Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: fotbolti.net

Forfatter

Fotbolti.net

Kategori

Sports

Podkastens nettsted

fotbolti.net

Siste episode

25. nov 2026

Hvor kan du lytte?

Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snart

Podkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster

Last ned på Google Play Installer gratis Android 10 mill.+ nedlastinger · 4,7+ i vurdering iOS snart

Episoder

Enski boltinn snýr aftur - Verður skrítinn fögnuður í Liverpool 30.05.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu um endurkomu enska boltans en tímabilið fer aftur af stað 17. júní. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um Liverpool, var á línunni.

Pepsi Max hringborð - Umræður eftir æfingaleikjaviku 30.05.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu helstu tíðindi vikunnar úr íslenska fótboltanum. Þá er Hafliði Breiðfjörð í beinni frá Kaplakrika þar sem Emil Hallfreðsson skoraði í æfing...

Niðurtalningin - Nýr fyrirliði Fylkis og endurkoma fótboltans 26.05.2020

Ragnar Bragi Sveinsson, nýr fyrirliði Fylkis, er gestur vikunnar. Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Ragnar Bragi ræðir við Elvar Geir og Magnús Má um það sem er efst á baugi í fótboltanum og hvernig sumarið lítur út í Árbænum.

Ástríðan - Sérfræðingar spá í 3. deildina 26.05.2020

Ástríðan fékk tvo sérfræðinga til að spá fyrir um 3. deildina í sumar. Farið var yfir liðin og lykilmenn þeirra. Atli Jónasson og Ingimar Finnsson voru gestir Óskars Smára Haraldsson. Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.

Heimir Guðjóns í ítarlegu viðtali um fótboltasumarið 24.05.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Heimir Guðjónsson kom í hljóðver og ræddi um komandi tímabil í Pepsi Max-deildinni. Heimir er tekinn við Val og fær það verkefni að koma liðinu aftur á toppinn eftir vonbrigðin í fyrra. Í viðtalinu ræðir...

Axlabandalið Pepsi Max og fyrirliðapælingar 24.05.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir Pepsi Max-deildina. Þeir skoða fyrirliðahræringar deildarinnar en þær hafa verið miklar í vetur. Þá opinberar Tómas 'axlarbandaliðið', úrvalslið leikmanna sem þurfa að s...

Miðjan - Janus var landsliðsmaður í handbolta og fótbolta 22.05.2020

Janus Guðlaugsson var á sama ári landsliðsmaður í handbolta og fótbolta, endaði í þriðja sæti í langstökki í bikarkeppni FRÍ og þjálfaði vonarstjörnur þjóðarinnar til Íslandsmeistaratitils í 2. flokki í handbolta. Seinni varð hann atvinnumaður í Þýskalandi í nokkur ár og fékk eftir ferilinn það verkefni að bjarga KR frá falli. Janus segir sögu sína í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í d...

Ástríðan - Markahrókurinn Alexander 21.05.2020

Alexander Már Þorláksson, leikmaður Fram, er gestur í Ástríðunni að þessu sinni. Alexander Már var markahæsti leikmaður 3. deildarinnar í fyrra þegar hann skoraði 28 mörk í 21 leik með KF, sem fór upp um deild. Alexander Már fór yfir ótrúlegt tímabil sitt í fyrra, skoðaði helstu fréttir undanfarna daga og ræddi getumuninn á milli deilda. Leikmannamarkaðurinn er farinn á fullt eftir Covid 19, en þa...

Heimavöllurinn - Spá fyrir Pepsi Max 2020 20.05.2020

Í nýjasta þætti Heimavallarins er boðið upp á spá fyrir Pepsi Max deild kvenna sem hefst eftir 3 vikur. Gestur þáttarins er Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og hún ræðir komandi tímabil við þáttastýrurnar Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Verja Valskonur Íslandsmeistaratitilinn? Halda nýliðarnir sér uppi? Hvaða lið gerðu vel á félagaskiptamarkaðnum? Hvaða leikmenn verða mikilvægastar sínum liðum? Þet...

Niðurtalningin - Gústi og Gróttusumarið 19.05.2020

Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Í þessum öðrum þætti er byrjað á fótboltafréttayfirliti og svo er rætt við Ágúst Gylfason, þjálfara Gróttu, um komandi tímabil. Hann kemur meðal annars með sína spá um Íslandsmeistara í sumar. Um...

Bikarmeistararnir Ágúst Hlyns og Óttar Magnús 16.05.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Gestir þáttarins voru Ágúst Eðvald Hlynsson og Óttar Magnús Karlsson, ungir leikmenn bikarmeistara Víkings. Báðir fóru þeir mjög ungir erlendis í atvinnumennsku en eru í dag lykilmenn hjá Víkingum.

Boltahringborð - Sögulínur sumarsins í Pepsi Max 16.05.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson tóku fyrir nokkur umræðuefni fyrir Pepsi Max-deild karla í sumar. Hvernig verða sögulínur deildarinnar? Skemmtileg umræða um íslenska boltann. Daníel Geir Moritz, eigandi ÍBV, var einnig á línunni.

Miðjan - Augnabliks fíflalæti og fyndnar sögur 13.05.2020

Í lok ársins 1981 var knattspyrnufélagið Augnablik stofnað en lið þeirra vakti mikla athygli næstu árin fyrir almenn fíflalæti og uppákomur. Fræg er til dæmis sagan af því þegar reynt var að stofna félagið hjá ÍSÍ. Jón Orri Guðmundsson og Andrés Pétursson rifja upp gamla tíma í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Stofnað í lok ársins 1981 - Ekki allir sáttir við stofn...

Niðurtalningin - Maggi Bö og skemmtilegustu vellirnir 12.05.2020

Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Þáttur dagsins hefst á fótboltafréttayfirliti og svo er rætt við Magnús Val Böðvarsson, vallarstjóra KR, um vallarmálin á Íslandi. Hann velur skemmtilegustu velli landsins og er settur í létta sp...

Ástríðan - Sumarið framundan í 2. og 3. deild 11.05.2020

Það styttist óðum í fótboltasumarið og því er tímabært að setjast niður og ræða neðri deildirnar. Að þessu sinni var athyglin á 2. og 3. deild. Baldvin Már Borgarsson, aðstoðarþjálfari Ægis, og Óskar Smári Haraldsson, leikmaður Tindastóls, þekkja deildirnar betur en flestir og voru fengnir til þess að koma með áhugaverða umræðupunkta. Ingólfur Sigurðsson stýrði umræðunum. Meðal efnis: - Bikarkeppn...

Atli Sigurjóns um hæðir og lægðir - „Var erfitt að mótivera sig" 09.05.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Atli Sigurjónsson, leikmaður Íslandsmeistara KR, kom í hljóðver í skemmtilegt spjall. Atli var hreinskilinn þegar hann horfði til baka á ferilinn og viðurkennir að metnaður sinn fyrir íslenska fótboltanum hafi ekki verið nægilega mikill þegar hann sá drauma um atvinnumennsku erlendis hverfa. Honum líður gríðarlega vel hjá KR og sér sig ekki snúa aftur til Ak...

Ótímabær spá fyrir Pepsi Max byggð á sandi - Blaut tuska fyrir Fjölni 09.05.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir nýja ótímabæra spá fyrir Pepsi Max-deildina. Spá sem er byggð á sandi! Í klippunni er einnig viðtal við Ásmund Arnarsson, þjálfara Fjölnis. Grafarvogsliðið missti fyrirliða sinn þegar Bergsveinn Ólafsson tilkynnti að hann væri ekki lengur með áhuga fyrir fótbolta og lagði skóna óvænt á hilluna.

Miðjan - Bjarnólfur var til í að koma nakinn fram fyrir frægðina 06.05.2020

Bjarnólfur Lárusson var tilbúinn að gera allt fyrir frægðina, meðal annars að koma nakinn fram. Hann var atvinnumaður í Englandi og Skotlandi en sneri svo heim og þótti óheiðarlegur leikmaður sem fékk ótal spjalda. Hann var líka lengi Íslandsmethafi í kúluvarpi. Bjarnólfur er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net. Meðal efnis: - Stofnaði ráðgjafafyritæki í haust - Hluthafi í...

Heimavöllurinn: Varamaður úr KR keyptur fyrir metupphæð í Hruninu 02.05.2020

Anna Björk Kristjánsdóttir var leggjalangur framherji í yngri flokkunum. Þegar hún var 18 ára gömul var hún ennþá varamaður í KR og hafði einungis spilað 11 leiki í efstu deild. Hún gekk í gegnum mikinn missi sumarið 2008 sem hafði mikil áhrif á hennar næstu skref. Máni Pétursson sannfærir hana um að koma í miðlungslið Stjörnunnar og hún endar á því að spila 168 leiki fyrir Stjörnuna, vera goðsögn...

Útvarpsþátturinn - Þórsarar og Magni Grenivík 01.05.2020

Seinni hluti af norðurferð útvarpsþáttarins Fótbolti.net, Halló Akureyri! Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas heimsækja 1. deildarfélögin Þór og Magna í þessum seinni hluta. Rætt er við Pál Viðar Gíslason þjálfara Þórs og formanninn Óðinn Svan Óðinsson. Þá var Heimir Ásgeirsson, Eyjabitakóngur og Magnamaður, heimsóttur í nýtt vallarhús Magna á Grenivík.

Útvarpsþátturinn - Halló Akureyri! Heimsókn til KA 30.04.2020

Fyrri hluti af norðurferð útvarpsþáttarins Fótbolti.net, Halló Akureyri! Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas heimsækja KA í þessum fyrri hluta en seinni hlutinn kemur inn á morgun. Rætt er við Hallgrím Jónasson, spilandi aðstoðarþjálfara KA, og framkvæmdastjóra félagsins, Sævar Pétursson. Þá var sagt frá því hvernig dreifa á leikjum fyrstu umferðar Pepsi Max-deildarinnar og rætt um fréttirnar a...

Fantabrögð - Draumaliðsdeild Eyjabita - upphitunarþáttur 29.04.2020

Draumaliðsdeild Fótbolti.net og Eyjabita er farin af stað, en stefnt er að því að Pepsi Max deild karla hefjist 13. júní. Eins og undanfarin ár velur fólk 15 leikmenn úr liðunum 12 og má mest hafa 3 leikmenn úr hverju liði. Leikmenn kosta á bilinu 4 til 12 milljónir króna en þjálfarar hafa 100 milljónir til að kaupa leikmenn. Þeir Fantabragðabræður Aron og Gylfi fóru yfir málin og opinberuðu sitt...

Fótbolta Quiz Þorkels - Lokakeppnin 29.04.2020

Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er sjöundi miðvikudagurinn í samkomubanni og sjöunda og síðasta spurningakeppni Þorkels, í bili að minnsta kosti, er komin í loftið. Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði...

Miðjan - Gummi Torfa valdi fótboltaferil fram yfir tónlistina 27.04.2020

Guðmundur Torfason var í hljómsveitum með Mezzoforte strákunum og hefði getað orðið næsti Björgvin Halldórsson en valdi farsælan fótboltaferil framyfir það. Hann heillaði meðal annars Sir Alex Ferguson þegar hann skoraði þrjú, eða fjögur, mörk í sama leiknum á Old Trafford. Gummi Torfa fór yfir ferilinn í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Uppvaxtarárin í Vestmannaey...

Heimavöllurinn - Tilbúin í sitt tuttugasta tímabil 24.04.2020

Heimavöllurinn er laus úr sóttkví og það er nóg um að vera í þætti dagsins. Leikjahæsti leikmaður Pepsi Max, landsliðskonan og Íslandsmeistarinn Sandra Sigurðardóttir, er á leið inn í sitt tuttugasta tímabil og kíkir í heimsókn. Hildur Antonsdóttir opinberar hvaða andstæðingar hafa reynst henni erfiðastir og þeir erlendu leikmenn sem hafa skarað fram úr hérlendis eru til umræðu.

Hør på podkasten Fotbolti.net i Replaio

Radio og podkaster i én app - gratis og uten registrering. Installer i dag, og ikke gå glipp av lanseringen

Last ned på Google Play

Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.