Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2954 episodi

Podcastþættir Fótbolta.net

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: fotbolti.net

Autore

Fotbolti.net

Categoria

Sports

Sito del podcast

fotbolti.net

Ultimo episodio

25 nov 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android 10 mln+ di download · valutazione 4,7+ iOS in arrivo

Episodi

Enski boltinn - Liverpool vaknar og Barcelona í dulargervi 06.04.2021

Boltinn byrjaði að rúlla á ný í ensku úrvalsdeildinni um helgina eftir landsleikjahlé. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Hlynur Valsson, lýsandi hjá Símanum, fóru yfir stöðu mála. Meðal efnis: Eins og í tölvuleik, WBA eins og Barcelona í dulargervi, reynir á andlegu hliðina hjá Chelsea, Jorginho markahæstur, Liverpool réttir úr kútnum, Trent brjálaður, Arsenal gátu ekkert, misheppnuð...

Ungstirnin - Uppgjör á riðlakeppni EM U21 05.04.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum átjánda þætti gera þeir upp riðlakeppni Evrópumóts U21 landsliða. Gleðilega páska!

Útvarpsþátturinn - Láki um landsliðið, Addi Grétars og Birkir Már 03.04.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hringdu til Hong Kong í Þorlák Árnason yfirmann knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong til að ræða framtíð íslenska landsliðsins, Arnar Grétarsson talaði um KA og fótboltann &iac...

Innkastið - Hverjir spila í september? 31.03.2021

A landslið Íslands náði í fyrsta sigurinn í undankeppni HM í kvöld. Ísland vann Liechtenstein örugglega 4-1 á útivelli. Framundan eru fimm heimaleikir í röð í undankeppninni í haust og þar kemur betur í ljós hvort Ísland geti blandað sér í baráttuna um að komast á HM í Katar. U21 landslið Íslands tapaði 2-0 gegn Frökkum í dag og endaði án stiga á EM í Ungverajalandi. Tómas Þór Þórðarson, Gunnar Bi...

Fantabrögð - Marserað inn í (a)prílmánuð 31.03.2021

Aron, Gunni og Gylfi fóru yfir stöðu mála í Fantasy leiknum. Landsleikjahléð er að klárast og nú hefst lokaspretturinn í deildinni. Leikjaprógrammið sveiflast hjá nokkrum liðum. Hvernig kemur Liverpool undan pásunni? Og fyrir þá sem hafa upp á lítið að keppa, hvernig er...

Innkastið - Tankurinn að tæmast 28.03.2021

Svartur sunnudagur í íslenska boltanum. U21 landsliðið og A-landsliðið eru samtals með 0 stig. Slæmt tap gegn Armeníu, áttum ekkert skilið, trúin ekki til staðar, kallað eftir kynslóðaskiptum. Er vonin úti? Getur gamla bandið komið okkur til Katar? Einnig er rætt um U21 landsliðið. Augl...

Útvarpsþátturinn - Landsliðin beint í æð og staðan á íslenska boltanum 27.03.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. mars. Elvar Geir og Tómas Þór voru á sínum stað og landsliðin voru í brennidepli. Tómas Ingi Tómasson var á línunni þegar farið var yfir síðustu leiki U21 landsliðins og A-landsliðsins. Rýnt var í næstu leiki. Hringt var til Armeníu þar sem Hafliði Breiðfjörð fylgir A-landsliðinu og til Ungverjalands þar sem Sæbjörn Steinke fylgist með U21-land...

Heimavöllurinn - Ótímabær spá fyrir neðri deildirnar 2021 26.03.2021

Í síðustu viku opinberaði Heimavöllurinn ótímabæra spá sína fyrir Pepsi Max-deildina og nú er komið að því að spá fyrir um neðri deildirnar. Sparkspekingurinn Baldvin Már Borgarson mætir í sett og spáir í Lengjudeildina og 2. deild ásamt Heimavallarstýrum, þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Fastir liðir eins og Dominos-spurningin, Hekla þáttarins og Símasnilldin eru að sjálfsögðu á sínum stað...

Innkastið - 1-7 tapdagur Íslands 25.03.2021

Tvöfaldur tapdagur hjá íslenska landsliðinu í dag. U21 landsliðið tapaði sannfærandi fyrir Rússlandi í fyrsta leik sínum á EM og A-landsliðið átti ekki möguleika gegn Þýskalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni HM. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, fengu Harald Árna Hróðmarsson, þjálfara hjá Val, til að fara yfir landsleikjadaginn. Rætt er um frammistöðu leikm...

Ungstirnin - EM U21 upphitunarþátturinn 24.03.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Þessi þáttur er upphitun fyrir EM U-21 árs. Í þessum sautjánda þætti er farið ítarlega yfir öll sextán liðin sem taka þátt í riðlakeppni EM U-21 árs sem fer fram í Ungverjalandi og Slóveníu 24. mars...

Enski boltinn - Spurs, landsleikir og draumalið 23.03.2021

Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn." Þeir ræddu gengi Tottenham, leiki helgarinnar, landsleikina framundan og tóku þátt í leik þar sem þeir stilltu upp draumaliðum sínum í ensku úrvalsdeildinni með ákveðnum reglum. Meðal efnis: Ófyrirgefanlegt í Zagreb, endurnýjun hjá Tottenham, Mourinho endar ofar en Tu...

Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og Arnar Viðars 20.03.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks gestur. Rætt er við hann um þróun mála hjá Blikaliðinu síðan hann tók við stj&oac...

Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Pepsi Max 2021 19.03.2021

Það er komið að ótímabærri spá fyrir Pepsi Max-deild kvenna 2021. Í þetta skiptið fengu þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir góða gesti til að fara yfir málin með sér enda ekki nema 47 dagar í fyrsta leik. Gestaspákonur þáttarins eru þær Aníta Lísa Svansdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir sem þekkja deildina út og inn. Auk spánnar verða að sjálfsögðu fastir liðir í boði Bílaumboðsins Heklu, Símans...

Fantabrögð - Fjögurra leikja fjör 17.03.2021

28. umferðin var heldur döpur í Fantasy Premier League. 5 vinsælustu fyrirliðarnir klikkuðu allir og meðalstigafjöldinn var einungis 43 stig. Aron og Gunni mættu í stúdíóið aðallega til að skoða hina fátæklegu umferð 29 og hvað skal gera í henni. Á að wildcarda? Free Hita...

Innkastið - Landsliðsveisla framundan: Hverjir byrja? 17.03.2021

Búið er að opinbera landsliðshópinn fyrir komandi leiki í undankeppni HM. Vegna ástandsins er þó enn talsverð óvissa og lykilmenn gætu verið fjarri góðu gamni gegn Þýskalandi. Arnar Þór Viðarsson treystir á gamla bandið en U21 landsliðið leikur í lokakeppni EM í sama landsleikjaglugga. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már ræddu um komandi landsleikjaglugga. Hvernig verður byrjunarliðið og hvaða væn...

Ungstirnin - U21 hópurinn og heimsókn úr Garðabæ 17.03.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fotbolti.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sextánda þætti er fjallað um Pierre Kalu...

Enski boltinn - Bielsa er maður fólksins í Leeds 15.03.2021

Það var sannkallað Leeds þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.

Útvarpsþátturinn - Gluggadómar og enskt hringborð 14.03.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins er félagaskiptaglugginn á Íslandi skoðaður. Hvaða einkunnir fá félögin í Pepsi Max-deildinni fyrir leikmannahræringar sínar? Í seinni hlutanum kemur Kristj&aac...

Heimavöllurinn: Bríet Bragadóttir: Ekki hægt að skulda í dómgæslu 12.03.2021

FIFA-dómarinn Bríet Bragadóttir er gestur Heimavallarins að þessu sinni. Bríet ræðir um dómarastarfið við þær Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur en rödd dómara heyrist afar sjaldan í fjölmiðlum. Bríet gefur áhugaverða innsýn í þetta vanmetna en gríðarlega mikilvæga starf. Fastir liðir eins og Símasnilldin, Dominos spurningin og Hekla þáttarins eru svo að sjálfsögðu til staðar í boði bestu vina Heim...

Ítalski boltinn - Óásættanlegur Ronaldo, varnarmaður með óróapúls og Eurovision dramatík Zlatans 12.03.2021

Juventus var hent öfugu út úr Meistaradeild Evrópu og mikil umræða er um framtíð Ronaldos hjá félaginu. Chris Smalldini var púslið sem varnarleikur Rómverja vantaði, ekkert fær stöðvað Internazionale og Patric varnarmaður Lazio mælist enn með óróapúls. Ísl...

Fantabrögð - Shaw's hunk redemption 09.03.2021

Fantabrögð skelltu sér í stúíóið á þriðjudegi, þó að leikur Manchester City og Southampton væri enn eftir. Það var enginn glaðari með það en Aron, sem horfði fram hjá tvöfaldri umferð City og setti fyrirliðabandið á Harry Kane. Strákarnir svöruðu spurningum hlustenda, veltu upp spurningunni um Gareth Bale, tóku fyrir Chelsea og Manchester City og róteringar á þeim og völdu fyrirliða í snúinni umfe...

Enski boltinn - Utanríkisráðherra ræðir vandræði Liverpool 08.03.2021

Manchester United vann grannaslaginn gegn Manchester City á meðan Liverpool tapaði sjötta heimaleik sínum í röð í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og stuðningsmaður Liverpool, og Ágúst Reynir Þorsteinsson, eigandi Bombay Bazaar og stuðningsmaður Chelsea, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni. Meðal efnis: Man Utd stöðvaði...

Útvarpsþátturinn - Ótímabær Pepsi Max spá og boltapólitík 06.03.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. mars Í fyrri hlutanum er opinberuð ný ótímabær Pepsi Max-spá. Úlfur Blandon ræðir við Elvar Geir og Tómas Þór um liðin tólf. Í seinni hlutanum kemur Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings og fyrru...

Fantabrögð - Fantabrögð x Davíð Örn Atlason 05.03.2021

Það er óhætt að segja að stærsta umferð tímabilsins hafi ekki staðið undir væntingum. 14 lið áttu tvo leiki en mikið rót var á liðunum og vandasamt verk að hitta á leikmenn sem spiluðu tvo leiki. Því brugðum við á það ráð að fá til okkar góðan gest, Davíð Atlason, en hann er í 3. sæti af Íslendingum í FPL eins og staðan er núna. Við fórum yfir 26. umferðina og skoðuðum aðeins hvað er framundan. Hv...

Enski boltinn - Mögnuð Meistaradeildarbarátta 05.03.2021

Það er skammt stórra högga á milli í ensku úrvalsdeildinni en fjöldi leikja fór fram í vikunni og heil umferð er framundan um helgina. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í hlaðvarpsþáttinn „enski boltinn" og fóru yfir stöðuna hjá sínum liðum sem og öðrum. Meðal efnis: Bragðarefurinn Tuchel, lukkupottur Chelsea, leiðinlegt V...

Ascolta il podcast Fotbolti.net su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici