RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: www.ruv.is
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Ósmann, arkitektúr og geðheilbrigði #3 og Kosmískt skítamix/rýni 09.12.2025 47:01
Við Vesturós Héraðsvatna um aldamótin 1900 bjó heljarmennið Jón Magnússon sér byrgi, og þar starfaði hann í 40 ár við að ferja menn og skepnur yfir stórfljótið. Ósmann var einstakur karakter, mannvinur, veiðimaður og skáld, og saga hans vakti áhuga rithöfundarins Joachim Schmidt, sem búsettur hefur verið á Íslandi síðustu 20 ár. Joachim segir okkur af skáldsögunni Ósmann í síðari hluta þáttar. Hil...

Morðhórur, Ó eilífi foss og Útreiðartúrinn/rýni 08.12.2025 49:38
Ófeigur Sigurðarson lítur við í hljóðstofu, en hann þýddi nýverið smásagnasafn chileska rithöfundarins Roberto Bolaño, Putas asesinas, eða morðhórur í íslenskri þýðingu Ófeigs. Smásögurnar í safninu eru álitnar með því besta sem höfundurinn gaf frá sér og í því koma öll hans helstu einkenni og efnistök; kynferðismál, ofbeldi, ljóðlist, glötuð æska og umkomuleysi í framandi heimi. Ó eilífi foss sem...

Í ísbúð Steinunnar Arnbjargar og Bach-að um jólin með Davíð Þór og Tómasi Guðna 04.12.2025 49:26
Við kynnum okkur nýútkomna plötu sellóleikarans og ljóðskáldsins Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur, sem hún kallar Í ísbúð/Radość życia. Platan er eins konar portrett af Íslandi, sprottin úr tónleikaferð sem hún hélt í, ásamt tveimur öðrum flytjendum sem búsettir eru á Norðurlandi. ,,Einu sinni áttu öll börn á Íslandi sveit. Nú á Ísland mörg tungumál," - segir Steinunn, og útskýrir með því efnis...

Söngfjelagið, Dugguvogur 42 og myndlistarrýni Rögnu Sigurðardóttur 03.12.2025 50:35
Við hefjum þáttinn á því að líta út úr húsi með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði, til að ræða Dugguvog 42, hús sem Gunnar Guðmundsson byggði fyrir G.G. hf. Húsið er hluti af listasögu borgarinnar því Gunnar fór í samstarf við enga aðra en Gerði Helgadóttur sem útfærði vegglistaverk á Dugguvog 42, innblásin af vélum og bílavarahlutum. Hilmar Örn Agnarsson, kórstjóri Söngfjelagsins, lítur við í hljó...
Mynd&hand skólasaga, Hildigunnur Sverrisdóttir pistill, Blái pardusinn hljóðbók/rýni 02.12.2025 48:46
Saga myndlistar og handíðaskólans, sögur inni í sögum og utangarðssaga fólks með geðræna kvilla, - sögur af ýmsum gerðum einkenna viðfangsefni Víðsjár dagsins. Við kynnum okkur líka jóladagatal Árnastofnunar, sem einmitt inniheldur ýmsa sögulega mola, og minnumst stuttlega hins merkilega myndlistarmanns, Kristjáns Guðmundssonar, sem lést nýverið og markaði mikilvæg spor í sögu íslenskrar myndlista...
Allt frá hatti oní skó, Hvít hljóð og Allt sem við hefðum getað orðið/rýni 01.12.2025 49:42
Í gallerí SÍM við Hafnarstræti 16 stendur nú yfir samsýning myndlistarkonunnar Kristínar Elvu Rögnvaldsdóttur og ljóðskáldsins Guðbjargar Guðmundsdóttur, Hvít hljóð og nokkur Ílát. Þar fá ílát sem alla jafna er hent út á heimilum landsmanna óvænt mikilvægi og teiknaðar tilfinningaveirur stökkva fram úr ljóði sem skrifað var á vökudeildinni. Kvennasagan, og götin í henni, spilar líka stórt hlutverk...

Piparmeyjar, Wadada Leo Smith, jólakettlingar í Eyjafirði og Þegar mamma mín dó/rýni 27.11.2025 47:07
Nýlega lék jazzgoðsögnin Wadada Leo Smith á stappfullum tónleikum í Iðnó, í lok sinnar síðustu tónleikaferðar um Evrópu eftir 60 ára feril. Wadada hefur sótt Ísland heim í nígang og haft mikil áhrif á íslensku jazzsenuna og Tumi Árnason ætlar að segja okkur af því í þætti dagsins. Við hringjum líka norður í Eyjafjörð, því þar tekur myndlistarkonan Aðalheiður Eysteinsdóttir vel á móti fólki á aðven...
Sigurður Ámundason / Svipmynd 26.11.2025 51:23
„Listamenn eru eins og prestar,” segir Sigurður Ámundason myndlistarmaður, sem fylgir Víðsjá út í Gróttuvita í dag. „Við fjöllum um mannlega breiskleika, samfélagið og tölum um tilfinningar. Munurinn á myndlistarmönnum og prestum er að myndlistarmenn predika ekki. Við felum alltaf það sem við erum að reyna að segja.” Sigurður sýnir um þessar mundir í vitanum og vitavarðahúsinu. Sýningin sem kallas...

Úlfar Þormóðsson, Rán Flygenring, Arkitektúr og geðheilbrigði 25.11.2025 52:53
Úlfar Þormóðsson kemur til okkar með nýja bók. Bókina sendi hann frá sér fyrir stuttu en til þess þurfti hann að leita til annars forlags en því sem vanalega hefur verið með hans bækur á sínum snærum. Í bókinni fjallar Úlfar um endurkomu stóra málverkafölsunarmálsins inn í íslenska umræðu; segir frá viðbrögðum sínum og tilfinningum en einnig ýmsu fleiru og sumu átakanlegu. Blaka er nýjasta hugarsm...

Helga Páley Friðþjófsdóttir í Þulu, Tríó Sunnu Gunnlaugs, Þú sem ert á jörðu/rýni 24.11.2025 49:19
Við höldum í Gallerý Þulu á sýninguna Í hringiðu alls, þar sem Helga Páley Friðþjófsdóttir sýnir ný málverk. Málverkið hefur lengi verið kjarninn í hennar listrænu nálgun, þar sem óhlutbundinn veruleiki verður til í gegnum marglaga ferli þar sem spuni, innsæi og endurtekning leika stóran þátt. En líka tíminn og auðvitað efinn. Sunna Gunnlaugsdóttir jazzpíanisti verður einnig gestur okkar í dag en...

Heima Judith Hermann, RDF rýni, myndlistarpistill Rögnu og hafnar.space 20.11.2025 52:45
Minna fer fyrir þýddum bókum en íslenskum í jólabókaflóðinu, en við ætlum að bæta úr því í þætti dagsins og fá til okkar einn af okkar færustu þýðendum í hljóðstofu, Elísu Björgu Þorsteinsdóttur. Hún þýddi nýlega skáldsögu Judith Hermann, Heima, en Hermann er einn fremsti höfundur hins þýska bókmenntaheims og mörgum íslenskum lesendum vel kunn. Katla Ársælsdóttir fór nýverið á Reykjavík Dance Fest...

Guðrún Hannesdóttir - svipmynd 19.11.2025 49:15
Guðrún Hannesdóttir fæddist þann 18. júní árið 1944 og fagnaði því áttræðisafmæli sínu í fyrra. Hún nam listasögu í Lundi og síðar bókasafnsfræði við Háskóla Íslands, starfaði lengst af sem bókasafnsfræðingur og hafði meðal annars umsjón með bókasafni Myndlistarskólans í Reykjavík. Fyrsta ljóðabók Guðrúnar, Fléttur, kom út árið 2007, og sama ár hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör. Síðan hefur Guðrún ge...

Jötunsteinn Andra Snæs, Ásmundur Ásmunds í Glerhúsinu og Staðreyndirnar/rýni 18.11.2025 56:23
Í Glerhúsinu opnaði nýverið einkasýning Ásmundar Ásmundssonar, sem hann vann í samstarfi við ofurgreindina og myndræn verkfæri hennar. Kveikjan að verkinu er skemmdarverkið á Nord Stream 2 gasleiðslunni í september árið 2022, umfangsmiklu umhverfis og efnahagshryðjuverki sem hefur dvalið í djúpinu og undirvitundinni síðan, en Ásmundur gerir tilraun til að kalla fram með samtali við nútímavölvuna....

Dularfullar raddir skelja, Frumbyrjur, Booker og arkitektúr og fegurð 17.11.2025 55:03
Um helgina opnaði nýtt innsetningarverk Höllu Steinunnar Stefánsdóttur, Af dularfullum röddum skelja, í Náttúrusafni Kópavogs. Tilefnið er að margrómað skeljasafn Jóns Bogasonar er þar nú aftur til sýnis. Við hlustum eftir röddum skelja í Víðsjá dagsins og heyrum líka þrettánda pistil Óskars Arnórssonar um arkitektúr, sem tileinkar þennan síðasta pistil sinn arkitektúr og fegurðinni. En við byrjum...

Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici