RÚV Hlaðvörp
Gull og grænir skógar
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana. Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hverskyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði - og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: feeds.acast.com
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Hrekkjavaka, uppskerulok og óhugnanlegur gróður 30.10.2026 51:39
Gróðurríkið spilar stórt hlutverk í hrekkjavöku og ýmissi hjátrú og hefðum sem henni tengjast. Í þættinum er hrekkjavaka sett í samhengi við uppskerulok, trúarsiði, Allra heilagra messu, leiki, nornir og galdrajurtir. Rætt er við Vilmund Hansen og Steinar Björgvinsson um alrúnu, gaddepli, eitraðar plöntur af náttskuggaætt, grasker, vofuleg tré eins og alaskasýpris og þallir, sem og kjötætuplöntur...
Miklabraut, Hlíðar og Holt: Einkenni, gróður og brautryðjendur 23.10.2026 54:16
Í þættinum er dvalið við Miklubraut og Hringbraut þar sem linditré og hin sögufræga Hringbrautarrós koma við sögu. Staldrað er við Klambratún og Skaftahlíð þar sem fyrsti landslagsarkitekt landsins, Jón H. Björnsson, átti heima. Rætt er við sérfræðinga um einkenni Hlíða og Holts. Staldrað er við funkish-stíl Norðurmýrar og litið er inn í vel lukkaða garða Búsetaíbúðanna við Einholt, Þverholt og Há...
Hellisgerði: Gróður og saga 16.10.2026 52:02
Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs. Staldrað er við klifurhortensíu og gráösp. Óvænt saga af samskiptum manna og álfa við jaðar garðsins er opinberuð. Viðmælendur: Jónatan Garðarsson, Anton Helgi Jónsson og Steinar Björgvinsson. Hosted on Acast. See...
Gróður og yfirnáttúran í náttúrunni í Hafnarfirði. 09.10.2026 49:42
Í þættinum er ráfað í kringum Hamarinn í Hafnarfirði og staldrað sérstaklega við Brekkugötu og Austurgötu. Rætt er um yfirnáttúru og þær umgengnisreglur og bannhelgi sem hvílir á vissum stöðum á þessu svæði. Í senn er staldrað við álfakonungshöllina sjálfa, svartálfabyggðir, Fríkirkjuna í Hafnarfirði og síðast en ekki síst merkan gróður, eins og Bogsýrenu ‘Mjallhvít’ og gráöspina frægu sem valin v...
Göngutúrar langir og stuttir 02.10.2026 49:25
Í þættinum er fjallað sérstaklega um göngutúra, rölt og labb. Göngutúrar eru skoðaðir sem ferðamáti og lífsstíll – en líka sem hversdagslegt fyrirbæri. Rætt er um áhrif labbs á umhverfi og menningu. Dæmi eru tekin um heimspekinga og rithöfunda sem nýttu sér göngutúra til innblásturs og þekkingarsköpunar en einnig er rætt við fólk sem fer í göngutúra vegna vinnu, til dæmis við fræsöfnun eða söfnun...
Litur í lífið: Haustlaukar, haustlitir og garðhúsið 25.09.2026 51:24
Í þættinum er fjallað um úrval litríkra haustlauka og gróðursetningu þeirra sem fer fram í september og október og jafnvel lengur. Rætt er um mismunandi tegundir haustlauka og eiginlega þeirra. Vikið er að haustlitunum sem skarta sínu fegursta um þessar mundir. Að lokum er kastljósinu bent að garðhúsunum sem hafa sprottið upp að undanförnu, eins konar notaleg gróðurhús í garðinum til að njóta hans...
Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar 18.09.2026 50:15
Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk eins og sögufrægar rósblaðarigningar. Í seinni hluta þáttarins er kastljósinu beint sérstaklega að rósaættinni sem er fjölbreytt og finnst meðal annars í íslensku flórunni. Rætt er um runnamururnar sem skarta sínum oftast...
Rósarækt og hinn harðgerustu yrki fyrir íslenskar aðstæður 11.09.2026 51:58
Í þættinum er fjallað um þá tegund blóma sem hefur heillað okkur mannfólkið hvað mest og lengst – rósir. Rætt er um táknfræðilegt hlutverk þeirra en þó allra mest um rósarækt á Íslandi og þau yrki rósa sem þykja hvað harðgerðust. Slíkar rósir má sjá á umferðartorgum víða og nálægt sjávarsíðunni enda eru margar þeirra vind- og saltþolnar. Minnst er á brautryðjendastarf Jóhanns Pálssonar fyrrverandi...
Ísland á tertíer og ísöld: Gróðurvendingar og nýtt upphaf íslensku flórunnar. 04.09.2026 46:36
Í þættinum er fjallað um gróður á Íslandi á öldunum fyrir ísöld þegar loftlag var hlýrra eða á hinu svokallaða tertíer-tímabili jarðsögunnar. Ýmsar minjar frá þeim tíma sýna að hér á landi uxu á tegundir sem garðeigendur dagsins í dag leitast við að koma á legg. Rætt er um hvaða afleiðingar kólnunin rétt fyrir ísöld hafði og þær breytingar sem verða þegar siglt er inn í kvarter-tímabil jarðsögunna...
Vesturbæjarvíðir, Schierbeck–reynirinn og garðfuglagróður. 18.06.2026 54:17
Í lokaþætti þáttaraðarinnar er fjallað um sögufræg tré en einnig gróður sem garðfuglar geta notið góðs af. Rætt er sérstaklega um hlíðaramal í samhengi við fuglafóðrun en runninn hefur einnig notið vinsælda hjá mönnum. Meginþorri þáttarins fjallar um sögufræ tré en staldrað er við Schierbeck-reyninn sem er silfurreynir og finna má í Fógetagarðinum við Aðalstræti. Þá er einnig rætt um gljámispil se...
Garðurinn, skipulag og limgerðin stór og smá 11.06.2026 55:10
Í þættinum er fjallað um hlutverk og skipulag limgerða. Limgerði hafa lengi verið nýtt til að skipta upp landi, stýra umferð, fela svæði og prýða. Rætt er um limgerði í sögulegu samhengi, völundarhús og svo hinn fallegustu og eftirsóknarverðustu limgerði. Fjallað er um tegundir sem henta í limgerði hér á landi. Í þættinum er einnig rætt um stefnur og strauma úr garðlistasögunni í samhengi við skip...
Gróður gerir meira en að þekja: Ilmur, angan, lykt, áferð og skógarbað 04.06.2026 55:46
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Garðagróður frá Kína: Fjölbreyttar kínverskar plöntur, fræsöfnun Joseph Rock og framtíðarhljómur 28.05.2026 54:41
Í þættinum er haldið í ferðalag til Kína út frá vel þekktum garðagróðri á Íslandi. Kastljósinu er beint sérstaklega að fjölæringum, gulbambus, reynitegundum og runnum frá Kína. Fjallað er um fræsöfnunarleiðangra Joseph Rock sem varði 27 árum í að ferðast um Kína og safna fræjum og gögnum en reynir ‘Joseph Rock’ ber heiti hans. Rætt er um stærsta skógrækta- og uppgræðslurverkefni heims, „The great...
Skjól og ætur garðagróður 21.05.2026 54:11
Í þættinum er fjallað um um skjól, skjólbelti og skjólveggi – en einnig um fjölbreyttar tegundir garðagróðurs sem má leggja sér til munns. Gefin eru ráð varðandi skjólbeltagerð og rætt við sérfræðinga sem þekkja ætan garðagróður það vel að þeir geta tínt upp í sig mismunandi tegundir eftir þörfum. Rætt er um brautryðjendur í útiræktun, flautur úr hvönn, æt sumarblóm, æta fjölæringa svo og runna og...
Jarðsögulegt samhengi plantna: súrefnisbyltingin, viðarvöxtur, blómgun og sveppir 14.05.2026 54:44
Í ellefta þætti af Gulli og grænum skógum er fjallað um tilkomu planta og þróun þeirra í jarðsögulegu samhengi. Fjallað er um ýmis einkenni sem plöntur hafa þróað með sér allt frá súrefnisbyltingunni fyrir meira ein tveimur milljörðum ára. Sérstök áhersla er lögð á þróun plönturíkisins á tímum risaeðlanna en á þeirra tíma kom viðarvöxtur og blómgun til sögunnar. Ljósi er varpað á frumstæðar tegund...
Lyngrósir og brautryðjendastarf Óla í Nátthaga í kjölfar fræsöfnunarleiðangursins 1985 07.05.2026 53:55
Í maímánuði er tilvalið að staldra við krúnudjásnið í garðinum, lyngrósir eða rhododendron. Rætt er við Ólaf Sturlu Njálsson eða Óla í Nátthaga um lyngrósir sem hann hefur ræktað frá ungingsárum. Þá er rætt um brauðryðjendastarf Óla þegar kemur að þeim tegundum sem komust á legg hér á landi eftir stóra fræsöfnunarleiðangurinn til Alaska 1985. Um er að ræða tegundir sem margar þykja vera sjálfsagðu...
Stofuplöntur: umhirða, tengsl og sögulegt samhengi 30.04.2026 52:00
Í þessum níunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um stofuplöntur sem stofustáss, ástríðu, minjagripi, nytjaplöntur og fleira. Rætt er um umhirðu stofuplanta s.s. áburðargjöf og umpottun. Fjallað er um stofuplöntur sem plumma sig á vinnustöðum. Staldrað er sérstaklega við vinsældir kentíapálmans á Viktoríutímabilinu og uppgötvun Wardian-kassas sem gaf kost á að flytja lifandi gróður heimshorna á...
Garðyrkjuskólinn, Bananahúsið og gróður sem gjafir 16.04.2026 52:12
Í þessum áttunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um Garðyrkjuskólann Reykjum, mikilvægi námsins og þær fágætu tegundir sem þar má finna – sérstaklega í Bananahúsinu. Rætt er við núverandi og fyrrverandi nemendur ásamt brautarstjóra garðyrkjubrauta. Vöngum er velt yfir gróðri í formi gjafa með þátttöku Vilmundar Hansens garðyrkju- og þjóðfræðings. Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir...
Gróður frá suðurhveli jarðar, stofugreni og vendingar á Nýja–Sjálandi. 16.04.2026 54:22
Í þættinum er ferðast um suðurhöf í gegnum íslenskan garðagróður sem á heimkynni sín á suðurhveli jarðar – í Argentínu, Síle, Ástralíu og Nýja–Sjálandi. Sérstaklega er fjallað um apahrelli og sneplur. Þá er einnig rætt um stofuplöntuna stofugreni frá Norfolk-eyju sem er að segja má í tísku. Einnig er kafað ofan í nýlegar ákvarðanir Nýsjálendinga um að veita vissum náttúrufyrirbærum þar í landi rét...
Páskahretið 9. apríl 1963 og önnur nýlegri áföll 10.04.2026 52:05
Í þættinum er leitast við að kafa ofan í afleiðingar páskahretsins mikla 9. apríl 1963 sem markar viss kaflaskil í gróðursögu landsins. Í kjölfarið er rætt um nýlegri áföll, eins og til dæmis saltrokið í maí 2023 og afleiðingar þess. Að lokum er kastljósinu beint að hérlendum skógarbrunum og afleiðingum þeirra. Viðmælendur eru Halldór Sverrisson, Steinar Björgvinsson og Guðríður Helgadóttir. Hoste...
Fjölæringar 02.04.2026 55:21
Í þættinum er rætt um fjölæringa sem gefið hafa góða raun. Dalaliljan (liljur vallarins) og þistill eru skoðuð sérstaklega út frá táknrænu og kristnu samhengi. Rætt er um fjölæringa út frá ýmsum eiginleikum þeirra, svo sem þekjandi fjölæringa, harðgerða, freka og eitraða – en einnig fjölæringa sem hafa gefið upp öndina í harðindum og er sárt saknað. Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Eva...
Vorblómgun: Páskaliljur, býflugur, töfratré og kúrileyjakirsi 26.03.2026 55:55
Í þessum þætti er fjallað um nokkrar vorblómstrandi tegundir – til að mynda páskaliljur, töfratré og kúrileyjakirsi (rósakirsi – cherry blossom). Nokkrur vorblóm eru skoðaðar út frá hlutverki sínu gagnvart býflugum en einnig eru þær settar í samhengi við ummyndanir Óvíds. Kastljósinu er beint sérstaklega að tegundum sem henta býflugum en eru eitraðar mönnum. Hosted on Acast. See acast.com/pr...
Skógurinn sem samspil og rými - Alþjóðadagur skóga 19.03.2026 50:04
Í þessum þriðja þætti er fjallað um samvinnu mismunandi tegunda í skógum – hvoru tveggja út frá vísindum og ævintýrum. Rætt er um jákvæð skynáhrif og leyndardóma skógarins. Þátturinn stendur í samhengi við Alþjóðadag skóga. Viðmælendur sinna skógarumhirðu, starfa fyrir skógræktarfélög eða við rannsóknir á skógarumhverfinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Sitkagreni, alaskaösp og keðjusögin 13.03.2026 53:36
Í þættinum er rýnt í risaeðlurnar í umhverfi okkar – alaskaaspir og sitkagreni. Rætt er um fellingar á stórum trjám. Þátturinn hverfist þá einnig um keðjusögina og þá sem vinna með slíkt verkfæri. Viðmælendur eru Hallgrímur Jón Hallgrímsson, Steinar Björgvinsson og Guðrún Þóra Jóhannsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Garðurinn og sígrænn gróður 03.03.2026 50:55
Í þættinum er rýnt í garðinn sem vettvang garðyrkjumannsins. Rætt er um heilnæm áhrif garðyrkju. Sérstök áhersla er lögð á sígrænan garðagróður. Viðmælendur eru Steinunn Garðarsdóttir, Steinar Björgvinsson, Sigurður Þórðarson og Sigrún Andrésdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici