Jói Skúli

Draumaliðið

Sports IS ↓ 156 episodes

Heimavöllur íslenskrar knattspyrnusagnfræði https://www.facebook.com/Draumali%C3%B0i%C3%B0-104064991157227/?modal=admin_todo_tour

Author

Jói Skúli

Category

Sports

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jun 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Guðmundur Torfason 27.04.2020

Guðmundur Torfason deilir markametinu í efstu deild, spilaði í tæpan áratug sem atvinnumaður í Evrópu og er meðal annars goðsögn hjá St. Mirren eftir að hafa lagt grunninn að einum stærsta sigri félagsins síðustu ár þegar liðið lagði stórlið Glasgow Celtic 0-3 á útivelli. Hér heima var Gummi hluti af því stórveldi sem Fram byggði á 9. áratugnum og varð Íslandsmeistari 1986 og bikarmeistari 1979, 1...

Hermann Hreiðarsson 23.04.2020

Hermann Hreiðarsson er 8. leikjahæsti erlendi útileikmaður Premier League frá upphafi og þrátt fyrir að hafa fallið með nánast hverju einasta liði sem hann spilaði með er hann goðsögn á nánast öllum stöðum. Hann er eini íslenski leikmaðurinn til að sigra elstu og virtustu bikarkeppni í heimi og elskar ekkert meira en að taka góða Elvis eftirhermu, láta leikmenn heyra það og lemja Auðunn Blöndal.

Ingólfur Veðurguð Þórarinsson 01.04.2020

Ingó var á sínum tíma gríðarlega efnilegur unglingalandsliðsmaður áður en hann varð einn farsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Ingó var í yngri landsliðum með stjörnum á borð við Kjartani Henry og Ragga Sig en endaði knattspyrnuferil sinn sem markmaður og spilandi þjálfari hjá fallliði Hamars í Hveragerði. Í millitíðinni fór hann í gegnum mesta blómaskeið í sögu uppeldisfélags síns á Selfossi ása...

Halldór Smári Sigurðsson 25.03.2020

Halldór Smári Sigurðsson var langt frá því að vera besti leikmaðurinn í yngri flokkum Víkings og að eigin sögn lagði hann ekkert endilega inn the extra work, hann bara var þarna og mætti á æfingar. Í dag er hann 32 ára og ef allt er eðlilegt verður hann leikjahæsti leikmaður i sögu Víkings í sumar eða næsta sumar. Halli er stórskemmtilegur maður og sagði okkur frábærar sögur frá misgóðum tímum end...

Jón Kári Eldon 17.03.2020

Jón Kári Eldon er farsæll grafískur hönnuður sem heldur úti skemmtilegum twitter reikningi í eigin nafni en er fyrst og síðast hluti af týndu gullkynslóð íslenskra knattspyrnumanna sem hafa staðið í skugganum af hinni raunverulegu gullkynslóð sem hefur leitt þjóðina á EM og HM. Jón Kári er einn af mönnunum á bakvið eitt ótrúlegasta ævintýri í sögu íslenskrar knattspyrnu þegar hann fór með firmalið...

Kristján Óli Sigurðsson 11.03.2020

Kristján Óli Sigurðsson, Blönduósartryllirinn, kom í bæinn til að stunda nám í Verzlunarskólanum haustið 1996 og endaði sem verslunarprófshafi og stúdent frá MK og leikmaður í meistaraflokki Breiðabliks. Stjáni hefur þess utan spilað í hinum ýmsu bæjarfélögum út á landi, þ.e. heimahögunum á Blönduósi, Selfossi, Sandgerði og Ólafsvík, og hefur marga fjöruna sopið í boltanum. Stjáni er líka bara mei...

Salih Heimir Porca 04.03.2020

Salih Heimir Porca lenti á Íslandi 4. febrúar 1990 og hefur lifað í sátt og samlyndi við íslensku þjóðina frá þeim degi, ef undan eru skilin einhver atvik frá knattspyrnuvellinum. Hann spilaði með Selfossi, Val, Fylki, KR og Breiðablik hér á landi og var einn albesti leikmaður deildarinnar á 10. áratugnum en hann varð bikarmeistari með Val árið 1992 og tvívegis með KR, 1994 og 1995.

Brynjar Björn Gunnarsson 26.02.2020

Brynjar Björn Gunnarsson spilaði frá 1999 til 2013 á Englandi og vann sig upp úr League 1 í Premier League á þeim tíma. Hann spilaði með Stoke City, Nottingham Forest, Watford og Reading á þessu tímabili ásamt því að spila 71 landsleik fyrir Ísland. Þátturinn er í boði Lengjunnar og Session Craft Bar og einnig í samstarfi með ÓK Bón, SuitUp og BYKO

Guðmann Þórisson 19.02.2020

Guðmann Þórisson, eða Tuðmann eins og þjóðin kallar hann oft, var auðmýktin uppmáluð og lét tuðið eiga sig þegar hann mætti í Draumaliðið. Hann rúllaði yfir Draumaliðið sitt í þættinum og lagði ríka áherslu á að liðspartýin yrðu að vera góð þegar liðið myndi taka móralskan saman. Fórum líka yfir tíma hans í atvinnumennsku, af hverju hann hefur tekið FH framyfir Breiðablik tvívegis og tímana með Hj...

Guðmundur Benediktsson 12.02.2020

Gummi Ben er goðsögn hjá allri íslensku þjóðinni hvort sem er sem lýsari eða knattspyrnumaður. Hann var talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu á sínum tíma en varð að láta sér nægja að vera bara bestur á Íslandi en ekki bestur í heimi. Gummi spilaði með allflestum af bestu leikmönnum landsins og því var vandasamt verk að velja en hann mætti í stúdíóið með rifna blaðsíðu úr stílabók sem innihélt...

Arnar Bergmann Gunnlaugsson 05.02.2020

Arnar Gunnlaugsson er heitasti þjálfari landsins í dag og ég ætla rétt að vona að flestir viti að um það leyti sem hann skrifaði undir tilvonandi Hollandsmeistaraliði Feyenoord var hann talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu. Arnar spilaði með Feyenoord, Sochaux, Nurnberg, Bolton, Leicester, Stoke og Dundee á atvinnumannaferlinum en á Íslandi spilaði hann með nánast öllum liðum landsins og lék v...

Jón Ragnar Jónsson 29.01.2020

Jón Ragnar Jónsson er miklu meira en bara tónlistarmaður. Hann á tæpa 100 leiki í efstu deild og náði með miklum dugnaði að sanna fyrir áhugamönnum um íslenskan fótbolta að hann væri töluvert meira en bara einhver klappstýra og dr. pepper á hliðarlínunni hjá FH. Jón sagði okkur góðar sögur úr klefanum frá tíma í sínum í FH og gerði upp Draumaliðið sitt í stórkostlegu spjalli. Draumaliðið er í boði...

Mikael Nikulásson 31.10.2019

Mikael Nikulásson er einn skemmtilegasti maður landsins og hann sveik ekki Draumaliðið þegar hann setti saman byrjunarlið skipað af bestu leikmönnum sem hann hefur spilað með á ferlinum. Stútfullur þáttum af alvöru sögum úr ástríðunni í neðri deildunum sem og mjög frambærilegum yngri flokki í Vesturbænum, allt saman á tandurhreinni íslensku eins og Mike er einum lagið. Ef menn hlusta á einhvern þá...

Jóhannes Karl Guðjónsson 23.10.2019

Jóhannes Karl Guðjónsson Aka Joey Gudjonsson átti frábæran feril sem atvinnumaður í Belgíu, Hollandi, Spáni og Englandi og spilaði undir mörgum heimsfrægum knattspyrnustjórum og öðrum mögnuðum karakterum. Hann gerði upp ferilinn og valdi bestu leikmenn sem hann spilaði með.

Daníel Laxdal 09.10.2019

Beinskeytt, to the point og no nonsense. Það er þannig sem Daníel Laxdal rúllar inná vellinum og það var uppleggið hans sömuleiðis þegar hann mætti í Draumaliðið og valdi sitt draumalið skipað bestu leikmönnum sem hann hefur spilað með. Besta byrjunarlið Stjörnunnar síðustu 15 árin.

Sigurbjörn Örn Hreiðarsson 02.10.2019

Sigurbjörn Hreiðarsson er sennilega ein mesta goðsögn í sögu Knattspyrnufélagsins Vals enda spilaði hann með liðinu í 19 ár og var fyrirliði bróðurpart þess tíma. Þrátt fyrir gylliboð annarra og miklu betri liða á erfiðum árum hélt hann alltaf tryggð við klúbbinn og var verðlaunaður vel á árunum 2005 til snemmsumars 2008 þegar Valur unnu flestöll mót sem í boði voru hvort sem var á veturna, vorin,...

Gunnlaugur Jónsson 26.09.2019

Gunnlaugur Jónsson kom ungur inn í gullaldarlið Skagans um miðjan 10. áratuginn og náði í skottið á þeirri ótrúlegu velgengni sem þar varði en gerði þetta síðan allt saman sjálfur sem fyrirliði Íslandsmeistara ÍA árið 2001 eftir ótrúlegan leik í lokaumferð. Gulli söðlaði einnig um á gamalsaldri og fór yfir til KR þar sem hann var strax gerður að fyrirliða en stemningin var súr í KR á þessum tíma o...

Emil Hallfreðsson 20.09.2019

Emil Hallfreðsson á tæpa 150 leiki í Serie A, 70 landsleiki og hefur spilað með mörgum frábærum og athyglisverðum leikmönnum. Í rúmlega 70 mínútna spjalli fórum við yfir það helsta sem hefur drifið á daga hans á ferlinum og fórum yfir margar af þeim ótrúlegu kempum sem hann hefur deilt búningsklefa með á ferli sem spannar FH, Tottenham, Malmö, Lyn, Reggina, Barnsley, Hellas Verona, Udinese og Fros...

Ólafur Ingi Skúlason 12.09.2019

Árið 1993 varð Ólafur Ingi Skúlason markahæsti leikmaður Shellmótsins með 12 mörk en það er lægsti markafjöldi sem leikmaður hefur komist upp með í átt að gullskó á mótinu. Þetta varð því miður hápunktur Ólafs í markaskorun en þrátt fyrir það á hann virkilega vanmetinn feril í atvinnumennsku sem spannar 5 lönd í Evrópu (og Asíu landfræðilega séð) þar sem hann spilaði m.a. tvívegis í riðlakeppni Ev...

Atli Viðar Björnsson 05.09.2019

Atli Viðar Björnsson er markahæsti leikmaður í sögu FH í efstu deild og sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk fyrir eitt og sama félagið. Hann er geggjaður pundit, var stórkostlegur striker en umfram allt þvílíkur toppmaður. Nútímasaga FH í máli og engum myndum en ferill Atla í Hafnafirði spannar 17 ár, sem er einmitt hans gamla treyjunúmer. Að sjálfsögðu var valinn iðnaðarmaður liðsins í boði...

Hjörvar Hafliðason 29.08.2019

Besta Dengsa eftirherma landsins, Dr. Football, Hjörvar Hafliðason, mætti og fór yfir knattspyrnuferil sinn í rúmlega klukkutímaspjalli í boði Viftunnar og Byko, þá sérstaklega skrúfudeildar Byko út á Granda. Saga Hjörvars í boltanum með HK, Val og Breiðablik ásamt stuttum ævintýraferðum til Karlsruher og Stoke City hefur sjaldan litið dagsins ljós en hann var á sínum tíma einn efnilegasti markmað...

Guðni Bergsson 21.08.2019

Einn besti leikmaður Íslands fyrr og síðar, Guðni Bergsson, samþykkti ferðatilhögun Draumaliðsins og mætti í þáttinn og opnaði sig um bestu leikmenn sem hann hefur spilað með. Draumaliðið er í boði BYKO, sérstaklega BYKO út á Granda sem hefur aldrei brugðist liðsmönnum Draumaliðsins.

Sólmundur Hólm Sólmundarson 16.07.2019

Saga Hólmarans í knattspyrnunni er saga brostinna drauma en einnig saga upprisu. Sóli sagði okkur frá áföllum sem hann lenti í snemma á ferlinum og hvernig hann reif sig upp í það að verða einn afkastamesti spilandi þjálfari í sögu árgangamóts Þróttar.

Sigurvin Ólafsson 12.07.2019

Sigurvin Ólafsson varð Íslandsmeistari 5 sinnum, einu sinni bikarmeistari og fór tvisvar upp úr 2. deildinni á mögnuðum ferli. Hann valdi Draumaliðið sitt sem að var mikill hausverkur eftir veru hjá m.a. gullaldarliðum ÍBV, KR og FH.

Hallbera Guðný Gísladóttir 03.07.2019

Hallbera Guðný Gísladóttir, vinstri bakvörður Vals og íslenska landsliðsins og spekingur Pepsi Max markanna, kíkti til mín og fór yfir bestu leikmenn sem hún hefur spilað með á ferlinum.

Listen to the Draumaliðið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.