Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: fotbolti.net

Forfatter

Fotbolti.net

Kategori

Sports

Podkastens nettsted

fotbolti.net

Siste episode

25. nov 2026

Hvor kan du lytte?

Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snart

Podkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster

Last ned på Google Play Installer gratis Android 10 mill.+ nedlastinger · 4,7+ i vurdering iOS snart

Episoder

Heimavöllurinn - Óvænt ráðning og ætlar til Englands 20.06.2019

Gestur dagsins á Heimavellinum er landsliðsþjálfarinn Jón Þór Hauksson. Nú eru rúmir tveir mánuðir þar til landsliðið okkar hefur leik í undankeppni Evrópumótsins og því við hæfi að ræða við Jón Þór um hans fyrstu mánuði í starfi og verkefnið stóra sem framundan er.

Innkastið - Viðtal ársins og vandræði Vals og Stjörnunnar 19.06.2019

Í ljósi þess hve mikið er í gangi í Pepsi Max-deildinni var ekki annað hægt en að hlaða í nýtt Innkast. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis ræddu helstu umræðuefnin á kaffistofum fótboltaáhugamanna. Meðal efnis: Magnþrungið viðtal við Hannes og meintar verkfallsaðgerðir FH-inga. Sigur Breiðabliks gegn Stjörnunni, endurkoma KR-inga og áframhaldandi vandræðagangur Valsmanna. Evrópumöguleikar íslen...

Innkastið - Sturluð mörk og nýjar sögulínur 16.06.2019

Pepsi-Max deildin hófst aftur með látum eftir landsleikjahlé. 27 mörk voru skoruð í leikjunum sex, KR hirti toppsætið og Íslandmeistarar Vals lyftu sér af botninum.

Útvarpsþátturinn - Brúðkaup ársins, Pepsi Max og landsliðið 15.06.2019

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu helstu fótboltamálin. Í byrjun: Brúðkaup Gylfa 13:30 Pepsi Max-deildin 50:00 Ólafur Ingi Skúlason í viðtali 1:02:55 Landsliðið og Laugardalsvöllur 1:21:00 Inkasso-deildin

Inkasso-hornið - Farið yfir stöðuna í deildinni og spáð í spilin 14.06.2019

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við tvo sérfræðinga um stöðuna í deildinni, fer yfir hvaða lið eru líklegust til að fara upp og falla niður um deild. Í lokþáttar velja sérfræðingarnir síðan það lið sem hefur valdið hvað mestu vonb...

Ástríðan í neðri deildunum - Farið yfir gang mála í 2. deildinni 14.06.2019

Það eru sex umferðir búnar í 2. deildinni og línur farnar að skýrast. Selfoss og Víðir eru á toppi deildarinnar með 13 stig á meðan Tindastóll er á botni deildarinnar ennþá án stig. Atli Jónasson og Óskar Smári Haraldsson eru sérfræðingar í 2. deildinni og settust niður með Arnari Daða Arnarssyni og fóru yfir öll liðin og stöðuna í 2. deildinni. Auk þess var farið yfir næstu umferð í deildinni sem...

Miðjan - Böddi löpp um erfiða tíma hjá fjölskyldunni, sigrana og vonbrigðin 12.06.2019

Böðvar Böðvarsson ólst upp í Hafnarfirði, nánar tiltekið í Kinnunum og lék upp yngri flokkana með FH. Hann er fæddur árið 1995 og lék sinn fyrsta leik í efstu deild sumarið 2013 með uppeldisfélagi sínu FH. Í dag leikur hann með pólska úrvalsdeildarfélaginu, Jagiellonia Bialystok. Böddi löpp, eins og hann er kallaður er gestur Miðjunnar að þessu sinni. Þar fer hann yfir unglingsárin í FH, fyrstu le...

Innkastið - Þvottaburst gegn bálreiðum Tyrkjum 11.06.2019

Það er komið nýtt landsliðs-Innkast! Beint frá Laugardalsvelli. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már horfðu á Ísland vinna gríðarlega mikilvægan sigur gegn Tyrklandi. Rætt er um stórfurðulegan aðdraganda að leiknum, pirringinn í gestum okkar, frammistöðu liðsins, hvaða þýðingu þetta hefur fyrir Erik Hamren og íslensku þjóðina!

Ítalski boltinn - Uppgjör tímabilsins 10.06.2019

Björn Már Ólafsson, helsti sérfræðingur Íslendinga um ítalska boltann, gerir upp tímabilið í ítölsku A-deildinni. Í þessum þætti ræðir Elvar Geir við Björn Má um tímabilið og þjálfarakapalinn sem er í gangi. Hvar er mesta gleðin og hv...

Innkastið - Íslenski neistinn lifir enn 08.06.2019

Sérstakur landsliðsþáttur af Innkastinu var tekinn upp á Laugardalsvelli beint eftir 1-0 sigurinn gegn Albaníu. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir leikinn og fengu til sín góðan gest, Frey Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfara.

Útvarpsþátturinn - Að duga eða drepast fyrir landsliðið 07.06.2019

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er með öðruvísi sniði þessa vikuna og er frumfluttur í hlaðvarpsformi. Ástæðan er sú að leikur Íslands og Albaníu í undankeppni EM verður flautaður á meðan þátturinn er í gangi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir landsleikina og skoða það sem framundan er í íslenska boltanum.

Heimavöllurinn - Heimsmeistaramótið er að hefjast 06.06.2019

Það er komið að því. Flautað verður til leiks á Heimsmeistaramótinu á föstudagskvöld. Það er því við hæfi að þáttur vikunnar á Heimavellinum sé tileinkaður stórmótinu.

Miðjan - Emil ræðir erfitt tímabil á Ítalíu, landsliðið og framtíðina 06.06.2019

Íslenska landsliðið leikur á laugardaginn leik gegn Albaníu í undankeppni EM 2020. Hafnfirðingurinn, Emil Hallfreðsson leikmaður Udinese í Serie A á Ítalíu er í hópnum en hann er kominn til baka eftir erfið meiðsli. Emil settist niður með Arnari Daða Arnarssyni og fór yfir landsleik...

Innkastið - Íslandsmeistarar í botnsæti 03.06.2019

Sögulínurnar verða bara stærri og merkilegri í Pepsi Max-deildinni! Valsmenn eru í neðsta sæti þegar sjö umferðir eru búnar. ÍBV kom öllum á óvart með því að vinna ÍA og Breiðablik var í miklum ham gegn FH. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis f&...

Umdeilt val á Kolbeini 02.06.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Framundan eru landsleikir á Laugardalsvelli, gegn Albaníu næsta laugardag og svo gegn Tyrklandi þremur dögum síðar. Um er að ræða gríðarlega mikilvæga leiki í undankeppni EM. Landsliðshópurinn var opinberaður á fr&eacu...

Almarr ræðir um vítið sem allir eru að tala um 02.06.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Almarr Ormarsson, leikmaður KA, var á línunni og ræddi meðal annars um vítspyrnukeppnina gegn Víkingi Reykjavík í Mjólkurbikarnum. Almarr tók spyrnu í keppninni og flestir telja að boltinn hafi verið inni en aðstoðardóma...

Evrópuboltinn - Jóhann Már um tímabilið hjá Chelsea 02.06.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Benedikt Bóas stýrðu þættinum að þessu sinni. Þeir ræddu um úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hjörvar Hafliðason var í beinni frá Madríd. Þá ræddi Jóhann Már Helgason, stuðningsma&...

Heimavöllurinn - Fulltrúi Pepsi Max á HM og unglingar í A-landsliðið 31.05.2019

Það er ýmislegt í umræðunni í nýjasta þætti Heimavallarins en þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir helstu atburði síðustu daga með gesti þáttarins, Brynju Dögg Sigurpálsdóttur. Þær fara yfir tvær síðustu umferðir Pepsi Max-deildarinnar, spjalla um neðri deildirnar og heyra í Betsy Hasset, leikmanni KR og Nýja Sjálands, sem er á leið á sitt þriðja Heimsmeistaramót.

Inkasso-hornið - Rafn Markús og áhugaverður árangur hans með Njarðvík 30.05.2019

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við Rafn Markús Vilbergsson þjálfara Njarðvíkur sem hefur náð áhugaverðum árangri með liðið síðan hann tók við því í mikilli fallbaráttu í 2. deildinni sumarið 2016.

Innkastið - Óður til Sarri og Liverpool sameinað Spurs 29.05.2019

Lokaþáttur Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið! Sportbarinn Ölver í Glæsibæ býður þér upp á þáttinn! Elvar og Daníel ræddu málin eftir að Chelsea rúllaði yfir Arsenal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Daníel var sár og svekktu...

Innkastið - Hvaða þjálfarasæti eru farin að hitna? 26.05.2019

Það er komið að Innkastinu eftir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis, Magnús Már og Tómas Þór ræða málin. Meðal efnis: Hvaða þjálfarasæti eru farin að hitna í deildinni? Valsvandræðin, Íslandsmeistaravonir Skagamanna, ummæli Rúnars Kristins um Bjögga Stef, enginn átti að fá stig í Kórnum, Gunni giskar og Inkasso hornið.

Enska hringborðið - Enskir úrslitaleikir framundan 25.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool og sérfræðingur þáttarins um enska boltann, mætti við enska hringborðið með Elvari og Tómasi. Hann gerði upp tímabilið á Englandi, valdi besta leikmanninn og mestu vonbrig&e...

14 dagar í landsleikina mikilvægu á Laugardalsvelli 25.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um komandi landsleiki gegn Albaníu og Tyrklandi sem verða á Laugardalsvelli 8. og 11. júní. Leikirnir eru í undankeppni EM og Ísland þarf helst að sækja sex stig úr þessum tveimur leikjum....

Pepsi Max umræða - Lætin í kringum Gary Martin og Bjögga Stef 25.05.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hituðu upp fyrir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Tvö helstu fréttamál vikunnar í deildinni voru til umræðu. Gary Martin hefur gert starfslokasamning við Val og Björgvin Stefánsson, sóknarmaður KR, á yfir höfði sér fimm leikja bann eftir rasísk ummæli í lýsingu á leik í Inkasso-deildinni.

Inkasso-hornið - Rætt um öll liðin eftir áhugaverða byrjun 21.05.2019

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum fyrsta þætti ræðir hann við tvo sérfræðinga um byrjun deildarinnar en þrjár umferðir eru að baki. Baldvin Már Borgarsson, fréttaritari Fótbolta.net, og Úlfur Blandon, þjálfari Þróttar í Vogum, skoðuðu öll liðin og s...

Hør på podkasten Fotbolti.net i Replaio

Radio og podkaster i én app - gratis og uten registrering. Installer i dag, og ikke gå glipp av lanseringen

Last ned på Google Play

Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.