Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: fotbolti.net
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Íslenski boltinn - Áhugaverður leikmaður fer norður 08.02.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir tíðindi vikunnar í íslenska boltanum og spjölluðu við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um aðstöðuleysi fyrir norðan og nýjan áhugaverðan leikmann.
Miðjan - Ragna Lóa: Vakna þú mín þyrnirós 05.02.2020
Ragna Lóa Stefánsdóttir hefur komið víða í fótboltaheiminum, var frábær fótboltakona og landsliðskona, lenti í hræðilegum meiðslum en varð síðar footballers wife í Englandi. Í dag er hún aðstoðarþjálfari KR. Hún er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjunni. Meðal efnis: - Engir yngri flokkar en var í hverfisliði með Óla Þórðar og Sigga Jóns - Tók við þjálfun meistaraflokks ÍA tvítug - Þjálfaði La...
Fantabrögð - 25. umferð - Kaup og Salah 03.02.2020
Skelfingarumferð dundi yfir þá sem höfðu bandið ekki á Salah. Agüero gat ekkert. Sterling getur ekkert. Dularfullt mannshvarf í Leicester. Eina sem er öruggt í þessum heimi er að Sheffield heldur hreinu. Stigahæstir í þessari umferð í Budweiser deildinni voru þeir Kristján Breiðfj&...
Innkastið - Draumur að Liverpool tryggi titilinn á Goodison Park 03.02.2020
Það var Liverpool þema í Evrópu Innkastinu að þessu sinni en þeir Sigursteinn Brynjólfsson, Einar Matthías Kristjánsson og Magnús Þór Jónsson frá kop.is kíktu í heimsókn og ræddu við Magnús Má Einarsson. Mikil umræða var um topplið Liverpool og aðra leiki helgarinnar á Englandi auk þess sem kíkt var á stærstu deildir Evrópu.
Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Pepsi Max-deildina 01.02.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór komu með fyrstu ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi Max-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir skoðuðu félagaskiptin í vetur og felldu dóma! Þá völdu þeir þá leikmenn sem þeir eru spenntastir fyrir að fylgjast með á þessu ári.
Í beinni frá Katar - Staða mála hjá Heimi og Aroni 01.02.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas ræddu stuttlega um gervigrasið í Egilshöll og félagaskipti Odion Ighalo til Manchester United. Svo var Mitch Freeley, íþróttafréttamaður beIN SPORTS í Katar á línunni. Illa hefur gengið hjá Al-Arabi, liði Heims Hallgrímssonar og Arons Einars Gunnarssonar, að undanförnu. Hverjar eru væntingarnar hjá Al-Arabi og hvernig er staða Heimis? Mitch sv...
Innkastið - Menn í svörtu sem ofsækja Woodward 29.01.2020
Elvar og Daníel tóku Evrópu-Innkast með frjálsri aðferð. Hverjir eru mennirnir sem réðust að heimili Ed Woodward? Elvar fór ofan í málið. Kobe Bryant minnst, Liverpool á leið í frí, bikardráttur, mestu vonbrigði tímabilsins, kaupin sem gætu átt sér stað og ýmislegt fleira í þættinum að þessu sinni.
Miðjan - Mikki um endurkomu í þjálfun með Njarðvík 29.01.2020
Mikael Nikuláson hefur vakið athygli í podcastþættinum Dr. Football undanfarin misseri. Hann tók við þjálfun 2. deildar liðs Njarðvíkur í haust eftir 10 ára fjarveru úr þjálfun. Hann er gestur í podcastþættinum Miðjunni þessa vikuna. Meðal efnis: - Hætti í fótbolta í fjögur ár til að djamma og vinna í tískubransanum - Stoltur af endurkomu í frábært Fylkis lið - Útihlaupin hjá Óla Þórðar - Fyrstu á...
Útvarpsþátturinn - Tveir mánuðir í umspilsleikinn 25.01.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 25. janúar. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu um íslenska landsliðið, nú þegar tveir mánuðir eru í undanúrslitaleikinn gegn Rúmeníu í umspilinu fyrir EM. Þeir ræddu ítarleg...
Fantabrögð - 24. umferð - Manísk umferð 24.01.2020
Það var sannkölluð jarðarfararstemning í upptökuverinu í kvöld. Bragðarefirnir kröfðust þess að fá umfjöllun um umferðina STRAX. Fyrirliði þáttarins, Gylfi, ræsti Tind með sér sem gestastjórnanda um miðja nótt til að gera upp umferðina. Helst ber þar að nefna ákvörðun margra sem verður rifjuð upp næstu 10 árin, þ.e. að gefa Sadio Mané þrefalt fyrirliðaband. Mané. Vardy. GT. Allir þessir háklassa s...
Miðjan - Davíð Smári um Kórdrengjaævintýrið 22.01.2020
Davíð Smári Lamude, er gestur í hlaðvarpsþættinum Miðjunni að þessu sinni. Hann er þjálfari Kórdrengja sem hafa spilað 3 ár í deildarkeppni hér á landi og hafa farið upp um deild síðustu 2 ár. Þeir spila því í 2. deildinni í sumar. Meðal efnis: - Yfirlýsing um að vinna 2. deildina í haust - Afhverju hætti Ingvar Kale - Hver verður í markinu í sumar - Hvernig er félagið fjármagnað - Þurftu að neita...
Fantabrögð - 23. umferð - Upphitun fyrir tvöfalda umferð 20.01.2020
Laugardagurinn í 23. umferð var ekkert minna en hræðilegur. Þrátt fyrir að átta leikir væru á dagskrá ströggluðu Fantasy spilarar við að ná tveggja stafa tölu - ekki fyrir einstaka leikmenn heldur fyrir allt liðið í heild. Liverpool bjargaði því sem bjargað varð en meira var það ekki. En við horfum björtum augum til framtíðar þar sem næsta umferð hefst strax á morgun! Næst á dagskrá er 24. umferði...
Innkastið - Himinn og haf á milli á Anfield og stjórar á barnum 19.01.2020
Strax eftir sigur Liverpool gegn Manchester United ýttu Daníel og Elvar á upptöku og fóru yfir leikinn. Daníel gaf leikmönnum Liverpool einkunn og Elvar sá um að dæma gestina. Farið var yfir aðra leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og einnig var fjallað um Balotelli, Haaland og fleira. Í lokin var...
Atli Sveinn tekinn við stýrinu í Árbænum 18.01.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Atli Sveinn Þórarinsson var gestur hjá Elvari og Tómasi. Atli var ráðinn aðalþjálfari Fylkis eftir síðasta tímabils og starfar hann við hlið Ólafs Stígssonar. Í viðtalinu ræðir Atli um komandi tíma...
Íslenski boltinn - Stór yfirlýsing frá Víkingi 18.01.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas fóru yfir allt það helsta sem er að frétta úr íslenska fótboltanum. Góðar fréttir fyrir Blika en vondar fyrir KR-inga sem misstu tvo leikmenn í langtímameiðsli. Þá var Hafliði Breiðfjör&e...
Enski boltinn - Liverpool 2020 gegn Man Utd 2008 18.01.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um helgina í enska boltanum og báru núverandi lið Liverpool saman við Manchester United 2008. Liverpool og Manchester United eigast við í stórleik helgarinnar.
Fantabrögð - 22. Umferð - Danny Kings! 14.01.2020
Manchester City rifjuðu upp gamla takta og rassskelltu Aston Villa 6-1 þar sem Agüero fékk 20 stig, Mahrez 17 og KDB 9. Rashford var tekinn útaf eftir 58 mínútur gegn Norwich sem kom þó ekki að sök þar sem hann skoraði tvennu. Liverpool heldur áfram að sigra og Aubameyang kominn í 3 leikja bann. En hvaða breytingar á að gera? Á að selja Traore? Eða Vardy? Kaupa Firmino? Er hann þriðji Liverpool ma...
Innkastið - City á besta deginum betra en Liverpool? 12.01.2020
Elvar Geir og Daníel fara yfir málin í fyrsta Evrópu-Innkasti ársins 2020. Farið er yfir leiki umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni og fréttir Evrópuboltans eru einnig skoðaðar. Meðal efnis: Bras á Mourinho, Liverpool setur met, City tekur annað sætið, sjálfstraust Rashford, Hudson-Odoi sýnir sínar réttu hliðar, rautt á besta leikmann Arsenal, markvarðamistök, vanmetinn stjóri Southampton, Xavi o...
Vandamál Everton - Er tíma Gylfa hjá félaginu að ljúka? 11.01.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Blaðamaðurinn Þórður Snær Júlíusson er stuðningsmaður Everton og er gríðarlega vel að sér í málefnum félagsins. Hann ræddi um Everton í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem meðal annars var farið yfir stöðu Gylfa.
Höskuldur um bróðurmissinn, Blika og landsliðið 11.01.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Höskuldur Gunnlaugsson kom í heimsókn rétt áður en hann þaut á Keflavíkurflugvöll þar sem hann er að fara í janúarverkefni landsliðsins. Hann ræddi meðal annars um mark sitt gegn ÍA á síðasta tímabili sem hann skoraði daginn eftir að hann missti bróður sinn. Einnig ræðir hann um Breiðablik og Halmstad en í viðtalinu staðfestir hann að allar líkur séu á því a...
Íslenski boltinn - Staða FH, þjóðarleikvangurinn og leikmenn á flakki 11.01.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir úr íslenska boltanum, ræddu um íslenska leikmenn sem eru að skipta um lið, vondar fréttir af Laugardalsvelli og fleira. Valdimar Svavarsson, formaður FH, var í símaviðtali. Hann va...
Fantabrögð - Fyrsta umferðin á nýju ári 05.01.2020
GT er snúinn aftur úr Asíureisu og hann og Aron gerðu upp 21. umferðina í Fantasy, sem fór fram 1. og 2. janúar. Jamie Vardy var enn frá og fyrirliðaval tók óvænta stefnu hjá mörgum, en umferðinni lauk með góðri frammistöðu frá Liverpool gegn Sheffield United. David Moyes byrjaði frábærlega hjá West Ham og Arsenal sigraði Manchester United í stórleik umferðarinnar. Strákarnir spáðu í spilin fyrir...
Íslenski boltinn - Fjör á Fásksrúðsfirði og leikmenn vilja lengja 04.01.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Brynjar Skúlason, þjálfari Leiknis á Fáskrúðsfirði, var á línunni. Brynjar ræddi um öflugan árangur Fáskrúðsfirðinga á liðnu ári en liðið komst óvænt upp í 1. deildina, &t...
Enska hringborðið - Spenna um alla deild nema á toppnum 04.01.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fengu til sín sérfræðinginn Kristján Atla Ragnarsson, stuðingsmann Liverpool. Rætt var um gang mála í enska boltanum. Meðal umrðuefna: Yfirburðir Liverpool, kröfur Pep Guardiola, þróun Manche...
Fantabrögð - Jólaþáttur - Aron Þrándar ræðir Trent og bomburnar 30.12.2019
Það kom að því. Liverpool bakvarðabomban sem allir höfðu beðið eftir mætti á svæðið. Trent Alexander-Arnold setti hvorki meira né minna en 24 stig í Fantasy á annan í jólum og bjargaði 19. umferðinni fyrir ansi mörgum leikmönnum. Einn af þeim var Aron Elís &T...
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici