Ási

Betri helmingurinn með Ása

Arts EN ↓ 125 episodes

Ási spjallar á léttu nótunum við skemmtilegt fólk og þeirra betri helming.

Author

Ási

Category

Arts

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Nov 30, 2023

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#25 - Sylvía & Emil 06.10.2021

Í þessum þætti átti ég virkilega skemmtilegt spjall við Sylvíu Briem Friðjónsdóttur og hennar betri helming, Emil Þór Jóhannsson. Sylvía er Dale Carnige þjálfari, markþjálfi,  fyrirlesari og athafnakona með meiru ásamt því að vera annar umsjónarmaður Normsins sem hefur verið eitt vinsælasta hlaðvarp landsins síðan það hóf göngu sína árið 2018.  Emil hefur starfað í flugbransanum undanfarin ár og v...

#24 - Herra Hnetusmjör & Sara 29.09.2021

Í þessum þætti fékk ég til mín frábæra gesti en Herra Hnetusmjör og hans betri helmingur, Sara Linneth, kíktu til mín í einlægt og ótrúlega skemmtilegt spjall.  Herra hnetusmjör ættu flestir að kannast við en hann er einn vinsælasti tónlistarmaður og rappari Íslands og hefur í rauninni verið það síðan hann vakti fyrst athygli árið 2014. Hann hefur einnig látið til sín taka í íslensku athafnalífi o...

#23 - Rakel Orra & Ranni 22.09.2021

Í þessum þætti átti ég skemmtilegt spjall við Rakel Orradóttur og hennar betri helming, Rannver Sigurjónsson. Rakel er samskiptastjóri hjá Swipe Media og áhrifavaldur ásamt því að vera annar umsjónarmaður hlapvarpsins “Ástríðukastið” sem fjallar um samskipti í samböndum, kynlíf og allt þar á milli en það má heldur betur segja þessi málefni séu Rakel afar hugleikin en hún er einmitt ný sest skólabe...

#22 - Bjarni Ben & Þóra 15.09.2021

Í þessum þætti fékk ég til mín engann annan en fjármálaráðherra Íslands, Bjarna Benediktsson og hans betri helming og eiginkonu til 26 ára, Þóru Margréti Baldvinsdóttur.  Bjarni var í lögmennsku áður en hann sneri sér að pólitík en hann hefur verið alþingismaður síðan 2003 og hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2009. Þóra er mikill fagurkeri og hefur hún í gegnum tíðina hjálpað fjö...

#21 - Þorgerður Katrín & Kristján 08.09.2021

Það var mér sannur heiður að fá kjarnakonuna Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur til mín í einlægt og ótrúlega gott spjall ásamt eiginmanni hennar, Kristjáni Arasyni. Þorgerður er eins og flestir vita alþingismaður en hún hefur verið á alþingi síðan 1999. Í dag er hún formaður Viðreisnar og hefur gegnt því veigamikla hlutverki síðan 2017.  Kristján er fyrrum handbolta legend með meiru en hann fór út í...

#20 - Felix & Baldur 01.09.2021

Í þætti dagsins fékk ég til mín góða gesti en þeir Felix Bergsson og eiginmaður hans, Baldur Þórhallsson kíktu til mín í einlægt og virkilega skemmtilegt spjall. Felix ætti að vera flestum kunnugur en hann er leikari, söngvari, útvarpsmaður,  eurovision spekingur og svo lengi mætti telja ásamt því að hafa á sínum tíma talað inn á allar vinsælustu Disney myndir allra tíma.  Baldur er stjórnmálafræð...

#19 - Arna Petra & Tómas 25.08.2021

Það er óhætt að segja Arna Petra Sverrisdóttir sé einn vinsælasti vídjó-bloggari landsins en hún heldur úti vinsælli Youtube-rás ásamt því að vera bloggari á Trendnet þar sem hún deilir öllu milli himins og jarðar allt frá tískupælingum til fæðingar frumburðarins.  Arna Petra var búsett í Svíþjóð ásamt Tómasi Inga Gunnarssyni, kærasta sínum og betri helmingi, sem var í flugnámi í sænskum flugskóla...

#18 - Þuríður Blær & Guðmundur Felixsson 18.08.2021

Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við listaparið Þuríði Blæ Jóhannsdóttur og Guðmund Felixsson. Blær og Gummi eiga sér töluvert öðruvísi baksögu en mörg önnur pör en þau höfðu verið góðir vinir síðan í grunnskóla áður en þau byrjuðu loksins saman árið 2015 og segja þau einmitt skemmtilega frá því í þættinum þegar Gummi skutlaði Blæ á stefnumót við annan dreng og hjálpaði henni að “bang...

#17 - Beggi Ólafs & Hildur Sif 11.08.2021

Bergsveinn Ólafsson eða Beggi Ólafs,  eins og hann er gjarnan kallaður,  er fyrirlesari og rithöfundur með MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði ásamt því að halda úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, 24/7.  Að auki Beggi mikill íþróttamaður og spilaði hann knattspyrnu af kappi þangað til snemma á síðasta ári þegar hann lagði skónna á hilluna en þá var hann fyrirliði Fjölnis og...

#16 - Fanney Ingvars & Teitur Páll 03.08.2021

Fegurðardrottningin, áhrifavaldurinn og flugfreyjan Fanney Ingvarsdóttir kíkti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, Teiti Páli Reynissyni.  Eins og margir vita hreppti Fanney titilinn “Ungfrú Ísland” árið 2010 sem opnaði fyrir hana ýmsar dyr og varð hún fljótlega í kjölfarið  afar áberandi á samfélagsmiðlum þar sem hún leyfir fólki að skyggnast inní líf sitt sem móðir, fagurker...

#15 - Sóttkví special x Júlíana Sara & Andri 28.07.2021

Það hlaut að koma að því að undirritaður þyrfti að taka þátt í sóttkví gleði allra landsmanna og er þáttur dagsins litaður af því og var tekinn upp strangheiðarlega heima í stofu ásamt einu manneskjunni sem ég má vera nálægt þessa dagana sem er að sjálfsögðu minn betri helmingur. Við Sara tókum lauflétt spjall með gott möns á kantinum og stikluðum á stóru um okkar sambandstíð og fórum til dæmis yf...

#14 - Sirrý Arnardóttir & Kristján Franklín 21.07.2021

Sirrý Arnardóttir og Kristján Franklín Magnúss eru viðmælendur þáttarins að þessu sinni og þó ég segi sjálfur frá þá var þetta alveg með eindæmum gott spjall sem kemur skemmtilega á óvart.   Sirrý & Kristján hafa verið saman í 37 ár, hvorki meira né minna,  og eins og þið getið rétt ýmindað ykkur þá eiga þau fjöldan allann af sögum í pokahorninu og hafa þau hjón einstakt lag á því að segja ske...

#13 - Eyfi & Sandra 14.07.2021

Einn ástsælasti tónlistarmaður okkar íslendinga Eyjólfur Kristjánsson, eða Eyfi eins og þjóðin þekkir hann, kom til mín í einlægt og áhugavert spjall ásamt sínum betri helmingi, Söndru Lárusdóttur. Eyfi og Sandra hafa verið saman í 23 ár en þau kynntust á dansleik á því herrans ári 1998. Eyfi segist hafa verið ansi hræddur við skuldbindingar á þeim tíma en segir Söndru hafa náð að heilla sig upp ú...

#12 - Þorsteinn Bachmann & Gagga Jónsdóttir 07.07.2021

Það var mér sannur heiður að fá listahjónin Þorstein Bachmann og Göggu Jónsdóttur til mín í spjall en þau eru miklir snillingar bæði tvö. Þorsteinn er einn fremsti leikari þjóðarinnar en hann hefur leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru í gegnum tíðina, nú síðast í Netflix seríunni Kötlu sem kom út á dögunum og hefur slegið rækilega í gegn. Gagga er ekki síður hæfileikarík en hún hefur getið sér...

#11 - Nilli & Sóley 30.06.2021

Hver man ekki eftir því þegar Níels Thibaud Girerd eða Nilli,  birtist eins og þruma úr heiðskýru lofti á sjónarsvið landsmanna örlagaríkt kvöld fyrir rúmum 11 árum síðan en vakti hann þá mikla athygli þegar hann náðist á upptöku Monitor TV í skrautlegu samtali við tónlistarmanninn Berndsen þar sem hann endaði á því að rappa fyrir alþjóð. Upp því  áhugaverða augnarbliki hófst í raun ferill Nilla þ...

#10 - Tobba Marínós & Kalli 23.06.2021

Þorbjörg Marínósdóttir eða Tobba Marínós, eins og hún er gjarnan kölluð, kom í skemmtilegt spjall ásamt eiginmanni sínum Karli Sigurðssyni.  Tobba er með eindæmum fjölhæf en hún hefur í gegnum tíðina verið áberandi á hinum ýmsu sviðum svo sem í fjölmiðlum, sem rithöfundur og undanfarið hefur hún látið til sín taka í matvælabransanum en árið 2019 hóf hún framleiðslu á handgerðu granóla sem hefur sl...

#09 - Tinna & Ingó 16.06.2021

Tinna Björk Kristinsdóttir og Ingólfur Grétarsson eru líklega með fyndnari pörum landsins. Þau eiga það sameiginlegt að hafa skotist hratt upp á stjörnuhimininn á samfélagsmiðlum fyrir nokkrum árum, einfaldlega með því að vera fyndin og sniðug með húmorinn að vopni.  Síðan þá hafa þau vaxið gríðarlega á þeim vettvangi, þau hafa tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum og halda í dag úti einu vinsælasta h...

#08 - Ingileif & María 09.06.2021

Ingileif Friðrikdsóttir og María Rut Kristinsdóttir eru  sannkallaðar kjarnakonur sem búa yfir þeim eiginleika að segja alveg einstaklega skemmtilegar sögur og hafa þær lent í allskonar ævintýrum á tíma sínum saman.  Ingileif og María hafa verið saman síðan 2013 en þær giftu sig eftirminnilega á Flateyri árið 2018 og eiga þær saman tvo stráka.  Það væri auðveldlega hægt að henda í góða bók um alla...

#07 - Sólrún Diego & Frans 02.06.2021

Þrifdrottning Íslands og hin einstaklega skemmtilega Sólrún Diego kom í spjall ásamt eiginmanni sínum og betri helmingi, Frans Veigari Garðarssyni. Sólrún hefur verið einn allra vinsælasti áhrifavaldur landsins síðustu ár ásamt því að hafa gefið út tvær bækur, hvorki meira né minna, og tekið þátt í hinum og þessum verkefnum.  Það var síðan virkilega gaman að fá að kynnast Frans sem segist, þrátt f...

#06 - Benni Vals & Heiða Björk 26.05.2021

Benedikt Valsson eða Benni, eins og hann er yfirleitt kallaður, er dagskrárgerðarmaður og hefur starfað á hinum ýmsu miðlum undanfarin ár.  Flestir ættu að kannast við Benna til dæmis úr Hraðfréttum sem sló rækilega í gegn á RÚV hér um árið.  Heiða Björk Ingimarsdóttir er betri helmingurinn hans Benna og snillingur með meiru og hafa þau verið saman síðan þau voru unglingar.   Í þættinum fórum við...

#05 - Friðrik Dór & Lísa 19.05.2021

Friðrik Dór Jónsson þarf varla að kynna fyrir neinum en hann hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins og hafa  mörg laganna hans náð að skipa sér stóran sess í huga og hjörtum landsmanna. Lísa Hafliðadóttir er hans betri helmingur en þau hafa verið saman nánast hálfa ævina og giftu þau sig eftirminnilega á Ítalíu árið 2018.     Frikki og Lísa eru miklir fagurkerar sem elska gó...

#04 - Logi Bergmann & Svanhildur Hólm 12.05.2021

Loga Bergmann og Svanhildi Hólm kannast örugglega flestir við af skjánum og hafa þau bæði gert mikið af áhugaverðum hlutum í gegnum tíðina. Fyrir utan það þá hafa þau verið gift í sextán ár og eiga samtals sjö börn, hvorki meira né minna.  Logi og Svanhildur eru ótrúlega skemmtileg og samstillt hjón sem finnst t.a.m fátt skemmtilegra en að vera í félagsskap hvors annars og hafa bæði mikið dálæti á...

#03 - Vala Kristín & Birkir Blær 05.05.2021

Leikkonan Vala Kristín Eiríksdóttir hefur verið mikið í sviðljósinu undanfarin ár í hinum ýmsu verkum, ýmist á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu og á skjám landsmanna.   Birkir Blær Ingólfsson er hennar betri helmingur og er virkilega áhugaverður einstaklingur.  Birkir er rithöfundur, lögfræðinemi og einn af handritshöfundum Ráðherrans sem sló í gegn á síðasta ári.  Þátturinn er einlægur, áhugaverð...

#02 - Fannar & Vala 30.04.2021

Í þessum þætti fékk ég til mín góða gesti en það voru þau Fannar Sveinsson og betri helmingurinn hans hún Vala.  Fannar gerði garðinn frægan í Hraðfréttum á sínum tíma en hefur undanfarið verið iðinn við leikstjórn og framleiðslu á fjölbreyttu sjónvarpsefni.  Við ræddum allt milli himins og jarðar,  skrýtnar venjur Fannars voru uppljóstraðar og kynntumst Völu á skemmtilegan hátt. 

#01 - Gunni Helga & Björk Jakobs 28.04.2021

Í þessum fyrsta þætti  var mjög viðeigandi að fá í heimsókn leikarahjónin Gunnar Helgason og Björk Jakobsdóttur. Gunni & Björk eiga bæði ótrúlegan feril að baki á sviði listarinnar, bæði sem leikarar og leikstjórar og einnig sem rithöfundar. Fyrir utan að vera bæði ógeðslega skemmtileg og fyndin , þá hafa þau verið saman í tæp þrjátíu ár, hvorki meira né minna og höfðu frá mörgum frábærum sögu...

Listen to the Betri helmingurinn með Ása podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.