samhengidmedsif

Samhengið með Sif

Society EN ↓ 41 episoder

Sif  Sigmarsdóttir, samfélagsrýnir og sagnfræðingur, setur það sem hæst ber í vikunni í samhengi og raðar því á lista.

Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: samhengidmedsif.podbean.com

Forfatter

samhengidmedsif

Kategori

Society

Podkastens nettsted

samhengidmedsif.podbean.com

Siste episode

5. nov 2026

Hvor kan du lytte?

Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snart

Podkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster

Last ned på Google Play Installer gratis Android nesten 10 mill. nedlastinger · 4,7+ i vurdering iOS snart

Episoder

Stjörnulífið: „Cosplay“-spilarar og feitar gæsir í banastuði 05.11.2026

Í dag eru fimmtíu dagar til jóla. Fyrir utan hús nágranna míns situr beinagrind og les Schopenhauer. Sennilega verður hún sú eina í götunni sem mun upplifa aðventuna með þeim hætti sem við þráum flest.

Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti 29.10.2026

Í síðasta mánuði fór fram á vegum læknadeildar Harvard-háskóla málfundur um offitu. Á fundinum var dregið í efa að offita hefði neikvæð áhrif á heilsu. Þyngdarstjórnunarlyf á borð við Ozempic voru sögð verkfæri heimsvaldasinna og uppáskrift þeirra fasismi.

Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? 22.10.2026

Eðlisfræðingar halda því fram að alheimurinn fari stækkandi. Í stöðugt stækkandi veröld skapast æ meira svigrúm fyrir ráðgátur.

Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela 15.10.2026

Í vikunni útbjó ég hvatakerfi fyrir sex ára son minn: Ef hann væri duglegur að gera heimavinnuna sína á hverjum degi fram að jólafríi í skólanum fengi hann verðlaun. ÞÚ TRÚR EKKI HVAÐ GERÐIST NÆST.

Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? 08.10.2026

„Hvers vegna eru Bandaríkjamenn feitir?“ spurði blaðamaðurinn Michael Pollan í metsölubókinni The Omnivore’s Dilemma sem í ár á 20 ára útgáfuafmæli. Samkvæmt Pollan lá svarið ekki aðeins í stórum skammtastærðum og lítilli hreyfingu heldur einnig í landbúnaðarstefnu Richards Nixon.

Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi 01.10.2026

Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan.

Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið 24.09.2026

Kona myrðir eiginmann sinn. Þvínæst skýst hún út í búð til að kaupa kartöflur. Hvað gengur henni til?

Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi 17.09.2026

Nýjar rannsóknir sýna fylgni milli neyslu omega-3 fæðubótarefna og hraðari hugrænnar hnignunar hjá eldra fólki. Eigum við öll að henda lýsistöflunum okkar í ruslakörfuna?

Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla 10.09.2026

Gjarnan er sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Stundum væri þorpinu hins vegar hollt að hugsa sig tvisvar um áður en það byrjar að ausa af tómum viskubrunni sínum.

Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? 03.09.2026

Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu …

Hvað hafa þau að fela? 28.05.2026

Í síðustu viku urðu landsmenn vitni að einum misheppnaðasta fagurgala manns á biðilsbuxunum sem sögur fara af.

Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? 21.05.2026

Refskák fer ekki alltaf eins og lagt var upp með.

Bíður þetta böl lands og þjóðar? 14.05.2026

Eru það mannréttindi að afkomendur veðurfræðings endi ekki sem þegnar fransk-prússnesks herveldis?

Tapaði ellefu milljónum 07.05.2026

Hverjir eiga að fá greitt fyrir vinnu sína og hverjir ekki?

Stór brjóst eru stór 30.04.2026

Þessi pistill átti ekki að fjalla um Snorra Másson. Hann átti að fjalla um stór brjóst.

Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ 23.04.2026

Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“   Það kann að virðast saklaust hlutskipti að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu. Annað kemur hins vegar á daginn.

Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest 16.04.2026

Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. En veist þú hvaða áratugar samtíminn saknar mest?

Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur 09.04.2026

Athygli er hin nýja dyggð. Það skiptir ekki máli hvað þú segir svo lengi sem margir hlusta; það skiptir ekki máli hvað þú gerir svo lengi sem allir eru að horfa.

Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta 02.04.2026

Hvernig stendur á því að mannkynið gat smíðað gervigreind en okkur hefur ekki tekist að bæta prentarann síðan Ron Livingston rústaði honum með hafnaboltakylfu í kvikmyndinni Office Space árið 1999?

Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér 26.03.2026

Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga ...

Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi 19.03.2026

Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu.

Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð 12.03.2026

Er stríð stuð?

Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? 05.03.2026

Fyrr á árinu komst upp um tilraun íslensks alþingismanns til að kaupa vændi. Þingmaðurinn kvaðst hafa gert mikil mistök sem hann harmaði og sagði af sér þingmennsku. Samflokksmaður hans, Jón Gnarr, segir hins vegar afdrif þingmannsins ósanngjörn og spyr: „Hvað kemur það einhverjum við hvað hann og einhver kona eru að ræða saman?“ Getur verið að Jón sé búinn að horfa aðeins of oft á kvikmyndina Pre...

Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni 26.02.2026

Er tímastjórnun sá heilagi kaleikur sem stjórnunarfræðingar vilja vera láta?

Í sárum yfir brandara um hrossatyppi 19.02.2026

Er „slaufunaræðið“ í alvörunni búið?

Hør på podkasten Samhengið með Sif i Replaio

Radio og podkaster i én app - gratis og uten registrering. Installer i dag, og ikke gå glipp av lanseringen

Last ned på Google Play

Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.