Stefán Gunnlaugur Jónsson

Ekkert að frétta

Comedy IS ↓ 253 episodes

Ekkert að frétta en gaman að hlusta. Guðmundur Orri Pálsson og vinir.

Author

Stefán Gunnlaugur Jónsson

Category

Comedy

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

101 - Superþáttur um allt þetta gamla 30.12.2022

Hér er farið yfir allt það gamla eins og ömmu þína og spillingu í ríkisstjórninni.

100 - Afmæli og þér er boðið 22.12.2022

Þér er boðið í afmælið mitt þann ****** klukkan ****. Veislan verður haldin í/á/við *******. Ef þú kemst ekki viltu þá biðja foreldra þína að láta mömmu mína vita í síma ********.

Bingvarpið #Nonni 41 15.12.2022

Bingvarpið #Nonni 41 by Stefán Gunnlaugur Jónsson

Uppfyllingarefni: MEME taka tvö 11.12.2022

Hvernig jarma kindur, hvað er hægt að fá mikið blóð úr einu lambi, tips til að gera rúninguna og sauðburðinn auðveldari. Þetta og mikið fleiri landbúnaðar umræður í þættinum.

99 - Allskonar rusl á kostnað skattgreiðenda 02.12.2022

Við ræðum hitt og þetta t.d. skrítnar íþróttir, netkaup og bátsferðir en fyrst og fremst ræðum við hvað er mikilvægt að þú takir þig saman í andlitinu loksins og gerir eitthvað við líf þitt! ÉG MEINA GEEZ! ER EKKI KOMINN TÍMI FYRIR ÞIG TIL AÐ FULLORÐNAST COME ON! Það er hægt að lýsa LÍFINU þínu með nafninu á þessu podcasti!!

98 - Heilbrigður lífstíll fyrir aðeins 20.000kr á mánuði 25.11.2022

Töfralausnir til að losna við alla kvilla eru kynntar í þessum þætti. Þú þarft ekki að gera neitt nema borga okkur 20.000kr á mánuði og þú verður heilbrigðari en Magga, óþolandi crossfit konan á kaffistofunni.

97 - Kúl eins og hin hliðin á koddanum 20.11.2022

Teljum í djazzinn, upp með fedoruna, fírum upp í rettunni í dag er það cool cat all the way. Learn 10 incredible things that will make you cooler than anyone in your class. Deiliði þættinum með ömmu ykkar fyrir optimal útkomu.

96 - Hversdagslegur tilgangur lífsins 11.11.2022

Er þetta allt sem lífið hefur uppá að bjóða? Er ekkert meira í þessari tilvist okkar? Hvers vegna valdi ég VERKFRÆÐI Í HÁSKÓLANUM?! Öllum spurningum verður svarað... ekki í þessum þætti samt.

95 - Miklu meira drama og mér er ENNÞÁ SAMA HÆTTU AÐ BÖGGA MIG - Seinni hluti 04.11.2022

Við höldum áfram og tölum um drama fræga fólksinns OMG hversu spennandi!

94 - Drama, drama drama en mér er alveg sama - Fyrri hluti 30.10.2022

Í þessum fyrri hluta af drama seríunni okkar þá ræðum við um heima og geima um drama og hvað okkur er alveg sama.

93 - Halloween búðingaparty og þér er boðið! 21.10.2022

HVAR BYRJAÐI HALLOWEEN? Það er stóra spurningin sem öllum er sama um. Þess vegna ætlum við að fjalla um verðbólguspá seðlabankankans í þessum þætti.

92 - 10mg af Nostalgíu STAT! 14.10.2022

Rifjum upp gamla tíma, kryfjum gamlar stundir, skerum upp gömlu sárin og gjörsamlega misþyrmum gömlu minningunum. En gerum það saman!

91 - Hvar eru þau núna?!? 30.09.2022

91 - Hvar eru þau núna?!? by Stefán Gunnlaugur Jónsson

90 - Staðreyndir til að lifa á Love Island 23.09.2022

Hver er uppáhaldsstaðreyndin þín? Okei sko, ef þú hafðir í alöru svar við þessari spurningu þá ert þú massívt nörd og við erum að fara verða góðir vinir.

89 - Í langtímasambandi eins og iphone 5% hleðslu 15.09.2022

Við látum allt flakka um samböndin og hina kaðlana sem við notum til að hnýta hnúta. Allt sem þú mögulega getur lært.

88 - Játaðu syndir þínar barnið mitt 08.09.2022

Tilltu þér niður, fáðu þér kaffi og játaðu eins og þú hefur aldrei játað áður. Allar þínar syndir verða afsakaðar allar nema þessi eina, þú veist hverja ég er að tala um... syndin sem þú gerðir í gamla daga, hún er ófyrirgefanlega og þú ættir að skammast þín! Það verður aldrei fyrirgefið.

87 - Aldraðir en hafa engu gleymt 29.07.2022

Við förum yfir fundargerð félags eldriborgara og förum yfir allt skúbb og slúður sem ferðast um ganga Hrafnistu þessa dagana.

86 - Ósnortin náttúra... paradís eins og bílastæðin í Skeifunni 21.07.2022

Við notum nýjustu tækni í núvitund og tölum við náttúruna og föðmum tré í þessum nýjasta þætti af náttúrukastinu.

85 - Aðdáendahópur íslenskrar viftutækni 13.07.2022

Við dembum okkur á kaf í vifturnar í þessum þætti og tölum um alla bestu staðina til að kaupa alíslenskar vifur á besta verðinu. Við tölum líka aðeins um DIY viftur en þær verða aldrei eins góðar og þú færð hjá Rafviftur ehf.

84 - Frægðin maður... lífið er erfitt sem celeb 01.07.2022

Við höfum verið að taka eftir því uppá síðakastið hvað við erum að verða ógeðslega frægir svo við ákváðum að segja frá okkar reynslu af frægðinni. Tómas læddist inn og fékk að vera með. Í stuttu máli þá er mjög pirrandi að kaupa kex sem frægur perónuleiki.

83 - Fjölskylduhátíð með hoppuköstulum og candyfloss 23.06.2022

Hvort sem þú átt góða fjölskyldu eða slæma, hvort sem vinir þínir eru fjölskyldan þín eða ættingjar þá er eitt víst, öll fjölskyldan mun hafa gaman af þessum þætti. Nema Gaui frændi... Gaui frændi má fokka sér.

82 - Heimilið er þar sem þú grefur fórnarlömbin 10.06.2022

Við tölum um hús og heimili og gefum góð ráð varðandi innanhúshönnun og parketval. Skylduhlustun fyrir alla yfir 73 ára.

81 - Í dag þá klúðruðum við öllu (TIFU) 03.06.2022

Hver kannast ekki við að klúðra öllu og skilja bókstaflega eftir sviðna jörð? Tja... ekki við, en örugglega þú. Þú ættir virkilega að hugsa þinn gang, bara segja, það eru allir að tala um hvað þú fokkaðir mikið upp síðustu helgi.

80 - Draugaþátturinn langþráði með Já elskan! 20.05.2022

Loksins tökum við upp draugaþáttinn sem allir hafa verið að spurja um. Við fengum Kristjönu og Ingibjörgu úr frábæra hlaðvarpinu Já elskan til að ræða drauga og reimleika þar sem öllum spurningum er svarað eins og "Hvenær er mikið af tómatsósu of mikið?" og "Undir hvaða nafni er tónlistarmaðurinn Peter Gene Hernandez betur þekkur?" Rosalegur þáttur!

79 - Kosningavaka almúgans 13.05.2022

Hér leiðum við kjósendur um völundarhús sveitarstjórnarkosninga, hvað er rétt og hvað er rangt. Þessi þáttur er nauðsynlegt innlegg í umræðuna svo allir kjósi rétt.

Listen to the Ekkert að frétta podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.