RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: www.ruv.is
Hvor kan du lytte?
Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snartPodkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster
Episoder
Hamraborg Festival, Dolly Parton og frændtungur íslenskunnar 26.08.2026 53:51
Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs sem hefst á föstudag og er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið. Við bregðum okkur í Náttúrusafn Kópavogs til að hitta þar tvö tónskáld, sem bæði eru meðal listamanna á Hamraborg Festival, þau Þórð Hallgrímsson og Ásu Önnu Ólafsdóttur, eða Asalaus. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun,...

Roman Signer á Seyðisfirði, Hljóð í ljóði og Tu Ha? Tu Bjö! 25.08.2026 56:00
Þáttur dagsins er að mestu tileinkaður jazzi, enda Jazzhátíð í Reykjavík að hefjast í kvöld. Við kynnum okkur tvær jazzplötur sem koma út um þessar mundir, útgáfum sem verður fagnað sérstaklega á hátíðinni. Tilrauna- og rannsóknarverkefnið Tu Ha? Tu Bjö! sendi frá sér plötu um liðna helgi. Hljómsveitin er skipuð tveimur trompetleikurum og tveimur tenór saxófónleikurum; þeim Tuma Torfasyni, Hannesi...

Brotnar línur, Heyrðu mig og The Band 24.08.2026 50:00
Nú fyrir helgi kom út fyrsta ljóðabók Védísar Evu Guðmundsdóttur, Brotnar línur. Ljóðsagan segir frá ungri konu sem heldur úr borginni út á land til að vinna í sláturhúsi. Þar kynnist hún köldum veruleika blóðugrar matvælaframreiðslu í neonlýstum slátursalnum, en jafnframt fólkinu í þorpinu og samfélaginu að baki. Védís Eva heimsækir hljóðstofu og segir frá bókinni. Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræ...

Örn Alexander, Sjónarafl og Skriftamál einsetumannsins 20.08.2026 55:14
Síðustu ár hefur á Listasafni Íslands verið unnið að metnaðarfullu fræðsluverkefni í myndlæsi undir yfirskriftinni Sjónarafl. Þar fá nemendur og áhugasamir spurningar og lykla sem opna dyr að heimi myndlistar fyrir alla að njóta. Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri Listasafns Íslands, upplýsir okkur nánar um verkefnið. Sölvi Halldórsson rýnir í sögufrægt verk eftir Sigurjón Friðrikss...

Margrét Hallgrímsdóttir í Viðey og Hist Highness 19.08.2026 52:36
Í ár eru 800 ár síðan klaustrið í Viðey hóf starfsemi sína árið 1226, en klaustrið var stofnað af höfðingjum þjóðveldisaldar, Snorra Sturlusyni og Þorvaldi Gissurarsyni. Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og fyrrum þjóðminjavörður, fór fyrir fyrstu fornleifarannsókninni á minjum miðaldaklausturs í Viðey á árunum 1987-1995 og vinnur nú að bók um niðurstöður rannsóknanna, sem eru um margt m...

Jarðvegur Önnu Rúnar, Mamma mjöll og draugapennar 18.08.2026 51:12
Á einkasýningu Önnu Rúnar Tryggvadóttur, Jarðvegi, taka á móti gestum fagurlega mótaðar vatnslitamyndir, órætt, líkamlegt landslag sem rennur til og ofan í jarðveginn. Að baki býr leynifélag kvenlegra gilda og viska sem byggir á tilfinningu, alúð og reynslu frekar en á hlutlausri, fjarlægri athugun. Síðustu ár hefur Anna Rún gjarnan unnið með náttúruleg fyrirbæri og ferli og beint með því sjónum o...

Ásta Dóra, María Qing og Henry Threadgill 17.08.2026 54:49
Fyrsti þáttur haustsins er tileinkaður tónlist úr mjög ólíkum áttum. Þær Ásta Dóra Finnsdóttir og María Qing Sigríðardóttir eru meðal stærstu vonarstjarna okkar á sviði klassískrar tónlistar. Ásta Dóra stundar nám í Curtis, einum virtasta tónlistarháskóla heims, og María er eftirsóttur sellisti í Þýskalandi, þar sem hún er búsett. Þrátt fyrir að vera rétt um tvítugt hafa þær báðar leikið einleik m...

Hverafugl, Himna, viðkvæmni og Harðindi 02.07.2026 53:05
Freyja Þórsdóttir fjallar í pistli sínum um viðkvæmni og styrk út frá ólíkum sjónarhornum. Það sem virðist viðkvæmt eða sterkt við fyrstu sýn getur fengið á sig annan blæ í víðara samhengi. Til dæmis þegar það er skoðað gegnum linsu djúptíma. Með þetta í huga lítur hún meðal annars til máttarins sem býr í blómum. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir, myndlistarmaður, kom við á sýningunni Himnu í Norræna húsi...

Davíð Þór á Gljúfrasteini 01.07.2026 50:20
Í Víðsjá dagsins komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum, í sérstökum aukaþætti Aldrei las ég Laxness, um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa v...

Hermeto Pascoal, Jón Arason Hólabiskup og Jeff Parker 29.06.2026 54:14
Í þættinum hugum við að brasilísku tónskáldi sem féll frá síðasta haust, Hermeto Pascoal, en Jazzklúbburinn Múlinn hefur boðað til tónleikatvennu nú á þriðjdag og miðvikudag þar sem leikin verða lög eftir þetta ólíkindatól. Tónleikarnir hafa yfirskriftina Viva Hermeto! og er þar markmiðið að fagna lífi hans, en á dagskránni má heyra ýmsar gerðir brasilískra tónstíla á borð við; samba, choro, baiao...

Umbreyting, Dugguvogur 42 og Lisa O'Neill 25.06.2026 53:54
Umbreyting eða Layover er sýning í Biðstofu Nýlistarsafnsins sem verður opnuð gestum og gangandi nú klukkan sex í Marshall húsi. Umbreyting er í senn sýning, sem og opin vinnustofa þar sem þau Agnes Ársælsdóttir og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur vinna hörðum höndum að því að skrásetja gjörninga í gjörningaarkíf Nýlistarsafnsins en sýningin rekur einnig slóð hugmynda og listamanna sem hafa ferðast...

Lignende podkaster
Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.