Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2954 episodi

Podcastþættir Fótbolta.net

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: fotbolti.net

Autore

Fotbolti.net

Categoria

Sports

Sito del podcast

fotbolti.net

Ultimo episodio

25 nov 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android 10 mln+ di download · valutazione 4,7+ iOS in arrivo

Episodi

Miðjan - Gummi og Ingó með bolta og tónlistarpælingar 28.11.2018

Bræðurnir Ingólfur og Guðmundur Þórarinssynir hafa vakið athygli á fótboltavellinum í gegnum tíðina sem og fyrir hæfileika á tónlistarsviðinu. Í Miðju dagsins eru þeir í löngu og stórskemmtilegu spjalli um fótboltann og tónlistina. Farið er yfir víðan völl og margar áhugaverðar og fyndnar sögur koma upp úr pokahorninu.

Heimavöllurinn - Landsliðið okkar 27.11.2018

Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir leikmenn landsliðsins með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur þjálfara ÍA og Lilju Dögg Valþórsdóttur leikmanni KR. Í þættinum ræða þær meðal annars fyrsta æfingahóp Jón Þórs en æfing...

Innkastið - Grasið er ekki grænna á Old Trafford 26.11.2018

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz snúa aftur með Evrópu-Innkast og nóg var að ræða! Í þættinum: Hitað upp fyrir Pub Quiz, áfall fyrir Suður-Amerískan fótbolta, Pochettino og Manchester Untied, Aron frakki á Gylfa, bakverðirnir vopn Liverpool, Özil og Emery, rautt fyrir d&ya...

Útvarpsþátturinn - Landsliðsárið 2018 gert upp 24.11.2018

Landsliðsárið 2018 var gert upp í útvarpsþættinum á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir hæðir og of margar lægðir. Fer Hamren inn í undankeppni EM í heitu sæti? Hver er landsliðsmaður ársins 2018? Hverjir þurfa að girða sig í brók? Gæti fótboltamaður orðið íþróttamaður ársins? Hvernig er draumariðill okkar fyrir undankeppni EM? Þessar spurningar og fleiri koma við sögu í þættinum.

Miðjan: Siggi Hlö og Jói Skúli ræða allt tengt Manchester United 21.11.2018

Það hefur ýmislegt gengið á hjá Manchester United á þessu tímabili en gengi liðsins hefur verið undir væntingum. <a href="https://twitter.com/SiggiHlo" target="_blank">Siggi Hlö</a> og <a href="https://twitter.com/joiskuli10" target="_blank">Jóhann Skúli...

Innkast frá Belgíu - Freysi fer yfir strembið landsliðshaust 18.11.2018

Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari notaði 45 mínútur af afmælisdeginum sínum í að fara yfir landslðsmálin með Elvari Geir Magnússyni. Það hefur verið í nægu að snúast síðan Freyr og Erik Hamren tóku við. Úrslitin hafa ekki verið að óskum en Freyr segir að Ísland megi ekki hætta að hugsa stórt og markmiðið sé að komast á EM 2020. Innkastið að þessu sinni var tekið upp á hóteli landsliðsi...

Guðjón Lýðs heimsótti útvarpsþáttinn 17.11.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðjón Pétur Lýðsson, nýjasti leikmaður KA, var gestur þáttarins. Tómas Þór Þórðarson ræddi við hann. Guðjón yfirgaf Valsmenn eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Hlíðarend...

Landsliðsumræða - Tómas Þór ræddi við Kristján Guðmunds 17.11.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson stýrði þættinum og spjallaði við Kristján Guðmundsson um landsleikinn gegn Belgíu í Þjóðadeildinni sem tapaðist 2-0. Farið var yfir helstu umræðupunkta leiksins og hringt t...

Innkast frá Belgíu - Á vængbrotið lið Íslands möguleika? 14.11.2018

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson eru staddir í Brussel þar sem íslenska landsliðið mætir efsta liði heimslistans, Belgíu, í Þjóðadeildinni. Í Innkasti frá Belgíu ræða þeir um líklegt byrjunarlið Íslands, ótrúlega langan meiðslalista, verkefni Hamren, ljótan heimavöll Belgíu, umdeilda Twitter færslu, lukkudýr landsliðsins, ofmetna hluti og fleira.

Innkastið: Spjallað um stórliðin í enska 11.11.2018

Evrópu-Innkastið gerði upp helgina í ensku deildinni og kom svo við í Þýskalandi og á Ítalíu. Daníel Geir og Elvar Geir fóru yfir hlutina eins og þeim er lagið og var farið með Elvar í Ander Herrera leikinn.

Útvarpsþátturinn: Arnar Grétars gestur - Landsliðið og fleira 10.11.2018

Hér má nálgast upptöku af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 10. nóvember. Arnar Grétarsson var gestur í þættinum og var aðalumræðuefnið íslenska landsliðið, hópurinn sem opinberaður var á föstudaginn og komandi leikir gegn Belgíu og Katar. Félagaskipti í íslenska boltanum koma einnig við sögu í upptökunni og þá var Arnar spurður að því af hverju hann væri ekki að þjálfa í dag. Þá var rætt um stö...

Binni Hlö um ævintýralegt ár í Færeyjum 10.11.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Breiðhyltingurinn Brynjar Hlöðversson varð Færeyjarmeistari undir stjórn Heimis Guðjónssonar í sumar. Hann var einn af þremur sem tilnefndir voru sem leikmaður ársins í deildinni. Brynjar spjallaði við Elvar og Tómas um ævint&y...

Heimavöllurinn - Landsliðsmálin í brennidepli 08.11.2018

Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. Í fyrsta þætti var farið yfir keppni í Pepsi-deild kvenna í sumar en í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir landsliðsmál með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur og Lilju Dögg Valþórsdóttur.

Miðjan - Túfa ræðir heraga í Serbíu, bróðurmissi, KA og Grindavík 07.11.2018

Gestur vikunnar í Miðjunni er Srdjan Tufegdzic sem tók á dögunum við liði Grindavíkur eftir þrettán ár hjá KA á Akureyri. Túfa fór yfir víðan völl í spjalli sínu við Magnús Má Einarsson.

Innkastið - Stórleikur, vont VAR og Ofurdeild 04.11.2018

Elvar og Daníel gera upp fótboltahelgina og er af nægu að taka. Meðal efnis: Jafntefli í stórleiknum, flautumörkin gefa og taka, gult fyrir minningarfagn, furðuleg stytta, Íslendingar heitir, Alfreð heitur janúarbiti, Morata vaknaður, Pochettino næsti stjóri Real Madrid, fyrsti sigur Newcastle, Úlfavonbrigði, VAR notað illa, vond hugmynd um Ofurdeild.

Rússagull á Skaganum og Gummi Magg í Eyjum 03.11.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað var um tíðindin af íslenska félagaskiptamarkaðnum, þar á meðal leikmennina sem Skagamenn hafa fengið til sín. Þá var Guðmundur Magnússon á línunni en hann gekk í raðir ÍBV frá Fram. Einnig er rætt við Kristin Björgúlfsson, formann leikmannasamtaka Íslands.

Bjössi Hreiðars ræddi um Val, íslenska boltann og landsliðið 03.11.2018

Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Vals, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um liðið tímabil Valsmanna, leikmannakaup, samkeppnina í Pepsi-deildinni og einnig um íslenska landsliði&eth...

Miðjan - Hvað er í gangi hjá Real Madrid? 31.10.2018

Október 2018 er einhver versti mánuðurinn í glæstri sögu spænska stórveldisins Real Madrid en liðið tapaði 5-1 gegn erkifjendunum í Barcelona um síðustu helgi.

Innkastið - Harmleikur og þjálfaraspark 29.10.2018

Tíðindamikil helgi að baki í boltanum. Manchester City og Liverpool halda áfram að leiðast hönd í hönd á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, harmleikur í Leicester og Evrópumeistararnir spörkuðu stjóranum. Elvar og Daníel fengu félagsskap Halldórs Marteinssonar af raududjoflarnir.is í Innkastinu að þessu sinni. Skoðaðir voru leikir helgarinnar í enska boltanum, Arsenal og Tottenham misstu af stigum en...

Enska hringborðið - Fyrsta fjórðungsuppgjörið 27.10.2018

Toppbaráttan var að sjálfsögðu í aðalhlutverki við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Kristján Atla um fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta lei...

Arnar Gunnlaugs og hans fótboltapælingar 27.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Arnar Gunnlaugsson er tekinn við sem aðalþjálfari Víkings í Reykjavík en hann var gestur þáttarins. Hann ræðir þar sínar hugmyndir um fótbolta, hvað hann vill gera með Víkinga og hvert þjálfarinn Arnar sækir sinn innblástur. Elvar Geir og Benedikt Bóas spjölluðu við hann.

Innkastið - Skautað yfir fótboltahelgina í Evrópu 22.10.2018

Fótboltadeildirnar í Evrópu fóru aftur á fulla ferð um helgina og þeir Elvar og Daníel skoðuðu allt það helsta. Eins og vanalega var enski boltinn í aðahlutverki. Meðal efnis: Lætin á Stamford Bridge, tíu í röð hjá Arsenal, frábær tölfræði Lamela, Shaqiri gerði gæfumun í heppnissigri Liverpool, hörmulegur varnarleikur hjá fokdýru Fulham, Gæði í Everton, stærsta áskorun Benítez, staðnaður Donnarumm...

Miðjan - Nýtt þjálfarateymi kvennalandsliðsins 22.10.2018

Miðjan er að þessu sinni send út frá Laugardalsvelli. Jón Þór Hauksson var í dag kynntur sem nýr þjálfari kvennalandsliðsins en hann tekur við af Frey Alexanderssyni. Aðstoðarmaður Jóns verður Ian Jeffs, fyrrum leikmaður ÍBV og fyrrum þjálfari kvennaliðs ÍBV. Elvar Geir Magnússon fékk sér sæti með Jóni og Ian Jeffs eftir fréttamannafund í dag og við leyfum hlustendum að kynnast þeim tveimur betur...

Hringborðsumræða - Stærstu mál íslenska fótboltans 20.10.2018

Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, heimsótti útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 og var rætt um helstu mál íslenska boltans, innan vallar sem utan. Þórir ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór en meðal umræðuefna var: Viðar Örn...

Jóhann Már um Chelsea - Man Utd: Mourinho fékk ósanngjarnar móttökur 20.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jóhann Már Helgason, sérfræðingur um Chelsea, var á línunni eftir dramatískt 2-2 jafntefli Chelsea og Manchester United. Mikil læti sköpuðust í uppbótartíma leiksins. Í upptökunni er einnig umræða um furðulegan fréttamannafund Bayern München í gær. Jóhann ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um titilvonir Chelsea, Sarri og þeirra helstu leikmenn

Ascolta il podcast Fotbolti.net su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici