Ási
Betri helmingurinn með Ása
Ási spjallar á léttu nótunum við skemmtilegt fólk og þeirra betri helming.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#50 - Einar & Milla 30.03.2022 1:18:33
Fjölmiðlamaðurinn Einar Þorsteinsson hefur verið áberandi á skjám landsmanna um árabil, bæði sem fréttamaður en einnig sem einn af stjórnendum Kastljóss en hefur hann nú sagt skilið við sjónvarpið í bili og freistar gæfunnar í borgarpólitíkinni. Það var einmitt á RÚV sem hann kynntist sínum betri helming, Millu Ósk Magnúsdóttur, en var hún einnig að vinna á fréttastofunni á þeim tíma. Milla fór ei...
#49 - Brynhildur & Heimir 23.03.2022 1:33:32
Í þessum þætti átti ég einlægt og virkilega gott spjall við eina af okkar ástsælustu leikkonum síðustu áratuga og núverandi Borgarleikhússtjóra, Brynhildi Guðjónsdóttur, og hennar betri helming, sviðsmyndahönnuðinn Heimi Sverrisson. Það er óhætt að segja að Brynhildur og Heimir hafi kynnst á aðeins öðruvísi hátt en gengur og gerist en segja þau skemmtilega frá því í þættinum og eins og Brynhildur...
#48 - Sóli Hólm & Viktoría Hermanns 16.03.2022 2:09:51
Í þessum þætti átti ég alveg hreint stórskemmtilegt spjall við stórskemmtilegt fólk sem höfðu frá miklu áhugaverðu og skemmtilegu að segja, þau Sólmund Hólm, eða Sóla eins og hann er oftast kallaður og unnustu hans, Viktoríu Hermannsdóttur. Þau Sóli og Viktoría sitja ekki auðum höndum og hafa undanfarin ár getið sér gott orð hvort á sínu sviði en Sóli er grínisti, eftirherma og vinsæll skemmtikr...
#47 - Arnar Dan & Sigga Soffía 09.03.2022 1:25:11
Í þessum þætti átti ég virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall við listahjónin Arnar Dan Kristjánsson og Sigríði Soffíu Hafliðadóttur, eða Siggu Soffíu eins og hún er yfirleitt kölluð. Arnar útskrifaðist frá Leiklistadeild LHÍ árið 2013 og hefur leikið í hinum ýmsu verkum á fjölum leikhúsanna, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Honum er margt til lista lagt en ásamt því að vera leikari stofnaði ha...
#46 - Lína Birgitta & Gummi 02.03.2022 1:19:03
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við ofur-parið Línu Birgittu Sigurðardóttur og Guðmund Birki Pálmason, eða Gumma Kíró eins og hann er gjarnan kallaður. Lína og Gummi hafa verið áberandi undanfarin ár bæði saman og í sitthvoru lagi en Lína er meðal annars athafnakona með meiru, áhrifavaldur og rekur sitt eigið fyrirtæki, Define the Line, þar sem hún selur íþróttafatnað og kósýföt se...
#45 - Siggi Sigurjóns & Lísa 23.02.2022 1:13:21
Í þessum þætti átti ég einlægt og virkilega gott spjall við einn af okkar ástsælustu leikurum, Sigga Sigurjóns, og hans betri helming til hvorki meira né minna en 45 ára, Lísu Harðardóttur. Siggi og Lísa eru Hafnfirðingar í húð og hár en hafa þau bæði búið þar frá blautu barnsbeini og búa þau þar enn þann dag í dag. Þá hefur Lísa einmitt tekið stóran þátt í uppeldi Hafnfirðinga þar sem hún hefur s...
#44 - Hreimur & Þorbjörg 16.02.2022 1:26:22
Í þessum þætti átti ég virkilega gott spjall við söngvarann og tónlistarmanninn Hreim Örn Heimisson og hans betri helming, Þorbjörgu Sif Þorsteinsdóttur. Hreimur hefur lengi verið einn ástsælasti tónlistarmaður landsins en hóf hann ferilinn með hljómsveitinni Landi og sonum árið 1997 en þegar fyrsti slagarinn þeirra "Vöðvastæltur" kom út fóru hjólin heldur betur að snúast hjá þeim og urð...
#43 - Ingi Torfi & Linda Rakel 09.02.2022 1:38:12
Í þessum þætti átti ég virkilega áhugavert, fróðlegt & skemmtilegt spjall við Inga Torfa Sverrisson og hans betri helming, Lindu Rakel Jónsdóttur. Ingi Torfi og Linda reka saman fyrirtækið ITS macros sem hefur hjálpað þúsunudum íslendinga að taka til í mataræðinu og bæta heilsuna á undanförum árum með macros hugmyndafræðinni sem þau kenna á námskeiðum sínum. Fyrirtækið hefur heldur betur spru...
#42 - Ebba Katrín & Oddur Júl 02.02.2022 1:22:24
Leikararnir Ebba Katrín Finnsdóttir og unnusti hennar Oddur Júlíusson eiga það sameiginlegt að hafa bæði útskrifast af leiklistadeild LHÍ og skotist hratt upp á stjörnuhimininn í kjölfarið á því. Oddur útskrifaðist árið 2013 og hefur síðan þá verið fastráðinn í Þjóðleikhúsinu samhliða því að hann hefur komið fram í þáttum og kvikmyndum á meðan Ebba útskrifaðist árið 2018. Hún tók þá eitt leikár Bo...
#41 - Arnmundur Ernst & Ellen Margrét 26.01.2022 1:22:00
Í þessum þætti átti ég virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall við leikaraparið Arnmund Ernst og Elleni Margréti Bæhrenz. Arnmundur útskrifaðist frá leikarabraut LHÍ árið 2013 og hefur síðan þá leikið í hinum ýmsu verkum á fjölum leikhúsanna, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum hérlendis á sama tíma og hann er einnig farinn að láta ljós sitt skína á erlendri grundu. Ellen er margt til lista lagt e...
#40 - Edda Sif & Vilhjálmur 19.01.2022 1:11:38
Edda Sif Pálsdóttir hefur verið áberandi á skjám landsmanna um árabil, bæði sem íþróttafréttakona en einnig sem þáttastjórnandi í hinum geysivinsæla þætti Landanum á Rúv en hún segir frá þvi í þættinum að það hafi í raun aldrei komið annað til greina hjá henni en að starfa í fjölmiðlum þar sem hún hafi svo gott sem alist upp innan veggja þeirra. Það er einmitt þar sem hún kynntist sínum betri hel...
#39 - Dagný Brynjars & Ómar Páll 12.01.2022 1:09:00
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við Dagnýju Brynjarsdóttur, landsliðskonu í fótbolta og eiginmann hennar og betri helming, Ómar Pál Sigurbjartsson. Dagný hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu í fótbolta síðan 2010 og á heldur betur glæstan feril að baki sem við fórum yfir í þættinum en í dag er hún búsett í London ásamt Ómari og Brynjari Atla syni þeirra þar sem hún spilar m...
#38 - Snæbjörn & Agnes 05.01.2022 1:22:57
Það er seint hægt að segja um listamanninn Snæbjörn Ragnarsson að hann sitji auðum höndum en hann er ekki einungis meðlimur þungarokks- hljómsveitarinnar Skálmaldar og Ljótu hálvitanna heldur starfar hann einnig á auglýsingastofu og heldur úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Snæbjörn Talar við Fólk. Snæbjörn kynntist sínum betri helmingi, Agnesi Grímsdóttur, á fjölum leikhúsanna en hún var þá...
#37 - Ágústa Johnson & Guðlaugur Þór 29.12.2021 1:16:16
Síðustu viðmælendur þessa árs eru ekki af verri endanum en það eru þau Ágústa Johnson líkamsræktarfrömuður með meiru og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra. Ágústa og Guðlaugur hafa verið gift í 20 ár, eiga fjögur börn og þrjú barnabörn. Þau höfðu vitað af hvort öðru í nokkur ár áður en þau fóru að stinga saman nefjum en Guðlaugur var að æfa í líkamsræktarstöðinni hjá henni og hafði náð svo...
#36 - Björn Stefáns & Íris Dögg 22.12.2021 1:09:12
Björn Stefánsson eða Bjössi í mínus eins og hann er oft kallaður og hans betri helmingur, Íris Dögg Einarsdóttir, eru viðmælendur þáttarins að þessu sinni og áttum við ótrúlega áhugavert og einlægt spjall um sambandið, lífið, tilveruna & allt þar á milli. Þeim er báðum margt til lista lagt en Bjössi er leikari, þungarokkari og trommari á meðan Íris er ljósmyndari og hefur getið sér gríðarleg...
#35 - Gói & Inga 15.12.2021 1:43:46
Í þessum þætti fékk ég til mín virkilega góða gesti þau Guðjón Davíð Karlsson, eða Góa eins og hann er alltaf kallaður, og eiginkonu hans Ingibjörgu Ýr Óskarsdóttur. Gói er í dag fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið en hefur hann í gegnum tíðina leikið í fjölda verka á fjölum leikhúsanna, í sjónvarpi og kvikmyndum, samið handrit og leikstýrt bæði í leikhúsi og sjónvarpi. Inga er ljósmóðir og se...
#34 - Sverrir Bergmann & Kristín Eva 08.12.2021 1:19:00
Tónlistarmanninn Sverri Bergmann þarf vart að kynna fyrir fólki en hann hefur á undanförnum árum og áratugum sungið sig heldur betur inn í hug og hjörtu landsmanna. Hann kíkti í heimsókn til mín í stúdíóið á dögunum ásamt kærustu sinni, barnsmóður og betri helming, Kristínu Evu Geirsdóttur og áttum við virkilega skemmtilegt spjall. Nú er jólavertíð hjá flestum tónlistarmönnum og er Sverrir þar...
#33 - Ása Ninna & Árni Bragi 01.12.2021 1:23:02
Ása Ninna Pétursdóttir fatahönnuður og fjölmiðlakona kom í skemmtilegt spjall ásamt kærasta sínum og betri helming, Árna Braga Hjaltasyni. Ása Ninna hefur undanfarin ár haldið utan um miðilinn Makamál á Vísi.is þar sem hún kafar ofan í allt sem tengist ástinni, tilhugalífinu og stefnumótamenningu Íslendinga. Í haust fór hún síðan af stað með mannlífs- og stefnumótaþáttinn Fyrsta Blikið og sló h...
#32 - Elísabet Metta & Ágúst Freyr 24.11.2021 1:27:21
Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, eða Metta og Áki eins og þau eru gjarnan kölluð, eru eigendur og stofnendur Acaí skálar-staðarins Maikai, sem slegið hefur heldur betur í gegn undanfarin misseri. Metta og Áki kynntust árið 2016, rétt áður en Metta fór í 6 vikna ferðalag til Balí, þar sem hún kynntist alvöru Acaí skálum og varð strax heilluð. Það var þó ekki fyrr en rúmu...
#31 - Hermann Hreiðars & Alexandra Fanney 17.11.2021 1:29:16
Það er óhætt að segja að Hermann Hreiðarsson sé sannkölluð fótbolta goðsögn en hann spilaði með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í 15 ár frá árunum 1996- 2011 og hefur hann spilað flesta leiki í ensku úrvalsdeildinni af öllum Íslendingum þar sem hann gerði garðinn frægann meðal annars í Crystal Palace, Charlton og Portsmouth. Undanfarin ár hefur hann snúið sér að þjálfun og er hann um þessar...
#30 - Birkir Már & Stebba 10.11.2021 1:08:07
Í þessum þætti fékk ég til mín frábæra gesti þau Birki Már Sævarsson og eiginkonu hans og hans betri helming, Stefaníu Sigurðardóttur eða Stebbu eins og hún er gjarnan kölluð. Birkir Már hefur gegnt lykilhlutverki í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta um árabil en var hann til að mynda fastamaður í byrjunarliði landsliðsins bæði á evrópumótinu í Frakklandi árið 2016 og heimsmeistaramótinu í Rúss...
#29 - Elísabet Gunnars & Gunnar Steinn 03.11.2021 1:13:25
Í þessum þætti fékk ég til mín frábæra gesti þau Gunnar Stein Jónsson landsliðsmann í handbolta og Elísabetu Gunnarsdóttur bloggara, áhrifavald og stofnanda og eiganda bloggsíðunnar vinsælu, Trendnet.is. Elísabet og Gunnar hafa verið saman frá því þau voru unglingar en segja þau frá þeirra fyrstu kynnum í sjötta bekk, þegar þau urðu síðan sessunautar í 8. 9. og 10. bekk og að ensku kennarinn þeir...
#28 - Hjálmar & Ljósa 27.10.2021 1:13:00
Það er óhætt að segja að Hjálmar Örn Jóhannsson sé einn vinsælasti skemmtikraftur landsins en hann skaust hratt upp stjörnuhiminn á Snapchat fyrir nokkrum árum þar sem hann sló í gegn sem hinir ýmsu karakterar. Hvítvínskonan er sennilega einn af hans allra vinsælustu karakterum og má segja að hún sé orðin aðal-heiðursgestur í samkvæmum á Íslandi í dag, þá einna helst hjá hvítvínskonum landsins. Hj...
#27 - Elma Lísa & Reynir Lyngdal 20.10.2021 1:24:04
Þau Reynir Lyngdal og Elma Lísa Gunnarsdóttir eru sannkölluð listahjón en þau hafa bæði getið sér gott orð í leiklistarheiminum, Elma Lísa sem leikkona og Reynir sem leikstjóri- og kvikmyndagerðarmaður. Það er nóg að gera hjá þeim um þessar mundir en Reynir er meðal annars að leikstýra áramótaskaupinu þriðja árið í röð og er Elma Lísa flugfreyja hjá Icelandair á milli þess sem hún leikur á sviði...
#26 - Björgvin Páll & Karen 13.10.2021 1:15:41
Í þessum þætti átti ég einlægt og stórskemmtilegt spjall við Björgvin Pál Gústavsson, landsliðsmarkvörð í handbolta, og eiginkonu hans og betri helming Kareni Einarsdóttur. Björgvin Páll er einn reynslumesti leikmaður landsliðsins í dag en hann á að baki yfir 230 landsleiki og hefur farið á 13 stórmót síðan á ólympíuleikunum í Peking árið 2008 þar sem landsliðið hreppti silvurverðlaunin eftirmin...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.