RÚV
Árið er
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Árið er 2010 - þriðji hluti 01.05.2024 1:48:01
Prins Póló fer niðrá strönd, Jónsi fer sóló, Ensími gefur heilræði í aldanna ró og allir eru að fá sér með Blaz Roca og Ragga Bjarna. Hvanndalsbræður vilja vera vinsælir og frægir, Friðrik Dór er alveg með'etta en Pollapönkarar hringja á vælubílinn. Elíza Newman kennir útlendingum að segja Eyjafjallajökull, Hljómsveitin Ég býður upp á Lúxus upplifun, en það geta ekki allir verið Gordjöss á Diskóey...
Árið er 2010 - annar hluti 01.05.2024 1:47:58
Valdimar brotlendir yfirgefinn í Undralandi, Retro Stefson fer til Kimbabwe, Hjálmar ganga alla leið en Rökkurró er í öðrum heimi. Hljómsveitin Lifun gefur fögur fyrirheit með hörku djöfuls fanta ást, Sálin hans Jóns míns er fyrir utan gluggann þinn og Kalli tekur síðustu lestina heim. Orri Harðar gefur út Albúm, Ólöf Arnalds er innundir skinni, Skálmöld gerir árás með kvaðningu á meðan Ljótu hálf...
Árið er 2010 - fyrsti hluti 01.05.2024 1:47:16
Hamingjan er hjá Jónasi Sigurðssyni og Ritvélum framtíðarinnar, Bjartmar og Bergrisarnir fara í gallann með Allan en Moses Hightower býr til börn í bílalest út úr bænum. Ellen Kristjáns og Pétur Ben liggja dreymandi á ströndinni, Hera Björk talar tungum, Biggi Bix er eldfimur, Rúnar Þóris stendur upp og Björgvin Halldórs heldur áfram að syngja dúetta. Apparat Organ Quartet semur lag um flugvélafar...
Árið er 2009 - þriðji hluti 01.04.2024 1:48:18
Hjálmar fara til Jamaica, Ragnheiður Gröndal syngur íslensk þjóðlög og Ingó og Veðurguðirnir bjóða á gestalista. Á móti sól sér þig kannski seinna, Jógvan og Friðrik Ómar syngja vinalög og Lára Rúnars kemur á óvart. Lights On The Highway siglir um á pappírsbát, Ljótu hálfvitarnir finna lukkutroll og Dr. Gunni er með mörg járn í eldinum. Sindri Már Sigfússon er Sin Fang Bous, Litla hafmeyjan léttir...
Árið er 2009 - annar hluti 01.04.2024 1:50:00
Dikta þakkar fyrir sig, Baggalútur fer á slóðir Vestur-Íslendinga, Eberg tekur eitt skref í einu og Feldberg dúettinn slær í gegn. Hafdís Huld syngur um franskan ofurhuga, Elíza Newman tekur upp í London, hljómsveitin Leaves fær sparkið og gerist plötuútgefandi og Ívar Bjarklind er með nesti og nýja skó. Hljómsveitin Ske gefur út sína þriðju breiðskífu, Snorri Helgason fer í sóló, Bloodgroup þyngi...
Árið er 2009 - fyrsti hluti 01.04.2024 1:46:36
Hjaltalín sópar til sín verðlaunum, Jóhanna Guðrún stelur senunni í Moskvu og Árstíðir syngja sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. Söngfuglinn Nanna Bryndís Hilmarsdóttir kveður sér hljóðs og Margrét Kristín Sigurðardóttir fabúlerar í fjórða sinn á plötu. Helgi Hrafn Jónsson dundar sér í garðinum, það haustar hjá KK, Múm poppar sig upp og Leone Tinganelli er hálfur Íslendingur. Fjallabræður hefja...
Árið er... Músíktilraunir 17.03.2024 1:54:45
Rúmlega 40 ára sögu Músíktilrauna eru gerð skil í tali og tónum í þessum tæplega tveggja tíma langa þætti sem inniheldur brot úr útvarpsþáttaröðinni Árið er. Stiklað er á stóru og meðal þeirra sigursveita Músíktilrauna sem fjallað er um eru DRON, Dúkkulísur, Greifarnir, Kolrassa krókríðandi, Maus, Botnleðja, Mínus, 110 Rottweilerhundar, Mammút, Jakobínarína, Agent Fresco, Of Monsters & Men, Retrob...
Árið er 2008 - þriðji hluti 01.03.2024 1:50:00
Sigur Rós spilar endalaust, Dísa fellur í freistni, Jeff Who óskar okkur öllum til hamingju og Buff þakkar kærlega fyrir. Lay Low gefur út aðra plötu sína, Bubbi syngur um brúnu augun þín, Memfismafían tekur upp barnaplötu og Sprengjuhöllin sendir sínar bestu kveðjur. Blaz Roca rappar um stórasta land í heimi, Þokkabót syngur um tóma kassa en Ghostigital leitar að peningunum sínum á meðan Litla ha...
Árið er 2008 - annar hluti 01.03.2024 1:50:00
KK rær út á Æðruleysinu, Dr. Spock semur sápuóperu, Mammút er með geimþrá, Ný Dönsk klifrar upp turninn og Memfismafían lætur til sín taka. FM Belfast heldur partý, Geirfuglarnir snúa aftur, Sálin fagnar 20 ára afmæli, Motion Boys dansa inn í hrunið, Steintryggur blandar tónlist úr öllum heimshornum en Baggalútur hefur það bara kósý. Meðal viðmælenda í 36. þættinum, í öðrum hluta umfjöllunar um ís...
Árið er 2008 - fyrsti hluti 01.03.2024 1:50:00
Emilíana Torrini er alþjóðleg stórstjarna, Björk leggur náttúrunni lið, Ragnheiður Gröndal nær áttum á ný, en hljómsveitin Hraun heldur hamingjuleitinni áfram. Retro Stefson gefur út fyrstu plötuna sína, Múgsefjun temur hagsmunatíkina, Helgi Björns kemur ríðandi að austan og Ingó & Veðurguðirnir fara til Bahama. Hjaltalín kemur við hjartað í þér og mér, The Viking Giant Show leitar að lækningu og...
Árið er 2007 - seinni hluti 01.03.2024 1:50:00
Mugison stofnar hljómsveit, Hjálmar hætta við að hætta og Jónas Sig dansar þar sem malbikið svífur. Jakobínarína vekur bjartar vonir, Hljómsveitin Hraun segir ástarasögu úr fjöllunum og Silvía Nótt klórar í bakkann. B.Sig gefur út sína fyrstu og einu plötu, Sometime er með tromp á hendi, Mínus gengur í gegnum breytingar. og Jan Mayen býður upp á gleðireið. Sniglabandið semur lög í samvinnu við hlu...
Árið er 2007 - fyrri hluti 01.02.2024 1:47:20
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Páll Óskar gerir allt fyrir ástina, Magni er í hæstu hæðum, Sprengjuhöllin er í sambandi, Hjaltalín er bjartasta vonin og Elíza útdeilir hjartagulli. Björk hvetur smælingja heimsins til að lýsa yfir sjálfstæði, Eiríkur Hauksson les úr lófa þínum og Laddi er sextugur. Rás 2 plokkar hringinn, Sigur Rós...
Árið er 2006 - seinni hluti 01.02.2024 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Magni fer í Rockstar Supernova, Hafdís Huld gerir það gott á Englandi, Pétur Ben sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu og Kaninn kveður. Ragnheiður Gröndal er með þér, Fabúla svífur um á beiku skýi, Ívar Bjarklind fer yfir hafið, Regína Ósk er í djúpum dal en Lára Rúnarsdóttir syngur Þögn. Hjaltalín ve...
Árið er 2006 - fyrri hluti 01.02.2024 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Sylvía Nótt hneykslar Evrópubúa, íslenskt lag í fyrstu iPhone auglýsingunni, Brain Police ræður sænskan upptökustjóra og Nylon fer í útrás. Sigur Rós túrar um landið, Rás 2 rokkar hringinn, Ampop siglir til tunglsins, Dikta vekur athygli í útlöndum og Hermigervill kemur fólki í stuð. Baggalútur og Bo...
Árið er 2005 - seinni hluti 01.01.2024 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Hljómsveitin Jeff Who stimplar sig inn með barfugunni , Hjálmar skipta tveimur Svíum inn á, Leaves er undir álögum og Sigur Rós segir TAKK. Bubbi Morthens gerir upp fortíðina, Baggalútur gefur út kántrýplötu, Hera safnar fjöðrum í poka og Hölt hóra heldur brjálað partý. Dr. Spock veifar gulum uppþvott...
Árið er 2005 - fyrri hluti 01.01.2024 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Emilíana Torrini snýr aftur, Ampopdúettinn breytist í tríó og Dikta er í hamingjuleit. Mugison & Hjálmar taka höndum saman, Vínyll gefur loksins út plötu og Orri Harðar öðlast aftur trú. Lights On The Highway vinnur GBOTB og gefur út sína fyrstu plötu, söngvaskáldið Helgi Valur er á einlægu nótunum og...
Árið er 2004 - seinni hluti 01.01.2024 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Hjálmar heilla með seiðandi reggítónum, partýhetjan Love Guru slær í gegn, það eru gleðitímar hjá Kalla Bjarna og Stuðmenn eru í takt við tímann. Nylon er alls staðar, Raggi Bjarna er í flottum jakka, Ragnheiður Gröndal syngur vetrarljóð og Rafn Jónsson kveður sáttur. Mammút sigrar í Músíktilraunum, M...
Árið er 2004 - fyrri hluti 01.12.2023 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Mugison semur lag ársins með vini sínum Pétri Ben, Trabant treður upp á Bessastöðum, Ske er í góðum fíling og Eivör vinnur með Vestur-íslenska tónlistarmanninum Bill Bourne. Björk syngur á setningarathöfn Ólympíuleikanna, Jónsi fer í Eurovision, Nýdönsk og Sinfóníuhljómsveitin rugla saman reytum og Jó...
Árið er 2003 - seinni hluti 01.12.2023 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Hljómar snúa aftur, Maus og Botnleðja tala tungum og Eberg kveður sér hljóðs. Mínus umpólast, Barði í Bang Gang er sinnar eigin gæfu smiður, Eivör slær í gegn hjá frændum sínum og Sálin frumsýnir söngleik. Idol æði skolar á land frá Ameríku, KK & Maggi fara í ferðalag, Ríó tríó kemur úr felum en Jónsi...
Árið er 2003 - fyrri hluti 01.12.2023 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Birgitta Haukdal opnar hjarta í Eurovision, Botnleðja syngur Júróvísu og Dr. Gunni býður upp á snakk fyrir pakk. Emilíana Torrini semur topplag fyrir Kylie en Ragnheiður Gröndal trónir á toppnum á tónlist.is. 200.000 Naglbítar skipta um trommara, Á móti sól sendir frá sér Fiðrildi og Skífan vinnur bar...
Árið er 2002 - seinni hluti 01.11.2023 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Quarashi treður upp á tónleikum á hverjum degi og Jinx heillar amerísk ungmenni. Bubbi vaknar við Gróttu með sól að morgni, Hera Hjartardóttir flýgur yfir hálfan hnöttinn og stelur senunni en Dikta borðar yfir sig af bleikum sjeik. Apparat Organ Quartett spilar rokk og ról í steríó, Emilíana Torrini l...
Árið er 2002 - fyrri hluti 01.11.2023 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Sigur Rós syngur á vonlensku og Mugison fæðist sem söngvari á karaókíbar í Malasíu. Írafársrússíbaninn þýtur áfram, Sálin treður upp með Melabandinu og Urður gengur í Gus Gus. Vandræðaunglingurinn Þórunn Antónía lýkur þriggja ára tónlistarnámi hjá föður sínum, Magnúsi Þór Sigmundssyni. Útrás Leaves fæ...
Árið er 2001 01.11.2023 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Svala Björgvins skrifar undir risasamning í Ameríku og Leaves fær samningstilboð frá stærstu nöfnunum í tónlistarbransanum. Björk selur tvær milljónir af Vespertine, Sigur Rós fer umhverfis jörðina á 250 dögum og Trabant selur sig á auglýsingamarkaðnum. XXX Rottweilerhundar gelta hátt og Páll Óskar og...
Árið er 2000 01.11.2023 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Útrás Sigur Rósar fær fljúgandi start og Björk er tilnefnd til Óskarsverðlauna. Sálin hyggur á söngleik, Sóldögg upplifir kraftaverk, Utangarðmenn snúa aftur en lífið bíður ekki eftir Selmu Björns. Botnleðja lendir í slæmum málum, bransinn reynir að breyta Bellatrix í poppsveit, Múm fer í mál og Mugis...
Árið er 1999 07.10.2023 1:50:00
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Ágætis byrjun hjá Sigur Rós vekur áhuga tónlistaráhugamanna út um allan heim. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður til og Quarashi heillar ameríska bransakarla. Emilíana Torrini gerir plötu fyrir erlendan markað, Bellatrix og Coldplay túra saman um Bretlandseyjar en Selma Björnsdóttir er All Out O...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.