Ari Óskar Víkingsson, Friðrik Snær Björnsson
Bókakaffi
Hér verður skeggrætt um góðar bækur og drukkið gott kaffi.
Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: podcasters.spotify.com
Forfatter
Ari Óskar Víkingsson, Friðrik Snær Björnsson
Kategori
Podkastens nettsted
Siste episode
30. okt 2026
Hvor kan du lytte?
Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snartPodkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster
Episoder
#7 Öld ímyndunaraflsins - Bergur Ebbi 30.10.2026 1:20:47
Öld ímyndunaraflsins er hugmyndaferðalag þar sem höfundur glímir við umfangsmesta viðfangsefni heimsins síðustu misserin, gervigreindina. Hann fer um víðan völl eins og honum einum er lagið og snertir bæði á almennum málefnum, eins og samfélagsmiðlum og byggðastefnu, sem og persónulegum upplifunum og áföllum. Einkunnagjöf: Boðskapur: Ari - 3,5 / Friðrik - 3,5 Tilfinningaáhrif: Ari - 4 / Friðrik -...
#6 Lífsreglurnar fjórar - Don Miguel Ruiz 28.09.2026 1:10:04
Einföld og kjarnyrt sjálfsstyrktarbók þar sem settar eru fram fjórar lífsreglur sem óhætt er að mæla með að lifa eftir. Kanónur eins og Halla Tómasdóttir, forseti íslenska lýðveldisins, og Páll Óskar hjálmtýsson, einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar, hafa dásamað þessa bók og áhrif hennar á líf sitt. Reglurnar fjórar eru eftirfarandi: 1. Vertu flekklaus í orði 2. Ekki taka neitt persónulega 3. Ekk...
#5 Ódysseifskviða - Hómer 25.08.2026 1:30:45
Ódysseifskviða er eitt elsta varðveitta stórvirki heimsbókmennta. Sagan hafði borist munnlega frá kynslóð til kynslóðar áður en hún var rituð af forngríska skáldinu Hómer fyrir um 2700 árum. Hér er farið yfir þessa merkilegu sögu og bókin, í stórkostlegri 19. aldar þýðingu Sveinbjarnar Egilssonar, borin saman við nýútkomna Hollywood-endurgerð sögunnar eftir Cristopher Nolan. Hverju breytir Nolan f...
#4 - Egils saga 23.07.2026 2:33:14
Egils Gull Lite, Egilshöll og Silfur Egils… Forfaðir okkar Egill Skallagrímsson lifir enn með okkur í alls kyns myndum. Hann var bardagamaður mikill með girnd fyrir sífellt meira silfri og landi. Á sama tíma hafði hann mannlega hlið sem birtist í hjartnæmum ljóðum sem hann orti eftir þunglyndisköstin sín. Þessi þáttur er bæði fyrir þá sem hafa lesið bókina og þá sem hafa ekki gert það. Við lok hlu...
#3 Bókin um veginn - Lao Tse 26.06.2026 1:21:45
Bókin um veginn er 2500 ára gömul lífsspekibók sem hefur lifað af ástæðu. Farið er yfir vítt svið í þættinum, allt frá tilurð heimsins niður í anarkisma Jóns Gnarr. Bókin snertir á trúarmálum, stjórnmálum, hermálum og einstaklingnum og ákjósanlegum lífsháttum hans. Bókin er einungis 84 blaðsíður, skrifuð í stuttum setningum sem eru í stóru letri. Þetta þýðir að ef þú nennir að hlusta á þáttinn þá...
#2 Sjálfstætt fólk - Halldór Kiljan Laxness 24.05.2026 1:50:16
Hér er farið yfir eitt af meistaraverkum nóbelskálds þjóðarinnar. Er Bjartur í Sumarhúsum enn til í nútímasamfélagi? Er ást hans á Ástu Sóllilju sönnun þess að allir eigi sína mjúku hlið? Vangaveltur eins og þessar eru ræddar en einnig er farið í hávísindalega ritdóma með formfastri einkunnagjöf (0-5 stjörnur) og fylgir hún hér að neðan: Karakterar: Ari - 5 / Friðrik - 5 Sögusvið: Ari - 4 / Friðri...
#1 Breyttu hugarfari þínu, breyttu lífi þínu - Bob Proctor 10.04.2026 55:37
Hljóðbókin Change Your Paradigm, Change Your Life eftir Bob Proctor mun breyta lífi þínu.
Lignende podkaster
Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.