RÚV Hlaðvörp
Beðmál í borginni og aldamótadætur
Æskuvinkonurnar Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir fjalla um hina geysivinsælu sjónvarpsþætti Sex and the City, eða Beðmál í borginni. Þættirnir hófu göngu sína í Bandaríkjunum árið 1998 og voru teknir til sýninga á RÚV árið 2000. Spaugilegar kynlífssenur, fallegir skór, vinátta kvenna, einhleypa konan, misheppnuð ástarsambönd og margt fleira verður krufið í spjalli vinkvennanna sem ræða einnig við sérfræðinga og aðdáendur þáttanna. Umsjón: Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir. Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir - Rás 1. Hosted on Acast. See acast.com/...
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
4. þáttur - Vinátta 12.10.2025 36:49
Vinkonurnar fjórar Carrie, Samantha, Miranda og Charlotte segjast vera sálufélagar. En vináttan er ekki alltaf draumur í dós; þær fara alveg í fýlu, dæma hver aðra og rífast. Þær koma samt alltaf á endanum saman á kaffihúsinu góða í New York. Er vinátta þeirra raunsæ eða er hún frekar dæmi um fantasíu sjónvarpsþátta? Gæti hún verið fyrirmynd raunverulegrar vináttu? Nanna Hlín og Sunna Kristín velt...
3. þáttur - Neysluhyggja 05.10.2025 36:50
Tíska og hátískumerki eru gegnumgangandi í hinum byltingarkenndu sjónvarpsþáttum Sex and the City og mörgum aðdáendum þáttanna þykir gaman að fylgjast með nýju og nýju „lúkki“ hjá þeim vinkonum. Þættirnir hafa hins vegar einnig verið gagnrýndir fyrir neysluhyggju og að birta frekar einsleita mynd af efri stétt New York búa. Í þessum þriðja þætti skoða Sunna Kristín og Nanna Hlín ásamt viðmælendum...
2. þáttur - Kvenleiki 28.09.2025 37:50
Einhleypa konan í stórborginni, sem getur valið sér elskhuga, drukkið kokteila og keypt sér dýra skó, er ímynd konunnar í Beðmálum í borginni. Undir glansyfirborði þáttanna er líka tekist á við ýmis mál sem varða kvenleika, eins og ungdómsdýrkun, samstöðu og samstöðuleysi kvenna, kvensjúkdóma, móðurhlutverkið og makaleit. Nanna Hlín og Sunna Kristín kryfja þessi mál ásamt einlægum aðdáendum þáttan...
1. þáttur - Kynlífið 21.09.2025 37:32
Aldamótaþættirnir Beðmál í borginni eða Sex and the City mörkuðu ákveðin tímamót í poppmenningu vegna þess hvernig þeir fjölluðu um kynlíf kvenna. Í þessum fyrsta þætti fjalla þær Sunna Kristín og Nanna Hlín ásamt viðmælendum sínum um kynlífið í þáttunum. Kómískar kynlífssenur, hvað virkar í kynlífi og hvað ekki? Og er hægt að ræða það allt við vinkonur sínar? Viðmælendur: Alda Björk Valdimarsdótt...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.