Hafsteinn Sæmundsson

Bíóblaður

Tv IS ↓ 379 episodes

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

Author

Hafsteinn Sæmundsson

Category

Tv

Podcast website

www.biobladur.is

Latest episode

Jan 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Bíóblaður áskrift #20 - Star Wars: Andor með Birgi Ársæls 14.03.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndafræðingurinn Birgir Smári Ársælsson er mikill Star Wars áhugamaður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða fjórðu Disney+ Star Wars seríuna, Andor.   Birgir og Hafsteinn ræða meðal annars hversu vönduð serían er, hversu sterk persónusköpun er í þáttunum og hvernig serían nær að sýna andspyrnuna í nýju ljósi.   Strákarnir fara einnig aðeins út fyrir Andor og ræ...

#230 Óskarinn 2023: Part II með Agli, Ísrael og Teiti 09.03.2023

Kvikmyndaneminn Egill Andri, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða stærstu kvikmyndahátíð ársins.   Strákarnir ræða einna helst þessar 10 kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta mynd ársins en í þessum seinni hluta ræða þeir myndirnar Women Talking, Tár, Everything Everywhere All at Once, Elvis, All Quiet on the Wes...

#229 Óskarinn 2023: Part I með Agli, Ísrael og Teiti 08.03.2023

Kvikmyndaneminn Egill Andri, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða stærstu kvikmyndahátíð ársins.   Strákarnir ræða einna helst þessar 10 kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta mynd ársins en í þessum fyrri hluta ræða þeir myndirnar Avatar: The Way of Water, Triangle of Sadness, The Fabelmans og The Banshees of Ini...

Bíóblaður áskrift #19 - Marvel 2022 með Arnari og Alex 02.03.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndagerðarmaðurinn Arnar Freyr Tómasson og content creatorinn Alex Michael Green Svansson (Alex from Iceland) eru báðir miklir Marvel aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins til að fara yfir allt Marvel efni sem kom út í fyrra.   Þeir ræða meðal annars hvort Thor: Love and Thunder hafi verið vel heppnuð, hvernig She-Hulk serían skipti aðdáendahópnum í tvennt, hvort...

#228 Persónulegar myndir með Óla Bjarka 01.03.2023

Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki Austfjörð er einn af fastagestum Bíóblaðurs en Óli hefur líklegast eytt mestum tíma í stúdíóinu fyrir utan Hafstein. Óli kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti vildi Óli ræða kvikmyndir sem snerta hann persónulega.   Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Highlander, Toy Story, The Sixth Sense, Heat, Logan, The Princess Bride og að sjálfsögðu Unbreakab...

#227 Marvel með Röggu Hólm 22.02.2023

Rapparinn Ragga Hólm kíkti til Hafsteins til að ræða Marvel myndir. Ragga horfði á allar MCU myndirnar í fyrsta skipti fyrir stuttu og Hafsteini fannst áhugavert að fá hana til sín og ræða þessa risa seríu við hana.   Hafsteinn bjó einnig til 25 MCU spurningar fyrir Röggu til að athuga hversu mikill Marvel aðdáandi hún er orðin.   Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríu...

Bíóblaður áskrift #18 - 1994 vs. 1999 með Bjarna Thor og Hödda 20.02.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Fyrirtækjaeigandinn Bjarni Thor og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson eru miklir 90’s menn og þeir kíktu til Hafsteins í sérstakan 1994 vs. 1999 þátt.   Hafsteinn stillti upp 12 kvikmyndum frá 1994 og setti þær á móti 12 kvikmyndum frá 1999. Strákarnir velja síðan í sameiningu einn sigurvegara í hverri lotu og komast að því í lokin hvort árið sé betra kvikmyndaár....

#226 Bransaspjall með Óskari Axels 15.02.2023

Óskar Þór Axelsson er einn af okkar farsælustu kvikmyndagerðarmönnum. Hann hefur leikstýrt sjónvarpsseríum og kvikmyndum á borð við Svartur á leik og Ég man þig.   Óskar var að gefa út sína nýjustu kvikmynd, stórmyndina Napóleonsskjölin, en myndin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Arnald Indriðason.   Óskar kíkti til Hafsteins og ræddi meðal annars Napóleonsskjölin, hvernig iðnaðurinn hefur br...

Bíóblaður áskrift #17 - Babylon með Alex Jóns 13.02.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndaáhugamaðurinn Alex Jónsson kíkti til Hafsteins til að ræða umdeildu stórmyndina, Babylon.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu kraftmikil leikkona Margot Robbie er, hvort að þetta sé besta hlutverk Brad Pitt í langan tíma, hversu mögnuð tónlistin er, hvort myndin eigi eftir að enda sem cult mynd, hversu áhugavert var að sjá þetta tímabil í kvikmynd...

#225 Napóleonsskjölin með Vivian Ólafs 08.02.2023

Leikkonan Vivian Ólafsdóttir lék eitt aðalhlutverkanna í grín/spennumyndinni Leynilöggan árið 2021 og lék aðalhlutverkið í hryllingsmyndinni It Hatched sem kom út árið 2022.   Nú fyrir stuttu kom út hennar nýjasta mynd en það er spennumyndin Napóleonsskjölin sem byggð er á samnefndri skáldsögu eftir Arnald Indriðason en í myndinni leikur Vivian aðalhlutverkið. Hafsteinn fékk Vivian til sín í skemm...

Bíóblaður áskrift #16 - Speak No Evil með Orra Guðmunds 03.02.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Orri Guðmundsson er 17 ára gamall kvikmyndaáhugamaður með sérstakan áhuga á hryllingsmyndum. Orri kíkti til Hafsteins til að ræða eina ógeðslegustu mynd síðari ára, dönsku myndina Speak No Evil.   Strákarnir ræða meðal annars hversu hryllileg hún er, hvernig hún fjallar um meðvirkni, hversu raunveruleg hún er, hversu vel myndin er skrifuð og margt, margt fleira.   Þátt...

#224 The Rematch: Kilo vs. Snorri 01.02.2023

Rapparinn Kilo og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson mættu til Hafsteins til að keppa í nýrri spurningakeppni! Síðasta keppni var æsispennandi og því kom ekki annað til greina en að búa til rematch.   Í þessari keppni skiptast spurningarnar í hasar, grín, sci-fi og horror. Kilo og Snorri þurfa að svara 100 spurningum og úr varð önnur gríðarlega spennandi spurningakeppni! Þessi þáttur er algjört sky...

#223 Uppistand með Þórhalli Þórhalls 30.01.2023

Þórhallur Þórhallsson er uppistandari, leikari og grínisti. Þórhallur fagnar fertugsafmæli sínu næstkomandi mars og í tilefni þess verður hann meðal annars með sérstaka uppistandssýningu 9. mars í Sykursalnum.   Þórhallur kíkti til Hafsteins og ræddi uppistand, hvernig kvíðinn getur hjálpað manni uppi á sviðinu, föðurhlutverkið, Monty Python, spoof myndir, Bill Burr og margt, margt fleira.   Þáttu...

#222 Dune með Mána Frey 25.01.2023

Kvikmyndasérfræðingurinn Máni Freyr kíkti til Hafsteins til að ræða eina stærstu sci-fi sögu allra tíma, Dune.   Strákarnir ræða meðal annars bækurnar, Dune lore-ið, David Lynch myndina frá 1984, Dune myndina sem Alejandro Jodorowsky ætlaði að gera, 2021 útgáfuna hans Denis Villeneuve og margt, margt fleira.     Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna

Bíóblaður áskrift #15 - Bíóspjall með Anthony Evans 20.01.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Sjómaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Anthony Evans Berry er mikill Bíóblaður aðdáandi og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín og spjalla við hann um kvikmyndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars dönsku myndina Speak No Evil og hversu mikil áhrif hún hafði á þá, hversu léleg Black Adam var, 90’s myndir og hversu geggjaðar þær eru, Menace II Society og Boys N’ th...

#221 Bransaspjall með Garpi Elísabetarsyni 11.01.2023

Garpur Ingason Elísabetarson er klippari og kvikmyndagerðarmaður. Garpur hefur upplifað ýmislegt á sínum ferli en hann stundaði meðal annars nám við Kvikmyndaskóla Íslands, starfaði hjá Saga Film sem klippari, fór út að læra tölvubrellur og starfar í dag hjá Stöð 2 sem framleiðslustjóri. Garpur kíkti til Hafsteins og sagði honum frá sínum bakgrunni og áhugamálum.   Strákarnir ræða einnig The Shaws...

Bíóblaður áskrift #14 - Nörda Quiz: Ari og Raggi vs. Óli og Máni 06.01.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Bræðurnir Ari og Raggi Ólafs keppa við vinina Óla Bjarka og Mána Frey í svakalegri nördakeppni! Strákarnir áttu von á Star Wars keppni en Hafsteinn kom þeim á óvart og bjó til nördakeppni í staðinn.   Strákarnir þurfa að svara spurningum úr Star Wars, Star Trek, Harry Potter, Marvel, DC og The Lord of the Rings. Hvort liðið veit meira um nördaefni? Svarið kemur í ljós...

#220 The Godfather með Kidda og Teiti 04.01.2023

Tónlistarmaðurinn Kiddi og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða einn merkilegasta kvikmyndaþríleik allra tíma, The Godfather.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort fyrsta myndin sé betri en seinni, hvort þriðja myndin sé vanmetin eða algjört drasl, hvernig Kay gat verið í sambandi með Michael, baksögu Luca Brasi og Al Neri, hversu magnaður Marlon Brand...

Bíóblaður áskrift #13 - Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat 02.01.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Jóhann Leplat Ágústsson er stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn og hann kíkti til Hafsteins til að ræða stórmynd ársins, Avatar: The Way of Water. Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þess virði, hversu sturlaðar tæknibrellur eru í myndinni, hv...

#219 2022 með Ásgeiri Kolbeins 28.12.2022

Kvikmyndaáhugamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson kíkti til Hafsteins og fór yfir árið 2022 með honum í sérstökum áramótaþætti.   Í þættinum ræða þeir meðal annars Black Adam, Top Gun: Maverick, House of the Dragon, The Watcher, Elvis, The Batman, Avatar: The Way of Water, Everything Everywhere All at Once, Smile, The Black Phone og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Su...

#218 Jólamyndir með Marín Eydal 21.12.2022

Marín Eydal er tölvuleikjastreymari en hún streamar reglulega hjá GameTíví undir nafninu Gameveran. Marín elskar ekki bara tölvuleiki heldur elskar hún líka kvikmyndir og þá sérstaklega jólamyndir.   Í þættinum ræðir hún meðal annars myndirnar The Holiday, The Nightmare Before Christmas, Spirited, The Family Man, Scrooged og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Su...

Bíóblaður áskrift #12 - Harry Potter 5-8 með Jes Gislason 17.12.2022

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Fyrir stuttu gerði hann sína fyrstu stuttmynd, The Roots of You, sem hefur fengið frábærar viðtökur.   Hallvarður er einnig grjótharður Harry Potter aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þessa merkilegu seríu. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir síðustu fjórar Harry P...

Bíóblaður áskrift #11 - Harry Potter 1-4 með Jes Gislason 17.12.2022

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Fyrir stuttu gerði hann sína fyrstu stuttmynd, The Roots of You, sem hefur fengið frábærar viðtökur.   Hallvarður er einnig grjótharður Harry Potter aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þessa merkilegu seríu. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir fyrstu fjórar Harry Pot...

#217 Bíóspjall með Röggu Hólm 14.12.2022

Útvarpskonan og rapparinn Ragga Hólm kíkti til Hafsteins í skemmtilegt og fjölbreytt spjall.   Í þættinum ræða þau meðal annars myndina Smile, hversu ógeðsleg Dahmer serían er, hversu góð The Woman King er, döbbað efni, hversu illa tæknin eldist í 90’s myndum, Bill Pullman og BDSM, Casper og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.

#216 2022 Quiz: Kilo vs. Snorri 05.12.2022

Rapparinn Kilo og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson mættu til Hafsteins til að keppa í glænýrri 2022 spurningakeppni! Kilo veit ótrúlega mikið um kvikmyndir og Snorri er þrefaldur quiz meistari þannig að úr varð svakalega hörð keppni.   Í þættinum svara strákarnir meðal annars spurningum um myndir eins og Bullet Train, Prey, Jackass Forever, Morbius, Top Gun: Maverick, The Lost City, The Batman og...

Listen to the Bíóblaður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.