Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: fotbolti.net
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Elvar og Tómas hituðu upp fyrir úrslitaleikinn 15.09.2018
Elvar Geir og Tómas Þór tóku veglega upphitun fyrir bikarúrslitaleikinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Stjarnan og Breiðablik mætast og var slegið á þráðinn til aðstoðarþjálfara liðanna. Jón Þór Hauksson og Guðmundur Steinarsson voru á línunni. Hvernig væri sameiginlegt lið hjá þessum tveimur félögum? Þá var spjallað við Kára Ársælsson sem var fyrirliði Breiðabliks þegar liðið varð b...
Miðjan - Óli Stefán fer yfir víðan völl 12.09.2018
Miðjan er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net. Þátturinn fer á fulla ferð í vetur en í hverjum þætti fáum við til okkar góðan gest. Við tökum forskot á sæluna í dag með ítarlegu viðtali við Óla Stefán Flóventsson. Tilkynnt var á dögunum að Óli Stefán muni hætta sem þjálfari Grindvíkinga eftir tímabilið eftir magnaðan árangur undanfarin þrjú ár.
Innkastið - Hrist upp eftir sjokk í landsleikjahléi 11.09.2018
Á að nýta þá landsleiki sem eftir eru á árinu í að hrista upp í landsliðshópnum? Elvar Geir, Magnús Már og Tryggvi Guðmundsson fengu sér sæti eftir 0-3 tapið gegn Belgíu á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland er að fara að falla úr Þjóðadeildinni og rætt var um hvort ekki ætti að nýta þá leiki sem eftir eru á árinu, tvo Þjóðadeildarleiki og tvo vináttulandsleiki, í að yngja upp í liðinu. Einnig var að...
Innkastið - Djúp sár sleikt eftir Sviss og horft til Belgíuleiksins 10.09.2018
Á meðan íslenska landsliðið æfði á Laugardalsvelli í dag spjölluðu Elvar Geir og Magnús Már við Hörð Snævar, ritstjóra 433.is, um landsliðið. Rætt var um hamfarirnar í Sviss og komandi landsleikur gegn Belgíu var til skoðunar. Meðal efnis: Allt fór úr...
Landsliðsumræða frá Sviss - Elvar og Tómas ræða um leikinn 07.09.2018
Á morgun mætast Sviss og Ísland í Þjóðadeildinni en Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson eru staddir í Sviss. Þeir fengu sér sæti á varamannabekk á keppnisvellinum í St. Gallen, þar sem leikurinn fer fram, og spáðu í spilin. Stemningin í Sviss, líklegt byrjunarlið Íslands, úrvalslið leikmanna sem ekki eru í hópnum og ýmislegt fleira.
Innkast frá Austurríki - Jón Daði og Viðar Örn gestir 05.09.2018
Íslenska landsliðið í fótbolta býr sig undir leiki gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni. Liðið er við æfingar í Austurríki, í fögrum fjallabæ sem heitir Schruns, og heldur svo yfir til Sviss á morgun. Elvar Geir Magnússon er í Austurríki og fékk s...
Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi lokabarátta framundan í 2. deild 04.09.2018
Það eru þrjár umferðir eftir í 2. deildinni og spennan mikil. Enn eru fimm lið sem eiga möguleika á að komast upp. Afturelding er í fínum málum eftir sigur á Gróttu í toppslagnum í síðustu umferð en þessi lið verma tvö efstu sætin. Ingólfur Sigurðsson mætti í kaffi til Elvars Geirs Magnússonar og rýnt var í gang mála fyrir lokasprettinn. Í lokin var rætt um 3. deildina þar sem einnig er líf og fjö...
Innkastið - Í misjöfnu skapi inn í landsleikjahlé 03.09.2018
Heil umferð var leikin í enska boltanum um helgina og af því tilefni hlóðu þeir Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon í spánýtt Innkast. Um var að ræða 4. umferðina og vekur athygli að enn eru þrjú lið með fullt hús stiga. Þá var rýnt í dr&aa...
Innkastið - Spennustigið magnast og þjálfarasögum fjölgar 03.09.2018
Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis eru á sínum stað í Innkastinu en þar var 19. umferð Pepsi-deildarinnar skoðuð. Aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildinni og Valsmenn með eins stigs forystu eftir umferðina. Meðal efnis: Engar lausnir finnast í Grafarvoginum, hungur Stjörnunnar eykst, áföll dynja á KA, hugur Guðmanns leitar til Reykjavíkur, flautumark Birkis gæti reynst dýrmætt, þunnskipaðu...
Óskar Hrafn talaði umbúðalaust um íslenska boltann 01.09.2018
Óskar Hrafn Þorvaldsson er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum en hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um íslenska boltann. Óskar er núverandi þjálfari Gróttu og fyrrum íþróttafréttamaður og sérfræðingur Pepsi-markanna, um íslenska fótboltann. Ýmislegt mætti betur fara í íslenska boltanum eins og fram kemur í spjalli hans við Elvar Geir og Magnús Má.
Mikið undir í Pepsi-deildinni - Áhugaverðir leikir framundan 01.09.2018
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hituðu upp fyrir komandi leiki Pepsi-deildarinnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Leikir 19. umferðar voru skoðaðir og Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var á línunni og ræddi um komandi leik gegn FH.
Ástríðan í neðri deildunum - Rosaleg úrslitakeppni í 4. deild 29.08.2018
Úrslitakeppnin í 4. deildinni hefst á laugardaginn þegar flautað verður til leiks í 8-liða úrslitum. Magnús Már Einarsson, Magnús Valur Böðvarsson og Haraldur Árni Hróðmarsson settust niður og fóru yfir riðlakeppnina og viðureignirnar sem eru framundan í úrslitakeppninni.
Innkastið - Geggjaður leikur framundan í Garðabæ 28.08.2018
18. umferð Pepsi-deildar karla er að baki en umferðin var gerð upp í Innkastinu að vanda. Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis voru á sínum stað og hituðu meðal annars upp fyrir stórleik Stjörnunnar og Vals sem verður á miðvikudagskvöld. Meðal efnis: Mikilvægur sigur Fylkis, varnarsinna&e...
Innkastið - Fyrirsjáanleg vandræði á Old Trafford 27.08.2018
Innkastið heilsar með nýjum þætti og var farið yfir 3. umferðina í enska og einnig komið við á Ítalíu. Þættinum stjórnuðu Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon en þeir ræddust við á sitt hvorri eyjunni. Meðal þess sem rætt var í þættinum var ótrúlega dapurt gengi Man Utd, Liverpool vörnin, Arsenal sigur, Watford nær í Evrópu, Son og herskydan, Everton leikir bjóða upp á fjör, hanskinn tekinn...
Landsliðsvalið og meðalaldur íslenskra liða 25.08.2018
Hér má nálgast upptöku úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um fyrsta landsliðshóp Erik Hamren, hópinn sem valinn var fyrir leiki gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni. Þá sagði Tómas frá útreikningi sínum á meðalaldri liða á Íslandsmótinu í fótbolta.
Ólafur Ingi heimsótti útvarpsþáttinn 25.08.2018
Reynsluboltinn Ólafur Ingi Skúlason var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Ólafur er kominn heim eftir atvinnumennskuna og spilar með Fylki. i Hann hjálpar uppeldisfélagi sínu að forðast fall úr Pepsi-deildinni. Ólafur á 36 landsleiki fyrir Ísland og var í hópnum á HM í Rússlandi. Hér má nálgast upptöku af spjalli Elvars og Tómasar við Ólaf.
Inkasso umræða - Hitað upp fyrir lokasprettinn með Láka 25.08.2018
Fjórar umferðir eru eftir af Inkasso-deildinni og hörð barátta framundan á lokasprettinum. ÍA og HK eru í fínum málum á toppi deildarinnar og líklegast að þessi lið fari upp. Spenna er í fallbaráttunni en Selfoss og Magni sitja í fallsætunum. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Þorlák Árnason um lokasprettinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
Innkastið - Toppliðin sameinuð og Finni fær afsökunarbeiðni 21.08.2018
Það vantaði ekki umræðupunktana eftir 17. umferð Pepsi-deildarinnar. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis fóru yfir málin. Magnús og Gunnar leystu heimaverkefni sín. Þeir settu saman úrvalslið úr leikmannahópum þriggja efstu liða deildarinnar. Meðal umræðuefna: Toppframmi...
Innkastið - Mourinho mæða og titilvonir Liverpool 21.08.2018
Í fyrra Innkasti dagsins er enski boltinn í aðalhlutverki en einnig er rætt um helstu tíðindi frá Spáni og Ítalíu. Elvar Geir, Magnús Már og Egill Sigfússon, starfsmenn Fótbolta.net, fóru yfir 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og ræddu helstu mál. Meðal efnis: Erfitt að finna veikan blett á Liverpool, Mourinho með miðverði í B-flokki, Murray æfði sig á Tenerife, Kante fær meira frjálsræði, erfið...
Leiðin út - Orri Sigurður Ómarsson 20.08.2018
Leiðin út er hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku. Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis? Viðmælandi þáttarins er Orri Sigurður Ómarsson. Orri Sigurður ræðir leiðina út og fyrstu skrefin, yngri landsliðin og hvernig var að koma aftur til Íslands...
Hitað upp fyrir 17. umferð - Sérstaklega toppslaginn 18.08.2018
17. umferð Pepsi-deildarinnar er leikin á næstu þremur dögum. Hitað var upp fyrir umferðina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Sérstaklega var hitað upp fyrir leik Breiðabliks og Vals, toppslaginn, sem verður á mánudagskvöld. Elvar Geir ræddi við Benedikt Bóas, stu...
Ítalski boltinn byrjar að rúlla - Við hverju má búast? 18.08.2018
Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, birti sína spá fyrir komandi tímabil á Twitter nýlega. Þá spá má sjá hér að neðan. Hann ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977, um tímabilið á Ítalíu á fyrsta leikdegi hennar. 1. Juventus 2. Inter 3. Roma 4. Napoli 5. Lazio 6. AC Milan 7. Fiorentina 8. Atalanta 9. Sampdoria 10. Torino 11. Sassuolo 12. Udines...
Gestir úr Garðabænum - Alex og Gaui Bald mættu í útvarpið 18.08.2018
Stjarnan er komin í úrslit Mjólkurbikarsins og er í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Tveir leikmenn liðsins, miðjumaðurinn ungi Alex Þór Hauksson og sóknarmaðurinn skæði Guðjón Baldvinsson, mættu í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Þeir spjölluðu við Benedikt Bóas og Elvar Geir.
Vængjum þöndum - Bjössi Hreiðars í Evrópuspjalli 15.08.2018
Á fimmtudagskvöld leikur Valur seinni leik sinn gegn Sheriff frá Moldavíu í forkeppni Evrópudeildarinnar. Sheriff vann nauman 1-0 sigur í fyrri leiknum og má búast við hörkuspennu á Hlíðarenda. Fótbolti.net varpar hér fram upphitun fyrir komandi leik. Benedikt Bóas Hinriksson, blaðað...
Innkastið - Þriggja hesta kapphlaupið og val á þeim besta í hverju liði 14.08.2018
Sextánda umferð Pepsi-deildarinnar er að baki. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson skoða meðal annars hver hefur verið bestur í hverju liði deildarinnar og hver mestu vonbrigðin það sem af er móti. Meðal efnis: Kristinn Ingi minnir á sig, Viktor heldur Elfari á bekknum, Víkingar með sjálfseyðingarhvöt, erfið fæðing Stjörnunnar, staða Óla Kristjáns hjá FH, Kristján Guðmun...
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici