Gunnar Smári Egilsson
Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: rauda-bordid.simplecast.com
Forfatter
Gunnar Smári Egilsson
Kategori
Podkastens nettsted
Siste episode
11. okt 2026
Hvor kan du lytte?
Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snartPodkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster
Episoder
Miðvikudagur 16. júlí Fréttir, eldar á Reykjanesi, neytendur og umhverfismál. 17.07.2025 2:00:15
Við segjum fréttir Samstöðvarinnar klukkan sjö og ræðum svo eldgosið á Suðurnesjum við Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing og Dagmar Valsdóttir gistihúsaeigandi í Grindavík, en þau sem búa og starfa í bænum eru langþreytt á rýmingu og takmörkunum á rekstri. Við ræðum síðan við Breka Karlsson formann neytendasamtakanna um rukkun fyrir bílastæði, ferðir sem Play fellir niður, netsvik, raforkufrumvarp...
Þriðjudagur 15. júlí Fréttir Samstöðvarinnar, kynlífsverkafólk og mansal, heilbrigðiskerfið í lamasessi og hingaðkoma Ursölu van der Leyen 15.07.2025 2:17:05
Við segjum fréttir með lagi Samstöðvarinnar og ræðum síðan við Renötu Söru Arnórsdóttur og Ara Logn frá Samtökum kynlífsverkafólks um aðgerðir lögreglunnar gegn mansali og vændi. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands og Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands hafa bent á, ásamt öðrum formönnum heilbrigðisstarfsfólks, að vandinn sem ríkisendurskoðun benti á inn...
Mánudagur 14. júlí Fréttir, geðheilbrigðisþjónusta, þingveturinn, Gaza og mótmæli. 15.07.2025 2:25:37
Mánudagur 14. júlí Við byrjum á nýjum fréttatíma Samstöðvarinnar, ræðum söguleg tíðindi hér innan lands og erlendis og förum yfir öll mál ríkisstjórnarinnar sem döguðu uppi í deilum á þingi. Hafsteinn Michael Guðmundsson, fyrrum starfsmaður Mannvirðingar sem hrökklaðist úr starfi vegna kulnunar, lýsir starfsaðstæðum að Jafnaðarseli, nú Reynimel og ræðir um slæman starfsanda, stjórnunarhætti, launa...
Fimmtudagur 10. júlí. Fréttir, Bjarg, upplausn í þinginu og pólitík á suðupunkti 11.07.2025 1:56:20
Við byrjum sumarþátt Samstöðvarinnar klukkan sjö með fréttatíma, förum yfir pólitíkina hér heima sem er við suðumark og segjum aðrar fréttir. Þórhallur Guðmundsson, stjórnsýslufræðingur og félagsráðgjafi, ræðir við Maríu Lilju um frétt okkar um Bjargið. Og síðan förum við yfir fréttir vikunnar og eldfima pólitíkina með góðum gestum: Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Guðmundur Hálfdánarson p...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Páll Óskar 10.07.2025 2:25:33
Fimmtudagur 10. júlí Helgi-spjall: Páll Óskar Páll Óskar Hjálmtýsson segir okkur frá No Borders-tónleikunum sem hann ætlar að syngja á, frá leið sinni út úr skápnum, frá baráttusögu sinni, listinni og ástinni sem hefur heltekið hann.
Miðvikudagur 9. júlí Fréttir, Bjarg, ekki kært, veik sveitarfélög og leigjendur 09.07.2025 1:57:11
Við byrjum sumarþátt Samstöðvarinnar klukkan sjö vegna fótboltans á Ríkissjónvarpinu með fréttayfirlit, förum meðal annars yfir sláandi lýsingar á aðstöðunni á Bjargi, heimili fyrir geðfatlaða. Við ræðum síðan málefni Bjargs við Grím Atlason, framkvæmdastjóra Geðhjálpar og um ákvörðun saksóknara að ákæra ekki menn sem misnotuðu þroskahefta konu við Önnu Láru Steindal, framkvæmdastjóra Þorskahjálpa...
Þriðjudagur 8. júlí. Fréttir, vindmyllur, strandveiði, veiðigjöld og heimsmálin 09.07.2025 1:54:00
Við byrjum sumarþáttinn á Samstöðinni klukkan sjö vegna fótboltans á Ríkissjónvarpinu. Við byrjum á fréttatíma Samstöðvarinnar og förum yfir hitamál hér heima og erlendis. Halla Hrund Logadóttir þingmaður og Andrés Skúlason stjórnarmaður í Landvernd ræða síðan við okkur um vindmyllur í Garpsdal og orkustefnu stjórnvalda. Lilja Rafney Magnúsdóttir þingkona segir okkur frá mikilvægi þess að fá samþy...
Mánudagur 7. júlí Fréttir, peningaleysi í Háskólanum og nýr vinstri flokkur í Bretlandi 07.07.2025 1:59:09
Mánudagur 7. júlí Fréttir á Samstöðinni, peningaleysi í Háskólanum og nýr vinstri flokkur í Bretlandi Við byrjum sumarútsendingar á Samstöðinni klukkan sjö vegna fórboltans á Ríkissjónvarpinu. Við reynum fyrir okkur í að segja fréttir og ræðum helstu hitamál, en fáum svo prófessorana Magnús Karl Magnússon og Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur til að segja okkur frá sviknum loforðum stjórnvalda um aukið...
Rauða borðið 30. júní - Vorstjarna, maraþon, Sanna, Shakespeare, ÍNN, ljóð og Krummi 01.07.2025 6:49:48
Mánudagur 30. júní Vorstjarna, maraþon, Sanna, Shakespeare, ÍNN, ljóð, Krummi Rauða borðið í kvöld verður með sérstöku sniði, uppgjör eftir maraþon beina útsendingu og með fréttum af aðalfundi Vorstjörnunnar.
Rauða borðið - Helgi-spjall: Þóra Karítas 01.07.2025 1:30:30
Laugardagur 28. júní Helgispjall: Þóra Karítas Þóra Karítas Árnadóttir, leikkona, höfundur og framleiðandi, segir Oddnýju Eir frá lífi sínu og list.
Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Tyrfingsson 29.06.2025 2:10:47
Laugardagur 25. Helgi-spjall: Þórarinn Tyrfingsson Þórarinn Tyrfingsson læknir segir okkur baráttusögu sína, frá æsku sinni og uppruna, hvað var það sem mótaði hann, lyfti og skaðaði.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26 28.06.2025 1:42:16
Föstudagur 27. júní Vikuskammtur: Vika 26 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Elísabet Ronaldsdóttir klippari, Haukur Már Helgason rithöfundur, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Magnús Scheving framleiðandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stríð og vopnahléi, málþófi og svörtum skýrslum, valkyrjum og sjarmerandi mönnum.
Rauða borðið 26. júní - Nató-fundurinn 26.06.2025 40:40
Brot úr rauða borðinu 26. júní 2025 Nató-fundurinn Hilmar Þór Hilmarsson prófessor metur niðurstöður Nató-fundarins í samtali við Gunnar Smára.
Rauða borðið 26. júní - Dýrí neyð 26.06.2025 26:20
Brot úr rauða borðinu 26. júní 2025 Dýrí neyð Sandra Ósk Jóhannsdóttir, meistaranemi í glæpasálfræði og dýrfinna mætir til Maríu Lilju og ræðir um sjálfboðaliðasamtökin sem standa í ströngu alla daga við að finna týnd gæludýr. Hún segir lagabreytingu um gæludýrahald í fjölbýlum muni breyta þónokkru til hins betra en dæmi sé um að fólk neyðist til að skilja við dýrin sín vegna flutninga og þá sé ó...
Rauða borðið 26. júní - Getur útgerðin borgað? 26.06.2025 37:09
Brot úr rauða borðinu 26. júní 2025 Getur útgerðin borgað? Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi skattstjóri, fer yfir veiðigjöld og auðlindarentu með Gunnar Smára. Ættum við kannski að setjast niður, fámenn þjóð í stóru landi með miklum auðlindum, og ákveða hvernig auðlindarentunni er ráðstafað?
Rauða borðið 26. júní - Skothvellir 26.06.2025 46:16
Brot úr rauða borðinu 26. júní 2025 Skothvellir
Rauða borðið 26. júní - Sálin í sumarfríi 26.06.2025 39:21
Brot úr rauða borðinu 26. júní 2025 Sálin í sumarfríi Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni, ræðir um ýmsar sálrænar áskoranir í sumarfríinu.
Rauða borðið 26. júní - Feigð fjölmiðla 26.06.2025 40:20
Brot úr rauða borðinu 26. júní 2025 Feigð fjölmiðla Hverju myndi það breyta ef Samstöðin hætti störfum vegna fjárhagsþrenginga? Hvaða samfélagslegur herkostnaður fylgir því að fjölmiðlar heltist úr leik einn á fætur öðrum og blaðamönnum fækki frá degi til dags? Óðinn Jónsson og Björg Eva Erlendsdóttir, fjölmiðlafólk og fyrrum fréttakaukar á Ríkisútvarpinu og Atli Þór Fanndal, ræða við Björn Þorlá...
Rauða borðið 26. júní - Maraþon, fjölmiðlar, Nató, skothvellir, kvíði, kvóti og kettir 26.06.2025 4:22:41
Fimmtudagur 26. júní Maraþon, fjölmiðlar, Nató, skothvellir, kvíði, kvóti og kettir Hverju myndi það breyta ef Samstöðin hætti störfum vegna fjárhagsþrenginga? Hvaða samfélagslegur herkostnaður fylgir því að fjölmiðlar heltist úr leik einn á fætur? Óðinn Jónsson og Björg Eva Erlendsdóttir, fjölmiðlafólk og fyrrum fréttahaukar á Ríkisútvarpinu og Atli Þór Fanndal, ræða við Björn Þorláksson. Hilmar...
Rauða borðið 25. júní - Trump og Ísland 26.06.2025 24:03
Brot úr Rauða borðinu 25. júní 2025 Trump og Ísland Við hefjum leik með viðbrögðum formanns utanríkismálanefndar Alþingis við tíðindum dagsins í Haag. Pawel Bartoszek bregst við tíðindum um að langflest NATO-ríki greiða 5 prósent af þjóðarframleiðslu til varnamála og framlög Íslands stóraukast.
Rauða borðið 25. júní - Óþekkti þingmaðurinn 25.06.2025 1:01:48
Brot úr Rauða borðinu 25. júní 2025 Óþekkti þingmaðurinn Eiríkur Björn Björgvinsson er í hópi nýrra þingmanna. Björn Þorláks rekur garnirnar úr Eiríki og leitast við að kynnast persónulegri hlið hans. Skelfilegt flugslys sem reyndi mikið á Eirík er meðal annars til umræðu.
Rauða borðið 25. júní - Á að kljúfa þjóðina? 25.06.2025 32:31
Brot úr Rauða borðinu 25. júní 2025 Á að kljúfa þjóðina? Þingmenn tala einatt um ykkur og okkur. Þannig er verið að strá efasemdum um að veiðigjöldin séu landsbyggðarskattur og strá þannig auknum efasemdum um veiigjaldamálið. Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifaði leiðara um þetta.
Rauða borðið 25. júní - Utanríkisstefna Íslands 25.06.2025 42:54
Brot úr Rauða borðinu 25. júní 2025 Utanríkisstefna Íslands Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur gagnrýnir valkyrjur ríkisstjórnarinnar fyrir að bjóða landsmönnum upp á óbreytta utanríkisstefnu þrátt fyrir gerbreytta heimsmynd. Hún segir Gunnari Smára hvað vantar í stefnuna.
Rauða borðið 25. júní - Íran 25.06.2025 31:28
Brot úr Rauða borðinu 25. júní 2025 Íran Anahita B, aðgerðarsinni frá Íran um Íran og réttarhöldin gegn Hval hf. Anahita segir frá stríðinu frá sjónarhóli hins almenna Írana, um hvernig þjóðin upplifir sig í raun fasta milli tveggja elda, stríðinu við kúgandi klerka og stríðinu við vesturlönd en báðir aðilar sjá hag sinn í að hefta frelsi og mannhelgi almennings. Þá ræðir hún einnig persónulega b...
Rauða borðið 25. júní - Sumartónleikar 25.06.2025 32:40
Brot úr Rauða borðinu 25. júní 2025 Sumartónleikar Benedikt Kristjánsson, söngvari og skipuleggjandi hátíðarinnar Sumartónleikar í Skálholti, 28. júní - 13. júlí, segir okkur frá stórkostlegri dagskrá tónleikanna í ár sem fagna 50 ára afmæli og eru haldnir til heiðurs Helgu Ingólfsdóttur og mun Jean Rondeau leika á sembalinn hennar. Benedikt ræðir líka um sjálfboðaliðun menningarinnar, um tengsli...
Lignende podkaster
Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.