RÚV
Ástarsögur
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli. Umsjón: Anna Marsbil Clausen
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Erna og ástirnar tvær - seinni hluti 11.07.2026 37:42
Óvænt bónorð leiðir litlu stúlkuna frá Ísafirði í ævintýri sem hún hefði aldrei getað ímyndað sér.
Erna og ástirnar tvær - fyrri hluti 11.07.2026 42:05
Í stjörnuspárbókinni stóð að Erna Geirdal ætti eftir að eignast tvo eiginmenn. En það stóð ekkert um að hún myndi giftast þeim þrisvar.
Þórbergur, Sigurður og jafnhendingin 04.07.2026 42:18
Sigurður upplifði dýpsta dal síns þjálfaraferils þegar Þórbergur féll í yfirlið í miðri lyftu á stórmóti. Gætu þeir aftur náð hæstu hæðum aðeins fjórum vikum síðar?
Sólveig, Svandís og bruninn í boltanum 27.06.2026 40:04
Bruninn var hægur þegar Sólveig og Svandís kynntust í landsliðinu í körfuknattleik, gætu þær falið blossann þegar hann loksins kviknaði?
Ragnar og Ripleyarnar 20.06.2026 30:13
Í dag ætlum við að heyra sögu af nafni. En þetta er líka ástarsaga konu og manns, sem leiðir til ástar á barni, og inn í þetta allt blandast heimsfræg leikkona!
Rapparinn sem missti orðin sín 13.06.2026 38:00
Á dögunum kom hin goðsagnakennda hip-hop sveit Subterranean saman á ný eftir áratuga hlé. Fyrir nokkrum árum mátti þó litlu muna, að einn meðlimur sveitarinnar ætti ekki afturkvæmt á tónlistarsviðið.
Valentínusarþáttur: #Regnus 14.02.2022 20:52
Regn ætlaði aldrei að fara í fjarsamband. Helst ætlaði hán hreint ekki að byrja með sís-karlmanni aftur. En svo birtist Færeyingur á Twitter.
Aukasaga: Sagan af Gabríel 21.08.2021 38:42
Árið 2019 gerði Eva Skaarpas það sem ekkert foreldri ætti nokkurn tímann að þurfa að gera. Hún ritaði minningargrein um son sinn Gabríel.
Aukasaga: Kynlífsdúkkan sem hvarf 14.08.2021 20:53
Sumar kynlífsdúkkur eru svo raunverulegar að mörgum þykir nóg um. En hvað segja þessar eftirmyndir af kvenlíkömum okkur um framtíðina?
Aukasaga: Þegar Sunnefa var dæmd til dauða 07.08.2021 34:48
Sunnefa Jónsdóttir er nafn sem margir þekkja en saga þessarar ólánsömu konu sem var í tvígang dæmd til dauða fyrir meinta blóðskömm hefur oft orðið skáldum að yrkisefni.
Miriam og endurfundirnir 31.07.2021 40:24
Miriam var ekki hjá pabba sínum þegar hann dó en hún var á æskuslóðum hans. Og æska hans hélt áfram að toga í hana.
Eiríkur og sveitarómantíkin 24.07.2021 36:05
Eiríkur ólst upp í sveit á tíma sem virðist mun fjarlægari en hann er í raun; tíma þar sem fregnir af fæðingu systur berast í gegnum sveitasímann.
Edda Stephen og útskriftarferðin 17.07.2021 20:05
Augu þeirra mættust á norrænni krá á Spáni, mitt í hópi skandínavískra handboltastráka og Verzló skvísa í útskrifarferð. Þetta myndi aldrei virka.
Fanney, Pétur og strætókonan 17.07.2021 21:06
Þau áttu leyndarmál sem Fanney vildi engum segja en Pétur iðaði í skinninu. Svo fór hann í strætó.
Reyn og kyngervið 10.07.2021 35:30
Á öðru ári í framhaldsskóla átti hópur vina samræður þar sem rædd var sú staðreynd lífsins að flest fólk laðast kynferðislega að öðru fólki. Reyn kom af fjöllum.
Valur og Júlía Sesar 03.07.2021 41:09
Valur heillaðist samstundis af Júlíu en sambandið fór hægt af stað, fram og til baka yfir Atlantshafið.
Stikla: Ástarsögur 3 01.07.2021 1:05
Sumarið er tíminn til að hlusta á fleiri Ástarsögur. Þriðja þáttaröðin hefst laugardaginn 3. júlí.
Aukasaga: Þegar Rakel kom út úr skápnum 30.01.2021 9:22
Skrefin út úr skápnum reyndust listakonunni Rakel Tomas erfið og komu fjölskyldu hennar mikið á óvart, ekki síst þáttastjórnanda Ástarsagna, Önnu Marsibil.
Aukasaga: Að elska Filipeyska konu 30.01.2021 22:27
Sveinn Snorri Sveinsson kynntist stóru ástinni í lífi sínu, Lornu M. Sveinsson á netinu og flutti til Filipseyja til að geta gifst henni. Nú eru þau búsett á Egilstöðum og Sveinn hefur skrifað bók um samband þeirra, meðal annars til að sporna gegn fordómum í garð hjónabanda íslenskra karla og filippseyskra kvenna. Bókin heitir Sumar í september.
Aukasaga: Kófviskubitið 30.01.2021 14:04
Bjarni Líndal var á meðal fyrstu Íslendinganna sem smituðust af Covid-19. Hann veiktist illa en lifði veiruna af. Það gerði konan hans hinsvegar ekki. Bjarni sagði sögu sína í sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir Tímar, fyrr á árinu.
Nafnlausa konan og ástarsvikin 23.12.2020 28:36
Hún þráði rómantík og ástúð og taldi sig hafa fundið hana, en ástin var ekki öll þar sem hún var séð. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Andrea og ástareyjan 23.12.2020 16:36
Hin norsk/íslenska Andrea var algjör tossi í ástum þar til hún skráði sig í raunveruleikaþáttinn Love Island. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Bergþóra og bannaði kötturinn 23.12.2020 18:05
Þegar eiginmaður Bergþóru veiktist af krabbameini sá hún bara einn kost í stöðunni. Þau skyldu eignast kött. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Grétar og hafið 23.12.2020 30:13
Sjómennskan er ekkert grín. Það veit Grétar sem hefur ýmsa fjöruna sopið á sinni sjómannsævi. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Una og hlaupaskórnir 23.12.2020 18:46
Hún stóð á tímamótum í lífi sínu. Þá er gott að eiga góða skó. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.