Dagbók urriða

Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift.

History EN ↓ 48 Folgen

Patreon-sería Dagbókar urriða. Í Trufluðum veiðimönnum skoðum við einstök ár í sögu stangveiða á Íslandi ásamt því að trufla veiðimenn í gott spjall.

Autor

Dagbók urriða

Kategorie

History

Podcast-Website

redcircle.com

Neueste Folge

30. Jan 2024

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Ferðast um landið 3 30.01.2024

Við klárum nú að skoða þá veiðistaði sem ég hef kastað í á landinu okkar. Förum frá Skagaheiðinni alla leið yfir að Þingvöllum.

Ferðast um landið #2 27.12.2023

Við ferðumst áfram um Ísland og heimsækjum hvern einasta veiðistað þar sem ég hef veitt í. Allt frá heimsþekktum svæðum yfir í skolprör og drullupolla. Já ég hef víða farið :)

Á ferð um landið. 19.12.2023

Við ferðumst um Ísland og heimsækjum hvern einasta veiðistað þar sem ég hef veitt í. Allt frá heimsþekktum svæðum yfir í skolprör og drullupolla. Já ég hef víða farið :)

Dagbók urriða - Tossalistinn. 16.11.2023

Í þessum þætti förum við saman yfir fjölmörg atriði sem ég hef verið að gera rangt í veiðinni undanfarin ár og mögulega þið líka. Það er þó ekkert rétt eða rangt í veiði, eins lengi og veiðimenn og konur hafa ánægju af...og já að aðferðirnar séu löglegar.

Sumarið 2023. 09.11.2023

Við skoðum veiðisumarið 2023 og hvernig það tók á móti mér. Einnig fáum við nokkur fróðleg innskot frá Hrafni Ágústssyni Caddisbróður.

Regnbogasilungur 20.04.2023

Í þessum þætti tölum við aðeins og vorið sem stendur yfir. Heyrum í Elíasi Pétri Viðfjörð, sem víða hefur farið í vor og skoðum síðan sögu regnbogasilunga á Íslandi, svona í ljósi þess sem er að gerast í Minnivallalæk.

Þurrfluguveiði með Óla Caddisbróður. 28.03.2023

Í þessum þætti fáum við Ólaf Ágúst Haraldsson (Óli Caddisbróðir) í spjall og tölum um listina að veiða á þurrflugu.

Dauði bleikjunnar. 23.03.2023

Í þessum þætti skoðum við hnignun bleikjunnar. Hvað er að gerast? Það veit enginn fyrir víst, en nokkrar líklegar kenningar eru á sveimi. Við gerum það eina sem við getum og rýnum í tölur, veður og sjó og finnum óvænta samnefnara. Þessi þáttur er nokkuð þungur nördalega.

Dagur Árni - Allt um straumflugur fyrir stóru fiskana. 14.03.2023

Í þessum þætti heyrum við í Dag Árna og lærum mikið um stórar straumflugur og þá tækni sem býr að baki því að ná þessum stóru fiskætum. Við spjöllum líka um Kaliforníu og þær hættur sem leynast þar í veiðinni. Virkilega skemmtilegur þáttur sem mikið er hægt að læra af.

Tryggvi Guðmundsson - Maðurinn með hornsílin. 08.03.2023

Í þessum þætti spjöllum við Tryggvi Guðmundsson um ýmislegt í veiðinni. Tryggvi hefur starfað við jöklaleiðsögn til fjölda ára en er einnig sjúkur veiðimaður og náttúrubarn. Tryggvi nemur nú líffræði við Háskóla Íslands. Við skoðum Arnarvatnsheiði, pöddur, fluguhnýtingar, sýkingar í fiskum og hornsíli ásamt mörgu fleira skemmtilegu.

Nördaslagur - fyrsta umferð. 28.02.2023

Í þessum þætti reyni ég að hefna fyrir tap mitt í veiðipubquiz-i fyrir viku síðan. Þar tapaði ég naumlega fyrir líffræðing og veiðinörd. Ég þurfti að reyna að jafna leikinn og setti upp veiðinördabardaga í beinni. Danner Vs Dagbókin. Þessi er lærdómsríkur.

Eldgos og laxfiskar. 23.02.2023

Við skoðum áhrif eldgosa á fiskana sem við elskum að veiða. Ferskvatnsfiskstofnar á Íslandi hafa þurft að þola ýmislegt þau 11.500 ár sem þeir hafa búið hér. Við skoðum samspil eldgosa og fiskdauða á Íslandi.

Þar sem tröllin búa. 14.02.2023

Í þessum þætti skoðum við einstaka náttúruparadís sem fyrir veiðimanninn, væri líklega best að lýsa sem furðulegri. En þar finnast þó líklega stæðstu bleikjur á Íslandi. Fáum einnig til okkar skemmtilegan gest til að fara yfir málið.

Sjóbirtingur í Danmörku og vinsæl veiðiperla á Íslandi. 08.02.2023

Í þessum þætti spjöllum við örlítið meira um fluguveiði í sjó. Við fáum til okkar gest sem keppir í slíkri veiði og er sá eini sem ég þekki sem gerir slíkt. Hann hefur víða veitt á Íslandi einnig og fræðir okkur um okkar helstu perlu.

Silungur í sjó. 29.01.2023

Nú skoðum við veiðar á silung í sjó. Eitthvað sem við Íslendingar gerum lítið af. Í það minnsta minna en frændur okkar á norðurlöndum. En er mögulega ástæða fyrir því? Fáum til okkar góðan gest sem þekkir veiðar á sjógöngusilung í sjó vel.

Veiðin á Íslandi 1752 - 3 hluti. 18.01.2023

Þá ljúkum við ferðalagi okkar með þeim Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni um Ísland milli 1752-1757. Við skoðum veiðina á austurlandi og suðausturlandi. Finnum risableikjur í jökullóni, drepum síðastu tvo Geirfuglana, sjáum geysi gjósa og rannsökum hvernig Sogið gat horfið í einn dag.

Veiðin á Íslandi 1752 - 2 hluti. 11.01.2023

Við höldum áfram að ferðast með þeim Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni um Ísland milli 1752-1757. Við skoðum hvernig veiðin var þá og síðan hvernig hún er í dag.

Veiðin á Íslandi 1752 03.01.2023

Í þessum þætti förum við enn á ný í tímavélina og núna alla leið til ársins 1752. Þar sláumst við í för með Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni á ferð þeirra um Ísland. Við ignorum nánast allt sem þeir sjá, nema laxfiska og veiði. Við berum svo saman hvernig staðan á þeim svæðum sem skoðuð eru, er síðan í dag. Eins og áður á tímaferðalögum okkar, þá hefur margt breyst. 18 öldin var hörmungaröld,...

Kjötiðnaðarmaðurinn Hjörvar Jóhannesson. 29.12.2022

Í þessum þætti spjalla ég við Hjörvar Jóhannesson. Hjörvar er kjötiðnaðarmaður frá Akureyri. Hann er veiðisjúklingur eins og við flest en þó ekki aðeins á sumrin. Hjörvar veiðir töluvert í gegnum ís um vetur og veit sitthvað um hvítmaðk. Við förum um víðan völl í spjalli okkar.

Að gera veiðiþætti. 20.12.2022

Í þessum sóló þætti, fer ég yfir reynslu mína af gerð veiðimyndbanda og þátta. Skyggnumst aðeins bakvið tjöldin á gerð þáttana Dagbók urriða. Þetta er jólaþáttur, svo ég óska ykkur gleðilegra jóla og þakka ykkur fyrir liðið ár :)

Caddisbræður. 20.12.2022

Ég fékk þá Óla og Hrafn, betur þekkta sem Caddisbræður í skemmtilegt spjall. Það var víða farið og mikið hlegið. Silungsveiðin alla leið.

Frændaspjall - Elías Pétur Þórarinsson Viðfjörð. 07.12.2022

Hann Elías Pétur kom í langt og skemmtilegt spjall. Við fórum um víðan völl. Urriða,bleikju og laxveiði, Fuss félag, sjókvíaeldi og yfir í að spjalla um móahægðir veiðimanna. Skemmtilegur þáttur.

Einveran og austurland. 01.12.2022

Í þessum þætti tölum við aðeins um þá iðju að veiða einn. Einnig læt ég loksins verða af því að kynna mér silungsveiðina á austurlandi með hjálp góðs gest. Jón Þór Tryggvason er gestur minn í þessum þætti.

Galdraflugan og brennuöldin á Íslandi. 22.11.2022

Í þessum þætti leitum við svara hversvegna Bibio Pomonae er kölluð Galdrafluga. Sú leit tekur okkur til baka um tæp 400 ár þar sem ár og vötn eru yfirfull af fisk og Íslendingar voru brenndir á báli. Þessi er nokkuð sagnfræðiþungur.

Jónas og arfurinn. 16.11.2022

Í þessum þætti leiðbeinum við honum Jónasi um silungsveiðina á Íslandi. Jónas er byrjandi sem verður að veiða 5 punda silung og eða 5 vænar bleikjur á innan við sólarhring til þess að erfa moldríkan föður sinn. Vandamálið er að Jónas á aðeins tvær flugur og engan pening. En við hjálpum honum í gegnum þetta.

Höre den Podcast Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift. in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet