Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: fotbolti.net
Auteur
Fotbolti.net
Categorie
Website van de podcast
Nieuwste aflevering
25 nov. 2026
Waar luisteren?
Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaarPodcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts
Afleveringen
Fantabrögð - Þríeykið og almannavarnir 01.02.2021
Stjórnendur Fantabragða áttu misgóða umferð í 21. leikviku Fantasy Premier League. Prílið lifir sem aldrei fyrr hjá GT meðan sjálfræðissvipting Arons á Fantasy liðinu hans er komin í ferli. Pep rúllettan fór illa með margan Fantasy þjálfarann og þá virðist Thomas Tuchel vera nýjast stjórinn til að raða kúlum í þá byssu. Aðra umferðina í röð var það leikmaður sem fólk var að selja eða bekkja sem sa...
Enski boltinn - Gluggadagurinn og staða Mourinho 01.02.2021
Það er gluggadagur og í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag var rætt um helstu félagaskipti sem og leiki helgarinnar á Englandi. Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finsson mættu og ræddu málin. Meðal efnis: 11 stig í 13 leikjum, galin uppstilling, Son og Kane fara, Mourinho fær tíma ut tímabilið, Doherty hrikalegt flopp, Bale gæti hætt, sendi Alli skilaboð á I...
Útvarpsþátturinn - Davíð Snorri, U21 og lenging mótsins 30.01.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 30. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fréttir vikunnar. Svo kemur Davíð Snorri Jónasson, nýr þjálfari U21 landsliðsins, í heimsókn. Rætt er um þetta efnilega lið, Evrópumótið framundan og Davíð svarar spurningum sem voru sendar í gegnum Instagram. Þá mætir Þórir Hákonarson og segir frá mjög áhugaverðri fyrirlestraröð um fjármál og fótbolta. Einnig er rætt um t...
Heimavöllurinn - Steini fékk giggið, gullfótur í Kópavog og stórliðin horfa til Íslands 29.01.2021
Þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín sérlega góða gesti á Heimavöllinn að þessu sinni. Knattspyrnuþjálfarinn og spekúlantinn Daði Rafnsson mætir í sett og ræðir um íslenska uppeldiskerfið og af hverju svona margar íslenskar knattspyrnukonur eru að semja við stórlið úti í heimi. Þá kíkir nýjasti leikmaður Breiðabliks, Andrea Mist Pálsdóttir, í heimsókn. Fer yfir vistaskiptin, síðustu ve...
Fantabrögð - Sjaldan er Kane báran stök 29.01.2021
Þessi umferð var ekki alveg jafn góð og sú síðasta, enda færri leikir og mikil vonbrigði þar að auki. Metfjöldi setti bandið Bruno Fernandes sem klikkaði en Manchester City leikmenn skiluðu heldur betur. Liverpool vann Tottenham sannfærandi og það sem verra er fyrir Spurs virðist Harry Kane vera meiddur. Er Mane kominn í form? Hvað með Trent? Hver er besti ódýri miðjumaðurinn? En dýri varnarmaðuri...
Enski boltinn - Manchester City menn í stuði á toppnum 28.01.2021
Manchester City situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir fjöruga leiki í vikunni. Magnús Ingvason og Sigurður Helgason, stuðningsmenn Manchester City, mættu í hlaðvarpsþáttinn „Enski boltinn" í dag og ræddu um City og leiki vikunnar. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: City lengi að ná flugi, Dias smollið inn, vörnin öflug, framherjalaus...
Ungstirnin - Nikola Djuric og ný vonarstjarna Grikkja 28.01.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þrettánda þætti er fjallað um Ali Akman (Bursaspor), Christos Tzolis (PAOK) og Talles Magno (Vasco De Gama). Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið leikmanna sem fæddir eru 2004 þar sem aðal...
Fantabrögð - Stigaflóð eftir tvöfalda umferð 25.01.2021
Fantabrögð mættu með fullskipað lið til að gera upp lengstu umferð sögunnar í Fantasy Premier League. John Stones var óvænt stigahæsti leikmaður umferðarinnar á meðan Mohamed Salah klikkaði og fékk fjögur. Michail Antonio verðlaunaði síðan þá sem keyptu hann ríkulega með 18 stigum. Margt gekk upp en margt klikkaði einnig. Þáttastjórnendur voru allir töluvert yfir meðaltali þessa umferðina en einn...
Íslenski boltinn - Fréttir vikunnar og Matti Villa í viðtali 23.01.2021
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net 23. janúar. Matthías Vilhjálmsson er kominn heim úr atvinnumennskunni og farinn að spila á ný með FH. Matti kom í útvarpsþáttinn og ræddi meðal annars um heimkomuna, árin í Noregi og framtíðina. Hann á fjóra Noregsmeistaratitla að baki með stórliði Rosenborg.
Geir Þorsteins í ítarlegu spjalli um stöðu íslenska boltans 23.01.2021
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net 23. janúar. Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri ÍA og fyrrum formaður KSÍ, kom í heimsókn. Rætt var um stöðu íslenska boltans frá ýmsum hliðum. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu ýmislegt tengt íslenska boltanum, meðal annars umræðu um fjölgun leikja í Pepsi Max-deildinni og áhrif Covid-19 á síðasta tímabil. Þá ræddi Geir um starf sitt hjá ÍA en hann hefur stað...
Enski boltinn - Krísa Chelsea og topplið Man Utd 22.01.2021
Það er skammt stórra högga á milli í ensku úrvalsdeildinni þessa dagana og sveiflurnar miklar á toppnum. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í hlaðvarpsþáttinn „enski boltinn" og fóru y...
Ítalski boltinn - Sex skiptingar og VAR dramatík á ítalska þinginu 21.01.2021
Það vantaði ekki dramatíkina á Ítalíu þessa vikuna, hvorki innan vallar né utan. Eftir að hafa keypt Mario Balotelli til Monza er Adriano Galliani farinn að láta til sín taka á ítalska þinginu, Rómverjar gera hver mistökin á fætur öðrum og Juventus reynir eftir fremsta...
Heimavöllurinn - Markahæsti markvörðurinn kælir hanskana og 101 eignast fótboltalið 19.01.2021
Þær fréttir bárust á dögunum að markvörðurinn öflugi, Sonný Lára Þráinsdóttir, ætlaði sér ekki að leika áfram með Breiðablik þar sem hún hefur átt magnaðan tíma síðustu ár. Sonný Lára mætir í spjall til Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur og fer yfir málin. Þá koma einnig KM-leikmennirnir Júlía Óladóttir og Hrund Steinarsdóttir í spjall en KM stendur fyrir Knattspyrnufélag Miðbæjar og liðið ætlar...
Enski boltinn - Liverpool getur ekki skorað 18.01.2021
Erkifjendurnir í Liverpool og Manchester United gerðu markalaust jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Rikki G, lýsandi á Stöð 2 sport, og Hrafn Kristjánsson, körfuboltaþjálfari og stuðningsmaður Liverpool, fóru yfir leiki helgarinnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni.
Útvarpsþátturinn - Stórleikurinn, Rooney og íslenski 16.01.2021
Útvarpsþátturinn 16. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins: Rætt um feril Wayne Rooney og fjallað um íslenska boltann. Rætt var við Ágúst Gylfason, þjálfara Gróttu, og Orra Frey Hjaltalín, nýjan þjálfara Þ...
Fantabrögð - Allt í skrúfunni fyrir tvöfalda umferð 15.01.2021
Umferð 18 er að baki í Fantasy Premier League og við tekur umferð 19. Margir notuðu Free Hit í 18 umferð enda lítið af leikjum og nú er spurning hvort það taki því að nota Bench Boost eða Triple Captain í þeirri 19. Fer leikur Leeds og Southampton fram eða ekki? Á maður að þ...
Enski boltinn - Tekist á fyrir stórleik ársins 14.01.2021
Liverpool og Manchester United mætast í toppslag í ensku úrvalsdeildinni á Anfield á sunnudaginn. Hörður Magnússon og Magnús Gylfason fylgjast með hverju sparki hjá sínum liðum og þeir mættu í spjall í dag þar sem hitað var upp fyrir leik helgarinnar. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Stórleikurinn á sunnudag, dauðafæri fyrir Manchester Un...
Ítalski boltinn - Róm - höfuðborg alheimsins 14.01.2021
Í þætti vikunnar verður farið yfir umferð síðustu umferð þar sem Juventus marði sigur á spræku Sassuolo-liði og Inter og Roma gerðu jafntefli í toppslag umferðarinnar. Framundan er stór helgi í ítalska boltanum. Lazio og Roma eigast við í hörðum nágrannaslag og Ju...
Ungstirnin - Heimsókn úr Breiðholti og íslensk ungstirni seld út 13.01.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum tólfta þætti er fjallað um Ilaix Moriba (Barcelona), Pierre Dwomoh (Genk) og Benoit Badashile (Mónakó) Rætt var um félagaskipti ungra íslenskra leikmanna en Finnur Tómas, Karólína Lea og Sve...
Útvarpsþátturinn - Óli Kristjáns, Emil og enski 09.01.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 9. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir vikunnar og tóku svo upp símann og ræddu við góða viðmælendur. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Esbjerg, ræddi um lífið í Danmörku og það góða skrið sem hans lið hefur verið á en það trónir á toppi B-deildarinnar. Emil Pálsson ræddi um sín mál en hann ætlar að takast á við nýja áskorun á sínum ferli...
Ítalski boltinn - Toppliðin tapa stigum, Juve hrekkur í gang og nýr bad boy tekur við af Balotelli 08.01.2021
Í þætti vikunnar verður farið yfir umferð vikunnar þar sem Juventus vann toppslaginn gegn AC Milan sem tapar sínum fyrsta leik síðan í mars. Inter og Napoli tapa óvænt stigum og ungstirnið Nicolo Zaniolo er með hjálp móður sinnar að taka við af Balotelli sem óþekki strák...
Fantabrögð - Free Hiti í mönnum 05.01.2021
Fyrsti þáttur Fantabragða á árinu 2021 var heldur betur viðburðaríkur. Aron og Gunni mættu í stúdíóið og fóru yfir umferð 17 auk þess að spá í spilin fyrir umferðir 18 og 19 sem liggja saman og krefjast nokkurrar íhugunar, enda liðin með mismarga leiki. Meða...
Enski boltinn - Manchester liðin í stuði 04.01.2021
Það hefur verið líf og fjör í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu og farið var yfir gang mála í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolta.net í dag. Hlynur Valsson og Gunnar Ormslev, lýsendur á Síminn Sport, voru gestir þáttarins að þessu sinni. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Kórónuveiran truflaði ekki Manchester City, náðugt í fyrst...
Útvarpsþátturinn - Man Utd upp að hlið Liverpool og Alex til Svíþjóðar 02.01.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í þætti dagsins var rætt við Tryggva Pál Tryggvason fréttamann og sérfræðing um Manchester United um enska boltann en United er komið upp að hlið Liverpool á toppi deildarinnar. Einnig var Alex Þór Hauksson í viðtali en hann er að yfirgefa Stjörnuna og halda til Svíþjóðar. Þá var rætt við Gunnar Einarsson...
Áramótabomba Heimavallarins - Glerþök mölvuð 31.12.2020
Árinu 2020 er að ljúka og Heimavöllurinn hendir í áramótauppgjörsþátt af því tilefni. Gestir: Sveindís Jane, Ingibjörg Sigurðardóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir. Hápunkti ársins var náð á þriðjudagskvöldið þegar íslenskar knattspyrnukonur komu, sáu og sigruðu í kjöri á íþróttamanni, þjálfara og liði ársins. Heimavöllurinn fer yfir allt það helsta og heyrir í mögnuðum gestum. Nýjasta atvinnukonan ok...
Vergelijkbare podcasts
Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds