Dagbók urriða
Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift.
Patreon-sería Dagbókar urriða. Í Trufluðum veiðimönnum skoðum við einstök ár í sögu stangveiða á Íslandi ásamt því að trufla veiðimenn í gott spjall.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Lokaþáttur - Kveðjurant. 28.07.2022 49:51
Það er komið að því að kyngja því að ekki er hægt að gera allt sem maður vill. Tíminn er hreinlega ekki nægur. Ég er farinn að átta mig á því að ég hef ekki verið að sinna þessu eins og til er ætlast. Ég viðurkenni það eins og maður en er um leið fullur þakklætis fyrir stuðninginn hingað til <3
Truflaðir veiðimenn - Nördaspjall með Ragga Danner 01.07.2022 1:35:15
Ég fékk Ragnar Inga Danner í heimsókn. Raggi er líffræðingur og sjálftitlaður "besstewizzer". Við spjölluðum um skordýrin sem gera okkur mögulegt að vera veiðimenn auk þess að fara um víðan völl.
Veiðiþjófnaður. 29.06.2022 54:45
Í þessum þætti förum við víða, en megin þema þáttarins er veiðiþjófnaður og sorgleg átakasaga Brynjudalsár.
Truflaðir veiðimenn - Leyndardómar Rauðavatns. 15.06.2022 38:02
Í þessum þætti skoðum við Hafravatn og Rauðavatn. Auk þess heyrum við söguna um urriðann Nudd sem gladdi börn 1884. Þessi þáttur er fyrir bæði nörda og ónörda held ég.
Truflaðir veiðimenn - Sjóbirtingur, líffræði og leynivötn. 09.04.2022 49:29
Við förum víða á fallegum laugardagsmorgni. Við skoðum sjóbirtinginn að vori, reifum aðeins á rannsóknum um hegðun hans við niðurgöngu og skoðum síðan nokkur afskekkt silungsvötn sem gaman er að kíkja á.
Truflaðir veiðimenn - Ógnvaldurinn með mannsaugun. 27.03.2022 51:41
Við förum fram og aftur um tímann í þessum þætti. Kíkjum stutt á Arthur Feddersen en fjöllum nú mest um þann ógnvald sem markvisst gengur frá laxinum okkar...eða hvað? Við skoðum rannsóknir á selnum okkar og komust að því hvað hann er í raun og veru að vilja í ósa laxveiðiáa okkar. Þetta mun koma ykkur á óvart.
Truflaðir veiðimenn - Misstir fiskar. 23.03.2022 55:21
Í þessum þætti förum við yfir all nokkra missta fiska sem komu sér rækilega fyrir á koddanum margar nætur eftir á. Það er sárt að missa stóra fiska, en því lengra sem líður á þroskaferli veiðimanns hættir þetta að rista of djúpt. Það er sigur að setja í góðan fisk. Ég fer yfir nokkra af þeim fiskum sem særðu mig og glöddu í senn. Við förum víða í þessum þætti.
Truflaðir veiðimenn - Fluguveiði í sjó. 12.03.2022 55:21
Við skoðum fluguveiði í sjó við strendur landsins. Hvernig veiðum við sjógöngusilung í sjó á Íslandi. Eru sjóbleikjur landsins þær bestu? Hversu gamlar geta þær orðið? Hversu stórar? Við skoðum einnig sjóbleikjur í öðrum löndum og fjöllum aðeins um rannsóknir á sjógöngusilung til hafbeitar. Nóg af allskonar um sjógöngusilung.
Arthur Feddersen - 3 hluti. 07.03.2022 45:15
Við höldum áfram ferðalaginu með honum Arthur F. Feddersen. Það rignir og ferðalagið er farið að taka sinn toll af dananum. Hann skoðar nokkur svæði fyrir norðan og finnur tíma til þess að veiða sjálfur.
Truflaðir veiðimenn - Feddersen 2 hluti. 28.02.2022 32:58
Við höldum áfram að ferðast með Arthur F. Feddersen um Ísland árið 1884 að skoða fiskana okkar og veiðisvæðin.
Truflaðir veiðimenn - Leirá á vorin. 25.02.2022 53:37
Leirá er orðin ein af þessum vinsælustu vorveiðisvæðum. Nálægðin við borgina og möguleikinn að hafa alla ánna útaf fyrir sig með húsi heillar greinilega marga. Áin hefur vaxið gríðarlega sem sjóbirtingsveiðiá undan farin ár og getur vorveiðin þar verið mikil. Hvað eru veiðimenn að gera rangt ef þeir núlla þar í apríl þegar allir aðrir fá fisk? Við förum yfir alla þá staði sem vert er að eyða tíma...
Truflaðir veiðimenn - Arthur F. Feddersen part 1. 23.02.2022 35:53
Við höldum í tímavélina góðu og förum í magnað ferðalag um veiðilendur Íslands árið 1884. Arthur F. Feddersen var mikill fræðimaður og þá sérstaklega er kom að ferskvatnsfiskum og klaki á þeim. Hann tók rannsóknarreisu um Ísland 12 árum áður en Bjarni Sæmundsson fór í sína. Munurinn á þessum tveimur náttúrufræðingum var sá, að Feddersen var sérfróður um fiskana og einnig....stangveiðimaður. Dansku...
Truflaðir Veiðimenn - Vötnin og árnar á Veiðikortinu. 21.02.2022 1:11:52
Við rennum yfir veiðisvæðin á Veiðikortinu þetta árið. Leynast þar faldar perlur? Ég hef veitt ansi mörg þessara svæða og fundið nokkrar perlur.
Truflaðir veiðimenn - Allt og ekkert. 18.02.2022 47:30
Við hugsum um allt og ekkert. Kíkjum aðeins aftur í tímann hvað varðar lax-og silungsveiðilög, svörum nokkrum spurningum um veiðar íslendinga til forna, pælum í selum og sandsílum. Þessi þáttur er bara afslappaður um allt og ekkert.
Truflaðir veiðimenn - Harmur og heimtur. 10.02.2022 1:04:22
Við ferðumst upp á Arnarvatnsheiði á móts við stórvaxinn urriða. Á leið okkar fræðumst við um ýmislegt tengt sögunni á svæðinu, sem og víðar. Í þessum þætti er harmur, dauði og sorg ákveðið þema, en við reynum að gera þetta með bros á vör. Við skoðum sagnfræði, líffræði og jarðfræði á leið okkar upp að Stóra lóni.
Truflaðir veiðimenn - 1.apríl 31.01.2022 57:01
Langflestir veiðimenn bíða spenntir eftir 1.apríl ár hvert. En hvað gerist þá? Er ekki allt frosið? Er sniðugt að panta fyrirfram? Er einhver séns? Hvert er veiðimaður að fara? Ég reyni að svara þessum spurningum og koma með uppástungur í þessum hugleiðingum mínum um 1.apríl.
Truflaðir veiðimenn - Live í jeppa. 30.01.2022 31:25
Er ég ferðaðist upp á hálendi til dorgveiða í gegnum ís, datt mér í hug að kveikja á upptökugræjunni og spjalla við farþegana í jeppanum um þau svæði sem við vorum að aka yfir.
Truflaðir veiðimenn - Blöndukvíslar. 27.01.2022 1:27:26
Í þessum þætti tölum við um þetta magnaða veiðisvæði sem Blöndukvíslar eru. Ég fer létt í sögu þeirra og síðan heyrum við í veiðimanni sem hefur gert þar gott mót og fallið fyrir svæðinu.
Truflaðir veiðimenn - Beituveiði með pungsökku. 16.01.2022 55:00
Við dýfum okkur í heim beituveiðimanna. Ég vissi lítið sem ekkert um þessa aðferð og var forvitinn að komast að því hvað þarf til þess að verða góður beituveiðimaður. Gunnar Ólafur leiðir okkur áfram í heimi beituveiðimanna.
Truflaðir veiðimenn - Veiði um vetur / Aukaþáttur 02.01.2022 53:32
Í þessum aukaþætti spjöllum við um vetrarveiði á Íslandi og erlendis. Við heyrum svo í Sindra Hlíðari og fáum að forvitnast um hans reynslu á veiði um vetur.
Truflaðir veiðimenn - 1987 30.12.2021 58:37
Við ferðumst aftur til ársins 1987 og skoðum veiðina þar. Einnig heyrum við í einum af skemmtilegri veiðimönnum landins í seinnihluta þáttar. Þessi er magnaður.
Truflaðir veiðimenn 1992 21.12.2021 1:11:48
Við ferðumst aftur til ársins 1992 og skoðum veiðina þar. Einnig heyrum við í einum af færustu veiðimönnum landins í seinnihluta þáttar.
Truflaðir veiðimenn 1981 21.12.2021 56:24
Í þættinum ferðumst við aftur til ársins 1981 og skoðum veiðina þá. í seinnihlutanum heyrumst við bráðskemmtilegt viðtal við truflaðan veiðimann.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.