Sigrún
Þitt Sanna Sjálf Podcast
Þitt Sanna Sjálf er meira en bara podcast. Þetta er vettvangur þar sem þú getur sótt í endurtekna hlustun sem tæki til að hafa smám saman áhrif á sýn þína á sjálfan þig og lífið. Hér finnur þú blöndu af hvatningu og hugleiðslum sem hannaðar eru til að dýpka meðvitund þína. Lífið byggir oft veggi í kringum okkur sem erfitt getur verið að sjá í gegnum. Markmiðið með þessum upptökum er að hjálpa þér að komast inn fyrir þessa veggi með samkennd og leyfa þínu sanna sjálfi að taka forystuna.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: www.buzzsprout.com
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Hugleiðsla 1 - Tengjast inn á við 11.06.2026 10:44
Þessi 10 mín hugleiðsla er grunnurinn að komandi hugleiðslum. Það er engin úrvinnsla aðeins að tengjast inn á við, venjast því að skanna líkamann, leyfa þér að vera eins og þú ert núna og finna fyrir þessari orku sem þú nærð að skapa innra með þér.
Þáttur 2: IFS partavinna 07.05.2026 26:15
Með þessum þætti langar mig að kynna IFS eða partavinnu út frá mínum skilningi og reynslu til að varpa vonandi ljósi á innra landslagið hjá þér. Ég næ vonandi að sýna þér hvað margt er djúpt en á sama tíma einfalt út frá IFS fræðum. Þessi þáttur er einnig hugsaður til að undirbúa þig fyrir komandi hugleiðslur.
Þáttur 1: Kynning 27.03.2026 10:48
Jæja þá byrjar ballið aftur, núna með meiri visku, samkennd, skilning og yfirsýn. Ég hlakka til að deila meira af mínu sanna sjálfi, og fá að vekja þitt innra með þér smám saman með hverri deilingu. Ef þú vilt fylgast með á samfélagsmiðlum var ég að byrja með nýtt Instagram https://www.instagram.com/sjalfsraekt_med_sigrunu og nýja Facebook síðu https://www.facebook.com/sjalfsraektmedsigrunu
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici