Jói Skúli

Draumaliðið

Sports IS ↓ 156 episodes

Heimavöllur íslenskrar knattspyrnusagnfræði https://www.facebook.com/Draumali%C3%B0i%C3%B0-104064991157227/?modal=admin_todo_tour

Author

Jói Skúli

Category

Sports

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jun 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Þórður Guðjónsson 15.02.2021

Eini Íslendingurinn sem hefur skorað í Premier League, La Liga og Bundesligunni. Deilir markametinu í efstu deild á Íslandi, er sá leikmaður sem hefur skorað í flestum leikjum í röð á Íslandi, var dýrasti leikmaður í sögu Las Palmas og er goðsögn hjá Genk. Þórður sagði frá því þegar nágranni hans Taribo West predikaði fyrir leikmannahóp Derby, hvað var í vatnsbrúsanum hans Giorgi Kinkladze hjá Der...

Steven Lennon 07.02.2021

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. Disputed record holder for most goals scored in a single season GpG. Undisputed record holder for most goals scored by a foreigner in Iceland’s top flight. Ég og Lennon fórum yfir tímann á Íslandi í bland við alvöruna og hörkuna hjá honum í Glasgow Rangers.

Arnór Smárason 02.02.2021

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. Arnór Smárason var gulldrengur '88 kynslóðarinnar og fór 15 ára gamall einn síns liðs til Heerenveen og gerðist atvinnumaður í fótbolta. Hann var erlendis þangað til í janúar 2021 og því spannar atvinnumannaferillinn tæp 17 ár sem er einn lengsti samfelldi atvinnumannaferill Íslendings. Arnór var...

Arnór Guðjohnsen 26.01.2021

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. Arnór Guðjohnsen þarfnast nákvæmlega engrar kynningar. Liðið hans er stútfullt af landsliðsmönnum, Heims- og Evrópumeisturum, fyrrum leikmönnum Real Madrid og Inter Milan og gulldreng Heimsmeistaramótsins. Í liðið komast t.d ekki leikmenn sem fengu gullskóinn á HM eða aðrir HM sigurvegarar. Góða...

Almarr Ormarsson 20.01.2021

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. Almarr Ormars var hluti af gullkynslóðinni og styrkti stöðu okkar í u21 umspilinu gegn Skotum 2011 með einum mesti bylmingi sem Laugardalsvöllurinn hefur séð. Sú leið sem hann fetaði í framhaldinu fellir hann þó í kjölfarið því miður í týnda gullkynslóðarflokkinn sem Draumaliðið hefur margoft far...

Aron Jóhannsson 11.01.2021

Lengjan - Dominos - WhiteFox & Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - SuitUp Reykjavík. The Kid from Mobile who dared to dream. Aron Jóhannsson hefur unnið hollensku bikarkeppnina, spilað í Evrópukeppnum, spilað í stórliði í Bundesligunni og er eini Íslendingurinn sem hefur unnið leik á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu.

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson 06.11.2020

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, VHV4, Villi Vill eða bara einfaldlega kóngurinn. Maðurinn sem hefur í áraraðir barist fyrir okkar virtustu mannréttindum á sér auðvitað knattspyrnuferil sem er litaður af frábærum sögum og góðri stemningu. Villi er Frammari og Köttari sem einnig lék með Víkingi Reykjavík og Hvöt á Blönduósi en vegna tímaeklu og skitu gleymdist algjörlega að ræða þann kafla og eru alli...

Þorvaldur Örlygsson 28.10.2020

Þorvaldur Örlygsson á sennilega ein vanmetnustu félagsskipti síðari ára þegar KA seldi hann til þáverandi stórliðs Nottingham Forrest á Englandi. Hann varð fjórði Íslendingurinn til að skora þrennu fyrir landsliðið, fyrsti Íslendingurinn til að skora í Premier League, hefur sápað bakið á Brian Clough og átti þátt í því að Sir Alex Ferguson fékk ekki reisupassann frá Manchester United.

Luca Lúkas Kostic 21.10.2020

ATH - Hljóðið er í brasi fyrstu 19 mínúturnar en verður fullkomið eftir það. Afsakið þetta. Luca Kostic mætti til landsins í mars 1989 og skrifaði undir hjá Þór Akureyri eftir 10 ára veru í efstu deild í Júgóslavíu. Síðan þá hefur hann unnið ótrúlegt starf fyrir íslenska knattspyrnu sem leikurmaður, þjálfari og í hæfileikamótun á ungum leikmönnum. Milli þess sem hann sagði frá Draumaliðinu sínu va...

Fjalar Þorgeirsson 14.10.2020

Það eru fáir sem hafa spilað með jafn mörgum félögum úr Reykjavík í efstu deild eins og Fjalar Þorgeirsson. Hann er Þróttari að upplagi en spilaði auk þess með Fram, Fylki, KR og Val. Um aldamótin var hann varamarkmaður íslenska landsliðsins sem var hæsta mögulega staða sem aðrir markmenn en Árni Gautur Arason gátu hugsað sér en á árunum sem fylgdi var hann alltaf trúr sínu uppeldisfélagi og lands...

Helgi Valur Daníelsson 06.10.2020

Helgi Valur Daníelsson er fæddur í Uppsala, ólst upp á Selfossi en mætti sprækur í Lautina 12 ára gamall hvar hann er auðvitað goðsögn. Helgi fór ungur að árum til Peterborough United þar sem hann lærði að drekka og spila fótbolta en kom aftur heim endanlega 22 ára og spilaði með Fylki í þrjú ár áður en hann hélt aftur í atvinnumennsku sem stóð svo yfir í tæp 10 ár í Svíþjóð, Þýskalandi, Portúgal...

Davíð Þór Viðarsson 01.10.2020

Það má færa sterk rök fyrir því að Davíð Þór Viðarsson sé besti leikmaður Íslandsmótsins frá upphafi. Hann kom 17 ára gamall með FH upp í efstu deild og hefur verið fastamaður og fyrirliði í liðinu síðan þá ef frá eru talin tvö þriggja ára stopp í atvinnumennsku. Hann varð einu sinni bikarmeistari og 8 sinnum Íslandsmeistari og náði því magnaða afreki að pirra hvern einasta andstæðing FH hvort sem...

Bjarni Guðjónsson 23.09.2020

Bjarni Guðjóns er einn af þremur bestu miðjumönnum efstu deildar síðastliðin 15 ár. Á undan því var Bjarni atvinnumaður í Englandi, Þýskalandi og Belgíu, var góðvinur Temuri Ketsbaia sem gekk eftirminnilega berserksgang á St. James's Park, æfði með háöldruðum Taribo West og kynntist Vahid Hashemian í Bochum sem hefur ekki riðið neitt sérstaklega feitum hesti í Draumaliðinu hingað til. Bjarni er Sk...

Gunnar Oddsson 17.09.2020

Ef Gunnar Oddsson væri bandarískur íþróttamaður myndi hann bera gælunafnið Iron Man. Frá júlí 1990 til ágúst 2000 spilaði Gunnar alla deildarleiki sem í boði voru í efstu deild á Íslandi, 186 leiki talsins, en hann varð síðar leikjahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi og er í dag í þriðja sæti á þeim lista. Hann er goðsögn í Keflavík og vel metinn hjá KR og Ólafsfirði en fyrst og síðast er ha...

Gunnar Heiðar Þorvaldsson 09.09.2020

Gunnar Heiðar Þorvaldsson er ekkert eðlilega skemmtilegur FyrirgosEyjamaður sem á virkilega vanmetinn feril að baki. Hann vann bæði gull- og silfurskó í Allsvenskunni, spilaði í Bundesligunni, á kvarthundrað landsleiki og færði Eyjamönnum sinn fyrsta bikar í tæp 20 ár þegar hann sneri aftur heim úr atvinnumennsku. Frábært Draumalið sem The Gun setti saman úr miklum fagmönnum, þrír Champions League...

Gary Martin 01.09.2020

Gary John Martin er án nokkurs vafa mest ræddi leikmaður síðasta áratugs í efstu deild á Íslandi. Drengurinn frá Darlington hefur spilað með 5 félögum á Íslandi og einnig spilað í Englandi, Danmörku, Ungverjalandi, Noregi og Belgíu. Hann mætti í Draumaliðið og gaf okkur sitt teik á íslenska boltanum sem hann hefur gríðarlega gaman af, fór yfir erfiðustu andstæðingana, bestu leikina og valdi auðvit...

Atli Jóhannsson 24.06.2020

Atli Jóhannsson er Eyjamaður sem spilaði einnig með KR og er goðsögn í Stjörnunni. Atli spilað í 15 ár á Íslandi, allt í efstu deild og var einn yngsti leikmaðurinn til að ná þeim áfanga að spila 200 leiki í efstu deild. Hann lagði skóna 33 ára gamall á hilluna vegna meiðsla en hafði fram að þeim tíma afrekað hluti sem aðra leikmenn getur aðeins dreymt um eins og að dekka Mateo Kovacic, fara tapla...

Indriði Sigurðsson 15.06.2020

Eftir að hafa jafnað sig á því áfali að vera rekinn úr KR í 7. flokki lék Indriði Sigurðsson 65 landsleiki fyrir íslenska landsliðið og var í 15 ár í atvinnumennsku í Noregi og Belgíu. Hann var orðaður við Manchester United og fór á trial til Liverpool og PSV áður en hann skrifaði undir hjá Lilleström í Noregi eftir að hafa 17 ára gamall spilað ágætis hlutverk í frægu Íslandsmeistaraliði KR og átt...

Bjarni Þór Viðarsson 08.06.2020

Bjarni Þór Viðarsson sat á bekknum í Premier League og var í fjögur ár hjá Everton áður en hann var á mála hjá Twente í Hollandi, liði sem varð Hollandsmeistari eftir að Bjarni hafði sett mark sitt á liðið og yfirgefið klúbbinn. Frá Hollandi tók Bjarni stökkið yfir í efstu deild Belgíu þar sem hann mætti tilvonandi leikmönnum belgísku gullkynslóðarinnar hverja helgi áður en hann kláraði ferilinn m...

Kristinn Tómasson 02.06.2020

Kristinn Tómasson er markahæsti leikmaður Fylkis á Íslandsmóti en fyrsta markið skoraði hann einungis 17 gamall, algjörlega lygilegt mark í anda Dennis Bergkamp sem reyndist sigurmark Fylkis gegn FH og hrifsaði Íslandsmeistaratitilinn úr höndum FHinga. Árin á eftir raðaði Kristinn inn mörkunum og hélt alltaf tryggð við uppeldisklúbb sinn. Því er um að ræða enn eitt draumaliðið frá á a one club leg...

Steve Andri Geir Gunnarsson Dagskrá 25.05.2020

Andri Geir Gunnarsson, annar af þáttastjórnendum Steve Dagskrá, veit allt um takkaskó auk þess að vera einn af dáðustu sonum ÍH. Hann hefur upplifað tímana tvenna, enda af týndu gullkynslóðinni auk þess sem hann söðlaði um á yngri árum og skipti úr uppeldisfélagi sínu Haukum yfir í stjörnumprýtt lið Breiðabliks í 3. flokki. Andri fór yfir bestu samherja sína, gleðistundirnar og sorgirnar, í almenn...

Kári Árnason 17.05.2020

Kári Árnason teikaði gullkynslóðina tæplega þrítugur eftir slitróttan landsliðsferil og hefur átt stóran þátt í mesta blómaskeiði íslenska landsliðsins. Kári hefur þess utan átt virkilega skemmtilegan feril í atvinnumennsku þar sem hann hefur spilað í Skandinavíu, Skotlandi, ensku neðri deildunum, Kýpur og Tyrklandi. Kári er fullkominn viðmælandi fyrir Draumaliðið, einstaklega skemmtilegur og hrei...

Logi Ólafsson 11.05.2020

Logi Ólafsson er einn af örfáum þjálfurum á Íslandi sem hefur orðið Íslandsmeistari með karlalið og kvennalið ásamt því að hafa þjálfað íslenska A landslið karla og kvenna. Logi er auðvitað einn fyndnasti maður landsins og sagði mér ekkert eðlilega fyndnar sögur í tæplega tvo klukkutíma frá þjálfaraferlinum og hann valdi byrjunarlið af bestu leikmönnum sem hann þjálfaði frá ferlinum, sitt Draumali...

Prince Matilda Rajcomar - Dreamteam special 08.05.2020

Prince Rajcomar kom til landsins í byrjun árs 2007, 21 árs unglingalandsliðsmaður frá Hollandi, og lék með Breiðablik í tvö ár áður en KR fékk hann til sín þar sem hann var hluti af The Quintet of Quality sóknarlínu KRinga sumarið 2009 áður en hann fór til ungverska efstu deildar liðsins Zalaegersegi (stafsetning pending). Eftir Prinsinn liggja ótrúlegar sögur eins og aðdáendur Draumaliðsins hafa...

Gunnar Örn Jónsson 04.05.2020

Gunnar Örn Jónsson er Fjölnismaður sem vann alla titla sem í boði voru áður en hann skipti yfir í yngri flokka Breiðabliks og skaraði fram úr undir styrkri leiðsögn Salih Heimis Porca. Þaðan elti hann peninga og frægð hjá KR og var hluti af The Quintet of Quality eins og gárungar kölluðu 5 manna sóknarlínu KR árið 2009. Hann spilaði A-landsleik og varð Íslandsmeistari árið 2011 en færði sig þá yfi...

Listen to the Draumaliðið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.