Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: fotbolti.net

Forfatter

Fotbolti.net

Kategori

Sports

Podkastens nettsted

fotbolti.net

Siste episode

25. nov 2026

Hvor kan du lytte?

Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snart

Podkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster

Last ned på Google Play Installer gratis Android 10 mill.+ nedlastinger · 4,7+ i vurdering iOS snart

Episoder

Miðjan - Grétar Rafn yfirmaður fótboltamála 16.10.2018

Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður, menntaði sig í fótboltafræðunum eftir að skórnir fóru á hilluna og er í dag yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood í ensku C-deildinni. Félagið á sér það markmið að komast upp í Championship-deildina og fer vel af stað á þessu tímabili. Grétar var í stuttri heimsókn hér á landi í vikunni og Fótbolti.net fékk hann í spjall. Hann sagði frá starfi sínu hjá...

Innkast úr Laugardal - Ekki allir sem stóðust próf kvöldsins 15.10.2018

Komið er glænýtt Innkast frá Laugardalsvelli þar sem rýnt var í leik kvöldsins í Þjóðadeildinni, viðureignina gegn Sviss. Elvar Geir Magnússon og Arnar Daði Arnarsson ræddu um leikinn en með þeim var Tómas Þór Þórðarson. Sviss vann 2-1 útisigur. Rýnt var í frammistöðu leikmanna og allt sem tengist leiknum. Hvað á að leggja áherslu á í næsta landsleikjaglugga? Mikilvægi boltastráka, enska landsliði...

Björn Berg Bryde og fréttir vikunnar í íslenska boltanum 13.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum. Björn Berg Bryde var á línunni en þessi hrikalega öflugi miðvörður yfirgaf Grindavík og gekk í raðir bikarmeistara Stjörnunnar. Hann e...

Landsliðsumræða - Frakklandsförin og upphitun fyrir Sviss 13.10.2018

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska landsliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Farið var yfir jafnteflið gegn heimsmeisturum Frakka og frábæra frammistöðu Íslands. Elvar er nýlentur frá Frakklandi og Tómas lýsti leiknum á Stö&eth...

Innkast frá Frakklandi - Pogba skaut út á bílastæði 10.10.2018

Komið er nýtt Innkast frá Frakklandi, þar sem Ísland leikur vináttulandsleik gegn heimsmeisturunum annað kvöld. Elvar Geir Magnússon, Daníel Rúnarsson og Henry Birgir Gunnarsson hituðu upp fyrir leikinn. Rætt var um sýningaræfingu Frakka, líklegt byrjunarlið Íslands, gagnrýni á Þjóðadeildina og fleira.

Nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um knattspyrnu kvenna 10.10.2018

Kominn er í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður um íslenska knattspyrnu kvenna. Fyrsti þáttur varð aðgengilegur í gær en í honum fara þáttastjórnendurnir, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, yfir gang mála í Pepsi-deild kvenna í sumar. Ræða tímabilið og velja bestu leikmenn hvers liðs í deildinni.

Innkastið: Stórleiksvonbrigði en margir sáttir í hlé 07.10.2018

Evrópu-Innkastið fór yfir málin og hvort liðin gangi sátt inn í landsleikjahlé. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon stýrðu þættinum.

Íslenskar leigubílasögur - Heimir til Vancouver? 06.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir slúðursögur úr íslenska fótboltanum og einhverjar staðfestar fréttir. Úr því spunnust ýmsar vangaveltur. Báðir höfðu þeir heyrt, úr ólíkum áttum, að Heimir Hallgrímsson fyrrum landsliðsþjálfari sé á óskalista kanadíska félagsins Vancouver Whitecaps sem spilar í MLS-deildinni bandarísku. Sagan segir að Heimir sé í Vancouver e...

Landsliðsumræða - Margt áhugavert í vali Hamren 06.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það var margt áhugavert í vali Erik Hamren á landsliðshóp fyrir komandi leiki, vináttulandsleiknum gegn heimsmeisturum Frakklands og Þjóðadeildarleiknum gegn Sviss (11. og 15. okt). Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um valið, fr...

Enski boltinn - Staða Mourinho og hitað upp fyrir Liverpool - Man City 06.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um enska boltann. Frétt Mirror um að búið væri að ákveða að reka Jose Mourinho og upphitun fyrir stórleik Liverpool og Manchester City. Kristján Atli Ragnarsson, talsmaður Liverpool á Íslandi, var á línunni.

Innkastið - Evrópuhrærigrautur með smá Liverpool lægð 03.10.2018

Evrópu-Innkastið stóð svo sannarlega undir nafni í kvöld hjá þeim Daníel Geir Moritz og Elvari Geir Magnússyni. Meistaradeildinni var blandað saman við Evrópudeildirnar í ferskri umræðu og staðan í hinum og þessum deildum gerð upp. Meðal efni þáttarins: Krísa &i...

Miðjan - Óskar Hrafn og Arnar Halls gera upp geggjaða deild 02.10.2018

Í Miðjunni þessa vikuna ætlum við að gera upp stórskemmtilegt sumar í 2. deild karla. Deildin var æsispennandi og margir eygðu möguleika á að komast upp. Elvar Geir Magnússon fékk til sín þjálfarana tvo sem komust upp í Inkasso-deildina, Arnar Hallsson hjá Aftureldingu og Óskar Hrafn Þorvaldsson hjá Gróttu, og þeir gerðu upp tímabilið á afar hreinskilinn hátt. Báðir staðfestu að þeir verði áfram v...

Einlægur Eiður Aron: Stoltur að hafa sigrast á spilafíkn 29.09.2018

Eiður Aron Sigurbjörnsson, varnarmaður Vals, mætti í langt og gott spjall við Innkastið eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í dag. Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræddu við hann á Hlíðarenda með Íslandsmeistarabikarinn sjálfan. Eiður Aron var á einlægu nótunum í spjallinu og opnaði sig meðal annars um það að hann hafi verið kominn í skuldir vegna spilafíknar á tíma sínum í...

Innkastið - Lokahóf á Hlíðarenda 29.09.2018

Það er vel við hæfi að síðasta Pepsi-Innkast tímabilsins var tekið upp á Hlíðarenda, eftir að Valsmenn lyftu Íslandsmeistarabikarnum. Elvar Geir, Maggi og Gunni Birgis gerðu upp tímabilið eftir lokaumferðina. Þeir opinberuðu val Fótbolta.net á bestu mönnum mótsins og völdu sjálfir besta leikmanninn í hverju liði deildarinnar. Innkastið þakkar fyrir hlustunina í sumar!

Inkasso-verðlaun og Jói Kalli í viðtali 29.09.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Lokahóf Inkasso-deildarinnar fór fram á föstudag þar sem opinberað var lið ársins og bestu menn. Elvar Geir og Benedikt Bóas fóru yfir valið í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddu við Jóhannes Karl Guðjónsso...

Tryggvi Páll ræddi um vandræði Man Utd 29.09.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tryggvi Páll Tryggvason á raududjoflarnir.is ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas fljótlega eftir 3-1 tap Manchester United gegn West Ham. United er í miklum vandræðum og spurning hvort Jose Mourinho sé rétti maðurinn til að koma liðinu úr þeim?

Miðjan - Einstök þjálfarasaga Heimis Þorsteinssonar 26.09.2018

Miðjan er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem rætt er við skemmtilega viðmælendur sem tengjast boltanum. Viðmælandinn að þessu sinni er hinn grjótharði en manneskjulegi Heimir Þorsteinsson. Heimir er fæddur 1966 og ólst upp á Stöðvarfirði. Hann er hvað þekktastur fyrir að hafa þjálfað Fjarðabyggð, fyrst 2004 og 2005 og síðan frá 2008 - 2012. Hann var hársbreidd frá því að koma Fjarðabyggð í dei...

Innkastið: Chelsea feðgar á ferðinni 24.09.2018

Evrópu-Innkastið gerði upp 6. umferð enska boltans í þætti kvöldsins. Þáttastjórnandi var Daníel Geir Moritz en Elvar Geir Magnússon var fjarri góðu gamni, þar sem hann er í hópeflisferð í Ungverjalandi.

Innkastið: Úrslitastund og skemmtilegar sögur 24.09.2018

Næstsíðasta umferðin í Pepsi-deild karla fór fram í gær og í Innkasti dagsins er farið vel yfir hana. Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir leikina ásamt skemmtikraftinum Hjálmari Erni Jóhannssyni.

Málstofa Pepsi-deildarinnar úr útvarpsþættinum 24.09.2018

Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson voru með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu milli klukkan 12 og 16:00 á laugardaginn en Elvar Geir Magnússon er staddur erlendis.

Miðjan - Brynjar Björn og Leifur ræða um árangur HK 19.09.2018

HK tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni um síðustu helgi og leikur því á meðal þeirra bestu næsta sumar eftir tíu ár í næstefstu og þriðju efstu deild.

Innkastið - Samkvæmisleikur og Evrópubolti 17.09.2018

Evrópu-Innkastið heilsar á þessu fallega mánudagskvöldi. Elvar Geir og Daníel Geir Moritz rýndu í síðustu umferð í enska, litu til Ítalíu og skoðuðu komandi keppni í Meistaradeildinni. Þá fóru þeir í samkvæmisleik og gáfu þeim leikmönn...

Innkastið - Leigubílasögur og bikar á loft 17.09.2018

Það var nóg að gerast í íslenska boltanum um helgina og Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis bjóða upp á langt og öflugt Innkast að þessu sinni. Bikarúrslitaleikurinn, Pepsi-deildin, þjálfarasögur og Inkasso-deildin voru til umræðu. Meðal efnis: Markverðirnir og dómarinn bestir í bikarúrslitaleiknum, aðhlaup Olivers, rauð spjöld og dúfur í Víkinni, er verið að byggja upp lið hjá FH?, löng innkös...

Tilfinningaþrunginn viðskilnaður á Akureyri 15.09.2018

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ræddi við útvarpsþáttinn Fótbolti.net um stærstu fréttirnar á Akureyri. Tufa hættir sem þjálfari liðsins eftir tímabilið en það var staðfest í vikunni. Með hvaða hætti var viðskilnaðurinn og hvað tekur við hjá KA?

Landsliðsumræða - Viljum ekki vondu tímana aftur 15.09.2018

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræða um landsleikina tvo hjá körlunum sem að töpuðust gegn Sviss og Belgíu. Lesin er viðhorfsgrein Ívars Benediktssonar, blaðamanns Morgunblaðsins en hann gagnrýnir þar landsliðsfyrirliða fyrir að mæta ekki í vi&e...

Hør på podkasten Fotbolti.net i Replaio

Radio og podkaster i én app - gratis og uten registrering. Installer i dag, og ikke gå glipp av lanseringen

Last ned på Google Play

Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.