafræði Háskóla Íslands.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com

Author

Engar stjörnur

Category

Tv

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Aug 31, 2023

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Engar stjörnur #29 – Sjónvarpsspjall um Succession 31.08.2023

Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa um sjónvarpsþáttaröðina Succession, aðeins örfáum mánuðum eftir að lokaþáttur seríunnar var sendur í loftið!

Engar stjörnur #28 – Barbenheimer! 27.07.2023

Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa um Barbenheimer!

Engar stjörnur #27 – Miranda July í maí 31.05.2023

Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa fréttir úr kvikmyndaheiminum, myndir sem þau hafa séð nýlega og kvikmyndahöfundinn Miröndu July.

Engar stjörnur #26 – Óskarinn og bíóárið 2022 10.04.2023

Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa um nýafstaðna Óskarsverðlaunahátíð og fara yfir topp tíu listana sína yfir bestu myndir ársins 2022.

Engar stjörnur #25 – Jeanne Dielman og bestu myndir allra tíma 24.02.2023

Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa um BFI-listann yfir bestu myndir allra tíma sem birtist í Sight and Sound í desember síðastliðnum. Þar að auki rýna þau í bestu mynd allra tíma samkvæmt listanum, mynd Chantal Akerman frá 1975, Jeanne Dielman, 23, quai du commerce, 1080 Bruxelles . 

Engar stjörnur #24 – Sorgarþríhyrningurinn á enni Matthews Perry 09.12.2022

Í þættinum spyr Björn Þór Guðrúnu Elsu út í nýlega sjálfsævisögu Matthews Perry, Friends, Lovers, and the Big Terrible Thing áður en þau rýna í nýjustu mynd Rubens Östlund, Sorgarþríhyrninginn .

Engar stjörnur #23 - LHÍ og myndir sumarsins 20.11.2022

Myndir sumarsins voru Top Gun: Maverick, Nope og Elvis, eða það finnst Birni Þór og Guðrúnu Elsu, sem ræða um þær og nýstofnaða Kvikmyndalistardeild LHÍ.

Engar stjörnur #22 - Sjón 13.06.2022

Í þættinum er rýnt í myndir sem Sjón var handritshöfundur af, Dýrið og The Northman. Björn Þór Vilhjálmsson spjallar við skáldið og handritshöfundinn Sjón.

Engar stjörnur #21 – Launmorð og loftsteinar 26.01.2022

Í þættinum ræða Guðrún Elsa og Björn um forvitnilegar myndir sem þau hafa séð upp á síðkastið. Svo kemur Jón Bjarki Magnússon í heimsókn og ræðir við Björn um heimildarmynd sína, Even Asteroids Are Not Alone, en hún fjallar um það mannlega samfélag sem orðið hefur til innan söguheims tölvuleiksins EVE Online.

Engar stjörnur #20 - The Texas Chainsaw Massacre. 08.01.2022

Í þættinum er rætt við Texas-búann og kvikmyndafræðinginn Greg Burris um hans eftirlætismynd: The Texas Chainsaw Massacre.

Engar stjörnur #19 - Sambíóin og Sigurgeir 19.11.2021

Rætt er um ævisögu Sambíókóngsins Árna Samúelssonar og sögu íslenskra kvikmyndahúsa. Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við rithöfund ævisögunnar Sigurgeir Orra Sigurgeirsson.

Engar stjörnur #18 - Ása og Paradís 30.10.2021

Rætt er um Bíó Paradís, Verstu manneskju í heimi, Ölmu og stærstu orrustu tíunda áratugarins: Oasis eða Blur?  Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Ásu Baldursdóttur dagskrárstjóra Bíó Paradísar.

Engar stjörnur #17 - Greg Burris og kvikmyndir Palestínu 29.06.2021

Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Greg Burris við American University of Beirut um kvikmyndir Palestínu.

Engar stjörnur #16 - Viðtökur íslenskra kvenleikstjóra 21.06.2021

Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Jónu Grétu Hilmarsdóttur um nýsköpunarrannsókn hennar um viðtökur íslenskra kvenleikstjóra.

Engar stjörnur #15 - Bestu myndir síðasta áratugar 01.06.2021

Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Brynju Hjálmsdóttur og Gunnar Ragnarsson um starf kvikmyndagagnrýnandans á smáskerinu Íslandi og gildismat. Farið er yfir það besta sem síðasti áratugur kvikmyndanna bauð upp á og Platipusar-prófið kynnt til sögunnar.

Engar stjörnur #12 - Hrönn í paradís 23.04.2021

Gestur þáttarins að þessu sinni er Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bíó paradísar.

Engar stjörnur #13 - Evrópsku Háskólakvikmyndaverðlaunin 15.04.2021

Gestir þáttarins að þessu sinni eru Arína Vala Þórðardóttir, Nikulás Tumi Hlynsson og Petra Ísold Bjarnadóttir, sem fóru á vegum Kvikmyndafræði Háskóla Íslands sem þátttakendur í Evrópsku Háskólakvikmyndaverðlaununum: EUFA

Engar stjörnur #11 - Ísland : Bíóland 16.03.2021

Gestur þáttarins að þessu sinni er Ásgrímur Sverrisson leikstjóra og vefstjóra Klapptre.is

Engar stjörnur #10 - Maður fer í stríð 10.03.2021

Gestur þáttarins, Benedikt Erlingsson, ræðir um kvikmyndagerð sína við Björn Þór Vilhjálmsson.

Engar stjörnur #9 - Ísbrjótar íslenskrar kvikmyndasögu 31.01.2021

Gestur þáttarins er Gunnar Tómas Kristófersson og rætt er um tvær konur sem sannarlega voru ísbrjótar í íslenskri kvikmyndasögu. Annars vegar Ruth Hanson, dans- og íþróttakennara, sem varð fyrst kvenna til að gera kvikmynd hér á landi. Þá er sjónum einnig beint að Svölu Hannesdóttur, sem Gunnar Tómas segir leikstjóra fyrstu íslensku listamyndarinnar.

Engar stjörnur #7 - Jeppi á fjalli 17.12.2020

Rætt er við Gunnar Ragnarsson um íranska leikstjórann Abbas Kiarostami, alþjóðlega listabíóið og breytufrásagnir.

Engar stjörnur #6 - Um vondleika, viðbjóð og viðsjárverða menningu 13.12.2020

Gestir þáttarins að þessu sinni eru Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, og Ísak Jónsson, tæknimaður, en báðir eru sérstakir áhugamenn um viðsjárverða menningu. - Inngangsstef: Franz Schubert: Trio pour piano et violoncelle en Mi Bémol Majeur, D. 929, Op. 100: II. Andante con moto. - Útstef: Þorgrímur Andri Einarsson - Framleiðendur: Kvikmyndafræði HÍ - Þáttarstjórn: Björn Þór Vilhjálmsson - Kl...

Engar stjörnur #5 - Drag og menning 23.09.2020

Viðfangsefni Engra stjarna í þetta skiptið er drag, jafnt í kvikmyndum, sjónvarpi og í íslensku skemmtanalífi. Sérstakur gestur þáttarins er Sólveig Johnsen, kvikmyndafræðingur, dragsérfræðingur, dragkóngur og listamaður á hinum ýmsustu sviðum.

Engar stjörnur #4 - Bíó Paradís: Fyrsta listabíóið, síðasta listabíóið? 20.02.2020

Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Guðrúnu Elsu Bragadóttur og Hrafnkel Úlf Ragnarsson um sérstöðu Bíó Paradísar í íslenskri kvikmyndahúsamenningu og mikilvægi þess að hér á landi sé starfandi að minnsta kosti eitt listabíó. Þá ræðir Björn Þór við Hrönn Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Bíó Paradísar, um sögu bíósins, ...stöðu mála nú um mundir og framtíðarhorfur. Að lokum kemur Oddný Sen í þáttinn en...

Engar stjörnur #3 - Blossi og költkvikmyndir 11.02.2020

Þetta er hlaðvarp Engra stjarna, kvikmyndafræðideildar Háskóla Íslands. Í þessum þætti ræðir Björn Þór Vilhjálmsson við kvikmyndafræðinginn Gunnar Tómas Kristófersson um kvikmynd Júlíusar Kemp, Blossa frá 1997 og költkvikmyndir. 

Listen to the Engar stjörnur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.