Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: fotbolti.net
Hvor kan du lytte?
Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snartPodkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster
Episoder
Innkast frá Katar - Steikt upplifun 14.01.2019
Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, hafa undanfarna viku dvalið í Katar.
Útvarpsþátturinn með Benna og Mána 13.01.2019
Þrátt fyrir að Elvar Geir Magnússon sé í Katar og Tómas Þór Þórðarson í Þýskalandi þá var útvarpsþátturinn Fótbolti.net á sínum stað á X977. Benedikt Bóas Hinriksson og Þorkell Máni Pétursson leystu af í la...
Miðjan - Heimir Hallgríms fer yfir málin í Katar 09.01.2019
Mánuður er síðan Heimir Hallgrímsson var ráðinn sem þjálfari Al Arabi í Katar. Heimir hefur verið að taka til í leikmannahópnum að undanförnu og koma sínum hugmyndum að.
Miðjan - Guðni Bergs ræðir mótframboð og fleira 09.01.2019
Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku mætti Guðni Bergsson formaður KSÍ í ítarlegt spjall. Guðni er að ljúka tveggja ára kjörtímabili sínu og þarf að sækja nýtt umboð á ársþingi í febrúar þar sem honum mætir mótframboð frá Geir Þorsteinssyni forvera hans í embætti. Hafliði Breiðfjörð ræddi við Guðna á mánudaginn og spjallið má heyra í spilaranum að ofan og öllum helstu Podcast þjónustum.
Innkastið - Inn og út um gluggann 06.01.2019
Janúarglugginn er fyrirferðarmikill í fyrsta Evrópu-Innkastinu á nýju ári. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoðuðu hvað efstu sex liðin ættu að gera í vetrarglugganum. Bikarkeppnin, eigendur í enska boltanum, komandi leikir í úrvalsdeildinni, bestu mennirnir á almanak...
Enska hringborðið - Uppgjör númer tvö 05.01.2019
oppbaráttan var að sjálfsögðu í aðalhlutverki við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Kristján Atla um fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta leikmanninn, besta stjórann og mestu vonbrigðin. Úrvalsliðið: Alisson; Aspilucueta, Van Dijk, Maguire, Robertson, Torreira, Son, Shaqiri, Aubameyang, Kane, Sa...
Hlustaðu á viðtalið við Geir Þorsteins 05.01.2019
Geir Þorsteinsson, heiðursformaður KSÍ, tilkynnti í útvarpsþættinum Fótbolti.net að hann býður sig fram sem formaður KSÍ en ársþing KSÍ fer fram 9. febrúar. Geir býður sig því fram gegn sitjandi formanni, Guðna Bergssyni, sem tók við af Geir fyrir tveimu...
Áramótakæfan - Fótboltaárið 2018 gert upp 29.12.2018
Veglegur áramótaþáttur þar sem fótboltaárið 2017 var gert upp á X977. Umsjónarmenn: Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson. Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum og gleðin var við völd.
Heimavöllurinn - Áramótauppgjör 29.12.2018
Í síðasta þætti ársins af Heimavellinum stikla þáttastýrur á stóru og renna yfir fótboltaárið sem er að líða. Farið verður yfir hvað gerðist í deildum og bikar hér heima og eftirminnileg atvik rifjuð upp. Þá er litið yfir árangur landsliðanna okkar á árinu auk þess sem fjallað verður um atvinnukonurnar okkar.
Innkastið: Rauð jól og bestu í enska 27.12.2018
Það var nóg um að vera í þætti dagsins í Innkastinu hjá þeim Elvari Geir og Daníel Geir. Báðir voru í jólastuði og fóru um víðan völl.
Heimavöllurinn - Ingibjörg Sigurðardóttir í ítarlegu spjalli 23.12.2018
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir er gestur þeirra Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur í nýjasta hlaðvarpsþætti Heimavallarins.
Hvað kemur Solskjær með til Man Utd? 22.12.2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Manchester United var til umræðu. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Tryggva Pál Tryggvason, blaðamann og sérfræðing um Manchester United. Ráðning Ole Gunnar Solskjær var helsta umræðuefnið.
Miðjan - Lífleg Leeds umræða með Mána og Árna 19.12.2018
Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku er lífleg umræða um Leeds United sem er á toppnum í ensku Championship deildinni. Magnús Már Einarsson ræddi við Árna Þór Birgisson formann Leeds klúbbsins á Íslandi og útvarpsmanninn Mána Pétursson.
Óli Kristjáns heimsótti útvarpsþáttinn 17.12.2018
Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi um gang mála hjá Hafnarfjarðarliðinu, síðasta tímabil og fleira. Einnig var rætt um stöðu íslenska boltans og málefni tengd honum.
Innkastið: Risaslagurinn gerður upp og Balotelli horn 16.12.2018
Innkastsbræðurnir Elvar Geir og Daníel Geir ýttu á upptöku strax eftir leik Liverpool og Man Utd. Hafa þeir félagar oft mætt keikari í þáttinn og fór Elvar mikinn í greiningu sinni á liðinu sem hann heldur með.
Miðjan - Draumabyrjun Liverpool og vikur sem ráða úrslitum 12.12.2018
Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku er Liverpool til umfjöllunar. Félagarnir Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson af kop.is mættu í spjall og ræddu allt sem tengist Liverpool.
Innkastið - Ensk sveifla í Meistaradeildinni 11.12.2018
Liverpool og Tottenham verða bæði í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar næsta mánudag. Eftir spennandi Evrópukvöld tóku Elvar og Daníel upp Evrópu-Innkast vikunnar. Riðlar Meistaradeildarinnar voru skoðaðir, rætt um síðustu helgi í ensku deildinni og Katar-ævintýri Heimis. Einnig var hitað upp fyrir Liverpool - Manchester United og reynt að stilla upp sameiginlegu li...
Stóru fótboltamálin með Gumma Ben 08.12.2018
Guðmundur Benediktsson kom í stórskemmtilega heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Stóru fótboltamálin voru tekin fyrir og var víða komið við í spjalli hans við Elvar Geir og Tómas Þór. Enski og íslenski boltinn, landsliðið og fleira var í umræðunni og þá valdi Gummi úrvalslið samherja sinna á ferlinum. Gummi er búinn að gefa út bók sem kallast Stóra fótboltabókin.
Gísli Eyjólfs, Tommadagurinn og VAR 08.12.2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór heyrðu hljóðið í Gísla Eyjólfssyni sem er genginn í raðir Mjällby. Hitað var upp fyrir Tommadaginn sem er á morgun og haldinn til styrktar Tómasi Inga Tómassyni. Spilað var viðtal sem Gau...
Innkastið - Besta byrjun Liverpool og sumarkaupin dæmd 05.12.2018
Evrópu-Innkastið er í boði Ölvers. Elvar og Daníel tóku upp nýtt Innkast eftir 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Leikur hinna lélegu varna, Manchester United - Arsenal, var fyrstur á málefnaskrá. Byrjun Liverpool á tímabilinu kom svo til umræðu og aðrir leikir vikunnar. Einnig voru sumarkaup sex stærstu félaga Englands dæmd og Daníel valdi þrjú bestu kaup sumarsins í deildinni.
Heimavöllurinn - Félagaskiptin í Pepsi-deildinni 05.12.2018
Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir félaggskipti sem hafa átt sér stað eftir að tímabilinu lauk með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur þjálfara ÍA og Lilju Dögg Valþórsdóttur leikmanni KR.
Innkastið - Senur á grannadegi og dráttur metinn 03.12.2018
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoða líflega helgi í enska boltanum! Arsenal fær verðskuldað lof eftir sigur gegn Tottenham, dramatískur sigur Liverpool og enn eitt svekkelsið hjá Manchester United. Farið er yfir úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar, skipað leikmönnum sem ekki spila fyrir eitthvað af þessum sex stóru! Þá er farið yfir dráttinn í undankeppni EM. Magnús Már Einarsson er bú...
Íslenski boltinn - Penni KA á lofti og HK býr sig undir Pepsi 01.12.2018
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fjölluðu um Pepsi-deildina og Tómas sagði frá heimsókn sinni á Akureyri. Hann var viðstaddur þegar KA samdi við öfluga leikmenn í gær. Einn af þeim leikmönnum, Haukur Heiðar Hauksson, var á...
EM drátturinn - Fyrirkomulag og óskamótherjar 01.12.2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Á morgun, sunnudaginn 2. desember, verður dregið í riðla fyrir undankeppni EM. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu möguleikana og fóru yfir fyrirkomulagið í drættinum. Á línunni var Gunnar Gylfason, starfsmaður KSÍ....
Enski boltinn - Grannaslagur Liverpool og Everton framundan 01.12.2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Hitað upp fyrir grannaslags-sunnudaginn og þá sérstaklega viðureign Liverpool og Everton. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Kristján Atla Ragnarsson, sérfræðing um enska boltann, og þá sérstaklega Liverpool.
Lignende podkaster
Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.