Hugi Halldórsson
70 Mínútur
Óvissuferð sem þú vilt ekki að missa af !hugi@gandalf.iswww.facebook.com/70mintur
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#138 - Simmi lagður í einelti, græddi á Brad Pitt og 10 ráð til að bæta kynlífið 15.01.2025 1:22:55
Þorrinn nálgast og þá er um að gera að breyta ekki neinu í þættinum. Við fórum í gegnum hvernig Simmi var lagður í einelti, ofurvald sem stéttarfélög og ríkið hafa gegn þegnum sínum og hvernig kona tapaði 100 milljónum á því að halda svikari væri Brad Pitt. Við buðum svo uppá hvernig þú gerir kynlífið þitt það besta í lífinu í eftirrétt. Góða skemmtun!
#137 - Takk BB king, íslenskur swinger og áramótaheit para 08.01.2025 1:24:40
Við tókum á því hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins og þökkuðum merkasta stjórnmálamanni aldarinnar fyrir hans störf. Það gifti sig íslenskur swinger í þættinum, auglýsing ISAVIA var tekin fyrir og við björguðum svo 1-2 hjónaböndum í þættinum eins og oft áður. Lögregludagbókin var svo á sínum stað ásamt pabbabröndurum. Góða skemmtun!
#136 - Konur stjórna öllu, uppeldi barna og 3 some 26.12.2024 1:19:34
Í þessum síðasta þætti ársins þá fórum við yfir það að konur munu stjórna öllu árið 2025. Kona sakfeld fyrir að ganga of langt í dyraati, hvernig er best að ala upp barnið þitt á sem uppbyggilegastan hátt og saga af threesome-i sem fékk hárin til að rísa. Þetta og margt annað sem var óplanað. Góða skemmtun!
#135 - Skessan í Hafnarfirði, klamýdía í gymminu & Pornhub 2024 18.12.2024 1:28:28
Fjölskyldu mál tekið fyrir í þættinum. Fyrirtæki að negla upp leikskóla fyrir starfsfólk, maður sagðist hafa fengið klamýdíu í ræktinni og hver eru helstu leitarorð þín á Pornhub árið 2024? Við dustuðum rykið af lögregludagbókinni og fórum í gegnum sannar sögur. Síðasti þáttur fyrir jól. Góða skemmtun!
#134 - Efling hótar, er vont að vera single of lengi & sexýtime í andlitinu 11.12.2024 1:20:11
Var Simmi handtekinn? Er Jay Z perri? Er Sólveig Anna vondi kallinn? Við fórum líka í gegnum stýrivexti, Luigi Magngione skaut víst forstjóra og andlitið á þér segir til um langanir þínar í kynlífi. Lögregludagbókin snéri aftur við mikinn fögnuð. Þetta og margt fleira. Góða skemmtun!
#133 - Valkyrjurnar, kink í kynlífið og góð ráð fyrir brúðkaupið 05.12.2024 1:26:10
Tímamót hjá 70min, við lækkum hlutfall stjórnmálaumræðu en gátum samt ekki sleppt að ræða úrslitin á laugardaginn. Snertum á kinki kynlífi og svo fengu verðandi hjón í brúðkaupshugleiðingum ráð hvernig brúðkaupið (eða partýið) á að vera. Þetta og margt fleira. Góða skemmtun!
#132 - Kjóstu þína framtíð, fæðingarþunglyndi og dirty weekend 28.11.2024 1:29:58
Þú setur x við þinn flokk um helgina. Hvað á að kjósa og hvaða flokkar munu ákveða þína framtíð? Ef það fær þig ekki til að hlusta þá fórum við yfir fæðingarþunglyndi og hvernig er best að útfæra dirty weekend í Amsterdam. Þetta og djúp fræðilega greining á því sem mun gerast um helgina. Góða skemmtun!
#131 - Fríhöfnin seld, áttu að fara í frí með fyrrverandi og tott í flugvél 🍆 20.11.2024 1:31:28
Var ekki bara gaman? Góða skemmtun!
#130 - Kæri Jón Gunnars, lævís Þórður og saga um sexy nudd 13.11.2024 1:28:49
Mikið gaman og mikið grín. Góða skemmtun!
#129 - Trump vann, hvað á kynlíf að endast lengi og hvað kveikir í konum? 06.11.2024 1:15:41
Þessi þáttur var sögulegur. Svo sögulegur að við lentum í tæknilegum vandræðum í upphafi, sorry með það :) Heimurinn mun ekki farast þótt Trump sé orðinn forseti, kennarar vilja meina að foreldrar séu verkfallsbrjótar sem er hlægilega fáránlegt. Þetta og mart um sambönd og kynlíf að venju. Góða skemmtun!
#128 - Kristrún vill Dag burt, typpi eru að stækka og 12 ótrúleg ráð í rúminu 31.10.2024 1:23:29
Kristrún skrifaði þetta viljandi. Jón góði og Valtýr Guðjóns í hanaslag um Spilverk þjóðanna, góðar fréttir fyrir konur - typpi eru að stækka og 12 alveg ótrúleg ráð sem þú getur notað í rúminu. Þetta og svo mjög mikið margt annað í þætti vikunnar. Góða skemmtun!
#127 - Prófa opið samband, ertu miðaldra og hvað á ekki að segja í sexytime 24.10.2024 1:21:54
Við prufuðum að opna sambandið, könnuðum hvort við værum miðaldra og hafði borgarstjóri rétt fyrir sér? Við snertum svo lítillega á pólitíkinni, fórum yfir stóra fríhafnar málið og veltum því fyrir okkur hvort Svandís Svavarsdóttir sé að reyna láta flokkinn sinn blæða út. Þetta og svo margt fleira í þætti vikunnar. Góða skemmtun!
#126 - Svandís í fýlu, Einar gerði í brók og staðreyndir um hjónabandið 16.10.2024 1:26:19
Að slíta eða vera slitið. Hjónabandinu loksins lokið í Stjórnarráðinu. Svandís mætti með Lúdó spjald í pókerleik. Þórdís ætlar að verða formaður. Gæludýr frá Úkraínu, rasismi í íshokkíheiminum og staðreyndir um hjónabandið. Þetta og mjög margt fleira aðeins fyrir þitt eyra. Góða skemmtun!
#125 - Albert laus, kúgun kennara og spurningar sem þú spyrð ekki konuna þína 10.10.2024 1:17:04
77min af þéttum pakka. Albert sýknaður og má spila, kennarar vilja hærri laun (eðlilega) og Bjarna Ben fannst kjánalegt að ráðherra hringi í Ríkislögreglustjóra þegar hann gerði það nákvæmlega sama í Ásmundarsals málinu. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Góða skemmtun!
#124 - HVASSAhraun, núdistar og hversu oft á að stunda sexytime í viku? 04.10.2024 1:15:28
Þessa helgina fáið þið lítinn skammt af pólitík, Hvassahrauni, brjóst eru víst ekki bara brjóst og hversu oft eiga pör að stunda hókí póki í viku? Við komumst svo að því að það eru til núdistar sem vilja fjölga sér. Þetta og svo margt annað. Góða skemmtun!
#123 - Beint rautt á Yazan, ekki halda í þér prumpi og hor í samförum 18.09.2024 1:24:29
Hvernig er best að segja kærustunni að þú viljir tíma fyrir þig í sambandinu? Er ekki bara best að hafa Yazan á Íslandi? Hefur þú fengið hor í munninn í miðjum samförum? P. Diddy að gera góðan til til ná öllum vonduköllunum og er Quang Le ekki bara game over? Þetta og mörg önnur mál líðandi stundar til umræðu í þættinum. Góða skemmtun!
#122 - Playboy & girl, blessað báknið og munngælusaga 11.09.2024 1:32:57
Þessi var langur og þéttur. Fórum yfir hvað flugfélaginu Play gekk til með auglýsingu sinni. Kata Jak réttu megin við núllið, furðulegt fjárlagafrumvarp og eru meðallaun í alvöru yfir 900kall? Helgi Magg mun sennilega ekki halda uppi stuðinu í staffapartýinu hjá Ríkissaksóknara og hver setur uppí sig TikTak áður en hann skellir sér í munngælur. Góða skemmtun!
#121 - Mamma hans Simma, gerðu kaupmála og framhjáhald inná klósetti 04.09.2024 1:21:48
Vorum á persónulegu nótum í þessum. Sjálfstæðisflokkurinn er að brenna en samt áttu að kaupa eldinn. Þyrluflug fyrir bændur í göngum, málmleitartæki í framhaldsskóla og gerðu kaupmála! Við fórum í gegnum þá kvöl og pínu sem skilnaður er ásamt því að Simmi sagði ykkur frá subbulegri framhjáhaldssögu inná klósetti. Góða skemmtun!
#120 - Íshellar á sumrin, ráðherra á hraðferð og má sofa hjá frænda konu sinnar? 29.08.2024 1:20:24
Vikan gerð upp. Er ferðaþjónustan að fara framúr sér? Ráðherra ekki með ráðherrabílstjóra né á ráðherrabíl á hraðferð í Skagafjörð. Miðflokkurinn að trenda, hvað má nota smokk lengi og áfengið hjálpaði Simma að komast í gegnum covid. Þetta og mjög áhugaverð umræða um frænda konu sem svaf hjá frænku sinni og manninum hennar. Góða skemmtun!
#119 - Orlofsofurlaun, skítkast í glerhúsi og 10 bestu kynlífsráðin 22.08.2024 1:19:22
Það var ekki ausið úr honum brunninum í þetta skiptið. Fórum yfir ofurorlofslaun og skítkastið úr Hádegismóum. Afhverju eru Benifer að skilja, eins gott að segja upp áskrift að Disney+ áður en maður deyr í Disney. Þau voru svo asgoddi hressandi kynlífsráðin í þetta skiptið. Ýttu á playtakkan, það er hættulaust. Góða skemmtun!
#118 - Sorry með Prittíboy, hinsegin vottun og kynlífsleikföng í fjarsambandi 14.08.2024 1:18:56
Á matseðlinum var afsökunarbeðni Prittýboy tjokkó, þjórfé sé lúsmý og kaup lögreglunar á búnaði fyrir leiðtogafund. Í eftirrétt bjóðum við uppá 13 kynlífstæki sem koma sér vel í fjarsamböndum og jafnvel líka ekki í fjarsamböndum ásamt helling af öðru góðu stöffi. Góða skemmtun!
#117 - Er Þjóðhátíð málið, ríkið býður frí eiturlyf og þess vegna halda konur framhjá 08.08.2024 1:19:54
Ekkert eðlilega gott að koma aftur eftir sumarfrí. Við fórum yfir þjóðhátið, ríkið hyggist bjóða uppá frí eiturlyf einn daginn og vegabréfið þitt er ekki jafn öflugt og fyrirsagnir segja til um. Við komumst svo næstum því að því hver vegna konur halda framhjá maka sínum. Þetta og milljón annað gagnslaust blaður sem er aðeins gert til að stytta þér stundir. Góða skemmtun!
#116 - WokON til sölu, pör sem halda framhjá og hvað segir hárlitur þinn um þig í sexytime? 25.06.2024 1:19:12
Síðasti þáttur fyrir sumarfrí. Hvernig í veröldinni á að verðleggja WokOn vörumerkið sem er til sölu. Íþróttir fá svipaða fjárhæð í fjárlagafrumvarpinu eins og Íslenski dansflokkurinn, efnafólk sleppur vel úr snörunni með Bláa lónið og framhjáhald er bara þræl algegnt. Við fórum svo yfir það hvað hárliturinn þinn segir um þig í rúminu. Góða skemmtun!
#115 - Hryðjuverk í Kringlunni, nýr kynsjúkdómur og þarf að þrífa endaþarminn fyrir mök? 19.06.2024 1:20:10
Sumarið er ekki sexy. Kringlan brann, helvíti þarf hönnun að vera dýr á einfaldri brú yfir ylströnd og glænýr kynsjúkdómur sem þú mátt svo sannarlega missa af. En ekki missa af umræðunni um rándýra samloku og auðvitað þurfa æðstu embættismenn landsins að fá launahækkun eins og aðrir. Þetta og nýjustu trendin í rúminu í sumar. Góða skemmtun!
#114 - Kata failJak, helvítis útlendingar og vísbendingar um að hann sé lélégur í rúminu 11.06.2024 1:30:07
Nafnið á þættinum er auðvitað ekkert annað en smellibeita. Við fórum yfir hvort framboð Kötu hafi verið klúður. Hversu oft eðlilegt að pör rífist oft á ári. Bullandi geðrof í veðurspám veðurfræðinga, varðhundur karlmennskunnar og útlendingarmálin fengu pláss. Þetta og auðvitað sambandsráðgjöf auk ódauðlegrar umræðu um kynlíf á sínum stað í lokin. Góða skemmtun!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.