Stefán Gunnlaugur Jónsson

Ekkert að frétta

Comedy IS ↓ 253 episodes

Ekkert að frétta en gaman að hlusta. Guðmundur Orri Pálsson og vinir.

Author

Stefán Gunnlaugur Jónsson

Category

Comedy

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

53 - Árstíðar-blús 09.09.2021

Vetur, sumar, vor og haust, við fögnum öllum veðrum, laufið fellur, orðið laust þungt á mínum herðum.

52 - Heimsendir frá Dominos 02.09.2021

Hvort sem það eru trúarbrögð eða raunheimar þá er eitt víst, það tekur enda að lokum og síðasta manneskjan deyr. En þá er tilvalið að nýta sér megaviku og fá heimsendingartilboðið beint upp að dyrum með pizzu af matseðli og 2L gos af eigin vali.

51 - Risastóra spurningakeppnin 26.08.2021

Velkomin í fyrstu risastóru spurningakeppnina. Hér etja kappi Annalísa Guðnadóttir(Annalísa Hermannsdóttir), Hákon Þorsteinsson Másson(Hákon Örn Helgason) og Stefán Dingilbertsson(Sindri Engilbertsson). Þau leggja allt í sölurnar en aðeins eitt þeirra stendur uppi sem sigurvegari!

50 - Síðustu 2 ár í stóra samhenginu 19.08.2021

Hér lítum við um öxl og skoðum það sem hefur drifið á daga okkar í tilefni þess að 1151 ár eru liðin frá landnámi Íslands.

49 - Ísland okkar ástkæra ylhýra - (Gestaþáttur) 12.08.2021

Þjóð ein býr í norðri við heimskautsbaug þar sem ekkert lifir. Hvers vegna spyrja margir. Við því höfum við aðeins eitt að segja: "Fokkaðu þér, hvers vegna ekki?! Við ætlum að halda áfram að gera það, VIÐ ÆTLUM AÐ BÚA HÉRNA TVÖFALT FASTAR NÚNA! HALTU KJAFTI!"

48 - Áhugamál hjá smáhuga sál 05.08.2021

Mörg höfum við okkur áhugamál til að stytta okkur stundir þegar skammdegisþunglyndið þjarmar að okkur. Ef þú hefur ekki áhuga á neinu, hlustaðu á þáttinn, fullt af hugmyndum til að lifa af langa vetur á Íslandi.

47 - Ólympíuleikarnir: Bring back reipitog undirskiftarsöfnun 30.07.2021

Förum yfir allt það helsta úr heimi ólympíulekanna, sérstakleg hversu tilgangslausir þeir eru. Eða hvað?

46 - Konungleg kveðja í nafni Guðna IV af Garðabæ 22.07.2021

Vakna klukkan 7:30, blasta KORN meðan þú gerir þig til, punta smá og svo maski sem háaldraða þernan þín sem er með gikt í öllum liðum rembist við að maka á þig. Chuggar eina kampavínsflösku á meðan. Lífið er gott. Kallinn er í veiðiferð með bois og þú hefur þá tíma til að hringja í Möggu í Danmörku og slúðra um hinar drollurnar. Klárar 4 skot af sherrý. Ferð í blackout fyrir hádegi. Ef þetta hljóm...

45 - Hræðslufræðsla fyrir öryggisverði IKEA 15.07.2021

Ótti, hræðsla og phobiur. Er óttinn minn eðlilegur eða er ég eitthvað sérstakur og hræðslupúki sem enginn vill tala við? Við ætlum að kryfja þetta vel og útskýra af hverju þú ættir að hætta að óttast allt og vinna þér inn 10.000$ á dag við að vinna heima hjá þér í 5 auðveldum skrefum.

44 - The Real Raunveruleikaþáttur of Beverly Hills 02.07.2021

Real housewives of vesturbærinn tala um raunveruleikasjónvarpsþætti sem eru allir fake og allir vita það og ekkert er satt og jólasveinninn er ekki til!!!

43 - Frímerkjakastið #58 24.06.2021

Fannar og Rögnvaldur fræða okkur um nýjustu vendingar í frímerkjaheiminum bæði innanlands og erlendis.

42 - Illska fyrir byrjendur 22.06.2021

Realistic Rat og Big Elephant ræða illsku og hvernig þú getur eignast hana í aðeins 5 auðveldum skrefum. Þú munir ekki trúa því sem gerist næst!

41 - Að geimvera eða ekki vera 12.06.2021

Þetta er ekki heimildarþáttur um geimverur þar sem við ræðum eins mikið og við getum um geimverur. Fljúgandi furðuhluti og brottnám fólks af hendi geimvera.

40 - Friends S02E16 - The one with all the friends 08.06.2021

Eftir erfið sambands augnablik í fyrri þáttum er þessi þáttur bara um vináttur og vini. Ekkert cringe sambands rugl hér á ferð.

39 - Hjátrú, besti þáttur í heimi sjö-níu-þrettán-bank-bank-í-tré 25.05.2021

Þáttur um hjátrú, spegla, 13 og löggur. Við brutum spegil rétt fyrir tökur þannig hann er undir meðallagi spennandi. Það eru alltaf einhverjir þættir eru undir meðallagi, eins og gefur að skilja.

38 - Bland í poka 17.05.2021

Bland þræðir - Við skoðum alls skonar BLAND umræður.

37 - Sértrúarsöfnuðir í þessu líka frábæra grillveðri 09.05.2021

Stuttur og léttur þáttur sem inniheldur lélega yfirferða á sértrúarsöfnuðum.

36 - Pottþétt ferðalög fyrir ferðalög 02.05.2021

Léttur þáttur með litlu samhengi og lausu þema. Bara einn af þessum þar sem við tölum um kökur, ferðalög og þakklæti.

35 - Veljum íslensk hlaðvörp og allir vinna 24.04.2021

(Íslensk podcöst) Tölum um íslenska poddara menningu og þau sem við höfum hlustað á. Náum að minnast á 0.5% íslenskra podcasta.

34 - Það gera allir mistök 18.04.2021

Mistök, mistök, mistök, love them or hate them... but you can´t live without them. AM I RIGHT MY DUDES?!?!

33 - Tilvistarhyggja og annað tilgangslaust stöff 09.04.2021

Hver er tilgangur lífsins, hvað gerist þegar við deyjum, er til guð, er til frjáls vilji og hvað mundiru taka í karaoke?!? Nenniru að senda á mér svarið við þessum spurningum sem fyrst því ég veit þetta ekki og ég þarf að gera þátt um þetta núna svo pls svar strax! ok love you

32 - Peningar og verðgildi hráka 03.04.2021

Money money money must be funny but a bit*h ain´t one.

31 - Síðdegisþátturinn á Rás 2 21.03.2021

Miðaldra lið sjá um síðdegið alla daga milli klukkan 16-18 á Rás 2.

30 - Markmið til þess að deyja sátt/ur. 06.03.2021

Hvað er markmið? Og hvernig set ég mér markmið? Ef þú þarft að spurja þessara spurninga þá ertu ekki hæfur til að starfa í samfélagi manna og ættir að skammast þín. Skamm!

29 - Siðfræði 201 með leiðinlegum strákum 13.02.2021

Bank, bank. Hver er þar? Drepa! Drepa hver? Nei það er drepa hvern. Og það er annað hvort mamma þín eða barnið þitt sem þú þarft að drepa, hérna er byssa, þú hefur 15 sekúndur.

Listen to the Ekkert að frétta podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.