Peyjapúlsinn
Peyjapúlsinn
Þáttur sem fjallar um komandi sveitastjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Áhugamenn um pólitík að afla upplýsinga og jafnvel auka áhuga Vestmannaeyinga á komandi sveitastjórnarkosningum. Peyjapúlsinn; símtöl, slúður og sígó. 🚬
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: podcasters.spotify.com
Autore
Peyjapúlsinn
Categoria
Sito del podcast
Ultimo episodio
19 mag 2026
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
19.þáttur - Lokauppgjörið 19.05.2026 1:29:19
Farið yfir síðustu helgi. Fyrsta upptakan í nýja stúdíóinu, Sunhouse-inu.
18.þáttur - Ungdóms special feat Anna Sif & Emý 11.05.2026 1:48:52
Anna Sif og Emilíana Erla komu til okkar í heimsókn að ræða um líf unga fólksins í Vestmannaeyjum. Hringdum út um allar trissur. Hákon Diskó, Dag og Sunnu Einars, Silla, Elís, Andra Erlings , Ernu Davíðs, Guðbjörgu Erlu, Rebekku, Óla Haralds, Sunnu Daða, Ásdísi Höllu, Guðbjörgu Sól, Stebba Photo, Guðný Rún og Huginn. Frábær þáttur þar sem einblínt er á okkar besta fólk.
17.þáttur - Það sem Vilmar lofar, er staðið við 09.05.2026 3:27:47
Vilmar var búinn að lofa að hringja í alla fimmtíu og fjóra frambjóðendur í sveitastjórnarkosningunum sem eru eftir slétta viku. (Ágúst skallaði vegg við þetta loforð). Við fórum af stað með krefjandi markmið og gerðu okkar allra besta. Við náðum samtali við hátt í 80% frambjóðenda. Fínn þáttur fyrir þau ykkar sem eruð í aðgerð um borð í togara eða í vinnu sem er lengi að líða.
16.þáttur - Ríða, drepa, giftast 07.05.2026 2:12:56
Mikið hringt og mikið gaman. Farið yfir öll helstu málin og tekin staðan á fólki. Hringt í mikið af fólki. Héðinn Karl, Sonju, Jóní, Halla Páls, Erlend, Jessý, Kjartan Vídó, Anton Björns.
15.þáttur - Puffin Run, Hljómey og pólitík 27.04.2026 1:58:23
Farið yfir Hljómey. Einnig hvað er að gerast í Puffin Run. Landeyjahöfn og Herjólf. Heyrt í stjórnmálafólkinu sem er í eldlínunni. Biðjumst afsökunar að hafa ekki náð í fólk á Eyjalistanum. En tökum tvöfalt næst. (Kom í ljós að þau voru með félagsfund). Mikið af símtölum, Biggi Nielsen, Hannes Haralds, Þórunn Páls, Maggi Braga, Aníta Jó, Jóhann Ingi og Stjáni á Emmunni.
14.þáttur - Eyjagöng og símatími 21.04.2026 1:38:46
Farið yfir allt milli himins og jarðar. Eyjagöng, Herjólf, Landeyjarhöfn, Hljómey og margt fleira. Hringt út um allar trissur. Svo sem í Benna Gull sem er yfir borun á tilraunaholunum. Einnig Halla Páls sem er yfir verkefninu. Heyrt í Pétri Eyjólfs vélstjóra á Herjólfi. Þar sem hann fer yfir stóra mótormálið og stöðuna á Landeyjahöfn. Enduðum síðan á því að fá skúbb frá Gumma í Hljómey um komandi...
13.þáttur - Fallbeygðu mig 29.03.2026 1:18:14
Farið yfir það helsta sem er að gerast. Eitthvað yfir bæjarmálin og rýnt í hvað flokkarnir eru að gera fyrir komandi átök.
12.þáttur - Miðflokkskynning og fullkominn símatími 20.03.2026 1:25:20
Farið yfir nýkominn lista Miðflokksins. Hringt í alla oddvita og rukkað um bæjarstjóraefni. Þau sem svöruðu í símann voru, Dísa, Eyþór, Daddi Diskó og Jón Þór.
11.þáttur - Dísa Kjartans í brúnni og prófkjörsrykið að setjast 15.03.2026 1:11:58
Farið yfir nýja Eyjalistann og okkar upplifun af prófkjörskvöldi Sjálfstæðisflokksins. Ætluðum að hringja miklu meira en tæknileg vandamál ollu því að það var ekki hægt. Hringjum tvöfalt meira í næsta þætti.
10.þáttur - Oddvitaslagur Sjálfstæðisflokksins 12.03.2026 1:24:48
Fengum Eyþór Harðarsson og Trausta Hjaltason í sitthvort viðtalið því þeir sækjast báðir eftir oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Léttir ljúfir og kátir. 00:00 - Kynning 02:01 - Eyþór Harðarson 39:01 - Trausti Hjaltason
9.þáttur - Spennuþrungið andrúmsloft? 11.03.2026 1:09:21
Farið yfir stóru málin. Símtal á Theódóru í kjörnefnd D, Eyþór Harðar og Trausta Hjalta um lokadaga prófkjörs D. Einnig bjallað í bæjarstjórann Írisi og spurt út í fréttir dagsins.
8.þáttur - Prófkjörsfundur Sjálfstæðisflokksins 07.03.2026 2:24:40
Við félagarnir skelltum okkur á prófkjörsfund Sjálfstæðismanna. Fórum yfir hvern og einasta frambjóðanda og gáfum einkunn. Hringdum síðan í alla og spjölluðum. Metþáttur, fjórtán manneskjur sem svöruðu í símann.
7.þáttur - Kjaftasöguprófkjörsforleikur og símatími 04.03.2026 1:15:06
Hringt í fullt af fólki. Teknar stöður og farið yfir pælingar um prófkjör. Nánast allir sem svöruðu í þessum þætti. Ótrúlegt flæði og topp þáttur.
6.þáttur - Stefán Einar og vitringarnir tveir 02.03.2026 48:42
Pólitíski gagnrýnandinn Stefán Einar Stefánsson skólar okkur til með greiningu á eyjunni og landinu. Hvernig virka prófkjör og er bæjarstjórinn nokkuð gömul. Öllu svarað í þessum þætti.
5.þáttur - Splittaðu D-inu hvað þetta er spennandi 01.03.2026 53:46
Almennt spjall. Tekinn púlsinn á flokkunum en mesta púðrið fór í komandi prófkjör D. Kúrekar og uppstillinganefnd E stóðu upp úr.
4.Þáttur - Hvernig er að vera í bæjarstjórn? 26.02.2026 50:53
Rætt við Njál Ragnarsson sem var að skila af sér átta árum í bæjarstjórn. Hann er að hætta eftir þetta kjörtímabil og segir frá því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig.
3.þáttur - Kjaftasögur vol.1 24.02.2026 44:41
Rýnt í kjaftasögur sem eru að ganga um bæinn. Heyrt í Ellert framkvæmdastjóra ÍBV með brekkusöng, H-listann og þorrablótið. Kjartan Vídó mætir á línuna, Jóhann Ingi svarar fyrir uppröðunarslúðrið hjá M og svo reyndum við að hringja í Írisi en fengum skilaboð að hún væri á fundi. Nóg að gera við að reka eyjuna, erum með skilning á því.
2.þáttur - Gengið á inneignina 23.02.2026 44:57
Í þessum þætti tökum við upp tólið og hringjum í fólk sem tengist flokkunum. Fyrst hringjum við í Guðna Hjörleifsson frá Miðflokknum. Síðan er það Eyjalistinn, Erlingur Guðbjörnsson og Arna Huld Sigurðardóttir. Bjarni Ólafur Guðmundsson frá Sjálfstæðisflokknum og svo náðum við í Pál Magnsússon, Fyrir Heimaey.
1. þáttur - Hvað er að ske? 23.02.2026 41:37
Flokkar í Vestmannaeyjum eru að púsla saman listum. Sumir með uppröðun og aðrir prófkjör. Ræddar kaffikjaftasögur og hvaða fólk er búið að gefa sig þessu óeigingjarna starfi.
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici