Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: fotbolti.net
Auteur
Fotbolti.net
Categorie
Website van de podcast
Nieuwste aflevering
7 okt. 2026
Waar luisteren?
Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaarPodcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts
Afleveringen
Innkastið - 1-7 tapdagur Íslands 25.03.2021
Tvöfaldur tapdagur hjá íslenska landsliðinu í dag. U21 landsliðið tapaði sannfærandi fyrir Rússlandi í fyrsta leik sínum á EM og A-landsliðið átti ekki möguleika gegn Þýskalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni HM. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, fengu Harald Árna Hróðmarsson, þjálfara hjá Val, til að fara yfir landsleikjadaginn. Rætt er um frammistöðu leikm...
Ungstirnin - EM U21 upphitunarþátturinn 24.03.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Þessi þáttur er upphitun fyrir EM U-21 árs. Í þessum sautjánda þætti er farið ítarlega yfir öll sextán liðin sem taka þátt í riðlakeppni EM U-21 árs sem fer fram í Ungverjalandi og Slóveníu 24. mars...
Enski boltinn - Spurs, landsleikir og draumalið 23.03.2021
Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn." Þeir ræddu gengi Tottenham, leiki helgarinnar, landsleikina framundan og tóku þátt í leik þar sem þeir stilltu upp draumaliðum sínum í ensku úrvalsdeildinni með ákveðnum reglum. Meðal efnis: Ófyrirgefanlegt í Zagreb, endurnýjun hjá Tottenham, Mourinho endar ofar en Tu...
Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og Arnar Viðars 20.03.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks gestur. Rætt er við hann um þróun mála hjá Blikaliðinu síðan hann tók við stj&oac...
Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Pepsi Max 2021 19.03.2021
Það er komið að ótímabærri spá fyrir Pepsi Max-deild kvenna 2021. Í þetta skiptið fengu þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir góða gesti til að fara yfir málin með sér enda ekki nema 47 dagar í fyrsta leik. Gestaspákonur þáttarins eru þær Aníta Lísa Svansdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir sem þekkja deildina út og inn. Auk spánnar verða að sjálfsögðu fastir liðir í boði Bílaumboðsins Heklu, Símans...
Fantabrögð - Fjögurra leikja fjör 17.03.2021
28. umferðin var heldur döpur í Fantasy Premier League. 5 vinsælustu fyrirliðarnir klikkuðu allir og meðalstigafjöldinn var einungis 43 stig. Aron og Gunni mættu í stúdíóið aðallega til að skoða hina fátæklegu umferð 29 og hvað skal gera í henni. Á að wildcarda? Free Hita...
Innkastið - Landsliðsveisla framundan: Hverjir byrja? 17.03.2021
Búið er að opinbera landsliðshópinn fyrir komandi leiki í undankeppni HM. Vegna ástandsins er þó enn talsverð óvissa og lykilmenn gætu verið fjarri góðu gamni gegn Þýskalandi. Arnar Þór Viðarsson treystir á gamla bandið en U21 landsliðið leikur í lokakeppni EM í sama landsleikjaglugga. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már ræddu um komandi landsleikjaglugga. Hvernig verður byrjunarliðið og hvaða væn...
Ungstirnin - U21 hópurinn og heimsókn úr Garðabæ 17.03.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fotbolti.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sextánda þætti er fjallað um Pierre Kalu...
Enski boltinn - Bielsa er maður fólksins í Leeds 15.03.2021
Það var sannkallað Leeds þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.
Útvarpsþátturinn - Gluggadómar og enskt hringborð 14.03.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins er félagaskiptaglugginn á Íslandi skoðaður. Hvaða einkunnir fá félögin í Pepsi Max-deildinni fyrir leikmannahræringar sínar? Í seinni hlutanum kemur Kristj&aac...
Heimavöllurinn: Bríet Bragadóttir: Ekki hægt að skulda í dómgæslu 12.03.2021
FIFA-dómarinn Bríet Bragadóttir er gestur Heimavallarins að þessu sinni. Bríet ræðir um dómarastarfið við þær Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur en rödd dómara heyrist afar sjaldan í fjölmiðlum. Bríet gefur áhugaverða innsýn í þetta vanmetna en gríðarlega mikilvæga starf. Fastir liðir eins og Símasnilldin, Dominos spurningin og Hekla þáttarins eru svo að sjálfsögðu til staðar í boði bestu vina Heim...
Ítalski boltinn - Óásættanlegur Ronaldo, varnarmaður með óróapúls og Eurovision dramatík Zlatans 12.03.2021
Juventus var hent öfugu út úr Meistaradeild Evrópu og mikil umræða er um framtíð Ronaldos hjá félaginu. Chris Smalldini var púslið sem varnarleikur Rómverja vantaði, ekkert fær stöðvað Internazionale og Patric varnarmaður Lazio mælist enn með óróapúls. Ísl...
Fantabrögð - Shaw's hunk redemption 09.03.2021
Fantabrögð skelltu sér í stúíóið á þriðjudegi, þó að leikur Manchester City og Southampton væri enn eftir. Það var enginn glaðari með það en Aron, sem horfði fram hjá tvöfaldri umferð City og setti fyrirliðabandið á Harry Kane. Strákarnir svöruðu spurningum hlustenda, veltu upp spurningunni um Gareth Bale, tóku fyrir Chelsea og Manchester City og róteringar á þeim og völdu fyrirliða í snúinni umfe...
Enski boltinn - Utanríkisráðherra ræðir vandræði Liverpool 08.03.2021
Manchester United vann grannaslaginn gegn Manchester City á meðan Liverpool tapaði sjötta heimaleik sínum í röð í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og stuðningsmaður Liverpool, og Ágúst Reynir Þorsteinsson, eigandi Bombay Bazaar og stuðningsmaður Chelsea, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni. Meðal efnis: Man Utd stöðvaði...
Útvarpsþátturinn - Ótímabær Pepsi Max spá og boltapólitík 06.03.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. mars Í fyrri hlutanum er opinberuð ný ótímabær Pepsi Max-spá. Úlfur Blandon ræðir við Elvar Geir og Tómas Þór um liðin tólf. Í seinni hlutanum kemur Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings og fyrru...
Fantabrögð - Fantabrögð x Davíð Örn Atlason 05.03.2021
Það er óhætt að segja að stærsta umferð tímabilsins hafi ekki staðið undir væntingum. 14 lið áttu tvo leiki en mikið rót var á liðunum og vandasamt verk að hitta á leikmenn sem spiluðu tvo leiki. Því brugðum við á það ráð að fá til okkar góðan gest, Davíð Atlason, en hann er í 3. sæti af Íslendingum í FPL eins og staðan er núna. Við fórum yfir 26. umferðina og skoðuðum aðeins hvað er framundan. Hv...
Enski boltinn - Mögnuð Meistaradeildarbarátta 05.03.2021
Það er skammt stórra högga á milli í ensku úrvalsdeildinni en fjöldi leikja fór fram í vikunni og heil umferð er framundan um helgina. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í hlaðvarpsþáttinn „enski boltinn" og fóru yfir stöðuna hjá sínum liðum sem og öðrum. Meðal efnis: Bragðarefurinn Tuchel, lukkupottur Chelsea, leiðinlegt V...
Ástríðan - Nú er það ótímabær spá í 3. deild 05.03.2021
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Sverrir Mar Smárason, Gylfi Tryggvason og Magnús Már Einarsson fara yfir 3. deild karla í þessum þætti. Rennt er yfir öll liðin og opinberuð ótímabær spá fyrir deildina.
Ástríðan - Ótímabær spá fyrir 2. deildina 04.03.2021
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason fara yfir 2. deild karla og opinbera ótímabæra spá sína fyrir deildina. Rennt er yfir öll liðin en búast má við jafnri og spennandi keppni í sumar.
Ungstirnin - Landsliðsval Musiala og Víkingar 03.03.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum fimmtánda þætti er fjallað um Tanguy Nianzou (Bayern), Kamaldeen Sulemana (Nordsjælland) og Adam Hlozek (Sparta Prag). Farið er yfir landsliðsval ungstirnisins Jamal Musiala, hvort hann velj...
Enski boltinn - Everton, Newcastle og vondir stórleikir 01.03.2021
Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag en þar er farið yfir helstu atriði helgarinnar í enska boltanum. Jón Júlíus Karlsson, stuðningsmaður Newcastle, og Viðar Guðjónsson, stuðningsmaður Everton, eru gestir vikunnar en rætt var ítarlega um þeirra lið sem og leiki helgarinnar í enska boltanum. Meðal efnis: Everton orðið ítalskara, léttara yfir Gylfa, færri stuðningsmenn gagnrýna G...
Útvarpsþátturinn - Ótímabær Lengjuspá og Alexander Scholz 27.02.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt er um fréttir vikunnar og Rafn Markús Vilbergsson opinberar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina. Fjallað er um öll lið deildarinnar. Enski boltinn kemur einnig við sögu og þá er rætt við Alexander Scholz, fyrrum leikmann Stjörnunnar. Scholz er lykilmaður hjá dönsku meisturunum í Midtjylland.
Ítalski boltinn - Grannaslagur, skattsvik og túristar í Meistaradeild Evrópu 26.02.2021
Ný vika, ný vandamál. Ítölsku liðin hafa átt erfiðu gengi að fagna í Evrópu. Vel þekktur eigandi Íslendingaliðs sætir skattrannsókn enn á ný og þátttaka Zlatans á Sanremo tónlistarhátíðinni sætir gagnrýni. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Ver...
Fantabrögð - Risaumferð framundan 23.02.2021
Aron og Gylfi settust niður yfir leik Leeds og Southampton og fóru yfir málin fyrir RISAumferð 26 í Fantasy Premier League. 14 af 20 liðum deildarinnar eiga tvo leiki í umferðinni og því má reikna með að margir spili spilum eins og þrefalda fyrirliðanum, bekkjarbombunni eða jafnvel hinu villta spili. Það...
Enski boltinn - Hvað er í gangi hjá Liverpool? 22.02.2021
Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag en þar er farið yfir helstu atriði helgarinnar í enska boltanum. Liverpool hefur frá jólum einungis unnið tvo af ellefu leikjum í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð á Anfield. Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson frá kop.is mættu í þátt dagsins og fóru yfir málefni Liverpool...
Vergelijkbare podcasts
Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds